Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Qupperneq 50
58
A
Tilvera
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
DV
Ferðamannaborgin Dublin:
S
Irar kunna
listina aö
skemmta sér
- kemur á óvart er hvað miðbærinn er lítill og vegalengdir stuttar
Samdrykkja í úthverfi Dublln
Barirnir í Dublin eru misjafnir ogyfir sumum er nánast heimilisleg stemning.
*
Kaffi á Moka
í Dublin er hægt aö
velja á milli margra
fjölþjóðlegra matsölu-
staða sem bjóða upp á
ágætan mat. Við South
William Street 45 er til
dæmis að finna ind-
verska matsölustaðinn
Khyber sem býður frá-
bæra tandoorirétti og
á Shank-veitingahús-
inu í Tempel Bar er
hægt að fá bragðgóða
kartöflusúpu og
kjúklingarétti. Af öðr-
um skemmtilegum
stöðum má nefna kínverska
Irsk tónlist er víöa leikin á götum
Götuleikarar eins og þessir eru algengir í Dublin og
vegfarendur henda giarnan smápeningum í box til
aö sýna velþóknun sína á tónlistinni.
veit-
ingahúsið Furama og spænska stað-
inn La Paloma. Þeir sem vilja gott
kaffi eftir matinn ættu að leita uppi
Café Moka sem er rétt hjá Trinity
Collegs eða Bewleys-kaffihúsin sem
er að finna víöa í borginni. Kaffið á
Bewleys er ekki eins gott og á Café
Moka en innréttingarnar á stöðun-
um eru vel þess virði að skoða
vegna stílleysis.
Tempel Bar-hverfið
Tempel Bar-hverfið liggur sunn-
an við ána Liffey í hjarta borgarinn-
ar. Hverfið er þekkt fyrir listamenn
og hönnuöi sem hafa komið sér þar
fyrir. Þar er einnig að finna fjölda
þara, kaffihúsa, matsölustaða, sýn-
ingarsala, leikhúsa og verslana.
Þeir sem vilja skemmta sér langt
fram á nótt geta einnig fundið glað-
væra næturklúbba sem virðast vera
fullir af fólki öll kvöld vikunnar.
Þeir sem ætla til Dublin að kaupa
föt komast í feitt. Irska pundið er
tiltölulega hagstætt og þar má finna
föt á góðu verði. Kaupglaðir ættu að
gefa sér góöan tima og ráfa á milli
búða því verðiö getur verið mis-
munandi. Verð á skóm er við allra
hæfi og það er lika hægt að fá góða
leðurjakka á hagstæðu verði. Úrval-
ið af karlmannafötum er ótrúlega
mikið og síst minna en af fötum fyr-
ir kvenfólk.
Þegar gengið er í norður frá
Tempel Bar og farið yfir
„Ha'penny" brúna á Liffey er komið
í norðurhluta borgarinnar sem þyk-
ir ekki eins finn og fátækt er þar
meiri. Þar er þó að finna stórar
verslunarmiðstöðvar og líflegt götu-
líf.
DV-MYNDIR V. HANSEN
Templarabarinn
Tempel Bar er einn vinsælasti pöbbinn í Dublin og mikiö sóttur af feröamönnum og innfæddum.
Margt að sjá
Eitt af því sem kemur á óvart í
Dublin er hvað miðbærinn er lítill
og vegalengdir stuttar. Tiltölulega
auðvelt að fara allra sinna ferða
gangandi og flestir eru fljótir að
Með heppnina meö sér
Þessi bingósalur lá inn af einni skranbúöinni noröan viö ána Liffey.
rata í borginni. Þeir sem búa í
Tempel Bar eru örstutt frá öllum
helstu ferðamannastööum og ættu
því að skoða sig um gangandi.
Einnig er hægt að stökkva um borð
í „Hop on - Hop off“-vagnana sem
keyra um borgina. Hringferð með
vögnunum tekur um eina klukku-
stund og fimmtán minútur og er
ekið um alla áhugaverðustu staði
Dublinar með leiðsögn. Þeir sem
hafa áhuga á að skoða náttúrugripa-
safnið, St. Stephens Green, eða rit-
höfundasafnið, geta farið úr vagnin-
um hvernær sem er. Svo hægt að
fara aftur upp í næsta vagn og halda
ferðinni áfram - farmiðinn gildir
allan daginn.
Danny Boy
írar eru stoltir af keltneskum
uppruna sínum og geliska hefur
verið kennd í skólum frá þvi þjóðin
hlaut sjálfstæði 1938. Þeir eru
hljóðfæri sem er. Þeir sem hafa
heyrt tónlist dverganna segja hana
dásamlega fallega og ljóðræna. Rory
Dall O’Cahan, höfundur „Danny
Boy“, sagði að hann hefði heyrt lag-
ið þegar hann var að ganga fram hjá
frægum dvergasteini í norðurhluta
Derry-héraðs. Sagt er að dvergunum
sé mjög annt um tónlistina og hefni
sín grimmilega á hverjum þeim sem
lærir hana og þykist síðan vera höf-
undur hennar.
Ódýrar regnhlífar
Þrátt fyrir mikla úrkomu á ír-
landi ættu allir að geta notið dvalar-
innar, landið er fallegt, fólkið vin-
gjamlegt og menningin fjölbreytt.
Þeir sem ætla til írlands ættu að
muna eftir því að hafa með sér regn-
fatnað og vatnshelda skó. Ef það
gleymist er hægt að fá ódýra regn-
hlíf á næsta götuhorni. Góða
skemmtun. -Kip
Dublin á írlandi er ein vinsælasta
ferðamannaborg Evrópu þessa dag-
ana. Borgin er meira en þúsund ára
gömul og byggðist upphaflega sem
dönsk verslunarborg. Nafnið Dublin
vísar til þess hversu úrkomusamt
er í borginni og þýðir víst upphaf-
lega fúlipyttur eða drullupollur.
Veðrið á írlandi er álika breytilegt
og á Islandi og að meðaltali rignir
140 daga á ári. í Dublin og nágrenni
býr rúmlega ein og hálf milljón
manns og er um helmingur þeirra
undir þrítugu.
íslendingar ættu að kunna vel við
sig í borginni, fólkið er vingjarnlegt
og kurteist og svo virðist sem ís-
lendingar séu vel liðnir. Irar kunna
listina að skemmta sér með áfengi
og á hverju kvöldi fyliast krárnar af
fólki sem drekkur ómælt magn af
Guinness-bjór og talar um daginn
og veginn. Á flestum stöðum sem
túrista sækja er að finna lifandi tón-
list og glaðlegt fólk. Helsti gallinn
við annars skemmtilega tónlist íra
er hversu hátt hún er spiluð. Það er
nánast vonlaust að heyra hvað
nokkur maður er að segja og enda
samtöl oftar en ekki
með því að menn sitja
og kinka kolli hver til
annars án þess að
heyra um hvað er ver-
ið að tala.
Mlchelangelo götunnar
Gangstéttamálarar eru algengir á götum borgarinnar en þurfa aö sæta lagi vegna þess hversu mikiö rignir í Dublin.
einnig óþreytandi að segja frá
páskauppreisninni 1916 en hún
hleypti nýju lífi í sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar.
írskar þjóðsögur eru fullar af sög-
um um draugakastala og hauslausa
drauga sem ríða um sveitir lands-
ins. Dublin Bus Tours bjóða upp á
rúmlega tveggja tíma draugaferð
þar sem meðal annars er farið á
slóðir Bram Stoker, höfundar Dra-
kúla.
Frægustu þjóðsagnaverur Irlands
eru litlir, sóðalegir og skapvondir
dvergar sem nefnast „Leprechaun".
Uppruni dverganna er óþekktur og
þeir eru afskaplega mannfælnir.
Þeir sem eru svo óheppnir að mæta
litlu mönnunum verða að passa sig
mjög vel að móöga þá ekki og þiggja
ekki góðgerðir af þeim. Vitað er um
fólk sem hefur fallið í freistni og
ætlað sér að vingast viö dvergana
en slíkt hefur í öllum tilfellum haft
hörmulegar afleiðingar.
Dvergarnir geta orðið nokkur
hundruð ára gamlir og eru
stálminnugir. Sagt er að þeir hafi
gott tóneyra og geti spilað á hvað