Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Qupperneq 62
70 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 I>V Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson iæli 11. nóvember 85 ára___________________________ k Berglaug Siguröardóttir, w Vesturvegi lOb, Þórshöfn. Elín Sveinsdóttir, Gullsmára 7, Kópavogi. Marta Sveinsdóttir, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík. 80 ára___________________________ Anna Björg Sigurðardóttir, Gunnlaugsstööum, Egilsstöðum. Gísli Bessason, Lindaslðu 2, Akureyri. 75 ára___________________________ Ingimar Ottósson, Vorsabæjarhjáleigu, Selfossi. 70 ára___________________________ - Anna Flygenring, Þorragötu 9, Reykjavík. Bert Martin Hanson, Bergstaöastræti 67, Reykjavík. 60 ára___________________________ Alicja Bukowska, Strandgötu 38, Eskifiröi. Björgvin Skúlason, Ljótunnarstööum, Strandasýslu. Guöbjörg Samúelsdóttir, Langholti 12, Keflavík. Theódóra Þ. Kristinsdóttir, Laufskógum 41, Hveragerði. 50 ára___________________________ Ásgerður Magnúsdóttir, Reynigrund 12, Akranesi. Björn Rúriksson, Nesvegi 107, Seltjarnarnesi. Elsa Karólína Ásgeirsdóttir, Brekkubyggð 16, Garðabæ. Kristín Pálsdóttir, Vesturbergi 102, Reykjavík. Magnhildur Siguröardóttir, Safnasafninu, Akureyri. Stella Bára Hauksdóttir, Goðabraut 21, Dalvík. Unnur Melberg Sigurgisladóttir, Hverfisgötu lOla, Reykjavík. Þórunn Stefánsdóttir, Dalsbyggö 16, Garðabæ. 40 ára___________________________ Auður Gunnarsdóttir, * Öldugötu 22a, Hafnarfirði. Bjarni Ásgeirsson, Akratúni, Mosfellsbæ. Guðbergur ísleifsson, Trönuhjalla 15, Kópavogi. Guðmundur Kristján Kristinsson, Kambaseli 4, Reykjavík. Guðvaröur Brynjar Gunnarsson, Brekkutúni 8, Sauðárkróki. Hafsteinn Garðarsson, Grundargötu 92, Grundarfirði. Helgi Sigurðsson, Ketilsbraut 18, Húsavík. Karl Jón Karlsson, Viðarrima 54, Reykjavlk. Kolfinna Matthíasdóttir, Hellisgötu 17, Hafnarfirði. Kristín Sigríður Óskarsdóttir, Grettisgötu 98, Reykjavík. Pétur Andrés Reynisson, írabakka 6, Reykjavík. Stefán Ómar Jakobsson, Urðarstíg 10, Hafnarfiröi. Valgeröur Jóhanna Gunnarsdóttir, Bæjargili 44, Garöabæ. Elín Rannveig Halldórsdóttir, Hólabergi 12, Reykjavik, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjud. 7.11. Steinunn Svala Ingvadóttir, Borgar- hrauni 12, Grindavík, lést þriöjud. 7.11. á Heilbrigöisstofnun Suöurnesja. Stefanía Þ. Árnadóttir, Ægissíöu 46, Reykjavik, lést á Landspítala, Landakoti, þriðjud. 7.11. Guðmundur Þorsteinsson, áöur bóndi á Syðri-Grund í Svínadal, Hnitbjörgum, r Blönduósi, andaðist á Héraössjúkrahús- inu að kvöldi mánud. 6.11. Sigríöur Kristín Ingjaldsdóttir lést á Elli- heimiiinu Grund miðvikud. 25.10. Jarö- arförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guöbjörg Birkis, áöur Hátúni 8, Reykja- vík, lést miðvikud. 8.11. á Landspítala, Landakoti. Guðrún Maríasdóttir, Digranesvegi 16, Kópavogi, lést miðvikud. 8.11. Fanney Sigurjónsdóttir lést föstud. 27.10. Útförin hefurfariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. / jjrval -gottíhægindastólinn Níræöur Hjörtur Jónsson kaupmaður og fyrrv. formaður Kaupmannasam- takanna Hjörtur Jónsson kaupmaður, Haukanesi 18, Garðabæ, verður ní- ræður á morgun. Starfsferill Hjörtur fæddist í Saurbæ í Vatns- dal í Austur-Húnavatnssýslu og ólst upp í Vatnsdalnum fyrstu fjórtán árin en flutti þá til Reykjavíkur og var i foreldrahúsum meðan hann var i skóla. Hann lauk prófi frá Verzlunarskóla Islands 1929. Að námi loknu hóf Hjörtur skrif- stofustörf hjá Eimskipafélagi ís- lands, vann þar í bókhaldi 1929-42, og var aðalbókari 1943-44, er hann sneri sér að rekstri eigin fyrirtækja. Hjörtur stofnaði verzlunina Olympíu 1938, starfrækti, ásamt eig- inkonu sinni, Lifstykkjaverksmiðj- una Lady, sem hún stofnaði 1937 og rak í fimmtíu ár. Hann var formað- ur og framkvæmdastjóri Uppsala hf., verzlunarhúss sem hann reisti að Laugavegi 26 1958-63 og stofnaði Húsgagnahöllina 1964. Hjörtur var hluthafakjörinn end- urskoðandi Eimskipafélagsins 1945-58, sat í stjórn og fram- kvæmdastjórn Verzlunarráðs ís- lands 1952-59 og 1970-71, sat í skóla- nefnd VÍ 1951-55 og formaður henn- ar 1953-55, sat í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í tuttugu og eitt ár frá stofnun og formaður sjóðsins 1956-77, sat í stjórn Fjárfestingarfé- lags íslands frá stofnun sem fulltrúi Lifeyrissjóðs verzlunarmanna 1971-80, í stjórn Húnvetningafélags- ins og formaður þess 1946, i stjórn Félags vefnaðarvörukaupmanna, í stjóm Kaupmannasamtaka íslands um árabil og formaður þeirra 1970-73, og var þátttakandi í ýmsum öðrum félögum og samtökum. Hjörtur var eindreginn talsmaður frjálsrar verzlunar, athafnafrelsis og óskoraðs kosningaréttar og skrif- aði fjölda greina í dagblöð og tíma- rit um þessi baráttumál. Hann var varaþingmaður Reykvíkinga fyrir Sjálfstæðistlokkinn 1971-74. Hörtur var sæmdur heiðursmerki Kaupmannasamtaka íslands og er heiðursfélagi Húnvetningafélagsins Fjölskylda Hjörtur kvæntist 31.12. 1937 Þór- leifu Sigurðardóttur, f. 8.8.1916, iðn- rekanda. Hún er dóttir Sigurðar Oddssonar, skipstjóra og leiðsögu- manns á dönsku varðskipunum við ísland, og k.h., Herdísar Jónsdóttur húsmóður, er bjuggu við Laugaveg. Synir Hjartar og Þórleifar eru Jón Hjartarson, f. 26.6. 1938, við- skiptafræðingur í Reykjavík, kvæntur Maríu Júlíu Sigurðardótt- ur og eiga þau þrjár dætur; Sigurð- ur Hjartarson, f. 13.12. 1941, fram- kvæmdastjóri í Reykjavík, kvæntur Eddu Sigríði Sigfúsdóttur og eiga þau tvo syni og eina dóttur; Gunnar Hjartarson, f. 4.1. 1946, fram- kvæmdastjóri í Garðabæ, kvæntur Sigríði Baldursdóttur og eiga þau tvær dætur. Hálfsystir Hjartar: Anna Bene- diktsdóttir, f. 25.2. 1898, d. 30.3. 1985, var gift Friðrik H. Lúðvíkssyni, kaupmanni í Reykjavík. Alsystir Hjartar: Helga Jónsdótt- ir, f. 14.6. 1909, d. 31.5. 1981, var gift Árna Steinþórssyni verkstjóra. Kjörsystir Hjartar: Margrét Theo- dóra Frederiksen, f. 1.3. 1917, en hennar maður var Harry Frederik- sen framkvæmdastjóri í Reykjavik. Foreldrar Hjartar voru Jón Hjart- arson, f. 5.3.1879, d. 13.1. 1963, bóndi í Vatndal í sautján ár og síðar al- þingisvörður í Reykjavík, og k.h., Guðrún Friðriksdóttir, f. 28.12. 1874, d. 16.3. 1942, húsfreyja. Þau voru fædd á bökkum Blöndu og voru Húnvetningar í báðar ættir. Hjörtur og Þóra taka á móti gest- um á heimili sínu, Haukanesi 18 í Garðabæ, á morgun, sunnudaginn 12.11., milli kl. 17.00 og 20.00. Fertugur I Fimmtug Oðinn Svan Geirsson verslunarstjóri Bónuss á Akureyri Steinunn Sighvatsdóttir skrifstofustjóri og hárgreiðslumeistari í Njarðvík Óðinn Svan Geirs- son, verslunarstjóri Bónuss á Akureyri, Króksstöðum, Eyja- fjaröarsveit, varð fer- tugur i gær. Starfsferill Óðinn fæddist á Ak- ureyri og ólst þar upp. Hann stundaði nám viö Iðnskólann á Akur- eyri, lauk sveinspróíl í bakaraiðn 1980, stundaði síðar nám við Teknic Skole í Rivgsted í Noregi og útskrifaðist þaðan sem köku- gerðarmaður (kontitor) 1996. Óðinn starfaði í Kristjánsbakaríi og síðan hjá Sveini bakara í Reykja- vík 1984-87, starfrækti bakariið Óð- inn bakari á Isafirði 1987-92, var bú- settur í Noregi 1993-96, flutti til Ak- ureyrar 1997 og var sölustjóri kex- verksmiðju til 2000 er hann hóf störf sem verslunarstjóri Bónuss á Akur- eyri. Óðinn var formaður FUJ á ísa- firði, sat í bæjarstjórn ísafjarðar fyrir Alþýðuflokkinn, var forseti JC þar, sat þar í skólanefnd og situr í flokkstjórn Samfylkingarinnar. Fjölskylda Eiginkona Óðins er Guðrún Alda Erlingsdóttir, f. 24.1. 1965, húsmóðir. Hún er dóttir Erlings Jón- assonar og Jónu Han- sen er búa á Króks- stöðum. Börn Óðins og Guð- rúnar Öldu eru Erling- ur Örn Óðinsson, f. 11.10. 1980, rekstar- stjóri á Kaffl Armi á Akureyri; Björk Óð- insdóttir, f. 8.3. 1988; Óðinn Svan Óðinsson, f. 11.9. 1989; Tinna Óðinsdóttir, f. 3.11. 1994. Systkini Óðins eru Kristrún Inga Geirsdóttir, f. 12.9.1959, búsett á Ak- ureyri; Brynjar Geirsson, f. 20.12. 1961, gröfumaður á Akureyri; Arna Ósk Geirsdóttir, f. 5.6.1963, verslun- armaður á Akureyri; Geir Borgar Geirsson, f. 5.1. 1966, heildsali í Reykjavík. Hálfbróðir Óðins er Gunnar Geirsson, f. 27.7. 1950, fisksali á Ak- ureyri. Foreldrar Óðins eru Geir Örn Ingimarsson, f. 16.2. 1930, fyrrv. bréfberi, og Herborg Káradóttir, f. 14.4. 1942, verslunarmaður. Geir Örn og Herborg voru lengst af búsett á Akureyri en búa nú í Reykjavík. Steinunn Sighvats- dóttir, skrifstofustjóri og hárgreiðslumeist- ari, Tunguvegi 5, Njarðvík, er flmmtug í dag. Starfsferíll Steinunn fæddist í Keflavik. Hún lauk prófum frá Iðnskólan- um í Keflavík 1970 og er hárgreiðslumeistari frá 1979. Steinunn starfaði við hárgreiðslu 1970-89 en stundar nú skrifstofu- störf í eigin fyrirtæki frá 1979. Steinunn sat f stjórn Ungmenna- félags Njarðvíkur 1993-95, í stjórn körfuknattleikdeildar Njarðvíkur 1996-98, og í Lionessuklúbbi Njarð- víkur frá stofnun og til 1995. Steinunn var sæmd starfsviður- kenningu UMFN með Ólafsbikam- um. Fjölskylda Steinunn giftist 11.3. 1972, Gunn- ari Þórarinssyni, f. 11.4. 1949, við- skiptafræðingi. Hann er sonur Þór- arins Jens Óskarssonar, f. 16.3.1915, húsasmíðameistara í Reykjavík, og k.h., Guðlaugar Sæmundsdóttur, f. 6.11. 1921, húsmóður. Böm Steinunnar og Gunnars eru Guðni Þór, f. 4.11. 1971, viö- skiptafræðingur í Reykjavík, en unnusta hans er Guðrún Páls- dóttir hjúkrunarfræð- ingur og eiga þau óskírðan son, f. 28.10. 2000; Sighvatur Ingi, f. 4.11. 1975, viðskipta- fræðingur í Keflavík en unnusta hans er Þóra Kristín Sveinsdóttir og sonur þeirra er Ingi Þór f. 18.8. 2000; Guð- laug Sunna, f. 14.3. 1979, nemi við HÍ. Systkini Steinunnar: Gísli Stein- ar, f. 28.11. 1943, kennari í Reykja- vík; Sigrún, f. 23.3. 1945, skrifstofu- maður í Keflavík; Guðmundur Ómar, f. 30.5. 1958, forstöðumaður íþróttahúsa í Keflavík. Foreldrar Steinunnar: Sighvatur Jón Gislason, f. 16.6. 1920, verka- maður í Keflavík, og Ingveldur Haf- dis Guðmundsdóttir, f. 23.12. 1923, sjúkraliði. Steinunn og Gunnar munu taka á móti gestum í sal VSFK við Hafnar- götu í Keflavík, (Víkinni), laugard. 11.11. nk. kl. 19.00. Fertugur Aðalsteinn Árni Baldursson formaður verkalýðsfélagsins á Húsavík Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur og Al- þýðusambands Norðurlands, Baug- hóli 31b, Húsavík, er fertugur í dag. Starfsferill Aðalsteinn fæddist á Húsavík. Hann lauk gagnfræðaprófl á Húsavík 1977, búfræðiprófi frá Hvanneyri 1979 og hefur sótt fjölda námskeiða sem viðkoma starfl hans að félags- og verkalýðsmálum. Aðalsteinn starfaöi hjá Fiskiðju- samlagi Húsavíkur 1979-91 og hefur starfað hjá Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík frá 1991. Hann tók við for- mennsku í Verkalýðsfélagi Húsavíkur 1994, sat í stjórn Verkalýðsfélags Húsavikur frá 1986, var varaformaður þess, er formaður Alþýðusambands Norðurlands frá 1999, formaður Mat- vælasviðs Starfsgreinasambands ís- lands frá 2000 og situr m.a. í stjórn Lífeyrissjóðs Norðurlands, Fræðslu- miðstöðvar Þingeyinga og Atvinnu- þróunarfélags Þingeyinga. Fjölskylda Aðalsteinn kvæntist 31.12.1992 Elfu Ósk Jónsdóttur, f. 10.10. 1960, starfs- manni hjá Heilbrigðistofnun Þingey- inga. Hún er dóttir Helgu Sæþórsdótt- ur. Börn Aðalsteins: Bald- ur Ingimar Aðalsteins- son, f. 12.2.1980, búsettur á Akranesi; Helga Dögg Aðalsteinsdóttir, f. 30.8. 1985, búsett á Húsavík; Elfar Árni Aðalsteins- son, f. 12.8.1990, á Húsa- vík. Hálfsystkini Aðal- steins, samfeðra: Aðal- steinn Árni, f. 29.12.1933, d. 21.10. 1959; Sigurbirna Halldóra, f. 13.5. 1938, húsmóðir á Siglufirði; Svanhildur Hlin, f. 30.10. 1939, sjúkraliði í Reykjavík; Bjöm Gunnar, f. 28.1.1947, rafvirkjameistari á Húsavík. Alsystkini Aðalsteins: Leifur Vilhelm, f. 28.4. 1950, tónlistar- kennari á Húsavik; Ólafur Ágúst, f. 18.8. 1954, pípu- lagningarmeistari á Akur- eyri; Linda Margrét, f. 7.4. 1966, bankastarfsmaður á Húsavík. Uppeldisbróðir Aðal- steins er Aöalsteinn Ómar Ásgeirsson, f. 3.11. 1958, út- gerðarmaður á ísafirði. Foreldrar Aðalsteins: Baldur Ingimar Ámason, f. 20.12. 1913, d. 19.9. 1984, verkstjóri hjá SR á Húsa- vik, og Líney Margrét Gunnardóttir, f. 28.1. 1925, húsmóðir. Aðalsteinn og Elfa Ósk taka á móti vinum og ættingjum í fundarsal Verkalýðsfélags Húsavíkur i dag kl. 17.00-21.00.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.