Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Síða 72
Dúkkukerrur og
dúkkuvagnar
í miklu úrvali
Sími 567 4151 & 567 4280
Heildverslun með leikföng
og gjafavörur
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Ólgar og kraumar í Þjóðkirkjunni:
„Biskupinn
lítill kall“
- segir séra Flóki í bréfi til 138 presta
„Mikið voðalega er biskupinn
annars lítill kall ef hann þarf að
senda þessa þrjá húskarla sína fram
á sjónarsviðið til að sverta sr. Geir
í þeim tilgangi að það rétti eitthvað
hlut hans sjálfs,“ segir séra Flóki
Kristinsson í bréfi sem hann hefur
sent öllum prestum landsins á Net-
inu en þeir eru 138 talsins. Bréfið
ritar séra Flóki til varnar séra Geir
Waage í Reykholti sem hefur viðrað
þá skoðun sína, í bréfi til presta, að
biskupinn hafi brotið lög á séra
Gunnari Björnssyni er hann var lát-
inn víkja sem sóknarprestur í Holti
í Önundarfirði. Því bréfi svara þrír
prestar á Netinu og egna séra Flóka
til þeirra bréfaskrifa sem fyrr grein-
ir. Fyrirspurn varðandi framgöngu
biskups í máli séra Gunnars fékkst
ekki rædd á Kirkjuþingi og það
sárnar séra Flóka sem telur að bisk-
upinn hafi farið klaufalega að og lát-
ið reka á reiðanum varðandi mál
Séra Róki
Kristinsson
Fjandinn hlaup-
inn í presta eins
og svínin.
Séra Magnús
Erlingsson
Hló þegar
hann fékk
bréfið.
séra Gunnars þar til allt var komið
í óefni: „Biskupinn gerði lengi vel
ekkert í málinu, sinnti þvi bara
ekki eins og honum bar þó skylda
til, lét það bara reka á reiðanum og
úldna þar til dauninn lagði af því
langar leiðir," eins og segir í bréfi
séra Flóka.
„Húskarlar" biskups, eins og séra
Flóki kýs að
nefna andstæð-
inga sína, eru
séra Magnús Er-
lingsson, sóknar-
prestur á ísafirði,
séra Jakob
Hjálmarsson i
Dómkirkjunni og
séra Pétur Þórar-
insson í Laufási.
Um aðgerðir
þeirra segir séra
_____ Flóki í bréfi sínu:
„Er fjandinn
hlaupinn í þessa presta eins og svín-
in forðum?"
Séra Magnús Erlingsson, sóknar-
prestur á ísafirði, segist hafa hlegið
þegar hann fékk bréf séra Flóka og
sé enn hlæjandi, en „... þó bisk-
upinn sé lítill í sentímetrum talið er
hann stór sem persóna,“ sagði séra
Magnús á ísafirði. -EIR
Karl Sigurbjörns-
son biskup
„Lítill í sentímetr-
um en stór sem
persóna. “
Stöð 2:
Karl fréttastjóri
Karl Garðarsson hefur verið
ráðinn fréttastjóri Stöðvar 2 og má
búast við tilkynningu þar um síð-
ar í dag. Karl hefur um alllangt
skeið starfað á
fréttastofu
Stöðvar 2 og
gegnt starfi
fréttastjóra til
móts við Sig-
mund Erni Rún-
arsson að und-
anförnu eftir að
Páll Magnússon
hvarf til annarra
starfa hjá ís-
lenskri erfðagreiningu.
Sigmundur Ernir Rúnarsson
hefur látið að því liggja að hann
muni ekki starfa áfram á frétta-
stofu Stöðvar 2 verði fram hjá hon-
um gengið við stöðuveitinguna,
eða eins og hann sagði í DV á dög-
unum: „Það er nú eða aldrei."
Karl Garðarsson neitaði að tjá
sig um nýja stöðu sína hjá ís-
lenska útvarpsfélaginu seint í gær-
kvöldi en beið tilkynningar stjórn-
ar Stöðvar 2. -EIR
Öldutúnsskóli í Hafnarfirði:
Lögregluþjónar
handtaka mann
grunnskóla
i
Fimm lögreglumenn
komu í Öldutúnsskóla á
fimmtudag og handjárn-
uðu ungan mann á göng-
um grunnskólans. Pilt-
urinn, sem er af grunn-
skólaaldri, hafði verið á
skólalóðinni og á göng-
um skólans í langan tima.
„Hann var sóttur hingað að okkar
beiðni, hann var búinn að vera hérna
innan dyra í skólanum og á lóðinni
lengi í okkar óþökk,“ sagði Viktor
Guðlaugsson, skólastjóri Öldutúns-
skóla. Sögur gengu á milli nemenda
skólans um að lögregla hefði verið
kölfuð til vegna gruns um eiturlyfja-
sölu til unglinganna i skólanum en
Viktor sagðist ekki vita
tilgang veru piltsins í
skólanum.
„Hann var óboðinn
gestur og hefur verið
hér í reykingum á
skólalóðinni, sem við
viljum ekki hafa hér,
enda ætlumst við til þess að skólinn
sé fyrir nemendur og starfsfólk en
ekki utanaðkomandi aðila sem hanga
hér innandyra og á lóðum," sagði
Viktor.
Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði
voru ekki höfð afskipti af piltinum
vegna sölu eiturlyfja en hins vegar
voru höfð afskipti af honum þar sem
hann var að trufla kennslu. -SMK
Öldutúnsskóli í Hafnarfiröi.
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
, DV-MYND HILMAR PÓR
í fínu formi
Islandsmeistarakeppnin í súludansi fór fram i Þórscafé viö Brautarholt í
Reykjavík í gærkvöldi. Þátt tóku íslenskar stúlkur til jafns við aðrar sem af er-
lendu bergi eru brotnar og var hart barist við súluna. Hér sést Guðrún hita
upp fyrir keppnina síðdegis í gær en Guðrún var í fínu formi eins og sjá má.
Litbolti í Kópavogi færir út kvíarnar:
Skotgarður í hraðfrystihús
- barist innanhúss í vetur
Gamla hraðfrystihús Bæjarút-
gerðarinnar við Mýrargötu f
Reykjavík fær nýtt hlutverk innan
skamms ef samningar nást við nú-
verandi eigendur um að húsinu
verði breytt í bardagasvæði fyrir
Litbolta ehf. sem reka skotgarða í
Kópavogi og i Saltvik.
„Við erum með hraðfrystihúsið við
Mýrargötu til skoðunar, svo og nokkra
aðra staði. Þetta skýrist á allra næstu
dögum,“ sagði Eyþór Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Litbolta, og nefndi
skemmu við Boðagranda, aðra niðri á
Granda og þá þriðju við Kópavogshöfh.
Spenntastur er Eyþór þó fyrir hrað-
frystihúsinu við Mýrargötu, sem er
um 2500 fermetrar, með stórum sölum,
ranghölum og kjörið til skotbardaga
innanhúss. Húsið hefur staðið svo til
autt að undanfómu en þar var gerð til-
raun til að reka nýstárlega bilasölu
fyrir nokkrum misserum; tilraun sem
mistókst.
Skotgarður Litbolta við Nýbýlaveg í
Kópavogi er rekinn á bráðabirgðaleyfi
frá sýslumanninum í Kópavogi enda
hafa nágrannar kvartað mikið yfir há-
vaða og óþrifnaði sem fylgir rekstri
garðsins. Umsókn Litbolta um varan-
legt leyfi til rekstursins er til skoðunar
hjá sýslumanni og viðbúið að skot-
garðinum i Kópavogi verði lokað. Þá
stendur eftir skotgarður í Saltvík og
svo sá nýi sem vætanlega verður opn-
aður í hraðfrystihúsinu við Mýrargötu
innnan skamms.
Aðsókn í skotgarða Litbolta hefur
verið með ágætum og eru heimsóknir
þangað orðnar fastur liður í skemmti-
dagskrám fjölmargra starfsmannafé-
laga. -EIR
brotlw P-touch 9400
Stóra merkivélin sem þolir álagið
10 leturgerðir
margar leturstærðir
16 leturstillincjar
prentar í 10 linur
borði 6 til 36 mm
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport