Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2000, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
Fréttir
DV
Erlent fréttaljós
Nýi þjóðaröryggisráðgjafmn segir
íciður sinn hafa orðið repúblikana
árið 1952 vegna þess að demókratar
í Jim Crow í Alabama hafl ekki vilj-
að skrá hann þegar hann ætlaði að
kjósa. Sjálf kveðst hún enn muna
eftir deginum þegar hún hætti að
vera demókrati. Það var skömmu
eftir innrás Sovétrikjanna í
Afganistan 1979. Þremur árum áður
hafði Condoleezza látiö skrá sig sem
demókrata og kosið Jimmy Carter í
forsetakosningum. Henni þóttu við-
brögð Carters við innrásinni í
Afganistan kjánaleg og ekki nógu
hörð. Næsta ár kaus hún Ronald
Reagan í forsetakosningum. Hún er
stálhörð í afstöðu sinni til ýmissa
mála þótt nafn hennar, sem sótt er í
tónlist, merki blíðlega og þótt hún
sé blíð á yfirborði.
Condoleezza var einkadóttir
kennarahjóna. í bemsku var hún í
frönskunámi, hún dansaði ballett og
lærði á píanó. Hún fer enn á hverju
sumri í æfingabúðir fyrir píanóleik-
ara í Montana. Hún dáir Brahms.
í háskólanáml hjá föður
Madeleíne Albright
Þegar Condoleezza var 15 ára hóf
hún nám í háskólanum í Denver
þangaö sem íjölskyldan hafði flutt.
Eiginlega langaði Condoleezzu til að
verða konsertpíanóleikari en hún
gerði sér grein fyrir að hún hefði
ekki næga hæfileika. Unga blökku-
stúlkan leit inn á námskeið hjá Jos-
ef Korbel sem var innflytjandi frá
Tékkóslóvakíu. Korbel, sem er faðir
Madeleine Albright, utanríkisráö-
herra Bandaríkjanna, vakti áhuga
Stúdentar mótmæltu niðurskurði
hennar með hungurverkfalli en hún
lét ekki undan.
Óhrædd við karlana í kvöld-
verðarboðinu
Brent Scowcroft, þjóðaröryggis-
ráðgjafi Geralds Fords Bandaríkja-
forseta, hitti Condoleezzu um miðj-
an níunda áratuginn með vopnaeft-
irlitssérfræðingum við kvöldverö í
Stanfordháskólanum. „Þarna voru
nokkrir mestu heilanna í bransan-
um og i þessum hópi var þessi unga
stúlka. Og hún þorði að tjá sig. Hún
var ekkert bæld vegna aflra sér-
fræðinganna sem voru í kringum
hana. Það sem hún sagði var skyn-
samlegt. Mér þótti ástæða til að
kynnast henni betur,“ sagði
Scowcroft um fyrstu kynni sín af
Condoleezzu. Þegar Scowcroft var
skipaður þjóðaröryggisráðgjafi
Bush eldri var eitt af fyrstu verkum
hans aö hringja í Condi eins og
hann kallar hana. Hún var þá 34
ára.
Á siglingu með Gorbatsjov
Rice aðstoðaði menn Scowcrofts
þegar Austur-Evrópa var að opnast.
Þegar henni var tjáð að hún ætti að
aðstoða við málefni Þýskalands
mótmælti hún og kvaðst fást við
vandamál Sovétríkjanna. „Þýska-
land er sovéska vandamálið okkar,“
var svarið sem hún fékk.
Condoleezza var viðstödd fundi
George Bush, fyrrverandi forseta,
og Mikhails Gorbatsjovs Sovétleið-
toga þegar þeir ruddu brautina fyr-
ir sameiningu þýsku ríkjanna og
lýðræði í Austur-Evrópu. Á leið-
togafundinum, sem haldinn var um
borð í skipi í Miðjarðarhafi 1989,
kynnti Bush hana fyrir Gorbatjsov
með þessum orðum: „Hún segir mér
allt sem ég þarf að vita um Sovétrik-
in.“ Gorbatsjov virtist svolítið undr-
andi en svaraöi svo: „Ég vona að þú
vitir heilmikið."
George W. Bush hefur átt erfitt
með að leyna því að mesti veikleiki
hans er á sviði utanríkismála. En
með aðstoð Rice ætti hann að vera á
grænni grein. Síðastliöna 18 mán-
uði hefur hún stjómað nefnd ráð-
gjafa í utanríkismálum sem matað
hafa Bush og hans menn meö hug-
myndum og upplýsingum um utan-
ríkisstjómmál fyrr og nú.
Eins og heimslögga
Condoleezza aðhyllist festu Reag-
ans í utanríkismálum. Hún gagn-
rýndi samskipti Bills Clintons og
Borísar Jeltsíns Rússlandsforseta.
Hún var andvig fjáraustri Vestur-
landa í hítina í Rússlandi. „Rússar
ættu að finna sér forseta sem ekki
er spifltur," sagði hún um Jeltsín.
Condoleezza gagnrýndi stjórn
Clintons fyrir að hafa lagt of mikið
af mörkum í minni háttar átök. Hún
líkti Bandaríkjunum við heims-
löggu sem þyti af staö um leið og út-
kall kæmi.
Hún segir að Bandaríkin eigi í
staðinn að einbeita sér að raunveru-
legri ógn gegn Bandarikjunum, eins
og einræðisstjórnum, þjóðernis-
stefnunni í Kína og Rússlandi sem
gæti á ný orðið ógnandi stórveldi í
Evrópu.
Þegar Condoleezza lét af starfi
staðgengils rektors Stanfordháskóla
í fyrrasumar fékk hún tilboð um
toppstöður afls staðar að í Banda-
rikjunum. Hún afþakkaði af ótta við
að missa innsýn i utanríkispólítík-
ina.
Byggt á Washington Post,
Reuter o. fl.
Condoleezza Rice var trompið í
kosningabaráttu George W. Bush.
Þau kynntust fyrst almennilega í
sumarhúsi Bushfjölskyldunnar í
Kennenbunkport í Maine fyrir
tveimur og hálfu ári. Bush var þá
farinn að íhuga fyrir alvöru að
bjóða sig fram til forsetakosning-
anna. Condoleezza hafði verið sér-
fræðingur George Bush eldri í
þjóðaröryggismálum í Hvita húsinu
frá 1989 til 1991. Sérsvið hennar
voru Rússland og Evrópa.
Bush yngri og Condoleezza
ræddu utanríkismál um borð í mót-
orbát fjölskyldunnar og þau héldu
áfram umræðum sínum í íþrótta-
herbergi sumarhússins. Þegar sum-
arfríinu var lokið var George Bush
sannfærður um að hann hefði fund-
ið sérfræðinginn sem gæti hjálpað
honum að komast í Hvíta húsið. Nú
hefur hinn verðandi forseti skipað
Condoleezzu þjóðaröryggisráðgjafa
Bandaríkjanna.
Vinkonan lést í sprengjuárás
hvítra á kirkju
Condoleezza, sem er 46 ára, ólst
upp í Birmingham í Alabama á
sjötta áratugnum þegar skilti, sem á
var letrað „Aðeins fyrir hvíta“ gáfu
blökkumönnum í skyn að þeir væru
annars flokks. Ein bernskuvinkona
Condoleezzu var meðal fjögurra
telpna sem létust í sprengjuárás
hvítra aðskilnaðarsinna á kirkju.
Condoleezza hefur greint frá því
að hún hafi ekki getað keypt sér
hamborgara í bænum eins og hvítu
börnin. Faðir hennar hughreysti
hana og sagði að ekkert væri því til
fyrirstöðu að hún gæti orðið forseti
Bandaríkjanna.
SÍOastliöna 18 mánuöi hefur Condoleezza stýrt nefnd sem mataö hefur Bush á hugmyndum og upplýsingum um
utanríkismál.
Nýr þjóöaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna
Condoleezza Rice aðhyllist festu Reagans í utanríkismálum. Hún segir Bandaríkin eiga aö vera á varöbergi gegn
einræðisríkjum og mögulegri ógn frá Rússlandi. Hún vill aö Bandaríkin hætti aö vera heimslögga sem þýtur af staö
um leiö og útkall kemur.
Condoleezzu á utanrikisstjórnmál-
um og einkum málefnum Sovétríkj-
anna. Hún varð lærisveinn Korbels
og lauk doktorsnámi frá háskólan-
um í Denver. Ritgerðin hennar fjall-
aði um samskipti herja
Tékkóslóvakíu og Sovétríkjanna.
Doktorsritgerðin sætti reyndar
harðri gagnrýni sumra. Einn gagn-
rýnendanna sagði Condoleezzu ekki
gera greinarmun á staðreyndum og
áróðri. Hann sagði hana lýsa skoð-
unum sem ekki væru byggöar á
nægilegri þekkingu á staðreyndum.
Condoleezza fékk kennarastöðu
við Stanfordháskólann í Kaliforníu
1981. Hún varð vinsæll kennari og
naut virðingar starfsfélaga sinna.
Hún var 38 ára þegar hún varð stað-
gengill háskólarektors og þurfti að
rétta við slæman efnahag skólans.
Stálhörð stjarna þrátt
fýrir blíðlegt yfirborð