Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2000, Blaðsíða 14
14 __________________________________LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 Helgarblað ______________________________DV í frumskógi jólaboðanna - nokkrar léttar leiðbeiningar Eitt af því leiðinlegasta sem kemur fyrir í jólaboðum er þegar einhver óskaplega hrifinn nýbakaður eigandi kemur með jólagjöfina sína í veisluna og vill endilega sýna öllum hana. Um þessar mundir eru það stafrœnar myndbandstökuvélar sem tröllríða öllum samkomum og stórhœttulegt að sofna í hœgindastól með majones- klessur í skegginu því þá verður til nœrmynd af því, öllum til skemmtunar nema þér. Það er gaman í jólaboðum Jóladagur er sannkallaöur hátíðisdagur í mörgum fjölskyldum á íslandi því þá safnast stórfjölskyldan saman á einum stað, oft á einhverju heimili sem er þungamiöja ættarinnar en í mörgum fjölskyldum tíðkast að uppkom- in systkini skiptist á um aö halda jólaboðiö. Þessi mynd er ekki tekin í jólaboði hjá íslenskri fjölskyldu en þetta er fjölskylda sem hefði fyrir fáum árum verið velkomin í hvaöa jótaboö sem er. Þetta er nefnilega Ewing-fjöl- skyldan í sínu finasta pússi í samkvæmi á Southfork-búgarðinum. að er gaman í jólaboðum. Jóladagur er sannkaUaöur há- tíðisdagur í mörgum fjölskyld- um á íslandi þvi þá safhast stórfjöl- skyldan saman á einum stað, oft á ein- hverju heimili sem er þungamiðja ætt- arinnar en í mörgum fjölskyldum tíðkast að uppkomin systkini skiptist á um að halda jólaboðið. Stundum er þetta eina skiptið á árinu sem allir ár- hringir ættartrésins safnast saman á einn og sama staðinn. Einstakir báikar fjölskyldunnar hafa ef til vill meiri samskipti en aðrir og því geta sam- skiptin í jólaboðinu verið allt frá því að vera innileg og afslöppuð yfir í að vera þvinguð, jákvæð og yfirborðs- kennd. Þeir sem hafa mætt árum saman í sama jólaboðið með sama fólkinu eru orðnir vanir en nýliðar geta misstigið sig á svelli samskiptanna og þá er oft verr af stað farið en heima setið. í myrkviðum ókunnra íjölskyldna geta sem hægast leynst tígrisdýr. Lítum að- eins nánar á nokkur atriði sem varða jólaboð og það sem sækjast skal eftir og hvað skal varast. Hver á að ráða? Valdajafnvægi er hugtak sem flest gift fólk skilur. Það er til í ýmsum út- gáfum, allt frá friðsömu traustu jafn- vægi en í sumum hjónaböndum er orð- ið ógnarjafnvægi betur til þess fallið að lýsa ástandinu. Sú gullna regla gildir í jólaboðum að sá sem tilheyrir fjöl- skyldunni sem jólaboðið er í fær að ráða öllu. Hann, eða hún, ræður hvenær þið mætið, hvenær þið farið, í hvaða leikjum þið takið þátt og leggur yftrhöfuð allar línur í samskiptum. Þetta er best svona. Siðareglur og samskipti Það sem þykir gott og gUt í sumum fjölskyldum getur þótt óhæfa í öðrum. Sumar fjölskyldur sitja í greindarleg- um hring og ræða stefhur og strauma í bókmenntum jólanna og ástand og horfur í efnahagsmálum þjóðarinnar. Aðrar fjölskyldur þegja saman yflr góðri vídeómynd í jólaboðmu eða fara í gegnum ferskar og Ulkvittnar kjafta- sögur. Það er gott að vita fyrirfram í hvemig boð maður er að mæta. Ef það er gáfulega útgáfan þá er um að gera að lesa fram á nótt. Ef það er hin útgáf- an þá er nóg að vita hvemig formúlan fór síðast og hver er nýjasta kærasta hans þama leikara, þú manst... Fyrsta kossinn Sumar fjölskyldur era mjög innUeg- ar og þar kyssast menn af engu tUefni og knúsa hverjir aðra við öU möguleg tækUæri. í öðmm fjölskyldum brosa menn litið og kinka kofti hver tU ann- ars þegar þeir mæta í jólaboðið. Þetta getur veriö nauðsynlegt að vita fyrir þann sem er t.d. að mæta í jólaboð i fyrsta skipti í viðkomandi fjölskyldu svo hann verði sér ekki tU skammar, annaðhvort með því að þykja fleðuleg- ur svo jaðrar við áreitni eða þurrari en eyðimörk á manninn svo aUir halda að hann þykist of góður fyrir þessa fjöl- skyldu. Blessuð börnin Böm era aUtaf mjög áberandi í jóla- boðum. Jólin era hátið barnanna og þau era því eðlUega miðdeplar allrar athygli. Þau era enda orðin hálfærð af eftirlæti, gjafaflóði og sykuráti langt fram yflr það sem þau geta þolað í meðalári. í ókunnum fjölskyldum er ekki víst að það borgi sig aUtaf að spytja bamið hver eigi það. Það getur kostað útskýr- ingar sem era orðnar algengar á tím- um raðhjónabanda. „Þetta er yngri stelpan sem Nonni átti með henni Gunnu sem hann var giftur áður en hann tók saman viö Sissu. Þetta er frænka hennar sem Sissa á með háifbróður Nonna sem var þriðji maðurinn hennar." Það era tvær aðferðir sem era best- ar tU að eiga við böm í jólaboðum. Önnur er að leiða þau alveg hjá sér með sína klístraðu fingur og stöðugu spumingar. Hin er að leggjast flatur á gólfið og leika við grisUngana á þeirra eigin forsendum og vinna sér þannig inn aðdáun fuUorðinna ef maður þarf á henni að halda. Brauð og leikar í mörgum jólaboðum tíðkast að fara í einhverja leiki. Stundum era það samkvæmisleikir sem hafa þann tU- gang einan að hafa ofan af fyrir böm- unum og sjálfsagt að taka þátt í þeim. Stundum era það vitsmunalegir leUiir á borð við Scrabble, Trivial Pursuit eða eitthvað af því tagi. Hér gUdir auð- vitað að taka þátt með sönnum ólymp- íuanda og láta ekki óhóflegt keppnis- skap hlaupa með sig í gönur. Það er leiðinlegt að sjá fuUorðna karlmenn slást í jakkafótum út af fótboltaspUinu og það er líka leiðinlegt að auðmýkja tUvonandi tengdafólk sitt með því að rúUa því upp í einhveijum spuminga- leik. Vertu með en enga stæla. Almennar siðareglur Það er gaman í jólaboðum og sjálf- sagt að taka sem flesta tali og spyija þá almæltra tiðinda og fiska upp fréttir af vexti og viðgangi flölskyldunnar. Þó er rétt að hafa i huga að jólaboð era ekki heppUegur vettvangur fyrir harðvitug- ar deUur eða móðganir af nemu tagi. Það er ekki víst að það borgi sig að ræða mikið um áfengi við þann er ný- kominn úr meðferð eða tala mikið um ofbeldi við þann sem lemur konuna sína. Einnig er rétt að forðast að ræða við fóUi um atvinnu þess því það getur leitt tU lengri og nákvæmari skýrslna en nokkur maður kærir sig um. Sá sem hefur emu srnni eytt heUu jóla-: boði fastur i sófa miUi dýralæknis og leigubUstjóra gerir það aldrei aftur. Ástfangin pör ættu ekki að sýna hvort öðra ótUhlýðUeg blíðuhót í fjöl- menni þótt hugur þeirra standi tU þess. Það er ekki víst að aUar fjölskyld- ur þoli djúpkossa og stunur í sófanum við hliðina á langömmu. Ný leikföng Eitt af því leiðinlegasta sem kemm* fyrir í jólaboðum er þegar emhver óskaplega hrifinn nýbakaður eigandi kemur með jólagjöfina sína í veisluna og vUl endUega sýna öUum hana. Um þessar mundir eru það stafrænar myndbandstökuvélar sem tröllriða öU- um samkomum og stórhættulegt að sofna í hægindastól með majoneskless- ur í skegginu því þá verður tU nær- mynd af því, öUum tU skemmtunar nema þér. Þegar GSM-símarnir vora hvað vin- sælust jólagjöf var ástandið óbærUegt. Fyrst hringdi pakki undfr hveiju ein- asta jólatré um aUan bæ, stundum fyr- ir jól. Svo í jólaboðunum sátu flissandi frændsystkini og sendu SMS-skUaboð mUli herbergja daglangt eða hringdu hvort í annað á klósettið. Þetta er sem betur fer búið í bUi. Hafðu þennan hryUing í huga áður en þú tekur nýja GPS-tækið þitt með í jólaboðið af því að þig langar svo tU að sýna einhverj- um það. -PÁÁ Er hún ólétt? Anne Heche leikkona vakti sannarlega athygli í kvikmyndaborginni Hollywood þegar hún opinberaði samkynhneigð sina og ástarsamband sitt við leikkonuna Ellen DeGeneres. Síðan hefur kastljós fjölmiðla verið nokkuð á þeim stöUum umfram þaö sem það venjulega er. Mikla athygli vakti þegar Heche og DeGeners slitu sambandi sínu og Heche var handtekin reikandi um, tuldrandi sam- hengislaust rugl. Þetta fór samt aUt vel að lokum en síðan hafa fjölmiðlar sýnt henni mikinn áhuga, sérstaklega ástalífi hennar. Nýlega hafa sögur um að hún hafi hneigst tU karlmanna á ný og sé barni aukin eftir einn þeirra, orðið sifeUt háværari. Sagt er að hinn tilvonandi faðir sé myndatökumaður að nafni Coley Laffoon en talsmenn Heche bera þær fregnir tU baka. Þeir neita reyndar einnig að hún sé bamshafandi og telja að hér séu aukakíló á ferðinni. Eins og oft áður trúir enginn talsmönnum leikara og í HoUywood er mikiö spáð í það þessa dagana hver sé faö- ir bamsins sem samt er ekki víst að sé bam. Anne Heche leikkona Hún vakti athygli þegar hún lýsti yfir samkynhneigð sinni en nú herma fréttir að hún sé barni aukin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.