Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2000, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
Helgarblað
21
DV
Gefið á garðann
Guömundur sér aöallega um hiröingu kindanna á Sæbóli.
Hermenn töldu þá þýska
Eftir að samkomuhúsið Vona-
rland var vígt árið 1943 hafa jóla-
skemmtanir farið fram þar.
„Á stríðsárunum fór ég, ásamt
Sigurvini Guðmundssyni, þá bónda
á Sæbóli, gangandi fjöruleiðina inn
í Valþjófsdal. Tilgangur ferðarinnar
var að fara til Flateyrar og ná i jóla-
eplin. Við notuðumst við handlugtir
og þegar breska hernámsliðið, sem
statt var á Flateyri, sá Ijóstíruna
hinum megin fjarðarins héldu þeir
að um þýska hermenn væri að ræða
og ætluðu þeir að skjóta á okkur.
Nokkrum Flateyringum tókst þó að
stoppa þá og komumst við sjóleiðina
frá Valþjófsdal og inn á Flateyri,"
segir Guðni hlæjandi.
Engin hátíð í Reykjavík
Þeir bræður segja að jólahaldið
hjá þeim hafl lítið breyst. Þeir
sjóða hangikjöt á Þorláksmessu og
skötuna í kjölfarið upp úr soðinu.
Á aðfangadag er hlustað á mess-
una og pakkarnir siðan opnaðir.
Um kvöldið fara þeir svo i heim-
sókn á næsta bæ og fá kakó og kök-
ur hjá Elísabetu. Á jóladag er svo
hangikjötið borðað. Þeir bræður
minnast á jólahaldið í Reykjavík
sem þeir fylgjast með i sjónvarps-
fréttunum:
„Það er nú enginn hátíðarblær
yfir þessu jólahaldi núorðið. Mér
sýnist allt snúast um jólagjafir og
það er gríðarlegt stress í kringum
allan undirbúninginn. Þetta er
bara orðinn einn skrípaleikur,"
segir Guðmundur þungt hugsi.
Tekur ekki mark á veikindum
Báðir bræðurnir eru á áttræðis-
aldri og er heilsan farin að segja til
sín. Guðni hefur verið skorinn upp
við krabbameini í maga. Guðmund-
ur hefur einnig verið greindur með
krabbamein:
„Ég tek nú bara ekkert mark á
því,“ segir Guðmundur alvarlegur á
svip. Hann fer til Reykjavíkur í
rannsókn einu sinni á ári.
Það er bjart yfir bræðrunum og
þeir hlakka til jólanna. Þeim líður
vel á Ingjaldssandi og hugsa bara
um einn dag í einu. Þeir kveðja með
virktum og óska gleöilegra jóla með
bros á vör.
Jóhannes Kristjánsson
Bræður skipta verkum með sér
Guömundur sér um matargerö og hiröingu fjárins en Guöni fæst viö smíöar.
Þeir segjast ekkert sækja til Reykjavíkur nema mjög brýna nauösyn beri til.
UNITED
UWP5565
kliAAMAHUim Lmí kiÍMÚn
mjoonemum fynr öoram.
''UiiUÞ''
mmum
UNITED
ELP1563
Hljómborð með
kenBsluefni 09
upptökueigiideHnin
fyrú bömia.
AKAI CRUnOIO UNITEII 1ENS2H HITACHI KDISTER harmankardon ilUL
masxEit BÍYIIAIIIIIBSVIBIB: Haglum. lanlarv. Heiaikiiaslaii. láslim lánbari. tipmij. KIIIIIAIII Ikúun Aímrsi laHx Imfiim l>|m IMr«
Helliiíandi Guðni Hallð/imsson. Griiinlariir& VlSIHflOlfl lautilélafl Steimriiisliailai. Bracgsnesi Pil&H. lalófli lOflSUBLAIO: (I Siaflsrastiatot, HllaajUf VTámlHn InMntaii
II HánvEiwiisi BlanduKÍ. SkaglulifqaiiúB. Sauijrtiótí tlrittró. Ðíhril liflniafín Akma öiysai. HúcmíIl UiA Utútii AUSIURIAXD: II Béiakliia Ittetelt*. VntaÉI/A. InkatöaA
lavHói, VwufiiðL H Vniifltiíflinfla. Mpnalirll II Héraádjúa, Sevðislali. Iumbriðia. VsylislHðL H lábúéífiaíöai. FáAnMdl USl HaBillaaáíli SUÐUfiLAID: Rafsaafinertatxðt UL Hwbvelii.
UaslslL Hvllii. IA. Sdltssi. lis, hililslisls Biiim VulMiiaeyim. BÍVUAKS: Sliisslell. IvllnL Bvtai CrauSnít lillmiiiuisi Sm IwnswL Evrti. Rituni UtaML