Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2000, Blaðsíða 39
F
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
DV
_______4&
Tilvera
- og reyndi að róa móðurina
Jón Hrólfur Baldursson, klippari
á Effect, er matgæðingur vikunnar
að þessu sinni. Það er nóg að gera
hjá hárgreiðslufólki á þessum árs-
tíma því ef það er einhvem tímann
á árinu sem við viljum vera fln þá
er það einmitt á jólunum.
„Það er vægast sagt búið að vera
brjálað að gera og fuilt af fólki, sem
er jafnvel vant að klippa sig heima,
kemur núna og lætur laga og gera
fínt, þannig að við getum ekki
kvartað," sagði Hrólfur.
Þegar Hrólfur talar um að laga
hár, þá lék blaðamanni forvitni á
því að vita hvað væri versta tilfelli
sem hann hefði lent í.
„Ég held aö það versta sem ég
hef lent í sé þegar ung kona kom
með tvær stúlkur á stofu sem ég
var að vinna á hér áður fyrr. Litlu
stelpumar voru nýbúnar að kynn-
ast og voru að leika sér saman
heima hjá annarri þeirra. Það vildi
svo til að móðir gestsins hafði ætl-
að að sækja hana því hún ætlaði í
Bónus, en mamma hinnar stúlkun-
ar sagði að þær væru svo góðar
saman að það væri ekkert mál að
líta eftir henni á meðan hún versl-
aði. Nema hvað, ekkert heyrist í
stúlkunum úr herberginu og móð-
irin ánægð með nýjan leikfélaga
dóttur sinnar, en ákveður samt að
kíkja á þær. Þegar henni var litið
inn var „gestabamið", sem hafði
víst verið með krullaða englalokka
niður á mitti, komið með klipp-
ingu upp á hnakka. Dóttir hennar
var að vanda sig við að klippa hár-
ið sem næst hnakkanum og var
hin glaðasta með verkið þegar
móðir hennar kom inn. í hend-
ingskasti kom hún svo niður á
stofu til okkar og ég er ekkert að
ýkja það að móðirin var skelfingu
lostin. Ljósu lokkarnir voru famir
af „gestabarninu" sem hún vissi
varla hvað hét. Hún bað mig að
reyna að bjarga einhverju áður en
stúlkan yrði sótt. Það var litlu
hægt að bjarga þar sem þær höfðu
náð að klippa á hinum ýmsu stöð-
um alveg upp við höfuðið. Ég gerði
mitt besta og reyndi að róa móður-
ina sem var gjörsamlega gráti nær.
Móðirin fékk samúð mlna alla þeg-
ar hún gekk út af stofunni með
stúlkurnar og önnur þeirra með
knallstutt hár með tveimur spenn-
um tylltum í hárið. Þetta var
hræðilegt. Ég hef oft hugsað til
þessarar konu og viljað vita hvern-
ig þetta fór því hún var greyið al-
veg í öngum sínum,“ sagði Hrólfur
og bætti svo við:
„En svo við snúum okkur að
matargerðinni þá verð ég að gefa
þessar uppskriftir því þær eru það
allra besta svo ég tali nú ekki um
fyrir „hvítlauksaödáendur".
Hvítlaukstortilini
1 pk. tortilini með kjötfyllingu
l skinkupakkning
10 sveppir
1/2 paprika (græn)
svartur pipar
Aðferð:
Tortilinið er soðið. Sveppirnir
skomir, steiktir á pönnu og kryddað-
ir aðeins með svörtum pipar. Skink-
Hrólfur Baldursson matgæöingur
„Hún baö mig aö reyna aö bjarga einhverju áöur en stúlkan yröi sótt. Þaö var litlu hægt aö bjarga þar sem þær höföu
náö aö klippa á hinum ýmsu stööum alveg upp viö höfuöiö. “
an er skorin niður og bætt á pönn-
una. Því næst paprikunni niðurskor-
inni.
Sósa
1 piparostur
1/2 1 rjómi
1 grænmetisteningur
11/2 tsk. af muldum hvítlauk í dós
Aðferð:
Hitið rjómann og ostinn þar til
fer að sjóða. Hinu bætt út í og látið
malla í dágóða stund.
Sósunni og tortilininu er síðan''
hellt á pönnuna sem verður að
vera við vægan hita.
Meðlæti:
Það er alltaf gott að hafa hituð
smábrauð með þessum rétti.
Ég gerði
mitt besta
Skinku- og osta-
fyllt ungnauta-
sneið með
sítrónu-smjöri
Þessi klikkar ekki, gómsæt og
gimileg.
Fyrir fjóra.
800 g ungnautainnralæri, skorið
í 8 sneiðar
4 sneiðar skinka
50g mozarella ostur
salt og pipar
Sítrónusmjör
börkur af 3 sítrónum, skorinn i
mjóar ræmur
200 g smjör
2 tsk. hlynsíróp
Meðlæti
1/2 blómkál
1/2 spergikál
4 vorlaukar
8 meðalstórar kartöflur, afhýddar
Berjið sneiðamar örþunnt. Legg-
ið skinkuna og ostinn á annan
helming sneiðanna, brjótið saman
Nýkaup
Þarsem ferskleikinn byr
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
og lokið vel. Grillið í 5-10 mínútur á
hvorri hlið. Grillið kartöflurnar í
20-30 mín. og léttsjóðið grænmetið.
Bræðið smjörið með sítrónuberkin-
um, bragðbætið með hlynsírópi.
Meðlæti
Grillsteiktar kartöflur, soðið
blómkál, spergikál, vorlaukur og
sítrónusmjör.
Dökk
súkkulaðimús
Fyrir 6
200 g suðusúkkulaði
5 stk. eggjarauður
50 g sykur
1 1/2 dl rjómi
5 stk. eggjahvítur
30 g vanillusykur
2 msk. Grand Marnier-líkjör
(má sleppa)
Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði
eða örbylgju. Þeytið saman eggjar-
auður og sykur uns létt og ljóst.
Þeytið rjómann. Þeytið eggjahvít-
urnar með vanillusykrinum uns
þær eru stífar. Súkkulaðið á að vera
vel volgt, ekki heitt, þegar öllu er
blandað saman. Hrærið eggjarauð-
unum út í súkkulaðið með þeytara.
Því næst er rjómanum blandað í
með sleikju og síðast eggjahvítu-
blöndunni (og líkjörnum, ef vill).
Setjið í glös og stóra skál og látið
stífna í kæli. Berið fram með þeytt-
um rjóma og ávöxtum.
Bakaðir
bananar með
piparmyntu-
súkkulaði
Góður með framandi
ávöxtum.
Handa Jjórum
4 þroskaðir bananar
100 g piparmyntusúkkulaði
Skerið bananana með hnif eftir
endilöngu, þó ekki í gegn, og notið
helminginn af hýðinu. Pressið hlið-
amar út á við. Brjótið súkkulaðið í
bita og raðið í bananann, 4-5 bitunr*-
í hvern. Bakið á miðlungsheitu
grilli í u.þ.b. 15 mínútur.
Meðlæti
Rjómaís með ferskum berjum og
ástríðualdinum (passion fruit).
-eJa/f/'é úr eftú^ ú/1
Síðustu ár hefur skátahreyjingin selt sígræn
eðaltré, í hæsta gœðaflokki og prýða þau nú
mörghundruðíslensk heimili
10 áraábyrgð
12 stœrðir, 90 - 500 cm
Stálfóturjylgir
Ekkert barr að ryksuga
Truflar ekki stojublómin
Eldtraust
Þarfekki að vökva
íslenskar leiðbeiningar
Traustur söluaðili
Skynsamlegjjárfesting
\Q Bandalag islenskra skáta
ÓSKAJÓLAGJÖF BÍLAÁHUGAMANNSINS
SígrLnÚf^rðu
'lab“ðBen
Knnalunnn
'haí
MÖGNUÐ BÍLAMYNDBÖND
Eigulegar myndbandsspólur sem
allir bílaáhugamenn vilja að eignast.
Verð kr. 1.990,- til 2.490,-
Bilabuö Benna • Vagnhofða 23 & Kringlunni • Sími 587 O 587 • www.benni.is
Kringlunni
gjafavöruverslun