Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2000, Síða 60
- 'mm Svefn&heilsa
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Gleðilega
hátíð
Ingvar
j Helgason hf.
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
t,Jpw
Andlát konu á Grund:
Niðurstaða rann-
sóknar á nýju ári
Landlæknisembættið rannsakar
nú hvernig andlát konu, sem var
vistmaður á elli- og hjúkrunarheim-
ilinu Grund, bar að höndum. DV
greindi frá málinu í gær.
„Málið er í athugun en við getum
ekki tjáð okkur neitt um einstök
mál,“ sagði Matthias Halldórsson
aðstoöarlandlæknir. „Þau taka mis-
munandi langan tíma, þessi mál,
það fer eftir því hversu mikið er að
gera. Á þessu ári höfum við fengið
^im 360 mál af ýmsum toga, allt frá
tiltölulega smávægilegum kvörtun-
um upp í alvarleg mál.“
Aðstandendur konunnar höfðu
samband við heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið sem setti málið
í hendur landlæknisembættisins.
Niöurstöðu er að vænta á nýju ári.
Aðstandendur kvörtuðu undan
því að enginn hjúkrunarfræðingur
var á vakt á sjúkradeildinni sem
konan lá á kvöldið sem hún veiktist.
Júlíus Rafnsson, framkvæmdastjóri
Grundar, sagði í samtali við DV að
M^hjúkrunarheimilið teldi sig hafa
gætt fyllsta öryggis þetta kvöld sem
önnur en fjórða árs læknanemi var
á vakt og voru yfirlæknir heimilis-
ins og hjúkrunarforstjóri á bakvakt.
í samráði við yfirlækninn sendi
læknaneminn konuna á sjúkrahús
þar sem hún lést tveimur dögum
síðar. -SMK
JOHANNES ÞO!
Ódýr jólaolía
- úr Sophie Theresa
Otgerðarmenn eiga von á jólaglaðn-
ingi á milli jóla og nýárs þegar olíu-
skipið Sophie Theresa kemur hingað
til lands með fullfermi af oliu sem seld
verður á lægra verði en íslensku olíu-
félögin bjóða. Skipið kemur í kjölfar
samninga sem Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna hefúr gert við
danska oliufélagið Malik Supply og
mun Sophie Theresa sigla á milli hafna
og dæla í skip þeirra útvegsmanna sem
viija. Búist er við blómlegum viðskipt-
um þar sem flest íslensk fiskiskip eru í
höfn um jól og áramót. -EIR
Akureyri:
Nettó ódýrari
en Bónus
Samkvæmt verðkönnun sem svæðis-
útvarpið á Akureyri gerði klukkan 16 á
fimmtudaginn reyndist jólakjötið 7,4%
ódýrara í Nettó. í könnuninni var bor-
ið saman verð á úrbeinuðu hangilæri,
hamborgarhrygg og úrbeinuðum fram-
parti. Aðeins var lagt mat á verð vör-
unnar og tekin sú vara sem ódýrust
var samkvæmt hilluveröi. Ekki var
lagt mat á gæði vörunnar eða þjónustu
í verslununum.
Úrbeinaða hangilærið var tæpum
þrjú hundruð krónum ódýrara í Nettó.
Hamborgarhryggurinn kostaði 865
krónur í Nettó en 898 krónur í Bónus
og framparturinn var 130 krónum
ódýrari í Nettó. -Kip
Snúin niður af lögreglu:
íhugar að kæra
Erla Þórar-
insdóttlr.
Erla Þórarinsdóttir
myndlistarkona íhug-
ar að kæra lögregluna
fyrir að beita sig harð-
ræði í jólagleði Ný-
listasafnsins á þriðju-
dagskvöldið. Lögregl-
an var kvödd í jóla-
gleðina vegna kvart-
ana nágranna um háreysti og í fram-
haldi af því var Erla snúin niður og
handjárnuð af lögreglumanni.
„Ég er að íhuga að kæra lögregl-
una. Skýringamar sem þeir gáfu mér
eftir þessa framkomu voru þær að ég
hefði kýlt löggu i magann. Það gerði
ég aldrei. Ég er helst á því að lögreglu-
maöurinn sem á hlut að máli sé æst
ofbeldislögga," sagði Erla. -EIR
DV kemur næst út eldsnemma mið-
vikudaginn 27. des.
Smáauglýsingadeild DV er lokuð í
dag, aðfangadag og jóladag. Opið verð-
ur annan í jólum frá kl. 16-22.
Blaðaafgreiðsla DV er opin f dag,
frá kl. 8-14. Lokað verður aðfangadag,
jóladag og annan í jólum.
Síminn er 550 5000.
Gleðileg jól!
Var nokkrar
vegfarandi spurðist fyrir um bíl á hvolfi úti í á
„Ég hafði mestar áhyggjur af því
að mikið vatn var komið inn í bíl-
inn. Litli drengurinn var örugglega
á kafi í nokkrar mínútur. Ég sneri
mér við og reyndi að athuga hvort
maður kæmist út og kallaði í alla.
Þar sem billinn var á hvolfi og
meira og minna á kafi í vatni var
lítil birta. Hjólin voru upp úr vatn-
inu og loft var aðallega við fætur
okkar,“ sagði Jóhann Bjarnason frá
Hólum í Hjaltadal sem blés lífi í
eins árs son sinn, Guðmund Elí, eft-
ir að litli drengurinn hafði verið á
kafi inni í bíl á hvolfi í Blöndu á
fimmtudag.
Bíll Jóhanns valt út í Blöndu í
Langadal, skammt austan Blöndu-
óss, eftir að bíllinn hafði runnið út
af veginum í fljúgandi en lúmskri
hálku. Auk þeirra feðga voru eigin-
kona Jóhanns, Laufey Guðmunds-
dóttir, í bílnum, 3ja ára sonur
þeirra og stúlka um tvítugt sem
fengið hafði fengið far með þeim.
Lögreglan sagði við DV að vegfar-
andi heföi spurst fyrir um bíl á
hvolfi út í á. „Vitið þið um bil á
hvolfi," spurði vegfarandi okkur,“
sagði Kristján Þorbjörnsson, yfirlög-
regluþjónn á Blönduósi. Vegfarand-
inn taldi að enginn væri í bílnum
en fjölskyldan var þá enn inni í hon-
um og að mestu leyti í kafi. Var að-
stoð strax send af stað. Maöur á
næsta bæ var hins vegar fyrstur á
vettvang.
Jóhann sagði að hjartað hefði tek-
ið góðan kipp þegar bíllinn fór eina
til tvær veltur og lenti á hvolfi úti i
ískaldri Blöndu:
„Ég veit ekki hvemig eldri strák-
urinn, þriggja ára, losnaði úr sínum
stól en litli drengurinn var lengst af
öllum í kafi. Við náðum hins vegar
að opna farþegahurðina þegar ég
var kominn út. Ég mætti strax
tveimur mönnum sem óðu út í ána.
Þegar við náðum litla drengnum út
reyndi ég að blása í hann lífi. Hann
var allur orðinn dofmn enda vatnið
um núll gráður.“
Jóhann segir að vissulega hafi
ekkert annað komist að hjá sér en
að blása lífi í litla drenginn. „Svo
kemur sjokk eftir á og endalaust
margar hugsanir sem þjóta í gegn-
um hugann."
Jóhann segir að ótrúlegt sé að
ekki fór verr en ella. Hjónin, litlu
drengirnir tveir og fylgdarstúlkan
voru öll orðin óskaplega köld en
fengu strax að fara inn í bíl hjá fólki
sem komið hafði að.
„Það var kona þarna sem lánaði
sæng,“ sagði Jóhann.
Guðmundur Elí litli var fluttur á
Landspítalann í Reykjavik til örygg-
is þó hann hefði verið fljótur að
koma til. „Hann var orðinn mjög
kaldur og enginn vissi nákæmlega
hve lengi hann hafði verið í kafi.
Eymamælir mældi fyrst 29 gráður
en fljótlega var hitinn kominn upp í
34 gráður.
Jóhann er organisti í Hólakirkju í
Hjaltadal og starfar sem grunn-
skólakennari. -Ótt
Viðræðulotan sprakk:
Allir jafn þrumu lostnir
- segir formaður framhaldsskólakennara
Besta jólagjöfin - Guðmundur Elí litll alheill
Laufey Guömundsdóttir og Jóhann Bjarnason brostu breitt á barnadeild Landspítalans enda Ijóst aö drengurinn beiö
engan skaöa af kaidri vist á kafi I bíl á hvolfi úti I nístingskaldri Blöndu.
Blés lífi í eins árs son sinn eftir að hafa fest í bíl úti í Blöndu:
„Það eru allir jafn þrumulostnir
yfir þessum handatiltektum,"
sagði Elna Katrín Jónsdóttir for-
maður Félags framhaldsskólakenn-
ara, eftir að slitnaði upp úr samn-
ingaviðræðum Félags framhalds-
skólakennara og samninganefndar
rikisins í gær.
Að sögn Elnu Katrínar slitnaði
upp úr eftir að ríkið krafðist þess
að allur vinnutímakafli kjara-
samninga framhaldsskólakennara
félli brott nema ákvæði um há-
markskennslu-
skyldu eins og
þau standa i nú-
gildandi kjara-
samningi auk
þess kennsluaf-
sláttar sem um
semst, eins og
það var orðað í
tillögu samn-
inganefndar rík-
Elna Katrín isins.
Jónsdóttir. Elna Katrín
sagði að samningsaöilar hefðu
undanfarna daga átt samningavið-
ræður sem kennarar litu á sem al-
vörutilraun til þess að ná kjara-
samningi og koma framhaldsskól-
unum aftur af stað. í þeim samn-
ingaviðræðum hefði að mati kenn-
ara miðað ágætlega og töldu þeir
jafnvel að samningur væri í sjón-
máli.
„En þetta er einhver ný krafa og
ný sjónarmið sem við höfum raun-
verulega aldrei séð áður.“ -JSS
dagur til jóla
sÆmSí
'Vn
mínútur í kafi