Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 I>V Fréttir Björgunarsveitarmenn landsins: Sjálfboðaliðinn er ómissandi Mikill fjöldi björgunarsveitar- manna var kallaður út á síðustu tveimur sólarhringunum vegna stormsins sem gekk yfir landið. Sum þessara útkalla voru vegna fólks sem var í vandræðum uppi á fjöllum en í mörgum tilfellum voru björgunar- sveitir fengnar til þess að festa niður þakplötur sem losnað höfðu. „Við tölum aldrei um neinar kostnaðartölur vegna þess að það hefur sýnt sig að þá fer fólk að veigra sér við að biðja um aðstoð. Við viljum allra síst að einhverjir í ógöngum eða vandræðum veigri sér við að biðja um aðstoð björgunar- sveita á þeim forsendum að það sé ómak fyrir sveitirnar eða að það verði umræða um kostnað og svo framvegis," sagði Árni Birgisson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélags- ins Landsbjargar, sem eru landssam- tök björgunarsveita landsins. Um það bil 3.500 virkir björgunarsveitar- menn eru á íslandi, en félagsmenn sveitanna eru samtals um 15.000. Víða erlendis er björgunarþjón- usta rekin af hernum eða af fast- ráðnu fólki sem eingöngu sinnir þessu starfi. „Fyrir land sem er 103 þúsund fer- Skrifstofu- bónus Griffill opnar á hádegi í dag eins konar bónusverslun með allar skrif- stofuvörur í Skeifunni 11 D. Jóhann Ingi Kristjánsson verslunarstjóri segir að með þessu sé verið að fara nýja leið á þessum markaði hér á landi. Meðal þess sem á boðstólum verður í verslun- inni eru 700 megariða tölvur á 79.900 krónur með þriggja ára ábyrgð, ljósrit- unarvélar, skrifstofustólar, skrifstofu- húsgögn og pappír. „Við skilgreinum okkur sem skrifstofumarkað með lágt verð. Þetta er í samræmi við það sem er að gerast úti í heimi. Þar eru aö spretta upp slíkar verslanir sem sér- hæfa sig í vörum fyrir skrifstofuna." -HKr. DV-MYND G. BENDER Fyrirtæki ársins á Akureyri Fiskeldi Eyjafjaröar var í gær kosiö fyrirtæki ársins á Akureyri. Á mynd- inni afhendir Valur Knútsson Ólafi Halldórssyni verölaunin. Björgunarsveitarmenn að störfum Þúsundir manna vinna gífurlega mikilvægt starf innan björgunarsveita lands- ins. Allt starf þeirra er unniö í sjálfboöavinnu. kilómetrar og mjög hrjóstrugt en ekki með fleira fólk en 280 þúsund manns er þetta kannski eina leiðin sem við getum rekið öfluga björgun- ar- og öryggisþjónustu á íslandi, án þess að vera með enn hærri skatta," sagði Árni. „Þáttur sjálfboðaliðans er mjög stór í neyðarkerfinu á ís- landi.“ Árni útkskýrði að björgunarsveit- arstörf eru ávallt í umboði einhverra yfirvalda, oftast lögreglu. „Mannafli opinberra neyðargeirans - lögreglu, slökkvibOa og sjúkraflutninga - er ekki það stór, svo það þarf ekki það mikið til þess að leitað sé til björgun- arsveitanna," sagði Árni. Sjálfboðastarf Björgunarsveitarfólk vinnur allt sitt starf í sjálfboðastarfi en samt er rekstur björgunarsveitanna kostnað- arsamur. Framlag opinberra aðila nemur einungis broti af rekstar- kostnaðinum og afla sveitirnar sér fjár með ýmis konar fjáröflunarleið- um sem félagarnir sinna einnig i sjálfboðastarfi. Þar af er flugelda- salan einna umfangsmesti þátturinn en aðrar fjáröflunarleiðir eru jólatrjáasala, happdrætti, merkjasala og fleira. Landssamtökin, sem eru stærsti innflytjandi flugelda á ís- landi, sjá um innflutning flugeld- anna og heildarskipulag sölunnar en hafa sjáif engar tekjur af því. Félagseiningar Slysavarnafélags- ins Landsbjargar eru fjárhagslega sjálfstæðar og leggja ekki fé til rekstrar landssamtakanna sem hins vegar úthluta sveitunum fé tii þjálf- unar sveitarmanna og kaupum á tækjabúnaði. Slysavarnafélagið Landsbjörg er aðili að íslenskum söfnunarkössum ásamt SÁÁ og Rauða krossi íslands og fær félagið stærstan hluta rekstr- arfjár síns úr spilakössunum. Auk þess reka landssamtökin happdrætti, sölu sjúkrakassa og fleira. -SMK DV-MYND INGÓ Samningar undirritaðir Aö sjálfsögöu var skálaö í kóki. Samið um Coca-Cola: Vifilfell aftur íslenskt - verður sameinað Sól-Víking á næstunni Coca-Cola Nordic Bevarages (CCNB), eigandi Vifilfells ehf., hefur selt Kaupþingi hf., Sigfúsi R. Sigfús- syni, forstjóra Heklu, og Þorsteini M. Jónssyni, forstjóra Vífilfells, öll hlutabréf CCNB í Vífilfelli. Þar með er Vífilfell aftur komið í eigu is- lenskra aðila eftir tveggja ára eign- arhald hins danska fyrirtækis. Gert er ráð fyrir að eigendaskiptin gildi frá 1. janúar 2001. Kaupþing og tengdir aðilar höfðu áður keypt öfl hlutabréf í Sól-Víking hf. Á næstunni er stefnt að samruna Vífilfells og Sólar-Víkings undir merkjum Vífllfells. Samkeppnisráð mun taka afstöðu til fyrirhugaðs samruna innan fárra vikna. Nýir eigendur stefna að því að fara með hið sameinaða félag á markað áður en langt um líður. Mun Sigfús R. Sigfússon verða stjórnarformaður nýrrar stjórnar Vífilfells en Þorsteinn M. Jónsson mun áfram gegna stöðu forstjóra Vífilfells, eins og hann hefur gert síðan 1996. -HKr. Blaðið í dag Skilar box- hönskum og postulíni Ertent fréttaljós Nútíma Rauðhetta Lýtaabgerðir Innanlandsflug tapar í samkeppni Innlent fréttaljós Steinaldar- hundar sem geta ekki gelt Gæludýrið mitt Skemmtilegra að leika Bryndís Loftsdóttir S18 Barnaborgin í L Hallgrímur Helgason Getnaður, meðganga og fæðing Blessaö barnalán Sonur Guðs | Ulfar trúöur Astarlyf eru imyndun Megum ekki vera í blindingjaleik Guörún Ogmundsdóttir Ostrur í matinn í 36 mánuði Ný barnaverndarlög Páll Pétursson fé- lagsmálaráðherra lagði fram á ríkis- stjómarfundi í gær- morgun nýtt frum- varp um barnavernd- arlög. Um er að ræða heíldarendurskoðun á bamaverndarlög- um sem hefur staðið yflr frá árinu 1995, undir stjóm Davíðs Þórs Björgvinsson- ar lagaprófessors. Vísir greindi frá. Skemmdir á loftnetum Talsverðar skemmdir urðu í gær- morgun á ýmsum fjarskiptaloftnetum á Amamesi við Skutulsfjörð. Stálmastur sem er 25-30 metra hátt og margniður- stagað á tveimur hæðum hrundi en í því vom loftnet fyrir GSM-stöð. Rafmagnslaust viö Djúp Rafmagnslaust var meira og minna á sveitabæjum í ísafjarðardjúpi í gær. Orsökin var brotinn rafmagnsstaur á Langadalsströnd fyrir utan Hafnardai. Tókst þó að koma rafmagni á bæi fyrir innan Hafnardal. Mikiö um umferðaróhöpp Umferðin um land allt í gær gekk þokkalega miðað við færð og veður en mikið var um umferðaróhöpp og pústra í höfuðborginni, aðaflega vegna slæms skyggnis og hálku. Lokaöist inni í vegskála Maður lokaðist inni í vegskála i Ós- hlíð í gærmorgun. Hann hafði verið á leið frá Bolungarvík til ísafjarðar. Leið- in til hans var síðan rudd. BB greindi frá. Stúika handtekin meö hass Lögreglan á ísaflrði handtók 18 ára stúlku aðfaranótt fóstudagsins vegna gmns um fíkniefnamisferli. Stúlkan reyndist hafa rúmlega 7 grömm af hassi í fómm sínum en að sögn lögregl- unnar var hún nýkomin vestur frá Reykjavík. Hún var yfirheyrð þá um nóttina og sleppt að yfirheyrslum lokn- um. Málið telst upplýst og bíður stúlk- an refsingar sinnar. Mótmæla útboði Stjóm Félags grunnskólakennara mótmælir harðlega áformum meiri- hluta bæjarstjómar Hafnarfjarðar um að bjóöa út kennslu við nýjan grunn- skóla í Áslandi sem einkaframkvæmd. í ályktuninni segir að slíkt útboð sé brot á lögum um grannskóla. Yfir þúsund biöu eftir flugi Um 1100 farþegar biðu í gær eftir því að komast i flug en innanlandsflug lá niðri í allan gærdag vegna veðurs. Heimsækir þorp stéttlausra Karl Sigurbjörns- son, biskup íslands, skoðaði í dag aðbún- að stéttlausra Ind- veija og frumbyggja ásamt Einari Karli Haraldssyni, stjórn- arformanni Hjálpar- starfs kirkjunnar, og Jónasi Þórissyni framkvæmdastjóra. Karl sagði að eymdin og vandamálin væm hrikaleg. Haidiö til haga í Fókus í gær var birt grein um þann fjölda verslana í miðbænum sem und- anfarið hafa lokað og hætt rekstri. Við greinina var meðal annars birt mynd af tískuversluninni Noi á Laugavegi. Rétt er að taka fram að Noi hefur að- eins verið lokað tímabundið vegna breytinga en opnar að nýju mánudag- inn 19. febrúar. -HKr./SMK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.