Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Side 6
6
LAUGAr'dAGUR 17. FEBRÚAR 2001
Fréttir I>V
Vopnafjöröur:
Ný löndunarbryggja gölluð
- máliö veröur leyst segir Siglingastofnun
Frá Vopnafiröi
Komið hefur fram galli á nýju löndunarbryggjunni.
Nýtt stálþil á nýrri löndunar-
bryggju á Vopnafirði er skemmt og
er Siglingastofnun að skoða hvemig
brugðist verði við. Upplýsingar um
umfang skemmdanna voru að ber-
ast inn á borð Siglingastofnunar
þegar DV ræddi við Gísla Viggósson
eftir hádegi í gær.
Síöastliöið haust var lokið við að
reka niöur 80 metra stálþil á nýrri
loðnulöndunarbryggju í Vopnafjarð-
arhöfn. Átti nýja bryggjan að bæta
úr brýnni þörf en mikil umferö
stórra loðnuskipa er um höfnina á
hverju ári. Þegar verktakinn,
Kranaþjónusta LP Selfossi, var bú-
inn að reka niður hluta af stálþilinu
þann 19. september í haust, gerði
talsvert hvassviðri með miklum sjó-
gangi. Aflagaðist stálþilið sem verið
var að reka niður og fór að ein-
hverju leyti úr stýringum. Eftirlits-
menn Siglingastofnunar vissu af
þessu tjóni að sögn Gísla, en eigi að
síður var ákveðið að halda áfram
með verkið. Nú hefur hins vegar
komið í ljós að halli á þilinu er
meiri en í fyrstu var talið. Er hall-
inn að neðan svo mikill á kafla út í
höfnina að djúprist loðnuskipin
reka síðuna í bunguna á stálþilinu
sem er öll neðan sjólínu. Hallar þil-
ið út um rúman metra þar sem mest
er. Samkvæmt upplýsingum frá
starfsmanni Tanga er t.d. illmögu-
legt að leggja nótaskipi félagsins,
Sunnubergi, að bryggjunni, nema
þá að útbúa svokallaðar rússapyls-
ur til að halda skipinu sem lengst
frá kantinum. Fyrirhugað var að
ganga frá steinsteyptri þekju á
bryggjunni í sumar, en kostnaður
vegna framkvæmda er nú kominn í
60 milljónir króna. „Þetta er ekki í
fyrsta skiptið sem svona kemur upp
og þá er bara að bregðast við því og
leysa málið,“ sagði Viggó. Hann
taldi samt ólíklegt að skipta þyrfti
um skemmda hluta stálþilsins.
-HKr.
Hugmyndir um gjörbreytta Vopnafjarðarhöfn:
Gömlu innsiglingunni lokað
- ný innsigling verði gerð sunnan Skiphólma
Hugmyndir eru nú uppi um mikl-
ar breytingar á fyrirhuguðum fram-
kvæmdum við vamargarða i inn-
siglingunni í Vopnafjarðarhöfn sem
talið er að geti gjörbreytt aðstöðu
og stórminnkað sjógang í höfninni.
Hugmyndir Vopnfirðinga snúast
um að búa til grjótgarð úr Miðhóla
úti fyrir norðanverðri höfninni og
yfir í Skiphólma sem er klettahólmi
úti fyrir sunnanverðri höfninni.
Þar með yrði núverandi innigling-
arrennu, sem er á milli hólmanna,
lokað. í staðinn er ráðgert að dýpka
og búa til nýja innsiglingu sunnan-
vert við Skiphólmann.
Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri
segir að um sé að ræða gjörbreyttar
hugmyndir frá því sem fyrirhugað
hafi verið. Hann segir skipstjómar-
menn spennta fyrir slíkri lausn.
Hugvitssamlr þjófar
Þjófar í Þýskatandi stálu tölvubúnaði
sem berast átti til íslands og settu
múrsteina í kassana í staöinn.
Þjófnaöurinn uppgötvaðist ekki fyrr
en búnaðurinn var kominn til lands-
ins.
Tölvuþjófnaður:
Múrsteinar
settir í kassana
í stað tölvuskjáa í tölvusendingu,
sem átti að berast Barnaspítala
Hringsins frá Þýskalandi, reyndust
múrsteinar vera í kössunum. Spítal-
inn hafði pantað rannsóknartæki
frá Þýskalandi sem innihélt meðai
annars fjóra flata LCD-tölvuskjái, að
verðmæti ríflega 700 þúsund krón-
ur.
„Þegar sendingin var komin í
vöruhús hér á landi uppgötvaðist að
búið var að stela skjáunum úr um-
búðum sínum og setja múrsteina í
staðinn," sagði Ómar Smári Ár-
mannsson, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík. Rannsókn lög-
reglu hefur sýnt að líklega var skjá-
unum stolið áður en sendingin kom
til landsins eða þegar verið var að
flytja búnaðinn í vörugeymslu í
Frankfurt áður en hann var fluttur
hingað til lands.
Þjófnaðurinn var umsvifalaust
kærður til lögreglu og er þýska lög-
reglan einnig komin i máliö. -SMK
Heimamenn vilja nýjan grjótgarð úr Miðhólma í Skiphólma.
Þetta muni kosta 150 milljónum
meira en þær framkvæmdir sem
nú eru fyrirhugaðar en í staðinn
fáist mun betri höfn. Hann segir
að samkvæmt áætlun hafi verið
meiningin að ráðast í gerð grjót-
varnargarða á næsta ári sem þá
verði breytt ef hugmynd Vopn-
firðinga nær fram aö ganga.
„Við erum búnir að ræða við
Siglingastofnun um þetta og verið
er að vinna að málinu," sagði
Þorsteinn í samtali við DV í gær.
Hann tók þó fram að engar
ákvarðanir heföu veriö teknar
um þessar breytingar.
Ríkið borgar að jafnaöi um 75%
af hafnarframkvæmdum á móti
25% frá sveitarfélagi. Þorsteinn
segir að meö grjótvarnargörðum,
dýpkunum og öllum framkvæmd-
um geti kostnaður samkvæmt
þessum nýju hugmyndum viö
höfnina numið liðiega 500 miilj-
ónum króna. Það er eins og áður
segir um 150 milljónum króna
meira en sá kostur sem nú er
áætlað að vinna eftir.
-HKr.
Staðardagskrá 21:
Neysla, sóun og
léleg nýting
- sem oft stafar af hugsunarleysi fólks
DV-MYND JG
Frá leiöbeinendanámskeiði Landverndar
Sjálfbær framtíð hefst gjarnan heima hjá okkur.
þeir geta einnig orðið stór hiuti af
lausninni ef við tökum upp vistvænni
sjálíbæra lífshætti. Þetta felur í sér að
taka að okkur umsjón með takmörkuð-
um auðlindum jarðar, vatni, orku,
steindum og fleiru til að tryggja að nóg
verði eftir af þeim fyrir böm okkar og
bamaböm".
Visthópur tvö sem samanstendur af
átta hafnfirskum fjölskyidum, og kosið
hefur að kaiia sig „vistvini", mun
standa fyrir kynningarfundi um verk-
efnið á Veitingahúsinu Gaflinn,
fimmtudaginn 1. mars nk. kl. 20. Þar
mun fundarmönnum gefast kostur á að
kynnast verkefninu í reynd og skrá sig
í „visthóp" og starfa undir leiðsögn ný-
útskrifaðs leiðbeinanda. Þeim sem taka
þátt í visthópi gefst kostur á að kaupa
verkefnabókina fyrir tvö þúsund krón-
ur og njóta þess að Hafnarfjarðarbær
greiðir þátttökugjald þeirra tii Land-
vemdar og tvo þriðju kostnaðar af
kaupverði jarðgerðartanks til þess að
jarðgera lífrænan úrgang sem fellur til
frá heimilinu. Þeir sem óska eftir frek-
ari upplýsingum geta snúið sér til verk-
efnisstjóra Staðardagskrár 21 hjá Hafn-
arfjaröarbæ.
-DVÓ
Leiðbeinendanámskeiö Landvemdar
varðandi heimsverkefnið GAP (Global
Action Plan) var haldið í Hafnarfirði
nýlega. Af 11 þátttakendum og ný-
útskrifuðum leiðbeinendum era fjórir
Hafnfirðingar. Tveir visthópar hafa nú
lokið störfum eða ákveðnu fundarferli
sem byggt er á verkefnabók Land-
vemdar og snýsÍLeinkum um það
hvemig sjálfbær framtíð hefst gjaman
heima hjá okkur. ?
í upphafi bókarihnar segir þetta:
„Við nútímamennimir höfum gengið
hratt á auðlindir jarðar með mikilli
neyslu, sóun og lélegri nýtingu sem oft-
ar en ekki stafar af hugsunarleysi. Lífs-
hættir okkar em stór hluti vandans en
Sigurborg Kr. Hannesdottir (t.h.),
leiöbeinandi og verkefnisstjóri
Landverndar, og Kristín G. Magnús-
dóttir, leiöbeinandi og kennari á
Hallormsstaö.
............Íflmsjón:
Reynir Traustason
netfang: sandkorn@ff.is
Eiríkur sterki
Eiríkur Jóns-
son, formaður Stúd-
entaráðs, er sagður
fimasterkur leið-
togi og því er spáð
að hann verði í
fremstu víglínu
pólitíkusa í fram-
tíðinni. Reyndar er
hann þegar einn
varaþingmanna Samfylkingar í Vest-
urlandskjördæmi. Það vekur athygli
í Háskólanum að hann gengur
sjaldnast einn um sali heldur fylgir
honum hirð skoðanabræðra sem
gjaman ganga á eftir honum. Á
stundum hefur mátt sjá leiðtogann
snupra sina litlu bræður sem látið
hafa i ljósi aðrar skoðanir en honum
hugnast...
Prins Hjálmar
Margt bendir ti
að Halldór Ás-
grímsson hafi
augastað á Hjálm-
ari Ámasyni sem
arftaka sfnum. Þar
sem ljóst er að
Guðni Ágústsson
mun vinna emb-
ætti varaformanns
ætlar Halldór Hjálmari embætti rit-
ara að þessu sinni. Orðrómur er um
að Ingibjörg Pálmadóttir hafi af-
ráðið að hætta þingmennsku við
næstu kosningar og innan Framsókn-
ar er sagt að Halldór hafi samið við
Ingibjörgu um að láta Hjálmari eftir
embætti ritara á komandi flokks-
þingi, til að koma honum inn í for-
ystu flokksins. Sömu heimildir halda
því fram að til að efla Hjálmar enn
frekar hafi Halldór þegar samið við
Ingibjörgu um að hætta sem ráð-
herra síðar á þessu ári. Sá sem Hall-
dór ætlar ráðherrastól Ingibjargar er
einmitt prins Hjálmar. Þar með er
Siv Friöleifsdóttir endanlega úti í
kuldanum og Guðni má fara vara sig.
Gott fordæmi
Alþingismenn
grípa til ótrúleg-
ustu ráða til þess
að koma sér í
mjúkinn hjá kjós-
endum sínum.
Kristinn H.
Gunnarsson býr
úti á Seltjarnar-
nesi en er þing-
maður Framsóknarflokksins á
Vestfjörðum. I næstu kosningum
verður kosið eftir breyttri kjör-
dæmaskipan og þá þarf Kristinn að
steðja fram í Vesturlandskjördæmi
sem nær frá Akranesi til Hofsóss.
Kristinn er mikill landsbyggð-
arunnandi enda býr hann ekki í
Reykjavík en hann mun ætla að
stíga skrefi lengra og flytja til
Sauðárkróks með góðum fyrirvara
fyrir næstu kosningar. Verið er að
drösla Byggðastofnun nauðugri
norður á Krók og Kristinn er
stjórnarformaður hennar og er
sennilega að sýna gott fordæmi
með þessu...
Þarf lögfróða
Reykjavikurborg
hefur sett upp vef-
síðuna flugvöllur.is
til að skýra allar
hliðar flugvallar-
umræðunnar. Þetta
á aö vera hlutlaus
vefsíða en ýmsum
sem hana lesa
þykir frekar halla á
tilvist flugvallarins í þeirri umræðu.
Það er starfsfólk Þróunarsviðs borg-
arinnar sem annast vefsíðuna og þar
fljóta ýmis gullkorn sem má kannski
skrifa á annríki. í dálkinum spurt og
svarað er þetta meðal annars: Sam-
kvæmt áliti prófessors í lagadeild HÍ
er hún (atkvæðagreiðslan) þó ekki
bindandi nema fyrir þetta kjörtimabfi
þ.e. að aðalskipulag kemur til skoð-
unar á hverju kjörtimabili - hvort
ástæða er að endurskoða það í heild
eða hluta þess. Þróunarsvið getur
ekki á þessari stundu skorið á neinn
hátt úr um hvort þetta er rétt túlkun
hjá prófessornum, til þess þarf lög-
fróða aðila...