Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Qupperneq 8
8
Útlönd
- LAUGA’RDAGUR 17. FEBRÚAR 2001
DV
Skothyiki innandyra
Palestínsk kona sýnir tóm skothylki
ísraela í húsi hennar í Rafah-
flóttamannabúöunum.
Varar viö efna-
hagshruni í
Palestínu
Terje Rod Larsen, sérlegur sendi-
maður Sameinuðu þjóðanna í Mið-
austurlöndum sagði í gær að fjár-
hagsstaða Palestínumanna væri af-
ar slæm. Yasser Arafat, leiðtogi
Palestinumanna, er sagður eiga í
erfiðleikum með að greiða opinber-
um starfsmönnum laun.
Larsen segir að fá Palestínumenn
ekki fljótt efnahagsaðstoð sé hætta á
að palestínsk yflrvöld missi stjórn-
ina á atburðarásinni á herteknu
svæðunum. Larsen telur hættu á
auknu oíbeldi og algeru öngþveiti
fái Palestínumenn ekki hjálp frá
umheiminum.
Fær bætur eftir
að hafa ekið á
daufdumba telpu
Breskum ökumanni, Mark
Cooper, sem ók á 4 ára daufdumba
telpu árið 1991, hafa verið dæmdar
um 70 milljónir íslenskra króna í
bætur vegna áfallsins sem hann
fékk við slysið. Telpan hljóp skyndi-
lega fyrir bíl hans og slasaðist alvar-
lega. Leigubílstjóri, sem ekið hafði
stúlkubarninu heim, og leigubíla-
stöð hans voru dæmd til að greiða
bæturnar. Vegna áfallsins gat
Cooper ekki rekið byggingafyrir-
tæki sitt og varð hann gjaldþrota.
Eiginkona hans yflrgaf hann vegna
hegðunar hans og tók börn þeirra
með sér.
Utanríkisráðherra Þýskalands
Joschka Fischer var róttækur vinstri
maöur á yngri árum.
Fischer sætir
rannsókn vegna
meinsæris
Saksóknari í Frankfurt í Þýska-
landi hefur hafði rannsókn á
meintu meinsæri Joschka Fischer
utanríkisráðherra i réttarhöldunum
yfir Hans-Joachim Klein. Klein var
á fimmtudaginn dæmdur í 9 ára
fangelsi fyrir aðild að gíslatöku og
morðum í Vín 1975. Fischer bar fyr-
ir rétti að engir hryðjuverkamenn
hefðu búið í kommúnunni sem
hann bjó i á áttunda áratugnum.
Nokkrum dögum seinna sagði
Fischer í viðtali að Margrit Schiller,
sem var í Rauðu herdeildinni, hefði
búið i sama húsi og hann en ekki í
sömu íbúð. Sjálf kvaðst hún hafa
búið í sömu íbúð og Fischer í
nokkra daga.
Loftárásir
á Bagdad
Öflugar sprengingar skóku
Bagdad, höfuðborg Iraks, í gær-
kvöld þegar bandarískar og breskar
herflugvélar gerðu loftárásir á hern-
aðarmannvirki við borgina. Ekki
hefur verið gerð árás við Bagdad
síðan 24. febrúar 1999 þegar banda-
rískar herflugvélar réðust á skot-
mörk við borgina með þeim afleið-
ingum að nokkrir írakar biðu bana.
Loftvamarflautur fóru í gang í
borginni en íbúunum var fyrst tjáð
að um æfingu væri að ræða. Tíu
mínútum seinna gátu borgarbúar
þó heyrt sprengingar. íraska sjón-
varpið rauf þá dagskrána og sendi
út þjóðsöngva. Einnig voru sýndar
myndir af særðum íröskum her-
mönnum.
Árásirnar voru gerðar á skot-
mörk rétt norðan við flugbannsvæð-
Bjarmi í Bagdad af sprengjum
Sprengingarnar lýstu upp
kvöldhimininn í borginni.
ið í suðurhluta íraks. Þær eru tald-
ar svar við aukinni ógnun frá
írökum á flugbannssvæðunum.
irakar viðurkenna ekki bannið og
reyna að skjóta niður vélar
bandamanna.
Stjórnmálaskýrendur segja
greinilegt að George W. Bush, nýr
forseti Bandaríkjanna, sé að senda
Saddam Hussein íraksforseta skýr
skilaboð. Saddam hefur að
undanfomu þótt leggja áherslu á
hernaðarmátt íraks. Stór hersýning
var í Bagdad í byrjun þessa árs.
Ekki er langt síðan sonur Saddams,
Uday, fullyrti að Kúveit væri enn
hluti af írak.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, heldur til
Miðausturlanda og Persaflóa í
næstu viku.
Imelda skoðar skósafniö sitt
Þekktasti skósafnari heims, Imelda Marcos, fyrrverandi forsetafrú Filippseyja, opnaöi í gær safn sem helgaö er fóta-
búnaði. Á safninu eru hundruö skópara Imeldu sem uröu eftir í forsetahöllinni þegar hún flýöi land ásamt eiginmanni
sínum 1986. Imelda gaf einnig sjálfsafninu skó sem og fjöldi stjórnmáiamanna og kvikmyndastjarna. Forsetafrúin
fyrrverandi sýndi fréttamönnum rauöa skó sem hún sagði hafa veriö i uppáhaldi. Hún hefur ekki tölu á þeim fjölda
para sem hún á nú.
Fordæma sprengju-
árásina í Kosovo
George Robertson, framkvæmda-
stjóri NATO, fordæmdi í gær
sprengjuárásina á langferðabifreið í
Kosovo. Sjö Serbar létu lífið í
árásinni og tugir særðust. Robert-
son sagði að NATO hefði ekki gert
loftárásir til þess að þjóðernis-
hreinsanir annars deiluaðilans
tækju við af þjóðemishreinsunum
hins.
Sænskir friðargæsluliðar fylgdu
langferðabifreiðinni. Alls voru
fimm bílar í lestinni, að því er er-
lendar fréttastofur greindu frá í
gær. Bifreiðin var kölluð Nis-hrað-
leiðin og er kennd við borgina Nis í
Serbíu. Þaðan ekur langferðabifreið
tvisvar í viku með Serba sem vilja
heimsækja Kosovo. Kosovo-Serbar,
sem þurfa að sinna erindum í
Serbiu, notfæra sér einnig ferðirn-
ar.
Endastöð vagnsins er í Grancan-
Langferöabifreiö Serbanna
Sjö létu lífiö og tugir særöust í
sprengjuárásinni.
ica fyrir sunnan Pristina. Þar snýr
hann við og ekur sömu leið til baka
um svæði Serba í Kosovo. Sprengj-
an var sprengd með fjarstýringu
þegar bílarnir fimm voru á leið til
Serbíu skammt frá bænum Podu-
jevo. Þetta var önnur árásin á
serbneska bílalest í þessari viku.
Skömmu eftir árásina í gær efndu
ættingjar hinna látnu og særðu til
harðra mótmæla. Settu þeir upp
vegatálma og kveiktu í farartækjum
og fasteignum.
Flokkur Gorans Svilanovics, ut-
anrikisráðherra Júgóslavíu, gagn-
rýndi aðgerðaleysi friðargæsluliða í
Kosovo.
Innanríkisráðherra Serbíu, Dus-
an Mihajlovic, slapp án meiðsla í
gærmorgun þegar skotið var á bíla-
lest hans. Stuðningsmenn Milos-
evics, fyrrverandi Júgóslavíufor-
seta, eru sakaðir um árásina.
EHSŒS
Morðingjum sleppt
Piltunum tveimur, sem dæmdir
voru fyrir morðið á James Bulger,
tveggja ára dreng í Liverpool, verða
látnir lausir samkvæmt fyrri áætl-
un. Hæstiréttur vísaði í gær frá
beiðni föður Bulgers um að piltun-
um yrði ekki sleppt á næstunni.
Þeir voru tíu ára þegar þeir voru
dæmdir 1993.
Sneri sig á ökkla
Margrét Þórhildur
Danadrottning sneri
sig á ökkla í Frakk-
landi þangað sem
hún hélt frá Taílandi
til að vera við útför
tengdamóður sinnar,
móður Henriks
prins. Drottningin
flýgur í dag heim til Danmerkur.
Hún mun ekki geta sinnt opinber-
um athöfnum um helgina.
Alræmdur aðmíráll
Richard Macke, skipstjóri banda-
ríska kafbátsins sem sökkti
japönsku skólaskipi, bauð 15 gest-
um um borð. Venjulega er aðeins 6
til 12 boðið. Skipstjórinn varð al-
ræmdur fyrir sex árum vegna við-
bragða sinna við nauðgun banda-
rískra hermanna á 12 ára japanskri
stúlku. „Þeir hefðu átt að kaupa
vændiskonu í staðinn,“ sagði hann.
Milljónir fyrir ábendingar
Fimm manns í Svíþjóð fá samtals
um 15 milljónir íslenskra króna fyr-
ir ábendingar sem leiddu til þess að
þrír voru dæmdir fyrir diskóbrun-
ann í Gautaborg 1998.
Andstæðingur
ákærður
Morgan Tsvangirai,
leiðtogi stjórnarand-
stöðuílokksins MDC í
Simbabve, hefur verið
ákærður fyrir að hvetja
til ofbeldis. Hann sagði
á fundi í haust að
svipta ætti Mugabe forseta völdum.
Sprengjuhótun og fótbolti
Flugþjónn hjá kúveiska flugfélag-
inu Kuwait Airlines hringdi í flug-
turn skömmu fyrir flugtak og til-
kynnti að sprengja væri um borð.
Flugþjónninn vildi tefja ferð vélar-
innar þar sem hann langaði að
horfa á úrslitaleik í fótbolta.
Gorbatsjov í
sjónvarpið
Mikhail Gorbat-
sjov, síðasti forseti
Sovétríkjanna, er nú
við tökur á sjónvarps-
viðtölum við 13 þjóð-
arleiðtoga og Jóhann-
es Pál páfa. Spyr Gor-
batsjov þá um einkalíf þeirra og
ástæður fyrir sumum ákvörðunum
þeirra.
Tilraunaskot Rússa
Rússar skutu í gær eldflaugum,
sem geta borið kjamaodda, frá kaf-
bát, flugvél og landi. Litið er á æf-
íguna sem viðvörun og tilraun tO
5 kljúfa sapisföðjma jnnan NATO.
ítalski stórsöngvarinn Pavarotti
verður dreginn fyrir rétt á Ítalíu
vegna skattsvika. Hann er sakaður