Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Qupperneq 12
12
Helgarblað
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001
x>v
Hafi Bill Clinton haldið að
hneykslismálunum væri lokið þeg-
ar hann yfirgæfi Hvíta húsið hefur
hann orðið fyrir vonbrigðum. Sak-
sóknarar rannsaka nú tengsl milli
f]árframlaga til Clintons og flokks
hans og náðunar á síðasta degi hans
á forsetastóli. Clinton hefur einnig
verið spurður í þaula um gjafir og
húsgögn sem hann og eiginkona
hans, Hillary, tóku með sér úr Hvita
húsinu þegar þau fóru frá
Washington.
Það olli einnig hneyksli þegar for-
setinn fyrrverandi hugðist taka á
leigu dýrt skrifstofuhúsnæði á Man-
hattan á kostnað skattgreiðenda að
hluta til. Clinton hefur nú hætt við
þá áætlun sína og er að semja um
ódýrara leiguhúsnæði í Harlem sem
er blökkumannahverfl.
Heiladauður eða með ótrú-
legt minnistap
Clinton hefur sætt mikillar gagn-
rýni í Washington að undanförnu,
ekki bara meðal repúblikana heldur
einnig meðal demókrata. „Clinton
hlýtur annaðhvort að hafa þjáðst af
ótrúlegu minnistapi eða verið heila-
dauöur," sagði Joseph Biden sem er
öldungadeildarþingmaður fyrir
Demókrataflokkinn.
Það að Clinton skuli ætla að setja
upp skrifstofu í Harlem þykir sýna
að hann sé farinn að hafa áhyggjur
af ímynd sinni, að mati stjómmála-
fræðinga.
Það varð uppnám þegar Clinton
tilkynnti að hann hygðist koma sér
fyrir í skrifstofubyggingunni
Carnegie Towers á Manhattan og
borga tæpar 70 milljónir íslenskra
króna í ársleigu. Það hefði kostað
skattgreiðendur meir heldur en
Erient fréttaljós
samanlögð ársleiga fyrir skrifstofur
fjögurra síðustu forseta Bandaríkj-
anna. Skrifstofuhúsnæðið í Harlem,
sem er um 700 fermetrar á 14. hæð,
yrði talsvert ódýrara, eða fjórðung-
ur af því sem leigan á Manhattan
er. Útsýnið er heldur ekkert slæmt.
Clinton sér yfir húsaþökin í
Harlem, yfir allan Central Park al-
menningsgarðinn og i áttina að
skýjakljúfunum í finni hverfum.
Það yrði líka styttra fyrir hann
heim i villuna í Chappaqua.
Þó að talsverðar umbætur hafi
verið gerðar í Harlem á undanfórn-
um ámm er hverfið þó niðumítt í
samanburði við Manhattan. Víst
þykir að Clinton verði vel fagnað í
hverfinu þar sem hann naut mikils
stuðnings þegar hann náði endur-
kjöri. En það vegur bara að litlu
leyti upp á móti gagnrýninni sem
hann hefur sætt að undanfömu.
Rannsókn á náðun á land-
flótta auðkýfingi
Saksóknarar í New York hafa nú
hafið rannsókn á hvort tengsl séu
milli fjárframlaga til Clintonhjón-
anna og Demókrataflokksins og
náðunar á landflótta auðkýfingi og
gyðingi, Marc Rich, síðasta daginn í
valdatíð Bills Clintons. Tvær þing-
nefndir hafa hafið yfirheyrslur
vegna málsins.
Clinton neitar lögbroti vegna umdeildrar náðunar en virðist viðurkenna önnur mistök:
Endurgreiðir box
hanska og postulín
brot Rich til embættismanna Clint-
ons.
Clinton heldur því fast fram að
sakaruppgjöfin sé réttlætanleg.
„Þegar staðreyndir málsins eru
orðnar opinberar skilur fólk hvað
ég gerði og hvers vegna, jafnvel þótt
menn séu ekki sammála þvi,“ legg-
ur forsetinn fyrrverandi áherslu á.
Endurgreiða Spielberg og
Stallone fyrir gjafir
Clinton virðist að minnsta kosti
hafa viðurkennt mistök með því að
hafa tekið gjafir og húsgögn með sér
frá Hvíta húsinu. Clintonhjónin
hafa skilað aftur húsgögnum að
verðmæti um 2,5 milljónir íslenskra
króna. Deilt hefur verið um hvort
um persónulegar gjafir sé að ræða
eða gjafir til forsetaembættisins.
Bill og Hillary sögðu að ekkert þess-
ara umdeildu húsgagna heföi verið
á lista yfir opinber húsgögn Hvita
hússins.
Tveir húsgagnaframleiðendur,
sem framleitt höfðu húsgögn sem
Clintonhjónin tóku með sér, segja
að þau hafi verið hluti af húsbúnaði
fyrir skrifstofuálmu Hvíta hússins.
Þau hafi ekki verið ætluð forseta-
hjónunum sjálfum. I yfirlýsingu frá
skrifstofu Clintons segir að hús-
gögnin hafi verið flutt frá skrifstofu-
álmunni með samþykki embættis-
manna. Meðal umdeildu húsgagn-
anna eru tvö borð og stólar frá Den-
ise Rich sem metin eru á um 600
þúsund króna.
Clintonhjónin hafa lýst þvi yfir
að þau ætli að endurgreiða rúmlega
7 milljónir króna fyrir gjafir sem
þau tóku á móti. Er það tæplega
helmingur þess sem gjafimar, sem
þau tóku á móti, eru metnar á. Með-
al þess sem þau ætla að endurgreiða
eru húsgögn, sjónvörp, fatnaður,
postulín og listaverk.
Kvikmyndaleikstjórinn Steven
Spielberg er á lista yfir þá sem fært
hafa Hvíta húsinu gjafir. Spielberg
gaf postulín sem metið er á tæpa
hálfa milljón króna. Ted Danson og
Mary Steenburger gáfu einnig
postulín fyrir jafnháa upphæð. Golf-
kylfur að verðmæti 30 þúsund krón-
ur bárust frá Jack Nicholson og
boxhanskar frá Sylvester Stallone
fyrir örlítið lægri upphæð. Þessir
gefendur eru meðal þeirra sem fá
endurgreitt.
Níu milljónir fyrir fyrsta fyrir-
lesturinn
Clinton er ekki bara í vandræð-
um með ímyndina heldur einnig
íjármálin. Talið er að hann skuldi
gífurlegar íjárhæðir vegna lög-
mannskostnaðar í tengslum við
Whitewatermálið og Lewinskymál-
ið. En sem fyrrverandi forseti getur
hann krafist hárra upphæða fyrir
að flytja fyrirlestra og ræður. Clint-
on mun hafa fengið um 9 milljónir
króna fyrir fyrsta fyrirlesturinn
sem hann flutti hjá fjármálafyrir-
tækinu Morgan Stanley Dean Witt-
er. Forstjóri fyrirtækisins er sagður
hafa sagt í tölvupósti að líklega
hefðu menn átt að hugsa sig tvisvar
um áður en þeir fengu Clinton til að
halda ræðu. Viðskiptavinir fyrir-
tækisins væru ekki allir hrifnir af
hegðun forsetans.
Það eru þó ekki allir sem óttast
viðbrögð viðskiptavinanna. Hug-
búnaðarfyrirtækið Oracle og tvö
önnur fyrirtæki hafa beðið Clinton
um að halda ræðu siðar i þessum
mánuði.
Byggt á Washington Post, New
York Times o. fl.
Fyrrverandi eiginkona auðkýfingsins og forsetinn fyrrverandi
Bill Ctinton hefur sætt haröri gagnrýni fyrir aö náöa auökýfinginn Marc Rich. Fyrrverandi eiginkona Rich, Denise, sem
hefur veriö örlát á fé í sjóöi forsetans fyrrverandi og demókrata, réttir Bill hér saxófón á samkomu.
Komið hefur í ljós að Denise
Rich, fyrrverandi eiginkona Marcs
Rich, gaf 6 mUljónir i kosningasjóð
Hillary Clinton þegar hún keppti að
því að hreppa öldungadeildarþing-
sæti fyrir New York. Bandaríska
dagblaðið Washington Post kvaðst
hafa það eftir heimildarmönnum,
sem vel þekktu til fjárframlaga Den-
ise Rich, að frá júlí 1998 til maí 2000
hefði hún þrisvar sinnum geflð há-
ar fjárhæðir í bókasafnssjóð forset-
ans áður en hún hóf að berjast fyrir
sakaruppgjöf fyrrverandi eigin-
manns síns. Nefndar hafa verið töl-
ur á bilinu 40 til 85 milljónir ís-
lenskra króna.
Framlög Denise Rich til
Demókrataflokksins og frambjóð-
anda hans námu yfir 85 milljónum
króna. Denise gaf einnig forseta-
hjónunum húsgögn sem metin eru á
um 600 þúsund króna. Hún hefur
vísað því á bug að samband sé á
milli gjafa hennar og tilrauna henn-
ar til að fá fyrrverandi eiginmann
sinn náðaðan. Bill Clinton segir
engin tengsl hafa verið á milli gjaf-
anna og náðunarinnar.
Marc Rich flýði til Sviss fyrir 17
árum þegar verið var að undirbúa
ákæru á hendur honum vegna
skattsvika upp á 400 milljónir is-
lenskra króna. Hann var einnig sak-
aður um ólögleg olíuviðskipti við ír-
an, írak og Líbýu.
Mary Jo White, saksóknari í New
York, ætlar að láta skoða banka-
færslur, símtöl og önnur skjöl til að
kanna hvort nokkuð ólöglegt hafi
legið að baki náðuninni á Marc
Rich. White undirbjó fyrstu
ákæruna á hendur Rich en ekki var
leitað ráða hjá skrifstofu hennar
vegna náðunarinnar.
Beiðnir um náðanir eru lagðar
fyrir embættismann í dómsmála-
ráðuneytinu. Roger Adams, sem
gegndi embættinu áður en
repúblikanar tóku við, sagði við yf-
irheyrslu hjá þingnefnd í vikunni
Skrifstofubyggingin í Harlem
Bill Clinton hætti viö aö taka á leigu rándýrt húsnæöi á Manhattan og hyggst
nú taka á leigu skrifstofu í þessari byggingu í Harlem í New York.
að kvöldið fyrir embættistöku Ge-
orge Bush hefði verið hringt í sig og
honum tjáð að ekki þyrfti að kanna
nema feril tveggja af 141 sem lagt
væri til að náðaðir yrðu daginn eft-
ir. Rich var annar þeirra. Adams
var ekki greint frá því að Rich hefði
flúið land heldur einungis að hann
hefði búið erlendis. Kvaðst Adams
hafa komist að því hjá FBI, alríkis-
lögreglunni. Hann sagðist hafa sent
í símbréfi samantekt um meint af-