Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Side 25
25
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001
DV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Aðferðir Pauls eru heilaþvottur, að sögn lærisveinanna
Lærisveinar Welch eru iátnir skrifa ævisögu sína viö upphaf „þjálfunar". Lítiö
er gert úr allri fyrri reynslu og alhæft að manneskjan hafi veriö í myrkri þar til
leitaö var á náöir Welch. Fólk er m.a. látiö afklæðast og vera nakiö til aö
hægt sé aö „brjóta niöur varnir þess“. Welch mun einnig hafa hvatt konu til
þess aö stunda sjálfsfróun fyrir framan hann I einkatíma og fengiö fólk til aö
stunda kynmök á meöan á „þjálfuninni“ stendur.
Sálfrœðilegar ógnir eru
ávallt til staðar, eða not-
aðar markvisst: Ef ein-
staklingnum takist ekki
að aðlagast kennisetning-
um, hegðunarmynstri
eða viðhorfum safnaðar-
ins/hópsins muni hann
verða fyrir refsingu í
formi mistaka eða illra
afleiðinga, svo sem geð-
veiki, fjárhagserfiðleika,
endurupptöku líkamlegs
sjúkdóms, fíknar, skilnað-
ar o.s.frv.
Hræddir
lærisveinar
segja frá
í framhaldi af þessari „kynningu“
fór ég aö spyrjast fyrir um Welch og
þær aðferðir sem hann beitir í
prógrammi sínu. Blaðamenn, að-
standendur lærisveina og aðrir
heimildamenn færðu mér upplýs-
ingar sem bentu sterklega til þess
að Welch legði stund á að heilaþvo
fólk í hagnaðarskyni. Heilaþvottur,
eða „mind control", er vel þekkt fyr-
irbæri á Vesturlöndum.
Til þess að kanna aðferðir Welch
nánar kom ég að máli við nokkra
fyrrverandi lærisveina hans sem
hafa slitið sig frá starfseminni. Öll
voru þau á einu máli um að það sem
færi fram á námskeiðunum væri
heilaþvottur í sinni eirdoldustu
mynd. Af ótta viö ofsóknir af hendi
þeirra sem enn eru í söfnuðinum og
rógburð i samfélaginu ákváðu þau
að koma ekki fram undir nafni í
þessu viðtali en töluðu jafnframt
um að bráðlega kæmi út undir-
skriftalisti með nöfnum þeirra sem
vara við starfsemi Welch og að sá
listi færi í hendur landlæknis.
Hópeflið styrkir þau í stöðu sinni.
Margir í milljónaskuldum
Einnig drógu þau þá ályktun að
margir væru eflaust hræddir við að
koma fram því það er ákveðin
skömm sem felst í því að viður-
kenna að maður hafi verið heila-
þveginn. Margir eru komnir í millj-
ónaskuldir með fjölskyldumeðiimi
sína í ábyrgð og erfitt er að yppa
öxlum yfír blankheitunum og bera
við að maður hafi óvart lent i heila-
þvotti eftir að mikill tími, orka og
fjármagn hefur farið í Welch. End-
urgreiðslu á námskeiðum hans er
aðeins hægt að fá fyrsta sólarhring-
inn eftir að námskeið hefst, síðan
ekki, og það er höfuðatriði hjá hon-
um að ekkert gerist fyrr en greiðsla
hefur verið innt af hendi. Borgunin
fer þess utan alltaf fram í reiðufé,
dollurum. Áður en námskeiðið (sem
hann kallar þjálfun) hefst er fólk lát-
ið undirskrifa samning þar sem
hann fírrir sig allri ábyrgð á því
sem komið getur fyrir á námskeið-
inu og eftir námskeiðið. Einnig fær
hann lærisveina til að skrifa um sig
lofgjörð sem hann geymir svo sem
„sönnunargögn“ til seinni tíma.
Hvað er heilaþvottur?
Heilaþvottur, eða „mind control",
er vel þekkt fyrirbæri á Vesturlönd-
um. Ástæður þess að menn nýta sér
„mind control“-aðferðir eru yfirleitt
aðeins tvær. Önnur er pólitísk og
hin er peningalegs eðlis.
Dæmi um heilaþvott, þar sem
pólitískar ástæður liggja að baki,
eru auðfundin og skemmst er að líta
til seinni heimsstyrjaldarinnar.
Nasistaflokkur Hitlers hafði öflug
vopn í hendi sér til að stjórna við-
horfum þýsku þjóðarinnar og það
eitt að heil þjóð hafi getað fallist
eins ástríðufuút á firrtar kenningar
eins manns og flokks hans segir
okkur að það skiptir ekki máli
hvort það er Jón eða séra Jón sem á
í hlut þegar heilaþvottur er annars
vegar. Prestar, húsmæður, verk-
fræðingar og listakonur tóku af
heilum hug og hjarta þátt í þeim
voðverkum sem áttu sér stað í
stjórnartíð Hitlers.
Dæmi þar sem hvatning leiðtog-
ans eða leiðtoganna er peningalegs
eðlis er einnig auðvelt að finna og
má þar nefna m.a. Moon-söfnuðinn,
Vísindakirkjuna, ýmsa kristna sér-
trúarsöfnuði og nýaldarsöfnuði.
Marga söfnuðina má einnig þekkja
á því að hópur fólks safnast í kring-
um einn aðila sem býr yfir mikilli
útgeislun og öflugum sannfæringar-
krafti. „Mind control“-aðferðir hafa
verið þróaðar áfram af ýmsum aðil-
um og með frægari tilraunum á
þessu sviði er MK-Ultra-aðferðin
sem var þróuð af CIA, bandarísku
leyniþjónustunni, á árunum
1950-60. Þar prófuðu geðlæknar og
sálfræðingar sig áfram með dá-
leiðsluaðferðir og ofskynjunarlyf til
að kanna hvernig hægt væri að ná
valdi yfir hugsunum, skoðunum og
jafnvel minningum einstaklinga.
Öllum skýrslum úr MK-Ultra-að-
gerðinni var formlega eytt árið 1973.
Hvernig heilinn er þveginn
Hér á eftir er stuðst við „mind
control“-aðferðalista sem sýnir
grunnaðferðir heilaþvottar. Listinn
er birtur á Netinu af samtökum
sem kalla sig Fact Net og vinna
gegn heilaþvotti og sértrúarsöfnuð-
um. Einnig var stuðst við bókina
Combatting Cult Mind Control eftir
Steven Hassan, sem er breskur sál-
fræðingur og leiðandi afl í barátt-
unni gegn sértrúarsöfnuðum í
heiminum.
Einstaklingurinn sem á í hlut er
undirbúinn fyrir heilaþvottinn
með A: Örvandi hljóði, mynd eöa
munnlegu áreiti í ríkum mæli. B:
Síendurteknum athöfnum. C:
Skertum svefni. D: Skertu matar-
æði.
Dæmi: Á námskeiðunum hjá
Welch er tónlist spiluð mjög hátt og
lengi í senn. Hann talar til fólks án
þess aö það megi svara á móti og
hann notar einnig skýringarmynd-
ir af ýmsu tagi. Fólk er látið sitja
við „hugleiðslur“ í marga klukku-
tíma í senn eða berja handklæði í
gólf svo tímunum skiptir. „Hug-
leiðslan" byggist á því að einstak-
lingurinn er látinn öskra og garga,
gráta, hlæja eða eitthvað af því tagi
langan tima í einu. Á námskeiðun-
um er ekki sofið nema 3-6 klst. á
hverri nóttu og oftar en ekki skip-
ar hann svo fyrir að nótt sé sleppt
úr og næstu nótt er aftur aðeins
sofið í 3-6 klst. Mataræðið er te og
ávextir í morgunmat, te, grænmeti
og ídýfur í síðdegiskaffi og kvöld-
máltiðin er svo oft ekki borðuð fyrr
en undir miðnætti.
Blindaður og grátandi í
horninu
Notast er við umbun og refs-
ingu. Reynt er að ná tökum á tíma
fólks, félagslegu umhverfi og félags-
legum stuðningi. Mælt er með fé-
lagslegri einangrun. Reynt er að
koma i veg fyrir samskipti við vini
og fjölskyldu og þá sem ekki styðja
kennisetningar hópsins. Hlúð er að
því að einstaklingurinn verði háð-
ur hópnum, m.a. fjárhagslega.
Dæmi: Ef einhver hegðaði sér
ekki eftir þeim aðferðum sem
Welch krafðist var hópur læri-
sveina sendur á þennan aðila og
honum refsað með andlegu ofbeldi
og niðurlægingum. Dæmi eru um
það að maður hafi verið látinn sitja
með bundið fyrir augun i þrjá sól-
arhringa til þess að hægt væri að
brjóta hann niður. Hann fékk að
leggjast á dýnu á gólfinu yfir
blánóttina en annars sat hann og
grét í horninu. Ef fólk hafði brotn-
að verulega mikið saman var því
umbunað með hrósi og því lyft upp
á einhvers konar virðingarstall.
Mikið er lagt í sölurnar til að fá
maka til að taka þátt í námskeiðum
og Welch hikar ekki við að mæla
með hjónaskilnaði ef svo ber undir.
Allt er gert til að láta fólk verða
háð lausnum Welch og námskeið-
unum sem boða þær.
Kúgun á dulmáli
Upplýsingar og skoðanir sem
styðja ekki kennisetningar safnað-
arins eru bannaðar í samskiptum
innan hópsins. Reglur gilda um
hvað má ræða utan safnaðarins.
Samskiptum er stjórnað. Sérstakt
tungumál og orðatiltæki eru notuð
innan hópsins.
Dæmi: Welch bannar lærisvein-
um sínum að tala um aðferðirnar
sem hann notar. Aðeins er leyft að
bera vitnisburð um jákvæðar
breytingar sem hafa átt sér stað á
einstaklingnum eftir að hann/hún
komst í kynni við Welch. Sérstakt
tungumál er mikið notað. Sem
dæmi nefna þau að sú manneskja
sem efaðist um skoðanir hans var
„ofF‘. Þetta þýddi að það þurfti að
gera hana aftur „on“. „Beater" er
notað yfir handklæði sem er búið
að binda saman með límbands-
rúllu. „Breakthrough" þýðir að
brotna saman andlega og verða til-
búinn fyrir nýja innprentun („sur-
render"), að „channela" þýðir að
miðla einhverju og „go deeper" er
að vera ýtt út í andlegt niðurbrot.
Sjálfsfróun í elnkatímum
Reglubundnar og hnitmiðaðar
tilraunir eru gerðar til að fá ein-
staklinginn til að endurmeta sjálfs-
upplifun sína á neikvæðan hátt.
Reynt er að grafa undan skynjun
grundvallar-raunveruleika, heims-
mynd, stjórn á tilfinningum og
vörnum einstaklingsins. Einstak-
lingurinn er fenginn til að búa til
nýja útgáfu af ævisögu sinni þar
sem orsakasamhengi er breytt.
Dæmi: Lærisveinar Welch eru
látnir skrifa ævisögu sína við upp-
haf „þjálfunar". Lítið er gert úr
allri fyrri reynslu og alhæft að
manneskjan hafi verið í myrkri þar
til leitað var á náðir Welch. Fólk er
m.a. látið afklæðast og vera nakið
til að hægt sé að „brjóta niður
varnir þess“. Welch mun einnig
hafa hvatt konu til þess að stunda
sjálfsfróun fyrir framan hann í
einkatíma og fengið fólk til að
stunda kynmök meðan á „þjálfun-
inni“ stendur.
Grafið undan dómgreind
Reglubundnar og hnitmiðaðar
aðgerðir eru gerðar til þess að grafa
undan dómgreind og sjálfstrausti
einstaklingsins - afleiðingin er van-
máttarkennd.
Dæmi: Welch mun m.a. hafa
teiknað skýringarmynd þar sem
hann bendir á að lærisveinarnir
séu ekki í tengslum við sitt æðra
sjálf. Welch telur sjálfan sig hins
vegar vera vel tengdan og í gegnum
sitt æðra sjálf tengist hann inn í
æðra sjálf lærisveina sinna og fær
þannig skilaboð um hvað sé þeim
fyrir bestu. Hann telur lærisvein-
um sinum einnig trú um að hann sé
að efla sjálfstraust þeirra, en um
leið og sjálfstraustið kemur ekki
heim og saman við kennisetningar
hans þá er sá lærisveinn lagður í
einelti af hópnum og brotinn niður
þar til hann fylgir kenningum
Welch.
Margir eru komnir í
milljónaskuldir með fjöl-
skyldumeðlimi sína í
ábyrgð og erfitt er að
yppa öxlum yfir blank-
heitunum og bera við að
maður hafi óvart lent í
heilaþvotti eftir að mikill
tími, orka og fjármagn
hefur farið í Welch. End-
urgreiðslu á námskeiðum
hans er aðeins hœgt að fá
fyrsta sólarhringinn eftir
að námskeið hefst, síðan
ekki, og það er höfuð-
atriði hjá honum að ekk-
ert gerist fyrr en greiðsla
hefur verið innt af hendi.
Andlegar refsingar
Andlegum refsingum á borð við
beina niðurlægingu, forréttinda-
skerðingu, aukingu á sektarkennd
og kvíða, félagslegri einangrun og
stöðubreytingu er beitt til hins
ýtrasta til að vekja sterk tilfinn-
ingaleg viðbrögð hjá einstaklingn-
um.
Dæmi: Fólk innan hópsins telur
sig vera komið eitthvað áleiðis í
vinnunni með sjálft sig þegar því er
sagt að nú megi það vinna fyrir
Welch. Eftir óákveðinn tíma er
þessu fólki skyndilega hent aftur
inn í hópinn með það fyrir augum
að það „eigi ekki að halda að það sé
neitt“. Þegar fólk hefur viljað segja
sig úr hópnum hefur Welch hótað,
stuðlað beint að og ýtt undir kvíða
og sektarkennd o.s.frv.
Þú gengur beint í myrkrið
Sálfræðilegar ógnir eru ávallt til
staðar, eða notaðar markvisst: Ef
einstaklingnum takist ekki að að-
lagast kennisetningum, hegðunar-
mynstri eða viðhorfum safnaðar-
ins/hópsins muni hann verða fyrir
refsingu í formi mistaka eða illra
afleiðinga, svo sem geðveiki, fjár-
hagserfiðleika, endurupptöku lík-
amlegs sjúkdóms, fiknar, skilnaðar
o.s.frv.
Dæmi: Welch heldur því hiklaust
fram að velgengni lærisveina sinna
sé í einu og öllu honum að þakka.
Hann heldur því einnig fram að það
fólk sem snýr við honum baki muni
ganga beint í „myrkrið" eins og
hann kallar það.
Gagnrýnendur útskúfaðir
Það fólk sem hefur gagnrýnt að-
ferðir Welch og yfirgefið hópinn er
útskúfað og sniðgengið af læri-
sveinum. Einnig munu Welch og
lærisveinar hans hafa tekið þátt í
miklum rógburði og oft hefur um-
talið ekki snúist um „námskeiðin"
og Welch heldur jafnvel bara líf
manneskjunnar og störf í hinu dag-
lega - þ.e. að reynt-hefur verið að
eyðileggja mannorð og velsæmis-
kennd þeirra sem hafa gagnrýnt og
sagt skilið við Hohnes Hinckley
Welch jr, eða Paul Welch eins og
hann kýs að kalla sig í dag - og
þann góða hóp af fólki sem enn hef-
ur ekki séð við honum. -MHG