Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Side 28
28
Helgarblað
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001
DV
Hlynur Freyr Vigfússon, varaformaður Félags íslenskra þjóöernissinna, er 22 ára gamall sjómaður
„Þaö væri allt í lagi ef það væri eitt land í heiminum þar sem aöeins hvítir búa. Hvíti maöurinn er oröinn aöeins 4% af mannkyninu. Viö eigum undir högg aö sækja og hverfum með þessu áframhaldi. Það er vei
Hvíta ísland
- Félag íslenskra þjóðernissinna var stofnað og er stýrt af
tveimur bræðrum undan Eyjafjöllum. Félagið vill stöðva
innflutning erlends fólks til íslands. Draumur þeirra er
að einungis hvítir búi á íslandi
í Félagi íslenskra þjóðemissinna
munu vera um 120 félagar en það var
stofnað í maí 1997. Yngsti félaginn er
16 ára, sá elsti áttræður. Félagið hefur
eitt markmið sem er aö stöðva inn-
flutning á fólki af öðrum uppruna en
evrópskum til íslands. Félagið viil við-
halda, vemda og efla tungu, menningu
og kynstofn íslendinga, hefja þjóðem-
ishyggju til vegs og virðingar og draga
úr erlendum áhrifum. Slagorð félags-
ins er ísland fyrir íslendinga.
Þegar DV reyndi fyrst að ná sam-
bandi við Félag íslenskra þjóðemis-
sinna vom tveir þriggja stjómar-
manna saman á skipi utan símasam-
bands við Noregsstrendur en sá þriðji
i meöferð á íslandi. Síðan virðist
skipulagi félagsins hafa verið breytt,
heimasíðan var uppfærð og nýir
tengiliðir með fast land undir fótum
bættust við.
DV rakst ítrekað á það viðhorf við
undirbúning þessarar umfjöllunar að
umræða um þær skoðanir sem hér er
fjallað um væri til þess fallin að auka
þeim fylgi. Það getur ekki verið rétt.
Hlynur Freyr Vigfússon er 22 ára
sjómaður og varaformaður Félags ís-
lenskra þjóðemissinna í fjarveru Jóns
bróður síns sem hefúr verið formaður
félagsins frá upphafi.
Hlynur segir að vegna fjarvista
stjómarmanna hafi félaginu verið
skipt í þrjár deildir sem starfa í Mos-
fellsbæ, Reykjavík og Vestmannaeyj-
um en formaðurinn fylgist náið með.
Hlynur segir að 80% félaga séu ungir
karlmenn á aldrinum 18-30 ára. Marg-
ir þeirra séu utan af landi, stundi sjó-
mennsku og margir þekkist af öðrum
vettvangi eða hafi verið saman á sjó.
En hvers vegna viljið þið loka ís-
landi fyrir útlendingum?
„Reynsla annarra landa er mjög
slæm og flest nágrannalandanna hafa
verið reyna að loka löndum sínum fyr-
ir útlendingum. Við viljum ekki lenda
í sömu vandræðunum. Við vOjum
spoma gegn því að útlendingar fái hér
rikisborgararétt og vUjum að íslend-
ingar gangi fyrir um vinnu.
Það er aUt í lagi að flytja inn erlent
vinnuafl meðan þenslan er svona mik-
U. Þegar þetta slær svo tU baka þá sitj-
um við uppi með stóra hópa útlend-
inga á atvinnuleysisbótum og endalaus
vandræði. Þetta hefur einmitt gerst í
Danmörku."
Verndum hínn hvrta stofh
- Er ykkar markmið að vemda hinn
íslenska norræna kynstofn?
„Ef maður horfir á norrænu þjóðim-
ar þá sér hver maður að okkur gengur
mun betur en t.d. þjóðum í Asíu og
Miðausturlöndum."
- En sýna ekki einmitt margar Asíu-
þjóöir mun meiri hagvöxt og velferð en
við getum státað af?
„Japanar eru fyrirmynd á þessu
sviði en þeir era einmitt mjög þjóðem-
issinnaðir. Þeir flytja ekki inn aðrar
þjóðir og flytja ekki inn á aðrar þjóðir.
Það gengur vel hjá þeim og þeir geta
verið öðrum Asíuþjóðum fyrirmynd í
því að bjarga sér sjálfir."
Fylgjast betur með útlendingum
- Það er sem sagt íslenskur vinnu-
markaður og kynstofninn íslenski sem
þið vUjið vemda fyrir útlendingum:
„Þessi mál era í algerri óráðsíu hér.
Við vitum ekkert hvað þetta fólk er að
gera héma. Erlendis er fylgst vel með
útlendingum, hverjir fara í skóla,
hveijir lenda í fangelsi, hvað þetta
kostar rikið. Hér er engar upplýsingar
að fá. Það er ekkert eftirlit og þetta fólk
þarf ekki einu sinni að sýna sakavott-
orð. Svo era þessir útlendingar látnir
vinna aUa daga vikunnar og á nótt-
unni á lágu jafhaðarkaupi. Svo býr
þetta 10-12 saman í hrúgu í íbúð. Ef
við vUjum flytja inn útlendinga þá er
þetta ekki aðferðin.
Við erum þegar komin með of stór-
an hóp útlendinga inn í landið svo
brýnasta málið í dag er að stoppa inn-
flutninginn.“
Nærri 20 þúsund
- Hvað er það sem þið vUjið vita um
útlendinga?
„Hverjir fara og hverjir koma.
Hvaða fólk er með ríkisborgararétt,
hvar vinnur það, á hvaða launum,
hvað notar það mörg leikskólapláss og
margt fleira. Maður kemur aUs staðar
Það þarf engan snilling
eða erfðafrœðivísinda-
mann til að sýna fram á
hver munurinn er á Afr-
íkunegra með prík í hend-
inni eða íslendingi. Vest-
rœnar þjóðir vorkenna
Afríkubúum mjög mikið
en þeir búa þama í gróð-
ursœlustu álfu heims og
gœtu framleitt sex sinnum
meira af mat en þeir þurfa
ef þeir nenntu því.
að lokuðum dyrum. Þetta er algert
ábyrgðarleysi."
- Hér eru 7-8 þúsund útlendingar.
Er það ekki lægra hlutfaU en víðast
hvar annars staðar?
„Ég held að þessar tölur séu ekki
réttar. 20 þúsund væri nær lagi. í
þessum tölum er ekki talið með fólk
sem er komið með ríkisfang. Það er
ekkert mark takandi á þessu.“
Bretland ekki lengur hvitt
- Nú hafa Evrópuþjóðir farið ólík-
ar leiðir í þessum efnum. I Þýska-
landi er í gangi áætlun sem miðar að
stórfeUdum innflutningi indverskra
tölvunemenda í því skyni að auka
tölvuþekkingu þjóðarinnar og þar
með forskot Þjóðverja. Er þetta ekki
eitthvað sem við gætum lært af?
„Nei, það getum við ekki. Þýska
þjóðin er ekki ánægð með þetta og
stjómvöld era að ganga þvert á vUja
hennar í þessu máli. Það hefur verið
reiknað út að eftir 154 ár verða Tyrk-
ir í Þýskalandi orðnir fleiri en Þjóð-
veijar. Það er bUun að missa sitt eig-
ið land út úr höndunum á sér.
Sjáðu tU dæmis Bretland. Það er í
rauninni faUið. Bretiand er ekki leng-
ur hvítt.“
- Er þetta það sem bíður íslands?
„Ég vona ekki. Ég held að þjóðir
Evrópu muni sjá að sér.“
Hvíta ísland, hvenær?
- Jón bróðir þinn sagði í Mann-
lífsviðtali að gera ætti ísland að
þjóðgarði hvíta mannsins í heimin-
um. Er þetta raunhæfur möguleiki?
„Það væri aUt í lagi ef það væri
eitt land í heiminum þar sem að-
eins hvítir búa. Hvíti maðurinn er
orðinn aðeins 4% af mannkyninu.
Við eigum undir högg að sækja og