Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Qupperneq 40
,48 Tilvera LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 DV I ýmislegt sem væntanlegar mæður þurfa að varast Daufur er barnlaus bœr segir í gömlu íslensku máltœki. Barna- dauöi var mikill á íslandi allt til loka nítjándu aldar. Algengt var aö konur fœddu sex til sextán börn og taldist þaó barnalán ef helmingur þeirra liföi. Vitað er aö ein islensk kona átti tuttugu og þrjú börn og engin af þeim voru tvíburar. Hún kemst þó hvergi nœrri rússnesku konunni frú Vassilet sem var fœdd 1816 og lést 1872. Samkvœmt heims- metabók Guinness átti hún sextán sinnum tvíbura, sjö sinnum þríbura og fjórum sinnum fjórbura, sem ger- ir alls sextíu og níu börn, og komust þauflest til manns. Froða úr munni jórturdýra DV-MYND HARI/SAMSETNING HALLUR Margt ber aö varast Barnshafandi kona má ekki horfa niður af háu því þá verður barnið lofthrætt og ef hún stígur yfir breimandi kött verður þaö fáþjáni, borði hún gómfillu úr sel veröur það holgóma og ef hún borðar selshreifa verður barnið með hreifa í staðinn fyrir hendur. Samkvæmt þjóðtrúnni eru ýmis ráð sem fólk getur gripið til ef það vill auka líkurnar á getnaði. I bókunum Merk- isdagar á mannsævinni eftir Áma Björnsson og íslenskir þjóðhætt- ir eftir Jónas Jónas- son frá Hrafnagili er sagt frá nokkrum slík- um og ýmsu sem fólk þarf að varast á í tengsl- um við börn og barneign- ir. Til dæmis er heillavænlegt að geta bam á sunnudegi með aðfall- inu og á fullu tungli. Konur geta haldið yfir sér mylsnu af hjartar- horni, blandaðri með uxagalli, meðan á samforum stendur til að auka líkur á getnaði eða drukkið merarmjólk stuttu eftir blæðingar. Einnig er ráð að taka eista úr hrafni eða ref, þurrka það í skugga og mylja síðan í duft og drekka með vini fljótlega eftir tíðir. Karlmenn sem vilja auka líkum- ar á að konur þeirra verði barnshafandi eiga að taka froðu úr munni jórtur- dýra og bera hana á skapabarma konunn- ar meðan hún sefur eftir samfarir. Karl- ar sem vilja auka losta kvenna sinna eiga að gefa þeim kynfæri af ref eða eistu úr gæsastegg að borða. Ef konur vilja auka losta karla sinna eiga þær að gefa þeim kraftmikið kjöt, fisk og mjólk. Svo er líka hægt að leigja eina bláa eða gefa karlinum Viagra. Strákur eða stelpa Þeir sem vilja stjóma kyni bama sinna geta gripið til þess að konan liggi á hægri hliðinni meðan á getn- aði stendur því þá eignast hún strák en stelpu ef hún liggur á þeirri vinstri. Einnig er sagt að ef maður- inn vill frekar eignast bam verði það stelpa en strákur ef konan er viljugri til bam- eigna. Því er almennt trúað að strákar sprikli meira i móðurkviði en stúlkur og að kon- ur séu framstæð- ari ef þær bera dreng undir belti. Sumir segja að þessu sé þveröfugt farið og undir framstæðri og toppmjóri kúlu sé stelpa en strákur undir breiðri kúlu. Þegar hægra brjóstið stækkar meira en það vinstra eða konan er rjóðari á hægri kinn er óbrigðult að um strák er að ræða. Ef giftingar- hringur sem hald- ið er í bandi sveifl- ast fram og aftur yfir kúlunni er bamið strákur en stelpa ef hann fer í hringi. Ryðblettur á nalinni Nú á tímum geta konur farið út í dv-mynd ingó apótek og keypt Gæfumerki aö fæöast í sigurkufli þungunarpróf til Ef börn fæöast í líknarbelgnum og hann er heill og að vita hvort þær órifinn er sagt að þau fæöist í sigurkufli og veröi séu með barni. gæfumanneskjur. Þetta var ekki Velkomin í heiminn Ef fæðing gekk illa var talið gott leggja burnirót í rúmið hjá vanfærri konu svo hún snerti hana bera eða gefa henni vín, blandað með baidursbrá eða pungarfa, að drekka. svona auðvelt fyrir nokkrum áratug- um. Ekki er þar með sagt að konur hafi ekki átt ráð til að komast að hinu sanna. Til þess að vita hvort getnaður hefði átt sér stað gátu þær pissað í fat og sett fægða nál á botn- inn og ef ryðblettur var á nálinni daginn eftir var konan þunguð. Aðr- ir segja að ryðbletturinn tákni að konan sé ekki ófrísk. Margt að varast Eftir að getnaður hefur átt sér stað er ýmislegt sem væntanlegar mæður þurfa að varast. Barnshaf- andi kona má ekki horfa niður af háu því þá verður barnið lofthrætt og ef hún stígur yfir breimandi kött verður það fábjáni. Ef ólétt kona horfir of lengi á norðurljósin verður barnið rangeygt og ef hún pissar úti í tunglsljósi verður það tunglsjúkt. Borði ófrísk kona rjúpu eða rjúpuegg verður barnið freknótt, ef hún borðar gómfillu úr sel verður það holgóma og borði hún selshreifa verður bamið með hreifa i staðinn fyrir hendur. Ekki má barnshafandi kona drekka vatn sem kindur eða kýr hafa drukkið af því þá er hætt við að barnið jórtri. í þessu tilfelli er hjátrúin greinilega notuð í sótt- vamarskyni. Þeir sem umgangast konur sem eru bomm verða að gera það af varfæmi því ýmislegt í hegðun þeirra getur haft afdrifaríkar af- leiðingar í fór með sér. Til dæmis eiga menn að leysa af sér poka sem þeir kunna að bera á bakinu áður en þeir ganga í hús þar sem ófrísk kona kann að vera, annars er hætt við að bamið fæðist krypplingur. Gangi menn mn á skautum eða mannbroddum í húsi þar sem kona er farin að gildna undir belti verða fætur bamsins í laginu eins og skautar eða mannbroddar. Lausnasteinar góð vísindi Ljósmæðurnar á Fæðingardeild Landspítalans kunna ýmislegt fyr- ir sér sem þær hafa ekki lært af bókum en miðla hver annarri af reynslu. Guðrún Eggertsdóttir ljósmóðir segir suma á því að barnshafandi konur megi ekki drekka úr skörðótt- um bolla þvi þá fæðist barnið með klofinn góm eða klofna vör. „Þegar ég var ófrísk í fyrsta skiptið hljóp rotta yfir fótinn á mér og ég skoðað barnið mjög vel eftir fæðinguna til að athuga hvort það væri loðinn blettur á því.“ Fyrr á timum var þvi almennt trúað aö til væru steinar sem auðvelduðu konum fæðinguna. Steinarnir gengu undir nafninu lausnarsteinar og þeirra er helst að leita í fjöruborðinu. Lausnarsteinar eru fræ er- lendrar trjáteg- undar sem ber- ast hingað með hafstraumum og eru fremur sjaldgæfir. Elínborg V. Jónsdóttir ljós- móðir segir að fyrir sína parta telji hún að lausnarsteinar virki prýðilega og menn haldi bara að það sé hjátrú að nota þá en það séu í raun góð vís- indi. „Ef lausn- arsteinn er sett- ur undir tung- una á konu meðan á fæð- ingu stendur getur hún ekki lokað munnin- um og um leið slaknar á kjálkavöðvunum. Allir vöðvar í lík- amanum vinna í hópum og séu kjálkavöðvamir slakir eru vöðvamir í grindarbotninum það líka og það auðveldar fæðinguna." Elínborg segir einnig að hún hafi heyrt talað um gamla bók eða skræðu í Dölunum sem sagt sé að fylgi kraftur, ekki ósvipaður og lausnarsteinum. „Það á að vera gott að leggja bókina í sæng kvenna ef þeim gengur illa að fæða og mér skilst að hún sé notuð enn. Ráð til að auðvelda fæðinguna Samkvæmt þjóðtrúnni geta kon- ur gert eitt og annað til að auð- velda sér fæðinguna. Þær mega til dæmis ekki ganga undir sperrur eða nýreist hús því þá verður að reisa sperrur yfir þeim til að þær geti fætt. Ófrískar konur mega heldur ekki ganga undir þvotta- snúru því þá vefst naflastrengur- inn um hálsinn á barninu. Ef fæðingin gekk illa var talið gott að leysa alla hnúta og opna glugga og hurðir. í bók Jónasar frá Hrafnagili er sagt að gott sé að leggja bumirót í rúmið hjá vanfærri konu svo hún snerti hana bera. Einnig segir að það hjálpi til að gefa konunni tíkar- mjólk eða vín, blandað með bald- ursbrá eða pungarfa, að drekka. Stundum var gripið til þess ráðs að hnýta sigurhnút eða sigurlykkju yfir konunni til að losa um fæðing- arstífluna. Sigurkufl Þegar börn fæðast í líknarbelgn- um og hann er heill og órifinn er sagt að þau fæðist í sigurkufli og verði gæfumanneskjur. Eftir fæð- inguna á að taka belginn og þurrka því hann kemur barninu tU góða seinna á ævinni. Sagt er að þeir sem fæðist í sigurkufli séu skyggn- ir og að enginn galdur vinni á þeim svo lengi sem þeir bera kuflinn á sér. í þeim tilfellum sem ekki er um sigurkuíl að ræða á að brenna bamsfylgjuna sem allra fyrst því vondir andar sitja um að komast yfir hana. Ef fylgjunni er kastað á víðavangi geta illir andar náð valdi á henni eða villidýr étið hana og fylgir þá dýrið eða andinn barninu. Umskiptingar Aldrei má skilja komabörn eftir ein í langan tíma því huldufólkið reynir að skipta á bömunum og örvasa huldukarli eða huldukerl- ingu. Þetta er gert með þvi að hnoða gamlingjanum saman svo hann verði ekki stærri en ungbarn og töfra yfir hann svip barnsins. Til að komast að því hvort bam sé um- skiptingur er nóg að hýða það dug- lega eða setja upp á altari því þá birtist það í sinni réttu mynd. Allir vita að til þess að böm vaxi, dafni og öðlist þroska þurfa þau ást og umhyggju. Böm era augasteinar foreldra sinna og foreldrum ber að gæta þeirra sem slíkra. Munið að skæri gerir bamið blint en hnífur eineygt. -kip@ff.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.