Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Qupperneq 44
52 _________________-LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 tilvera dv Steven Soderbergh: Er að uppskera því sem sáð var „Fólk heldur að það viti hvað það er fyrir leikstjóra að vera trúr sjálfum sér. Það veit það ekki. Það er enginn skortur á góðum leikstjórum í Bandaríkjunum sem eru trúir listinni og sjálfúm sér. Það er aftur á móti skortur á kvikmynd- um sem leikstýrt er af góðum leikstjórum og fá dreifingu í 3000 kvik- myndasölum. Ég skil ekki af hveiju það er víðtæk hugsun að leik- stjóri sem fer að vinna samkvæmt markaðslögmálum sé að taka niður fyrir sig,“ sagði Steven Soderbergh í viðtali árið 1998 þegar hann var að vinna við Erin Brockovich en mörgum fannst hann þá vera að svíkja málstaðinn eftir að hafa verið lengst af í eigin homi að vísu. Allt frá þvi Soderbergh gerði Sex, lies and videotapes hafði hann gert ódýrar kvikmyndir sem fengu litla náð hjá almenningi, myndir á borð við Kafka og King of the Hill, sem fengu sæmilega umfjöllun og Grey’s Anatomy og Schizopolis (sem hann lék aðalhlutverkið sjáifur í) sem engin tók eftir. Þannig að það verður að segjast eins og er, miðað við gæði síðustu kvikmynda hans, Out of Sight, The Limey, Erin Brockovich og Traffic, að það var happafeng- ur fyrir alla kvikmyndaaðdáendur að Soderberg gekk til liðs við Hollywood-framleiðendur. Það er greinilegt að Steven Soderberg er leikstjóri sem kann að fara með pen- inga þegar hann fær þá í hendumar. Og ef einhver er að uppskera erfiði starfs sina þá er það Steven Soderberg, sem er tilnefndur til óskarsverðlauna sem besti leikstjóri fyrir tvær kvikmyndir. Það hefur ekki gerst síðan Francis Ford Coppola lék þennan leik eftir á áttunda áratugnum. Steven Soderbergh fæddist 14. janúar 1963 í Atlanta og var faðir hans rektor Kennararháskólans i Louisiana. Þangað sótti Soderbergh nám í upphafl en kvikmyndir áttu fljótt hug hans allan og fór hann til New York til að nema fræðin. 1989 kom hann svo fram sem fullskapaður kvikmyndagerðarmaður þegar hann sendi frá sér Sex, lies and videotapes. Áður hafði hann unnið við gerð tónlistar- myndbanda og var eitt þeirra með hljómsveitinni Yes til- nefnt til Grammy-verðlaunanna. Ferill Soderbergh er glæsilegur þegar á heildina er litið. Hann hefur aðeins leikstýrt góðum kvikmyndum, sem hafa fengið misgóðar viðtökur almennings. Næsta kvik- mynd hans verður stór og dýr kvikmynd samkvæmt Hollywood-staðli, Ocean’s Eleven sem er endurgerð þekktrar kvikmyndar sem Frank Sinatra hafði veg og vanda af á sjöunda áratugnum. Meðal leikara í henni eru George Clooney, Brad Pitt, Julia Roberts, Matt Damon. Klassískt myndband Sex, lies and videotapes ★★★'i Skyggnst í heim öfga og fíknar % Gerð Sex, lies and videotapes er löngu orðin þjóðsaga. 26 ára gamall, ný- útskrifaður úr kvikmyndaskóla, skrifar Steven Soderbergh handrit á átta dög- um á ferð til Los Angeles, gerir kvik- mynd á stuttum tíma fyrir 1.8 milljón dollara og sendir myndina á virtustu kvikmyndahátíð í heimi, Cannes, og vinnur gullpálmann auk þess sem aðal- leikarinn James Spader vinnur til verð- launa sem besti leikari. Þetta er ævin- týri sem varla verður endurtekið. Hvernig skyldi svo þessi frumraun Soderberghs hafa elst? Það er kannski ekki hægt að segja um hana að hún sé eins og gott rauðvín sem verður betra með aldrinum. Staðreyndin er samt sú að góðar kvikmyndir eldast vel og þótt Sex, lies and videotapes sé kannski ekki sú skemmtilega skvetta í andlitið sem hún var 1989 er um virkilega góða kvik- mynd að ræða sem hreyfir við öllum sem hana sjá. Aðalpersóna myndarinnar er Gra- ham (James Spader) dularfullur karakt- er sem hefur áhrif á fólk en er að mörgu leyti varhugaverður enda með ranghug- myndir i kollinum. Hann fær útrás í að horfa á myndbönd sem hann tekur sjálf- ur af konum sem tala um erótík og hvað þær ímyndi sér. Þegar hann heimsækir vin sinn frá háskólaárunum, John (Pet- er Gallagher), mynd- ast fljótt spennu- ástand milli hans og eiginkonu Johns, Ann (Andie Mac Dowell) og systur hennar Cynthy (Laura San Gi- acomo), sem er ástkona Johns. Þessi tengsl öll er svo fléttan sem Steven Soderbergh þarf að hnýta saman og það gerir hann meistarlega, lætur persón- umar dansa hættulegan línudans sem bæði er fráhrindrandi, innilegur og áhrifamikill. Steven Soderbergh hefur sýnt það svo ekki er um villst að hann hefur einstakt lag á leikuram, nær yfirleitt því besta sem þeir geta boðið upp á og era mörg dæmi um það, nægir að nefna Juliu Roberts í Erin Brockovich. f Sex, lies and videotapes eram við vitni að mögnuðum leik. James Spader fékk Gullpálmann í Cannes sem segir allt um hans leik. Andie MacDowell náði að brjótast úr viðjum sykursætra hlutverka og óþekkt leikkona Laura San Giacomo var ekki óþekkt lengur. Leikstjóri: Steven Soderbergh. Aöalieikarar: James Spader, Andie MacDowell, Laura San Giacomo, og Peter Gallafger. 1989.104 mín. Þann 28. febrúar mun veglegt sérblað um Formúlu 1 fylgja DV. Umsjón auglýsinga Ólafur Hálfdánarson sími 550 5729, netfang olih@ff.is Umsjón efnis Ómar S. Gíslason, netfang fl@ff.is Auglýsendur, athugið að síðasti pöntunardagur augiýsinga er fimmtudagurinn 22. febrúar. Myndbandarýni Butterfly ★★★ Þroska- Butterfly (La lengua de las mariposas) var kannski sú spánska kvikmynd sem vakti hvað mesta athygli í fyrra og var hún verðlaunuð i bak og fyrir á heimaslóð- um. Um er að ræða sérlega heillandi mynd þar sem segir frá ungum dreng sem hefur minnimáttarkennd vegna þess að hann er með asma. Myndin er þroskasaga drengsins og gerist stuttu áður en hinn afdrifaríka borgarastyrj- öld hófst og til þess er sérstaklega vís- að í sterku lokaatriði að styijöldin á eftir að skipa fólkinu í landinu í tvær fylkingar. í myndinni er mest áhersla lögð á samband drengsins og kennara hans, sem er gamall maður sem sérstaklega er tekið eftir að hann lemur ekki nem- endur sína. Þegar hávaðinn er hvað mestur í bekknum þá hoidlr harin út um gluggann, snýr sér svo að nemend- um þegar þeir hafa þagnað og þakkar þeim fyrir að hætta að hafa hátt. Þetta virkar betur en mörg skammaryrðin. Inn í þetta fallega samband kennarans og nemandans er svo bragðið upp myndum af Qölskyldu piltsins, bróður hans, sem er að læra á saxófón og er að fá hvolpavitið gagnvart kvenfólki, fóð- umum sem er vinstrisinnaður lýðræð- issinni og móður hans sem er mjög trúuð. Þessi tvö ólíku lífsviðhorf þvæl- ast dálítið fyrir drengnum. Þegar á heildina er litið þá er Butt- erfly ákaflega gefandi kvikmynd sem lýsir því besta í manninum á raunsæj- an hátt ásamt þvi að sýna fram á hvað áhrifamáttur áróðurs er mikill. -HK Útgefandi: Skifan. Lelkarar: Fernando Gomez og Manuel Lozano. Leikstjóri: Jose Luis Cuerda. Spönsk, 2000. Lengd: 97 mín. Leyfð öllum aldurshópum. Picking Up the Pieces Kraftaverk í E1 Nino ★ Woody Allen hef- ur ekki mikið gert að því að leika í kvikmyndum ann- arra leikstjóra. Eitt- hvað hefur það ver- ið við handritið að Picking Up the Pi- eces sem hefur heill- að Allen því þama er hann mættur í einu aðalhlutverk- inu í kolsvartri kómedíu, sem hann hefði betur leikstýrt sjáifur því það er langt í frá að mexíkanski leikstjórinn Alfanso Arrau ráði við formið. Arrau, sem skaust upp á stjömuhimininn með Like Water for Chocolate hefur ekki getað fylgt þeim sigri eftir. Allen leikur slátrarann Tex sem í upphafi myndar er að grafa konu sína á víðavangi. Hann hefur loks fengið nóg af framhjáhaldi hennar, sem hann lýsir svo að hún hafi ekki getað haldið löppunum saman í 20 mínútur, drepið hana og skorið hana í sjö parta. Einn líkamsparturinn, önnur hendin, verð- ur þó viðskila. Blind kona fmnur hann og þegar hún allt í einu fær sjónina fer hún með hendina í kirkjuna þar sem fleiri fá lækningu meina sinna. Fiski- sagan er fljót að berast og sögunni fylg- ir að hendin sé af Maríu mey. Það þýð- ir ekkert fyrir prestinn að benda fólki á meðan kraftaverkin koma á færi- bandi að líklega hefði María mey ekki naglalakkað sig. Myndin er hröð og ekki vantar kó- mísk sjónarhom í atburðarásina en húmorinn vantar sem verður að skrif- ast á Arrau sem gerir myndina allt of þunga í vöfum. Fjöldi þekktra og ágætra leikara eiga góðar stundir, en allt kemur fyrir ekki, myndin er mislukkuð kómedía. -HK Útgefandi: Háskólabíó. Leikarar: Woody Allen, Maria Grazia Cuinotta, David Schwimmer og Kiefer Sutherland. Bandartsk, 2000. Lengd: 91 mín. Bönnuö börnum innan 12 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.