Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Qupperneq 46
54 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 Tilvera_________________________________________________________________________________________________________________________X>V Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Stórafmæli 90 ára___________=______________ Lárus Scheving Ólafsson, Dalbraut 27, Reykjavík. 85 árg__________________________ Jóhanna K. Guömundsdóttir, Hjallabraut 23, Hafnarfiröi. 80 ára__________________________ Jóhann Eyþórsson, Sléttuvegi 17, Reykjavík. Pálína Þórólfsdóttir, Tjarnarlundi 9a, Akureyri. 75 ára__________________________ Eyvindur Árnason, Hegranesi 11, Garöabæ. Halla Siguröardóttir, Miðstræti 8a, Neskaupstað. 70 ára__________________________ Ágúst Kristmanns, Eskiholti 10, Garðabæ. Sigurgeir Bjarnason, Drápuhlíö 15, Reykjavík. Þorvaldur Jósefsson, Skúlagötu 14, Borgarnesi. 60 ára__________________________ Birgir V. Dagbjartsson, Hringbraut 2a, Hafnarfiröi. Davíö Gíslason, Eskiholti 8, Garðabæ. Halldóra Filippusdóttir, Höföabóli, Vestmannaeyjum. Höröur Falsson, Noröurgaröi 21, Keflavík. Ólöf Halblaub, Aðalstræti 21, Akureyri. Rósa Aöalsteinsdóttir, Stóru-Mörk 2, Hvolsvelli. 5Q ára___________T______________ Ásgeir Kristófer Ásgeirsson, Baldursgötu 14, Reykjavík. Elín Sigríöur Bragadóttir, Austurströnd 14, Seltjarnarnesi. Eydís Guömundsdóttir, Þórðargötu 24, Borgarnesi. Guömundur Þórhallsson, Lindarseli 6, Reykjavík. Guöni Birgir Sigfússon, Víöihlíð 40, Reykjavík. Guöríöur Haraldsdóttir, Þingaseli 4, Reykjavík. Olga Sigvaldadóttir, Hamarlandi, Króksfiarðarnesi. Ragnheiöur Stefánsdóttir, Unufelli 44, Reykjavík. Sigríður Steina Sigfúsdóttir, Spítalastíg 10, Reykjavík. Sigrún Magnúsdóttir, Boðagranda 5, Reykjavlk. Siguröur Jónsson, Reykjabraut 4, Þorlákshöfn. Siguröur Kristófersson, Víðilundi 15, Garðabæ. Þóra Sigríöur Einarsdóttir, Hamravík 6, Borgarnesi. 40 ára__________________________ Bryndís Þórhalisdóttir, Ranavaði 1, Egilsstöðum. Darija Kospenda, Breiðvangi 7, Hafnarfirði. Elín Anna Jónsdóttir, Aðalstræti 15, Patreksfirði. Siguröur Óli Ólason, Bæjargili 43, Garðabæ. Velimir Bibió, Engiaseli 84, Reykjavík. Andlát Guörún Sæmundsdóttir, Heiöargerði 29f, Vogum, áður til heimilis í Björk, lést á Heilbrigðisstofnun Suöurnesja miðvikud. 14.2. Jarðarfarir Gyöa Siguröardóttir, Lyngbergi 4, Þorlákshöfn.verður jarðsungin frá Þorlákskirkju, laugard. 17.2. kl. 14. Lúövík Kristjánsson, Steinholti, Skagaströnd, veröur jarösunginn frá Hólaneskirkju laugard. 17.2. kl. 14. Þórdís Þorkelsdóttir, Búsholti, verður jarðsungin frá Bæjarkirkju í Bæjarsveit laugard. 17.2. kl. 14. Guömundur Benediktsson frá Breiðabóli, sem andaðist föstud. 9.2. á Landspítalanum við Hringbraut, verður jarðsunginn frá Svalbarðskirkju þriðjud. 20.2. kl. 13.30. / JJrval - gott í hægindastólinn Attatíu og fimm ára Kristinn Hóseason fyrrv. prófastur í Heydölum Kristinn Hóseasson, fyrrv. pró- fastur i Heydölum, nú til heimilis að Ofanleiti 17, Reykjavík, er áttatíu og flmm ára í dag. Starfsferill Kristinn fæddist í Höskuldsstaða- seli í Breiðdal í Suður-Múlasýslu og ólst þar upp. Hann lauk námi frá Eiðaskóla 1937, stúdentsprófi frá MA 1942 og embættisprófi í guð- fræði frá HÍ 1946 en jafnframt guð- fræðináminu stundaði hann nám við KÍ og lauk hann kennaraprófi 1943. Kristinn vann sem þingskrifari öll námsárin. Hann var settur sókn- arprestur á Hrafnseyri í Vestur-ísa- fjarðarprófastsdæmi 1946-47 og var síðan sóknarprestur í Heydölum 1947-86. Kristinn var prófastur í Austfjarðaprófastsdæmi 1982-86. Ásamt embættisstörfum stundaði Kristinn æðarrækt og rak búskap. Þá kenndi hann öðru hvoru í sókn- um sínum. Hann var prófdómari við barna- og unglingaskólann á Stöðvarfirði í mörg ár og sat um árabil í ýmsum nefndum fyrir sveit sína, s.s. skólanefnd, bamavemdar- nefnd, áfengisvarnarnefnd, sátta- nefnd og í stjóm slysavamadeildar- innar Einingar. Þá sat hann í stjórn Prestafélags Austfjarða um skeið. Kristinn flutti tii Reykjavíkur í ársbyrjun 1987 og hefur búið þar síðan. Fjölskylda Kristinn kvæntist 31.12. 1944 Önnu Þorsteinsdóttur, f. 8.4. 1915, húsmóður og kennara. Hún er dótt- ir Þorsteins Þ. Mýrmanns, útvegsb. og borgara á Óseyri á Stöðvarfirði, og k.h., Guðríðar Guttormsdóttur húsfreyju. Kjörböm Kristins og Önnu era Hallbjörn Kristinsson, f. 5.1. 1953, vélstjóri í Reykjavík; Guðríður Kristinsdóttir, f. 22.5. 1955, húsmóð- ir í Garðabæ, gift Óskari Sigur- mundasyni, f. 14.9. 1954, en böm þeirra er Anna Kristín, f. 21.11.1982, og Andri Valur, f. 10.5.1991. Foreldrar Kristins: Hóseas Bjömsson, f. 25.12. 1885, d. 9.1. 1985, bóndi og húsasmíðameistari í Hösk- uldsstaðaseli í Breiðdal til 1947 en síðan í Reykjavík, og Marzelía Ingi- björg Bessadóttir, f. 22.3. 1895, d. 19.6. 1991, húsmóðir. Ætt Hóseas var sonur Björns, b. í Höskuldsstaðaseli Eiríkssonar, b. í Hallberuhúsum Einarssonar, á Glúmsstöðum Sigurðssonar. Móðir Eiríks var Guðrún eldri Jónsdóttir frá Vaðbrekku. Móðir Bjöms var Margrét Guðmundsdóttir, b. á Stórasteinsvaði Þorteinssonar og Guðlaugar Eiríksdóttur. Móðir Hóseasar var Kristín Mart- einsdóttir, b. á Skriðustekk, bróður Sigríðar, móður Margrétar Hösk- uldsdóttur í Löndum, ömmu séra Einars Þ. Þorsteinssonar, prófasts á Eiðum. Marteinn var sonur Jóns, b. í Flögu í Breiðdal Gunnlaugssonar, Ögmundssonar. Móðir Gunnlaugs var Guðný Eiríksdóttir, Halldórs- sonar, en móðir Halldórs var Þór- unn, dóttir Sigurðar, pr. á Breiða- bólstað í Fljótshlíð Einarssonar, prófasts og skálds í Heydölum Sig- urðssonar. Móðir Kristínar var Sig- ríður Einarsdóttir, b. á Stórasteins- vaði Gislasonar en Sigríður var hálfsystir, sammæðra, Margrétar í Hallberahúsum. Marzelía Ingibjörg var dóttir Bessa, b. á Brekkuborg Sighvatsson- ar, b. á Ánastöðum í Breiðdal Bessa- sonar, b. á Dísastöðum í Breiðdal Sighvatssonar. Móðir Bessa var Guðrún Jónsdóttir frá Hallbjamar- stöðum í Skriðdal, dóttir Jóns Guð- mundssonar frá Gröf í Eyjafirði og Guðrúnar yngri Sigmundsdóttur. Kristinn og Anna verða að heiman á afmælisdaginn. Hundrað ára Herdís Bjarnadóttir Herdís Bjarnadóttir, Sjúkrahús- inu á Hvammstanga, verður hundrað ára á miðvikudaginn. Starfsferill Herdís fæddist á Fossi í Vestur- hópi í Vestur-Húnavatnssýslu sem var hjáleiga frá prestssetrinu Breiðabólstað. Hún flutti tveggja ára með foreldrum sínum að Bjarg- húsum í sömu sveit og ólst þar upp fram yfir tvítugt. Hún naut al- mennrar barnafræðslu þess tíma og stundaði nám við unglingaskóla á Hvammstanga hjá Ásgeiri Magnús- syni. Herdís var vinnukona á ýmsum bæjum í tuttugu ár, var siðan kaupakona á sumrum en stundaði barnafræðslu og ýmis störf að vetr- inum. Herdís hefur nú dvalið á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga í rúm tuttugu ár. Hún hefur verið við góða heilsu, les mikið og skrifar sendibréf. Fjölskylda Herdís átti sex systkini. Þau eru Andrea Sólveig Bjamadóttir, f. 1897; Ágúst, f. 1890, bóndi á Urðarbaki í Vestur- hópi; Jónína, f. 1892, húsfreyja á Neðri- Þverá; Þóra Margrét, f. 1893, dó í barn- æsku; Hálfdán, f. 1903, bóndi í Kringlu- mýri I Reykjavík og starfsmaður við efha- gerðina Record; Þór- arinn, f. 1909, vinnu- maður á Korpúlfs- stöðum og víðar. Foreldrar Herdísar voru Bjami Bjarnason, f. 1868, d. 1952, bóndi á Fossi og í Bjarghúsum, og k.h., Ágústa Andrés- dóttir, f. 1860, d. 1921, húsfreyja. Herdís tekur á móti gestum á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga laug- ardaginn 17.2. frá kl. 14.30. Sextugur Gísli E. Hermannsson bóndi í Ártúni í Hornafirði Gísli Eymundur Hermannsson, bóndi í Ártúni í Hornafirði, varð sextugur í gær. Starfsferill Gísli fæddist í Borgarhöfn i Suður- sveit og ólst upp í Suðursveit og á Höfn í Homafirði. Gísli hefur verið bóndi á jörðinni Ár- túni í Homafirði frá 1960. Hann hefur jafn- framt búskapnum stundað ýmsa almenna verka- mannavinnu. Auk þess sem hann Böm hanna hefur séð tun sorp- hirðu í Nesjum frá 1979. Fjölskylda Gísli kvæntist 6.1. 1962 Ásdísi Marteins- dóttur, f. 14.6. 1938, húsmóður og bóka- verði. Hún er dóttir Marteins Lúthers Einarssonar, bónda í Ási i Nesjahreppi og síðan á Höfn, og k.h., Ástu Oddbergsdóttur, ____ húsfreyja. Gísla og Ásdísar eru Jó- Sigríður, f. 25.7. 1958, hús- freyja í Stórulág, gift Sigurði Sig- finnssyni, bónda þar og eru börn þeirra Ámi Már, f. 1984, Smári Þór, f. 1988, og Hulda Björg, f. 1991; Olga, f. 1.8.1961, húsfreyja á Núpi í öxar- firði, gift Guðmundi S. Ólafssyni bónda þar og eru dætur þeirra Ás- dís Hulda, f. 1995, og Björg Dúa, f. 1996, en sonur Olgu er Friðrik Ein- arsson, f. 1980, búsettur á Húsavík, í sambúð með Ingunni Aðalsteins- dóttur og er sonur þeirra Kristófer Máni, f. 2000; Ásthildur, f. 21.10. 1962, húsfreyja á Fomustekkum í Nesjum, í sambúð með Bjama Sig- jónssyni, bónda þar og er dóttir þeirra Jóna Stína, f. 1987, en sonur Ásthildar er Ásmundur Sigfússon, f. 1982; Marteinn Lúther, f. 20.3. 1965, bóndi og verktaki í Ártúni, kvæntur Þorbjörgu Gunnarsdóttur en börn þeirra eru Lena Hrönn, f. 1987, Gunnar Örn, f. 1988, og Heiðdís Anna f. 1996. Systkini Gísla eru Sigþór Valdi- mar, f. 15.6. 1938, húsvörður í Nesj- um; Gunnar Valur, f. 15.11. 1942, verslunarstjóri á Höfn, kvæntur Birnu Skarphéðinsdóttur og eiga þau fimm börn; Erla Sigríður, f. 8.9. 1945, verkakona í Mosfellsbæ, gift Guðna Hermannssyni og eiga þau tvo syni auk þess sem hún átti son frá því áður; Guðni Þór, f. 7.4. 1954, fiskverkandi á Höfn en sambýlis- kona hans er Elín Ingvadóttir og eiga þau einn son og hann tvær dæt- ur frá fyrra hjónabandi. Foreldrar Gísla: Hermann Eyj- ólfsson, f. ll.l. 1916, fiskmatsmaður á Höfn í Homafirði, og Hulda Sig- urðardóttir, f. 12.11.1915, d. 9.9.1989, húsfreyja. Arinu eldri Haraldur Henrysson hæsta- réttardómari verður 63 ára t dag. Hann var sakadómari frá 1973 og er hæstaréttar- dómari frá 1988. Haraldur starfaði á sínum tíma mikiö í Samtökum frjálslyndra og vinstri manna og sat á þingi fyrir samtökin sem varaþm. Reykjavíkur 1968-71. Hann hefur unnið mikið starf fyrir Slysavarn- arfélag íslands, sat í stjórn þess um árabil og var forseti SVFÍ 1982-90. Grétar Símonarson, fyrrv. mjólkurbússtjóri Mjólkurbús | Flóamanna, verður 81 árs á morgun. Segja má að hann hafi fleytt rjómann ofan af mjólkurvinnslu á Suðurlandi sem mjólkurbússtjóri Mjólkurbús Róa- manna 1953-87. Auk þess sat hann í stjórn Mjólkurfræöingafélags íslands, Mjólkurtæknifélagsins, í Mjólkurdags- nefnd, í stjórn Osta- og smjörsölunnar og í stjórn Samtaka afurðastööva mjólkuriðnaðarins. Ef mjólk er góð, þá er svona starfsferill créme du la créme. Steinunn Marteinsdóttir á Hulduhólum í Mosfellsbæ veröur 65 ára á morgun. Steinunn er landsþekkt sem einn okkar fremstu keramik-listamanna. Hún lætur samt lítið á sér bera, enda elskuleg og hógvær eins og allir sannir listamenn. Steinunn á ekki langt að sækja list- ræna hæfileika því foreldrar hennar voru Marteinn Guðmundsson mynd- höggvari og Kristín Karólína Bjarnadótt- ir píanókennari. Steinunn var á árum áður gift landslagsmálaranum fræga, Sverri Haraldssyni sem lést 1985. Stefán Jón Hafstein verður 46 ára á morgun. Pilturinn sá hefur komið víöa við. I Ungur sinnti hann þróunar- störfum í þriðja heiminum, var rómaður útvarpsmaöur, aðstoðarmaður Ingi- bjargar Sólrúnar borgarstjóra og ritstjóri Dags-Tímans um skeið, svo fátt eitt sé nefnt. Hann fann upp Þjóðarsálina, hvorki meira né minna, og á ísland sem er að vísu einhvers konar kynn- ingarfyrirtæki. Með öðrum orðum: eitt af óskabörnum þjóðarinnar. Annað óskabarn er Hall- grímur Helgason, rithöfund- urinn hárprúði og brosmildi sem verður 42 ára á morg- un. Hallgrími er margt til lista lagt. Hann semur og teiknar teiknimyndasög- ur í dagblöö, er dálkahöfundur á DV, hefur haldið myndlistarsýningar innan- lands og utan, stundaði dagskrárgerð og hefur samið skáldsögur, Ijóð og leik- rit. Hann var tilnefndur til Bókmennta- verðlauna Noröurlandaráðs fyrir 101- Reykjavík og er tilnefndur til menningar- verðlauna DV fyrir leikritiö Skátdanótt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.