Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Síða 52
60
*.AUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001
Tilvera
DV
SÍMI
Frábær gai
lustar.
:a mynd
I þessa.
^hlustar.
roíasta mynd
ison tll þessa.
ilustar.
oksins.
igar til Óskarsverðlauna
ndrit byggt á áður útkomnu
ikmyndataka
ifningar til Óskarsver
BROTH
m.a. -bcsta myndir
aesta erlenda mynd
-besti leikstjórimt
1/2 kvlkmyndlr.ls
kvlkmyndir..
(Skriðandi tlgur, dreki I leynum)
Sýnd kl. 3,5.30,8 og 10.30. íslenskur texti.
Hann hitti loksins
draumadfsina.
Verst aö pabbi hennar
er algjör martröð.
Frá leikstjóra
,Austin Powers“
Sýnd kl. 8 og 10.30. b.í. i2ára.
I ÞÉR ANDANUM
EKKERT LOFT
ENGIH MISKUNN
UN UNDANKOMULEIÐ
SCHUimeSG
Þeir klónuðu rangan mann.
sjOtti dacurinn
TIHE BTH Of=1V
www.laugarasbie.is
Ný og stór-
bætt aðstaða
- MR tekur formlega í notkun nýjar stofur
Menntaskólinn í Reykjavik fagn-
aði því síðastliðinn fimmtudag að
kennsla er hafin í nýinnréttuðum
kennslu- og tilraunastofum í Þing-
holtsstræti 18. Menntaskólinn er
rótgróin stofnun þar sem þreyting-
ar gerast hægt og þykir því þessi
nýi áfangi í uppbyggingu skólans
sæta nokkrum tíðindum. Nýju stof-
urnar eru búnar nýjustu og full-
komnustu tækjum og koma til með
að stórbæta alla aðstöðu til raun-
greinakennslu í skólanum. Af
þessu tilefni var haldin athöfn í há-
tíðarsal skólans og því næst var
raungreinahúsið kynnt gestum.
meö aðstööuna
Björn Bjarnason menntamálaráöherra,
Rut Ingólfsdóttir, eiginkona hans, Ragn-
heiöur Torfadóttir, rektor MR, og Björn
Búi, efnafræöikennari í nýju efnafræöi-
stofunni.
Menntamálaráðherra í gamla skólanum
Þær Ásta Sigríður og Guörún voru aö velta fyrir
sér undrum efnafræöinnar þegar Björn Bjarnason
menntamálaráöherra kom og heilsaöi upp á þær.
Alveg eins og hjá Kára
Guörún Gunnarsdóttir, Sæmundur
Oddsson og Elín Þorsteinsdóttir voru
djúpt sokkin í DNA-rannsóknir þegar
blaöamann bar aö garöi.
Goðsagnir í lifanda lífi
Guöni Guömundsson og Jón Guö-
mundsson hafa uppfrætt ófáa ís-
lendinga og komiö þeim til nokkurs
þroska.
Rímnakvöld Þjóðlagafélagsins:
I mansöngvum var ort
lof til kvenna
Um næstu helgi lýkur þorra og góa
byijar. Af því tilefni gengst Þjóðlagafé-
lagið fyrir skemmtikvöldi með rímna-
kveðskap laugardaginn 17. febrúar kl.
21.30 í Húsi málarans við Bankastræti.
Á dagskrá verða rímur, ljóð undir
rímnaháttum, vísur um þorrann og
góuna og fleira úr arfi alþýðuskáld-
skapar og lausavísna. Flytjendur eru
félagar í Þjóðlagafélaginu og Kvæða-
mannafélaginu Iðunni.
Rímur eru langir kvæðabálkar þar
sem sögum af fomum hetjum og köpp-
um er snúið í bundið mál. Þær voru
umfangsmiklar í íslenskum alþýðu-
skáldskap á 18. og 19. öld en sögu þeir-
ra má rekja aftur til 14. aldar. Rímna-
skáld völdu sér ýmiss konar sögur að
yrkisefni en vinsælast var að yrkja
rímur út af fomaldarsögum og ridd-
arasögum. Hver ríma gat verið 80-100
vísur að lengd og samsvaraði einum
kafla sögunnar. Til að ljúka sögunni
þurfti oft að yrkja um 20 rímur og vís-
umar gátu þá orðið hátt á annað þús-
und talsins. Við upphaf á nýjum kafla
var venja rímnaskálda að skipta um
bragarhátt. Rímnahættir urðu með
tímanum margir og fjölbreyttir eftir
rími og dýrleika. Algengust var fer-
skeytlan og ýmis dýrari afbrigði henn-
ar, svo sem hringhenda, oddhenda og
sléttubönd. í upphafi hverrar rímu var
inngangskafli sem nefndist mansöng-
ur. Þar var vettvangur fyrir ýmsar
hugrenningar rímnaskáldsins sem
beint var til áheyrenda, sérstakiega
kvenþjóðarinnar. í mansöngvum var
því oftast ort lof til kvenna.
Allt áhugafólk um þjóðlög, rímna-
kveðskap og vísnagerð er velkomið og
aðgangur er ókeypis. -Kip
Hús málarans við Bankastræti
Rímur eru langir kvæðabálkar þar
sem sögum af fornum hetjum og
köppum er snúiö í bundiö mál.
Málverk á
Hrafnistu
Sólveig Eggerz
Pétursdóttir
Sýnir á Hrafnistu
í Hafnarfirði.
A morgun
mun myndlistar-
konan Sólveig
Eggerz Péturs-
dóttir opna sýn-
ingu á málverk-
um frá ýmsum
tímum á Hrafn-
istu í Hafnar-
firði. Eru þær
•elstu frá 1939 og
þær yngstu eru
málaðar á þessu ári. Við opnun sýn-
ingarinnar mun dansparið Ragn-
heiður Árnadóttir og Steinar Ólafs-
son sýna listdans, en Ragnheiður er
langömmubarn Sólveigar. Sýningin
stendur í mánuð.
Sólveig, sem nú er búsett á
Hrafnistu, fæddist 1925 í Reykjavík
og nam list sína á íslandi og Reykja-
vík. Hún hefur sýnt víða á íslandi,
á nokkrum stöðum í Danmörku,
Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi og
einu sinni í London og Seattle.
Richter, Rúrí og
Jón Stefánsson
Um helgina verða síðustu forvöð að
sjá sýninguna Yfirsýn, á verkum
þýska málarans Gerhards Richters,
innsetningarverkið Glerregn eftir
Rúrí og sýningu á verkum eftir Jón
Stefánsson.
Gerhard Richter er viðurkenndur
sem einn fremsti málari sinnar kyn-
slóðar og hefur á ferli sínum fengist
við að kanna möguleika málverksins,
m.a. með notkun eftirprentana, ljós-
mynda og mynda úr fjölmiðlum. Sam-
tímis sýningu Richters eru til sýnis í
Listasafni íslands verk í eigu safnsins
eftir Jðn Stefánsson, einn af frumherj-
unum í íslenskri myndlist. Þriðja sýn-
ingin sem lýkur i Listasafni íslands
um helgina er innsetningin Glerregn,
frá 1984, eftir Rúrí.