Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Side 56
Opel Zafira
Bílhelmar
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Síminn sendi Ástþóri Magnússyni viðvörunarbréf:
Misnotaði SMS-
kerfið og braut lög
- ekkert hámark á 900-númerum - hlutur Símans „trúnaðarmál“
Síminn hefur sent Ástþóri Magnús-
syni, forsvarsmanni Friðar 2000, við-
vörunarbréf þar sem fyrirtækið áskil-
ur sér rétt til að loka allri þjónustu á
900-númerum til hans. Afrit var sent
Póst- og eftirlitsstofnun. Þetta var
gert i framhaldi af „símahappi" Ást-
þórs þar sem um 3000 simnotendur
fengu SMS-boð í GSM-síma um að
þeir hefðu unnið Valentínusvinning
og var bent á að hringja i 900-númer
/**L til að fá frekari upplýsingar. Ekki var
þess getið að símtalið kostaði 990
krónur.
Agnar Már, framkvæmdastjóri
markaðs- og sölusviðs Símans, sagði
að það væri alfarið á ábyrgð Friðar
2000 að afla leyfa til símahappdrættis.
Viðkomandi eftirlitsstofnun, sem í
þessu tilfelli væri lögreglustjóraemb-
ættið, ætti að grípa til aðgerða. Sím-
inn væri á engan hátt ábyrgur i þessu
máli.
„Það gilda mjög
strangir skilmálar
um afnot af 900-
númeri," sagði
Agnar Már. „Þar
er það Póst- og
fjarskiptastofnun
sem hefur allt
vald og er eftirlits-
stofnunin. Við
höfum upplýst
hana um málið.
Friður 2000 misnotaði SMS-kerfi Sím-
ans til ólögmætra fjöldasendinga."
Ekkert hámark er á því af hálfu
Simans hversu mikið má kosta að
hringja í 900-númer. Hæst hefur það
verið 2000 krónur hvert símtal sam-
kvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu.
Síminn fær greitt tiltekið hlutfall af
innhringingargjaldi í hvert sinn en
ekki fékkst uppgefið hversu mikið
það væri þar sem um „trúnaðarmáT
væri að ræða.
Aðspurður hversu margir hefðu
hringt til baka í 990 króna númerið,
eftir að hafa fengið SMS-boð Friðar
2000, kvaðst Agnar Már ekki mega
gefa það upp. Það yrði Friður 2000 að
gera.
Siminn sér um innheimtu gjalda af
símnotendum sem hringdu i 900-núm-
er Eriðar 2000. Agnar Már kvaðst
hafa fengið símtöl frá fólki, þ. á m.
gamalli konu, sem auðheyrilega hefði
verið blekkt. Gamla konan hefði
hringt margsinnis í 900-númerið því
hún hefði ekkert botnað í því sem var
að gerast. Aðspurður hvort til greina
kæmi að fella niður gjald hjá því fólki
sem hefði verið gabbað til að hringja
í 900-númerið sagði Agnar Már að það
væri aifarið á valdi Friðar 2000. Sím-
inn myndi koma skilaboðum frá
óánægðum viðskiptavinum til þeirra
samtaka. -JSS
Ástþór
Magnússon.
Siv Friölelfsdðttir.
Ummæli Hjálmars:
Ekki ég
- segir Siv
„Við Hjálmar Árnason höfum átt
gott samstarf. Hann hefur tekið 2. sæti
á lista sem ég leiði. Við höfum unnið
vel saman og náð
mjög góðum ár-
angri hingað til
þannig að ég veit
að hann getur
unnið vel með
mér.“
Þetta sagði Siv
Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra
vegna ummæla
^ Hjálmars Árnasonar um að hann gæti
' unnið með „næsturn" öllum þeim sem
orðaðir hafi verið við framboð til
varaformennsku í Framsóknarflokkn-
um. Þetta sagði Hjálmar þegar hann
gaf kost á sér til framboðs í ritaraemb-
ætti flokksins.
„Það hefur gengið mjög vel hjá okk-
ur Hjálmari að ná árangri fyrir hönd
Framsóknarflokksins í Reykjanes-
kjördæmi," sagði Siv sem benti á að
nú væru inni tveir þingmenn sem
væri sögulega besti árangurinn í kjör-
dæminu.
Aðspurð hvort hún ætlaði í varafor-
mannsslaginn sagðist Siv ekki gefa út
neina yflrlýsingu að svo stöddu. Jón-
ína Bjartmarz, sem einnig hefur verið
orðuð við framboð, mun hugsa málið
a.m.k. fram í næstu viku. -
-JSS
Flugumferðarstjórar skora á stjórnvöld:
Vilja aö
gengið verði
til samninga
- á grundvelli tillagna frá 1996
félagið". Það verði gert á grundvelli
tillagna réttarstöðunefndar og í
samræmi við ábendingar dr. Assad
Koaite, forseta Alþjóðaflugmála-
stofnunarinnar ICAO, svo afstýra
megi boðuðu verkfalli flugumferðar-
stjóra. Réttarstöðunefnd skilaði til-
lögum í júnílok 1996 um úrbætur
varðandi réttarstöðu flugumferðar-
stjóra. Stjórnvöld hafi enn ekkert
gert með þessar tillögur.
Flugumferðarstjórar segjast sam-
mála ábendingum dr. Assads til
samgönguráðherra um að íslensk
stjórnvöld eigi að tryggja stöðug-
leika og rekstraröryggi flugumferð-
arþjónustunnar til lengri tíma.
Yfir 50 flugumferðarstjórar sóttu
fundinn og greiddú tillögunni át-
kvæði en það er rúmur helmingur
félagsmanna. -HKr.
Félagsfundur í Félagi íslenskra
flugumferðarstjóra í fyrrakvöld
samþykkti einróma aö skora á sam-
gönguráðherra, fjármálaráðherra og
utanríkisráðherra „að þeir beiti sér
fyrir því að samninganefnd rlkisins
verði þegar í stað falið að semja við
Vilja afstýra verkfalli
Flugumferðarstjórar segjast sam-
mála ábendingum forseta.Alþjóða-
flugmálastofnunarinnar ICAO.
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Unniö á stultum
Þeir deyja ekki ráðalausir starfsmennirnir hjá Vélum og þjónustu í Reykjavík.
Þegar skipta þurfti um loft í væntanlegu verstunarhúsnæði við Járnháls
brugðu þeir undir sig þetri fætinum og unnu verkið á stultum.
^Ráðherra segir flugumferðarstjóra vilja yfir 80% hækkun:
Oásættanlegt að semja um slíkt
- viljum aukavinnuna burt, segir Loftur Jóhannsson
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra segist vonast
til að ekki komi til fyrirhug-
aðs verkfalls flugumferða-
stjóra á þriðjudag.
Ráðherra ræddi við stjórn
Félags íslenskra flugumferðar-
stjóra í gærmorgun og gerði
þeim grein fyrir áhyggjum
ríkisstjórnarinnar. „Við lítum
þetta mjög alvarlegum augum
því samningur okkar við Alþjóðaflug-
málastofnunina, ICAO, er þess eðlis
að við eigum engra annarra kosta völ
en að sinna þjónustunni. Ef við getum
ekki tryggt umferðina þá
liggur fyrir að verkefnið
verður falið öðrum. Þetta er
hinn blákaldi veruleiki sem
flugumferðarstjórar verða
að gera sér grein fyrir.
Kröfur þeirra myndu þýða
yflr 80% launahækkun. Það
er óásættanlegt að ganga til
samninga við eina stétt sem
leiða myndi til þess að allir
aðrir samningar yrðu brotnir upp,“
sagði Sturla Böðvarsson.
Loftur Jóhannsson, formaður Fé-
lags islenskra flugumferðarstjóra, seg-
ir auðvelt að leika sér svona með töl-
ur. „Við viljum aukavinnuna burt án
þess að heildarlaun lækki á samnings-
tímanum. Við gerum okkur fulla
grein fyrir að það gerist ekki einn
tveir og þrír, enda höfum við boðið
langan samning, eða hugsanlega 10 ár,
einmitt til að tryggja stöðugleika. Við
höfum haldið rekstrinum gangandi
með yfirvinnu og framleiðniaukning
hjá flugumferðarstjórum á árunum
1995-1999 var um 40%. Við höfum ekki
notið þess sérstaklega í launum," seg-
ir Loftur sem er svartsýnn á viðræður
sem boðaðar eru á mánudag. -HKr.
Sturla
Böðvarsson.
Gæði og glæsileiki
smoft
(sólbaðstofa)
Grensásvegi 7, sími 533 3350.