Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Síða 8
8 Útlönd LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 IOV Binyamin Ben-Eiiezer Nýr landvarnaráðherra ísraels telur heillavænlegra fyrir ísraela og Palestínumenn að takast á við samningaborðið en á vígvellinum. Nýr landvarna- ráðherra vill frið Binyamin Ben-Eliezer, fyrrum hershöfðingi og nýkjörinn land- varnaráðherra ísraels, hvatti Palest- ínumenn til að stemma stigu við of- beldisverkum og hefja friðarviðræð- ur. Ben-Eliezer var kjörinn í emb- ætti á fundi miðstjórnar Verka- mannaflokksins ísraelska í gær. Nýi ráðherrann sagði fréttamönn- um að forgangsverkefni sitt yrði að tryggja öryggi ísraels, eftir fimm mánaða átök við Palestínumenn, og að telja Palestínumenn á að best sé að takast á við samningaborðið. Til merkis um hversu alvarlegum augum bandarísk stjórnvöld líta ástandið, sagði sendiherra þeirra í ísrael að efnahagslíf Palestínu- manna væri að hruni komið og hætta væri á enn meiri átökum. Reyndu að smygla farsíma meö bréfdúfu Vinir afbrotamanns, sem situr í fangelsi í Tyrklandi, reyndu að smygla farsíma til hans. Símann sendu þeir með bréfdúfu en tilraun- in misheppnaðist. Dúfan flaug að vísu yfir fangelsismúrinn en missti símann áður en hún kom að fanga- klefa viðtakandans, að því er tyrk- neska fréttastofan Anadolu greindi frá 1 morgun. Og síminn féll til jarð- ar beint fyrir framan fæturna á fangaverði. Fangavörðurinn hafði reyndar tekið eftir dúfunni þegar hún tyllti sér á múrinn til að hvíla sig ör- stutta stund. Ekki var greint frá hverjir stóðu á bak við smyglið. Styttuna burt Þetta er önnur stóru Búddastyttn- anna sem Talibanar í Afganistan eru byrjaðir að sprengja í tætlur. Talibanar varpa sprengjum aö Búddastyttum Talibanar, sem fara með völd i Afganistan, hófu í gær að varpa sprengjum á fornar Búddastyttur sem þeir telja andstæðar ís- lamstrúnni, þrátt fyrir hávær mót- mæli alls staðar að úr heiminum. Heimildir í Afganistan herma að Talibanar hafi beitt sprengjuvörp- um og fallbyssum til að eyðileggja tvær risastórar Búddastyttur í Bamiyan í miðhluta landsins. Indversk stjórnvöld hafa boðist til að taka stytturnar undir sinn vernd- arvæng og geyma þær. Leiðtogar færeysku stjórnarflokkanna funduðu fram á kvöld: Reynt að leysa deilur um sjálfstæðismálið Leiðtogar stjórnarflokkanna í Færeyjum settust niður á skrifstofu lögmanns í Tinganesi síðdegis í gær til að reyna að leysa ágreininginn sem upp er kominn um sjálfstæðis- mál eyjanna. Fundurinn stóð enn þegar DV fór í prentun í gærkvöld og alls óvíst hver niðurstaða hans yrði. í netútgáfu færeyska blaðsins Sosialurin kom fram undir kvöld í gær að af svip þeirra Anfinns Kalls- bergs lögmanns, Hogna Hoydals varalögmanns og Helenu Dam á Neystabo hefði mátt ráða að fundur- inn yrði erflður. Stjómarsamstarfið hefur hangið á bláþræði síðustu daga, eftir að lög- maður ákvað að aílýsa fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu í vor um sjálfstæðisáætlun stjórnarinnar. Kallsberg gerði það í ljósi þess að skoðanakannanir bentu til að meiri- hluti kjósenda myndi fella tillögu stjórnvalda. Hogni Hoydal, leiðtogi Þjóðveldis- Anfinn Kallsberg Lögmaöur Færeyja fundaði með öðr- um leiðtogum stjórnarflokkanna fram á kvöld í gær til að reyna að leysa deilur um sjálfstæðismálið. Líf landstjórnarinnar hefur hangið á blá- þræði síðustu dagana. flokksins og ráðherra sjálfstæðis- mála, lagði síðan fram tillögu í þing- inu í vikunni þar sem gert er ráð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um fullt sjálfstæði eyjanna árið 2012. Það gerði hann í óþökk Anfinns Kallsbergs sem hraðaði sér heim frá Bretlandi þar sem hann var í opin- berri heimsókn. Stjórnarflokkarnir, Fólkaflokkur- inn, Þjóðveldisflokkurinn og Sjálf- stýriflokkurinn, funduðu hver í sínu lagi í gærmorgun. Að sögn fær- eyska útvarpsins er talið að Kalls- berg lögmaður hafi fengið umboð hjá Fólkaflokkinum til að krefjast þess að Hogni Hoydal dragi tillögu sína til baka áður en þingfundur hefst laust eftir hádegi í dag. Á þess- um fundi eru síðustu forvöð að leggja fram lagafrumvörp. Að sögn færeyskra blaðamanna sem rætt var við í gær var allt eins búist við að upp úr stjórnarsam- starfinu slitnaði. Forsetinn hlttír dýravininn Vel fór á með þeim lon lliescu Rúmeníuforseta og frönsku kvikmyndaleikkonunni fyrrverandi og dýravininum Brigitte Bardot þegar þau hittust í Cotroceni-höll í Búkarest í gær. Bardot er í Rúmeníu til að rétta hlut flökkuhunda í rúm- ensku höfuðborginni. Borgarstjórinn vill fækka þeim en hundarnir eru nú taldir vera um 60 þúsund. Gin- og klaufaveikifaraldurinn tekur óvænta stefnu: Dolly sett í einangrun Einræktaða ærin Dolly var sett í einangrun í gær og lögreglan um- kringdi fimmtán bóndabæi á írlandi þar sem grunur leikur á að gin- og klaufaveiki hafi stungið sér niður. Bresk yfirvöld skýrðu frá því að sjö ný tilfelli þessarar bráðsmitandi veiki hefðu greinst í gær og erlend ríki, allt frá Evrópu til Asíu, hertu eftirlit og takmarkanir á matvælum og ferðamönnum frá Bretlandi. íþróttaviðburðum helgarinnar, svo sem kappreiðum, knattspyrnu og rúgbý, hefur víða verið aflýst. Þá tilkynntu írsk stjórnvöld að þau hefðu aflýst hátíðahöldum á degi heilags Patreks, verndardýrlings íra, þann 17. mars næstkomandi. Gönguferðir um sveitir Bretlands eru nánast bannaðar til að reyna að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu sjúkdómsins. Gin- og klaufaveiki kom síðast upp í Bretlandi, svo ein- hverju nemur, árið 1967. Tony Blair forsætisráðherra Kjöt í rusllö Franskur tollvörður í hafnarborginni Calais kastar kjöti sem lagt hefur verið hald á í ruslagám. Það ergert vegna ótta við gin- og klaufaveiki. gagnrýndi stórmarkaði harkalega í gær fyrir að þvinga bændur til að framleiða ódýrt kjöt og þar með stefna örygginu í hættu. Birgðir af kinda-, nauta- og svina- kjöti í breskum kjötbúðum og stór- mörkuðum hafa minnkað mjög vegna þess að bannað hefur verið að flytja dýr til slátrunar. Unnið er að því að afla kjöts frá öðrum löndum Evrópu og frá Nýja-Sjálandi. Kjötkaupmenn spá því að kjöt- verð muni hækka um allt að fjöru- tíu prósent í næstu viku. Sjúkdómuririn, sem mönnum stendur engin ógn af, berst milli dýra og einnig getur veiran borist með vindinum eða með fótum fólks og bílum. Ekkert þykir táknrænna fyrir það hvernig sjúkdómurinn hefur um- breytt stórum hlutum breskra sveita i bannsvæði en ákvörðunin um að setja Dolly, fyrstu einrækt- uðu ána, í einangrun í Skotlandi. BMIBSMBL Tii í eldflaugavarnir aAnders Fogh Rasmussen, for- maður danska íhaldsflokksins Ven- stre, leggur til að Danir gangi til sam- starfs við Banda- ríkjamenn um upp- setningu eldflauga- vamarkerfis gegn langdrægum flaugum fjandsamlegra ríkja. Hann segir þetta skynsamlega hugmynd. Peningafalsari tekinn Lögreglan í Álaborg fór í gær fram á gæsluvarðhald yfir manni sem var með 16 falsaða eitt þúsund króna seðla í fórum sínum. Maður- inn hefur viðurkennt að hafa áður haft undir höndum falsaöa seðla að andvirði allt að fimm milljóna ís- lenskra króna. Færeyingar eigi olíuna Poul Nyrup Rasmussen, forsætis- ráðherra Danmerkur, segir að Fær- eyingar eigi að ráða yfir tekjum af hugsanlegri olíuvinnslu á land- grunninu, í samræmi við samning sem gerður var árið 1992 þar sem Færeyingar fá yfirráð yfir land- grunninu. Dauði fyrir skattsvik Sjö kínverskir skattsvikarar voru dæmdir til dauða í gær. Sjömenn- ingarnir voru ákærðir fyrir að svíkja sem svarar um 600 milljónum króna af ríkinu. Orða fyrir Harry Potter Breska skáldkon- an J.K. Rowling, höfundur sagnanna um töfrastrákinn Harry Pooter, fékk sjálf að upplifa töfr- um þrungin augna- blik í gær þegar Karl Bretaprins af- henti henni orðu breska heimsveld- isins. Við það tækifæri lýsti prins- inn því yfír að hann væri aðdáandi Harrys. í lífstíðarfangelsi Franskur dómstóll dæmdi í gær fyrrum SS-foringjann Alois Brunn- er í lífstíðarfangelsi, að honum fjar- verandi, fyrir að senda 345 gyðinga- börn til útrýmingarbúðanna í Auschwitz. Ekki er vitað hvort Brunner er enn á lífí, en ef svo er, væri hann 88 ára. Gorbatsjov hlaðinn lofi Rússnesk og er- lend fyrirmenni kepptust við að bera lof á Míkhaíl Gorbatsjov, síðasta forseta Sovétríkj- anna, sem hélt upp á sjötugsafmæli sitt i gær. Umbóta- stefna Gorbatsjovs leiddi til þess að Sovétríkin liðu undir lok. Afmælis- barnið vitjaði grafar eiginkonu sinnar í gærdag og um kvöldið sat hann veislu sem haldin var honum til heiðurs. Kohl ekki ákærður Helmut Kohl, fyrrum Þýska- landskanslari, verður ekki sóttur til saka fyrir að hafa tekið við ólögleg- um fjárframlögum til flokks kristi- legra demókrata. Kanslaranum er hins vegar gert að greiða um 12 milljónir króna í sekt. y*.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.