Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 25 DV Helgarblað deildin fyrst og fremst geymslu- staður. „Það er staðreynd að það var gengið um deildina klukkan sjö á kvöldin og stungið svefntöflum upp í gamla fólkið til að láta það sofa til morguns. Það átti að stinga svona upp í Laufeyju en hún neit- aði því. Það kom fyrir að konan mín fór upp á Grund til þess að baða gömlu konuna þegar hún hafði ekki verið böðuð í hálfan mánuð. Þá hringdi hún grátandi og fannst hún vera svo óhrein. Það var alveg sama þótt við kvörtuðum undan þessu, svarið var alltaf það sama: Við höfum engan mannskap. Dótt- ir mín fór einnig oft og baðaði ömmu sina.“ Óvinsælir aöstandendur - Konstantín og fjölskylda Lauf- eyjar öfluðu sér engra vinsælda á Grund með sífelldum aðfinnslum og kvörtunum um lélega aðhlynn- ingu. „Við fundum fyrir því hjá ákveðnum yfirmönnum á deild- inni að þeim fannst við fylgjast of náið með því sem var að gerast. Konan mín er þroskaþjálfi og dótt- ir mín er sjúkraliði. Þær bera heil- mikið skynbragð á það hvað er boðleg umönnun og hvað ekki.“ - Heldur þú að Laufey hafi fund- ið fyrir því í viðmóti starfsfólksins að þið voruð ekki vinsæl? „Já, ég held að hún hafi oft skynjað það og stundum færði hún það í tal við okkur þótt hún vildi ekki gera neitt í því. Ég er viss um að þetta kom niður á henni með óbeinum hætti.“ Laufey veiktist seint í nóvember 2000 og var flutt á Vífilsstaði þar sem hún dvaldi í rúmlega viku og kunni afar vel við sig. Hún fór þó aftur á Grund og fljótlega fór henni að hraka á ný. „Það var alltaf sama sagan. Hún náði sér vel á strik þegar hún fékk góða umönnun en á Grund datt hún alltaf niður aftur. Hún var komin með súrefni allan sólar- hringinn undir það síðasta." Heyröu hljóöin fram á gang Þegar Konstantín og fjölskylda komu upp á Grund fyrsta desem- ber sl. heyrðu þau sérstætt hvæsandi soghljóð frammi við lyft- una. Það barst innan af deild frá Laufeyju. „Ég hélt fyrst þegar ég heyrði þetta að það væri biluð vél ein- hvers staðar á hæðinni. Þetta var hryllileg aðkoma. Gamla konan lá á bakinu og fálmaði út í loftið og frá henni bárust þessi hljóð. Þegar konan mín reisti hana upp rann vökvinn úr vitum hennar því hún var við það að drukkna í eigin vökva. Læknar hafa sagt mér að hún hafi átt hálftíma eftir ólifaðan ef við hefðum ekki komið. Stúlkurnar voru í næsta her- bergi að sinna öðrum sjúklingum. Þetta voru þrjár ófaglærðar stúlk- ur sem voru þarna á vakt og ég held að þær hafi verið hálfhrædd- ar. Þarna var líka læknanemi á vakt sem var í símasambandi við lækni á vakt. Ég hef' ítrekað sagt að ég vil ekki kenna starfsfólkinu á Grund um eitt né neitt. Það ber ekki ábyrgð á því hvernig farið er með fólk þarna. Það gera yfirmenn stofnun- arinnar. Þarna vinna óharðnaðir unglingar og mállausir útlending- ar sem ekkert geta talað við gamla fólkið. Það er ekki forsvaranlegt að hafa þetta svona.“ . Ótímabær dauödagi Læknanemi á vakt kom á vett- vang og sprautaði Laufeyju með þvagræsilyfi og við það létti á vökasöfnun í lungum hennar sem var orsökin fyrir því að henni lá við köfnun. Hún var flutt á Land- spítalann þar sem hún naut, að sögn Konstantlns, mjög góðrar umönnunar, en Laufey lést þar að kvöldi 3. desember. „Ég er ekki hræddur við að gagnrýna það sem mér finnst mið- Laufey Stefánsdóttir lést á Grund rúmlega níræó. „Þetta varyndisleg kona og þaö var leiðinlegt aö þetta skyldi enda svona því það þurfti ekki aö gera þaö. “ ur fara en ég vil líka þakka þeim sem önnuðust Laufeyju síðasta spölinn og hún fékk að deyja við aðstæður þar sem henni leið vel. Ég er ekki að segja að hún hefði ekki dáið. Hún var rúmlega níræð og orðin heilsutæp en ég tel samt að þetta hafi verið ótímabær dauð- dagi vegna lélegrar umönnunar. Við hefðum kannski getað fengið að hafa hana yfir jólin. Þetta var yndisleg kona og það var leiðinlegt að þetta skyldi enda svona því það þurfti ekki að gera það.“ Ég lofaði að berjast Konstantín segir að Laufey hafi í raun haldið andlegri reisn og kröftum til síðasta dags en hún hafi verið orðin mjög leið og sár og hafi verið tilbúin til þess að deyja. Hann segist vera mjög sáttur við að hafa farið með umkvartanir fjölskyldunnar til ráðherra og yfir- valda. „Ég lofaði Laufeyju því eftir að hún kom á Grund að berjast fyrir hana og ég er að efna það loforð og ljúka því verki. Ég þekki enga aðra aðstandendur vistmanna á Grund en eftir að fréttir birtust af þessu þá hef ég heyrt frá öðrum sem hafa svipaða sögu að segja um umönnunina á Grund. Það virðist sem margir aðrir standi í sömu sporum og við og hafi áhyggjur af aðstandendum sínum inni á stofn- unum. Mér finnst það alveg ófært að engin reglugerð skuli vera til um það hvernig manna skuli hjúkrun- ardeildir elliheimila og finnst að svona stofnun eigi ekki að vera einkarekin. Þetta snýst um pen- inga og gróða og það kallar á sparnað sem þarna birtist í niður- skurði starfsfólks og aðstöðu. Ég er líka að hugsa um alla þá sem ekki eru komnir inn á sjúkra- deildir. Ef þetta er það sem bíður okkar þegar þangað kemur þá kvíði ég fyrir ellinni." Níræö um borð í Orminum Konstantín rifjar upp að lokum síðasta ferðalagið sem hann og Guðný Garðarsdóttir, kona hans, fóru með Laufeyju í tilefni af ní- ræðisafmæli hennar í júlí 2000. „Hún átti sér þann draum að komast til Eskifjarðar og þegar hún heyrði um siglingarnar á Lag- arfljóti með Lagarfljótsorminum þá vakti það mikinn áhuga hennar en hún var afskaplega vel að sér og fróð um landið og hafði yndi af að ferðast. Það varð hennar draumur að sigla á Lagarfljóti. Það varð úr að við ókum saman austur á firði um sumarið og 13. júlí héldum við upp á afmælið hennar um borð í Lagarfljótsorm- inum. Við dvöldum hjá afkomend- um hennar á Vattarnesi og hún var tekin í viðtal i útvarpinu í til- efni af afmælinu og við heimsótt- um æskustöðvar hennar á Eski- firði. Þetta ferðalag tókst mjög vel og við ókum síðan um Norðurland, með viðkomu í Mývatnssveit og á Akureyri. Þetta fannst henni stór- kostlega skemmtilegt og þegar ég var að aka henni á Grund aftur þá sagði hún við mig að skilnaði: Jæja, Konni minn, nú er ég tilbú- in að deyja.“ -PÁÁ Rósasýning í dag laugardag og á morgun sunnudag. Rósin í brúdar- 60 tegundir vöndinn valin! íslenskra rósa á Dregið úr potti á brúð- stórkostlegri rósasýningu kaupsdögum í Garð- heimum um næstu helgi og heppið par fær brúðarvönd með uppá- halds rósinni sinni hannaðan í blómadeild Garðheima. Vissirðu að 99% af- skorinna rósq sem seldar eru á íslandi í dag eru rœktaðar hér á landi? Og það er ein- faldlega vegna þeirra gœða sem íslenskir framleiðendur hafa náð. í TIIÆFM UÓSASÝMMilR: í) ÍSLENSfiAR RÓSIK «90,- í Garðheimum um helgina! o GARÐHEIMAR Hver er rósa fegurst? Cardinal, Escimo, Texas, First Red, Jass, Sugar Baby, Konfetti, First Lady, Amore, Cappucino, Red Berlin Rodeo, Golden Gate, Sari, Amadeus, Ballet, Poison, Yellow Island, Sahara. Komið og takið þátt í vali á fegurstu íslensku rósinni: Heppinn viðskiptavinur dreginn út kl. 18 á sunnudagskvöld - hann fær sendann veglegan blómvönd unnan úr uppáhalds rósinni sinni. Á síðasta ári var „Black Magic“ valin fegursta rósin — hver skyldi verða valin í ár?! Á dagskrá í dag: Kl. 13: Kristinn H. Þorsteinsson og fleiri frá Garðyrkju- félagi íslands með ráðgjöf og fræðslu _____________um rósatrjáklipping- ar og önnur vetrarstörf í garðinum. Milli kl. 14 og 16 vinna þau Jón og Heida skreytingar úr íslenskum rósum og gefa góð ráð um meðferð afskorinna blóma. Kl. 15 fjallar Guðbjörg Kristjáns- dóttir um umhirðu á rósum, áburðar- gjöf og gefur ráð við ýmsum kvillum sem herja á rósir. Á morgun, sunnudag: Kl. 13: Kristinn H. Þorsteinsson og fleiri frá Garðyrkju- félagi íslands með ráðgjöf og fræðslu ^_______i um rósatrjáklipping- ar og önnur vetrarstörf í garðinum. Milli kl. 14 og 16 vinna þau Jón og Heida skreytingar úr íslenskum rósum og gefa góð ráð um meðferð afskorinna blóma. Guggu ráð: Vorlaukarnir eru komnir! Drífið ykkur meðan úrvalið er mest. Opið alla daga til klukkan 21! Heimur skemmtilegra hugmynda og hluta Stekkjarbakka 6 • Mjódd « Simi: 540 33 00 « Fax: 540 33 01 • Veffang: www.grodur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.