Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Blaðsíða 64
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Y f irdýralæknir:
Ferðaföt í
plastpoka
Vegna gin- og
klaufaveikifar-
aldursins sem
geisar á Bret-
landseyjum, og
ekki virðist í
rénun, hvetur
Halldór Runólfs-
son yfirdýra-
læknir ferða-
Halldór menn sem koma
Runólfsson. frá Bretlandi til
að setja ferðaföt
sín í plastpoka og loka vel fyrir
áður en komið er til landsins aft-
ur.
Sérstaka áherslu leggur yfir-
dýralæknir á aö skófatnaður sé
vandlega varinn meö plasti við
heimkomuna og farið veröi með
annan ferðafatnað í hraðhreinsun
eða þvott svo fljótt sem auðið er.
Yfirdýralæknir mælir sértaklega
með efninu Virkon S til sótt-
hreinsunar á skófatnaði en efnið
fæst hjá dýralæknum og verslun-
um sem selja vörur til landbúnað-
arins.
Þá mælist yfirdýralæknir til
þess að Bretlandsfarar noti ekki
ferðaskó sína í fimm daga eftir
sótthreinsun.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra hvatti bændur I gær til
að taka alls ekki þátt í bændaferð
þeirri sem skipulögð hefur verið
um breskar sveitir af feröaskrif-
stofunni Úrval-Útsýn en töluverð-
ur áhugi hefur verið fyrir þeirri
ferð og nær fullbókað í hana þeg-
ar síðasf fréttist.
Sjá nánar bls. 29
-EIR
Vinnuslys:
Féllá
steypujárn
Verkamaður við nýbyggingu
við Klettagarða í Sundahöfn féll á
steypujárn um kvöldmatarleytið í
gær.
Manninum skrikaði fótur þar
sem hann var við vinnu sína og
féll hann á steypujárnið sem stóð
óvarið upp úr vegg. Stakkst
steypujárnið djúpt í lær manns-
ins án þess þó að fara í gegn.
„Þetta var ljótt,“ sagði varð-
stjóri lögreglunnar og bætti því
við að þungi mannsins í fallinu
hefði valdið því að steypujárnið
rifnaði úr lærinu.
Maðurinn var fluttur í skyndi á
slysadeild þar sem gert var að
sárum hans. -EIR
£ÖfW«\
jandssöfnun
ftabtiam-.>;osfc!ngs!
3.mars
Tökum ekki greiöslukort dv-mynd hilmar þór
Þau Hrund Hauksdóttir Lionskona og Valdimar Jörgensson Kiwanismaður eru að ieggja af stað með söfnunarbaukana þar sem iandssöfnun Krabbameinsfé-
lagsins hefst í dag. Lions- og Kiwanishreyfingarnar hlífa sér hvergi heldurganga í hús og biöja landsmenn að leggja þessu göða málefni lið. Er ekki tilvalið aö
hafa reiöufé handbært?
Skelfingu lostnir viðskiptavinir læstir inni í hringhurð:
Bjargvætturinn í Kringlunni
- hugdjarfur ísfirðingur bjargaði fjórum úr prísund þegar kviknaði í Hard Rock
„Þetta var skelfileg sjón. Ég var á
leið inn í Kringluna þegar mér
varð ljóst að eldur var kominn upp
í húsinu og mér til skelfingar sá ég
að þrjár unglingsstúlkur og einn
roskinn karlmaður voru fost í einu
af þremur hólfum hringhurðarinn-
ar á efri hæð Kringlunnar. Ég
heyrði klikkið þegar hún festist en
það er vist hluti af eldvörnum
verslunarmiðstöðvarinnar," sagði
Páll Sverisson, 26 ára bílstjóri af ís-
firskum uppruna, sem sýndi óvana-
lega hetjudáð þegar eldur kviknaði
í Kringlunni á fimmtudaginn. „Ég
sá að loftið i Kringlunni var orðið
reykmettað og fyrstu eldtungurnar
stigu tU himins upp úr þaki bygg-
ingarinnar. Ég horfðist í augu við
ungligsstúlkurnar sem voru fastar
1 hóflinu og úr þeim skein ekkert
annað en skelfing," sagði Páll sem
greip snarlega til sinna ráða. Tróð
fingrum á milli stafs og hurðar og
reyndi af öllum lífs og sálar kröft-
um að rífa upp hringhurðina.
„í fyrstu gekk ekkert því hurðin
virtist pikkfost. En þegar ég tók á
öllu sem ég átti í þriðju tUraun var
eins og eitthvað gæfi sig og hurðin
Páll Sverrisson viö hringhuröina
Fólkiö var fast í einu hólfi hringhuröarinnar á meðan logamir stóðu upp úr
Kringlunni.
snerist. Fólkiö hljóp út úr hólfinu
eins og dýr úr búri. Ég stóð eftir og
sá þakið loga,“ sagöi PáU sem var
magnlaus eftir átökin við hring-
hurðina. í brjósti hans bærðist
samt ánægja þess sem kemur öðr-
um til bjargar á ögurstundu. „Það
á víst ekki að vera hægt að rífa
upp þessar hringhurðir þegar eld-
vamarkefið læsir þeim. En ég gat
ekki horft upp á fólkið þarna inni-
lokað. Ég fyUtist eldmóði og á
þeirri stundu heföi ekkert staðið í
vegi minum. Þaö er undarleg tU-
flnning," sagði PáU Sverrisson í
gær.
Öryggisverðir Kringlunnar
kannast ekki við að viðskiptavinir
hafi verið fastir í hringhurðum
þegar eldurinn kom upp í bygging-
unni:
„Ég og félagar mínir höfum ekki
heyrt af þessum átökum," sagði
Róbert Jónsson, vakstjóri í örygg-
isdeUd Kringlunnar. „Þegar bruna-
varnarkefið fer í gang eiga vængir
hringhurðanna að opnast og fólk á
að geta ýtt þeim tU hliðar. Þannig
á útgönguleiðin að verða greið.“
-EIR
Nýtt dagblað á íslenskum markaði:
Dreift inn á öll heimili
í undirbúningi er að dreifa nýju
dagblaði, sem ætlunin er að hefji
göngu sína í vor, endurgjaldslaust inn
á hvert heimUi á höfuðborgarsvæðinu
auk frekari dreifingar á landsbyggð-
inni. Einar Karl Haraldsson, sem unn-
ið hefur að málinu, staðfesti þetta í
samtali við DV i gær. Blaðið verður
morgunblað og sniðið að erlendum
fyrirmyndum, svoköUuðum Metro-
blöðum sem dreift er ókeypis á lestar-
stöðvum og umferðamiðstöðvum.
„Nýja blaðið fer því trúlega inn á 75
þúsund heimUi á höfuðborgarsvæð-
inu auk þess sem útgefendur horfa tU
landsins aUs. Verið er að skoða ýmsar
dreifingarleiðir í því
sambandi," sagði
Einar Karl.
Morgunblaðið
Metro sem dreift er
endurgjaldslaust í
umferðamiðstöðvum
er 6. stærsta dagblað
í heimi. Það kemur
út í 17 útgáfum í 13
löndum. Fyrsta
Metro-blaðið kom út
í Svíþjóð fyrir sex árum og gefur
Metro-fyrirtækið það nú út í Stokk-
hólmi, Gautaborg og Málmey. Sænska
Metro kemur út í rúmlega einni miUj-
ón eintaka daglega og er stærsta
morgunblaðið í Svíþjóð. Schibsted út-
gáfan í Ósló, sem m.a. gefur út Aften-
posten og Verdens Gang, gefur út
blaðið Oslo og hefur byrjað eða er að
hefja útgáfu ókeypis dagblaða í mörg-
um helstu borgum Þýskalands undir
nafninu „20 mínútur".
Að sögn Einars Karls er útgáfa nýs
ókeypis dagblaðs í takt við þá þróun í
fréttaþjónustu að mest öll nýmiðlun
frétta, hvort heldur er í sjónvarpi, út-
varpi eða á Netinu, er neytendum að
kostnaðarlausu.
Sjá einnig fréttaljós á bls. 27.
-HKr.
Einar Karl
Haraldsson.
bfother
P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Bafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
SYLVANIA