Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Page 21
LAUGARDAGUR 3. MARS 2001
21
E>V
Helgarblað
Stálin stinn
Hjónakornin eru lögst í skotgrafahernaö.
Bardaginn
undirbúinn
Hund-
inn
frekar
en Meg
Það er líklega hundur í Meg Ryan
eftir nýlegt viðtal ástralsks timarits
við Russell Crowe. Hann segir í við-
talinu að það sem hafl komið í veg
fyrir lengra ástarsamband hans og
Meg sé að hann hafi mikla þörf fyr-
ir að vera heima á búgarði sínum i
Ástralíu annað slagið. „Ég verð að
koma heim. Ég verð að hvíla mig á
heimili mínu svo ég hafi þetta af.
Það er erfitt að vera fjarri hundin-
um sínum i hálft ár,“ segir Russell í
viðtalinu.
Hann segist sakna Meg og vildi að
þau hefðu getað verið saman. Hann
segir að þau séu enn vinir sem kem-
ur Meg og hennar fólki víst mjög á
óvart. Meg er sögð helst vilja stroka
þennan kafla lifs síns algjörlega út
úr lífsbókinni og vill ekkert með
Russell hafa.
Síðustu mánuði hafa gengið sög-
ur um að Russell hafi verið i miklu
kvennastandi en hann neitar því al-
gjörlega. Hann segir að á þeim tíma
sem sumir atburðirnir eigi að hafa
átt sér stað hafi hann verið heima í
Ástralíu að brennimerkja nautgripi.
Það má búast við því að Courtney
Love verði dálítið sár yfir því að
vera líkt við nautgripi. Muu.
ið að sá sem um ræðir var blaðamað-
ur. Aðrir vilja halda því fram að
Nicole hafi að nýju blásið í glæður
æskuástarinnar og sé aftur orðin
góð vinkona Marcus Grahams.
Nicole er sögð hafa ráðið til sín
mann að nafni Gavin DeBecker til
að jafna metin en Gavin hefur neit-
að því að beðið hafi verið um þjón-
ustu hans.
Talskona hjónanna harðneitar
öllum sögusögnum um stríðsástand
við skilnaðinn. Hún gerði það
reyndar líka þegar komu upp efa-
semdir um ástríki í hjónabandi
þeirra Toms og Nicole. Það er erfitt
að trúa og enn erfiðara að trúa ekki.
Tom Cruise og Nicole Kidman voru
lítil og sæt hjón, í stórum dráttum var
hún sæt og hann lítill. Skilnaður
þeirra kom flestum á óvart en hann
var, eins og flestir nútíma-stjörnu-
skilnaðir - í sátt og samlyndi. Þau
voru enn vinir. Það hefur bara komið
i ljós að vinir þessir voru undirfórul-
ir og kvikindislegir.
Hjónakornin fyrrverandi eru nefni-
lega lögst í skotgrafahernað. Bæði eru
þau með sérstaka spæjara á sínum
snærum við að róta upp óþverra í
kringum hitt. Allt er gert til að standa
betur að vígi þegar skilnaðurinn kem-
ur í réttarsalina.
Tom á að hafa ráðið einn al-
ræmdasta einkaspæjara Los Angeles
en hann ku heita Anthony Pellicano.
Hann aðstoðaði Michael Jackson við
að komast út úr barnaníðingshneyksl-
inu og segja kunnugir að ef eitthvað
óhreint sé að finna þá komist hann á
snoðir um það. Slúðurblöð vestra
segja að Anthony muni hafa nóg af
haugum til að rótast í.
Því er haldið fram að Nicole bless-
unin hafi leiðst örlítið af réttri braut í
hjónabandinu og haldið fram hjá
Tom. Og ekki er það til að bæta áfall-
Elskaði hundinn meira
Russell Crowe segir þaö nauösyn-
legt aö vera heima í Ástralíu.