Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Side 44
52 LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 Helgarblað x>v ^Búdapest Ferðaskrifstofan Sól og World Class efna til heilsulindaferðar um páska til Ungverjalands. Heilsulind- ir Ungverja eru einstakar enda eru þær allt frá til dögum Rómverja. í Búdapest eru um 50 heilsulindir en á einni þeirra, Hotel Gellért, dvelur hópurinn í þessari ferð. Hótelinu, sem opnað var 1918, má frekar líkja við höll en hótel og stendur á bökk- um Dónár. Á hótelinu eru gríðarleg salarkynni, tveir veitingastaðir, bar og kaffistaður, snyrtistofa, hár- snyrtistofa auk inni- og útisund- laugar með öldugangi. Heilsulindir Gellért eru heill kapítuli út af fyrir sig, en þar er í boði afar fjölbreytt meðferð. Staðsetning hótelsins er einstök. Allar helstu verslunargötur og veitinga- og skemmtistaðir mið- borgar Búdapest eru í þægilegu göngufæri frá hótelinu. Fararstjóri er Sölvi Fannar, einkaþjálfari í World Class. Nánari upplýsingar hjá Sölva Fannari og hjá sölumönn- um í Sólarhúsinu. Krakkana með til Portúgals eða Kýpur Ferðaskrifstofan Sól leggur metn- að sinn í að bjóða vandaða gisti- staði, örugga fararstjóm og traust flugfélög. Sól er fjölskylduvæn ferðaskrifstofa og leggur metnað sinn í að gera fjölskyldum kleift að komast saman í draumafríið á sól- arströndum Kýpur og Portúgals. Aðstaðan á gististöðum er mjög góð fyrir böm og krakkaklúbburinn Sól- arböm í Portúgal er með spennandi dagskrá í allt sumar. Go opnar nýja heimasíðu Lágfargjaldaflugfélagið Go hefur opnað nýja heimasíðu sem er að finna á slóðinni www.go-fly.com. Heimasíð- an hefur verið endurhönnuð frá ^ grunni með þaö í huga að einfalda viðskiptavinum Go að skoða og panta ferðir samdægurs. Eins og áður er veittur 250 kr. afsláttur ef pantað er á Netinu og er því ódýrasta fargjald Go milli Keflavíkur og London 14.750 kr. Á heimasíðunni er hægt að panta hót- el og bílaleigubíla á öllum áfangastöð- um Go. Þar er að finna nokkuð ítar- legar upplýsingar um alla áfangastaði Go, t.d. hvað er áhugavert að sjá og gera á viðkomandi áfangastað. Með nýrri og aðgengilegri heimasíðu von- ast forsvarsmenn Go til þess að enn fleiri noti sér þennan möguleika. -kip Lúxus í flugvélum framtíðarinnar stemningin eins og um borð í farþegaskipi við upphaf síðustu aldar Um borö í nýju Airbus A380 veröur í fyrsta sinn boöiö upp á aö farþegar geti gengiö um vélina meöan á flugi stendur. Farþegarými verður á tveimur hæöum en þriöja og neösta hæöinn er ætluð fyrir afþreyingu afýmsu tagi. Ferðamenn sem' hafa verið svo lánsamir að sigla með stórum skemmtiferðaskipum segja að það sé einstök reynsla sem gleymist aldrei. Farþegar sem sigldu með far- þegaskipinu Gullfossi í gamla daga vildu í sumum tilfellum ekki fara frá borð fyrr en í fyrsta lagi eftir há- degi þegar þeir voru búnir að fá há- degismat. Slík voru þægindin um borð. Bylting fyrir farþega Forsvarsmenn Airbus-flugvéla- verksmiðjunnar segjast ætla að end- urvekja stemmninguna sem var um borð í farþegaferðaskipum í nýju Airbus A380. John Leahy, varafor- stjóri Airbus, segir að í dag sé far- þegum i flugvélum pakkað eins og um gripaflutninga sé að ræða og þeir keppist við að komast frá borði eins fljótt og unnt er. Leahy segir að um borð í nýju Airbus A380 verði í fyrsta sinn í sögu flugsins boðið upp á nóg pláss fyrir farþegana og þeir geti gengið um vélina meðan á flugi stendur. Vélin verður 50% stærri en Boing 747 og með sæti fyrir 550 far- þega. Farþegarými verður á tveim- ur hæðum en þriðja og neðsta hæð- inn er ætluð fyrir afþreyingu af ýmsu tagi. Vegna stærðar vélarinnar er pláss fyrir margvíslega dægrastytt- ingu um borð og geta farþegar m.a. fariö á kaffihús, á barinn eða spila- víti, þeir sem vilja geta farið í lík- amsrækt eða nudd. Einnig verður boðið upp á fríhöfn, myndlistarsýn- ingar, biljarö- og keilusal. Salerni verða aðskilin eftir kynjum og væntanlega stærri en kústaskápam- ir sem fólki er boðið upp á í dag. Leahy segist vona að fyrstu lúxus- vélamar komi á markað eftir fimm ár og á næstu tíu árum muni þær gerbreyta hugmyndum manna um þjónustu um borð í flugvélum. A380 er ætluð í langflug sem tekur allt að átján klukkustundir og verða því tvær þrjátiu manna áhafnir um borð ásamt hvíldaraðstöðu fyrir þær. Líkan í fullrl stærð Airbus er þessa dagana að láta smíða líkan að A380 vélinni í fullri stærð. Talsmaður fyrirtækisins seg- ir að þegar sé búið að smíða fyrsta farrými með risastórum bar og sæt- um sem hægt er að snúa 360 gráður, leggja niður og breyta i rúm. Líkan- ið á bara að gefa hugmynd um hvernig aðstaðan verður um borð en ekki er búið að ákveða endanlega hvernig vélin kemur til með að líta út. Þeir sem hafa komið um borð í líkanið segja að það minni einna helst á ferju með rúmgóðum göng- um og víðum stigum upp á efri þil- förin. Loftkastalar Efasemdarmenn segja að hug- myndin sé ekkert annað en draum- ur og komist aldrei í framkvæmd. Máli sínu til stuðnigs benda þeir á að þegar Boing 747 vélarnar voru settar á markað hafi þægindi átt að vera í fyrirrúmi en flest flugfélög hafi fórnað þeim fyrir aukinn fjölda sæta. Robert Lange, markaðsstjóri A380, blæs á allt slíkt og segir að plássið um borð sé svo mikið að lög leyfi ekki þann hámarksfjölda far- þega sem vélin geti borið. Hann seg- ir enn fremur að vélarnar séu svo dýrar að ólíklegt sé að þær verði notaðar undir frakt. „Ég reikna miklu frekar með að flugfélögin reyni að auka enn á þægindin og bjóði jafnvel upp á einkaklefa fyrir þá sem það vilja, t.d. menn í við- skiptaerindum sem vilja fá frið til að vinna eða fólk á leið í brúðkaups- ferð.“ 560 tonn viö flugtak Bent hefur verið á að vegna stærðarinnar séu einungis fáir flug- vellir í heiminum sem geti afgreitt vélina. Aðrir segja að þetta sé ekki vandamál vegna þess að stærðin muni draga úr flugi minni véla og minnka þannig álagið. Nýju Áirbus-vélarnar geta vegið allt að 560 tonn við flugtak og í sum- um tilfellum verður að endurhanna lendingarljós flugvallanna til að þau þoli þrýstinginn sem myndast frá hreyflunum við flugtak. Hönnuðir A380 segja að þyngdin muni dreifast jafnt um vélina og þess vegna eigi lendingarbrautir alþjóðlegra flug- valla að þola þær. Flugfélagið Air Singapore er þeg- ar búið að panta vél og er að láta breyta brottfararsal sínum í Singa- pore þannig að hægt sé að afgreiða vélina. í framtíðinni mun brottfar- arsalurinn verða á tveimur hæðum. Farþegar á fyrsta farrými ganga um borð beint á efstu hæð vélarinnar en farþegar á almennu farrými á neðri hæðina. Læknir um borð Gert er ráð fyrir að lítil en full- komin bráðamóttaka verði um borð og við hana starfi hjúkrunarfræð- ingur. Til að auka á öryggi farþeg- anna verður hann í beinu sambandi við lækna á jörðu niðri í gegnum gervihnött. Talsmaður Airbus segir að þetta sé gert vegna þess gríðar- lega kostnaðar sem fylgir því að lenda vélinni ef einhver veikist skyndilega um borð. Ef hugmyndir Airbus ná fram að ganga má búast við miklum breyt- ingum í farþegaflugi á næstu árum. Flugið verður ánægjulegra, farþeg- um mun líða betur og flugferöir framtíðarinnar verða eins og sigling með farþegaskipi i upphafi síðustu aldar. -Kip Spennandi vetrarfrí: Vetrarafþreying á Eyj af j arðarsvæðinu Sveitarfélögin á Eyjafjarðar- svæðinu, Akureyri, Dalvík, Ólafs- fjörður og Grenivik, munu kynna afþreyingarmöguleika sína í Nanoq í Kringlunni næstu vikurn- ar. Þar mun skíðapassinn m.a. verða kynntur sérstaklega en aö honum standa skíðasvæðin á Ak- ureyri, Dalvík og Ólafsfiröi. Pass- inn gildir á þrjú áðumefnd skíða- svæöi. Auk þess verður kynnt önnur afþreying á Eyjafjarðar- svæöinu. Þá mun forsvarsmenn skíða- svæðisins á Grenivík kynna lengstu skíðabrekku á landinu sem er um 6 km löng. Þeir sem vilja renna sér niður brekkuna þurfa að fara með snjóbil upp á toppinn á Kaldbak. Skíöasvæðið við Grenlvík Þeir sem vilja renna sér niöur lengstu skíöabrekku landsins geta komist þangaö meö snjóbíl. Kynningarnar i Nanoq hefjast í næstu viku og verða skíðasvæðin þrjú kynnt til skiptis frá 5. mars til 7. apríl. Sól og snjór Þaö er gaman aö renna sér á skíöum í Eyjafirði á góöviðrisdegi sem þessum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.