Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Síða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Síða 53
LAUGARDAGUR 3. MARS 2001 61 I>V Tilvera Bridgehátíð Flugleiða, BSÍ og BR 2001: _______________________________________________________________________________________________________1 Myndasögur Zia vann í áttunda sinn! Eins og kunnugt er af fréttum þá vann sveit Zia auðveldan sigur í sveitakeppni Bridgehátiðar og er þar með komin með átta sigra sem enginn annar getur státað af. í þetta sinn voru meðreiðarsveinar hans ekki af verri endanum frekar en fyrri daginn, eða Skotinn Barnet Shenkin, Bandaríkjamaðurinn Ralph Katz og Kanadamaðurinn George Mittelman. Það er ef til vill of mikið sagt að sveit Zia hafi unnið auðveldan sigur því fyrir síðustu umferðina var staða efstu sveita nokkuð jöfn þótt Zia væri efstur með 176 stig. í öðru sæti var sænsk sveit undir forystu Anders Morath, gamalreynds lands- liðsmanns og fyrrum Evrópumeist- ara, með 174 stig. Og í þriðja sæti var sveit Pólverja, silfurhafa síðasta Ólympíumóts, með 173 stig. Allt gat því gerst. Zia hafði, eins og keppnisfyrir- komulagið gerir ráð fyrir, spilað við allar efstu sveitirnar og því kom i hans hlut að spila við sveit Þriggja Frakka sem sat aðeins neðar á stiga- töflunni, með 160 stig. En Pól- verjarnir og sveit Morath þurftu að kljást í síðustu umferðinni svo óneitanlega voru möguleikar Zia bestir því líklegt var að þær myndu skipta stigunum. Zia þurfti að vinna sinn leik minnst með 20 vinningsstigum og fljótlega kom.í ljós að spilaguðinn hafði slegist i lið með honum sem fimmti maður (eða kona). Liðsmenn Þriggja Frakka virtust heillum horfnir og spilið i dag er gott dæmi um það. V/Allir ♦ 72 4* DG96 ♦ ÁKG ♦ KG85 4 9 Á74 ♦ 9632 ♦ D10432 * ÁKDG843 * 1082 4 _ * Á96 ♦ 1065 «■« K53 ♦ D108754 ♦ 7 Stefán Guðjohnsen skrifar um bridge Á sýningartöflunni sátu n-s Shenkin og Zia en a-v Kristján Blön- dal og Steinar Jónsson. Þar réðu visindalegar sagnir ríkjum og hver getur svo sem amast við þeim: Vestur Noröur Austur Suöur 1 grand pass 2 V* pass 2 4 pass 4 4** pass 4 4 pass 5* pass 5 4 pass 54 pass pass pass * yfirfærsla í spaöa ** splinter Éins og beðið var um þá kom hjartaásinn út og síðan meira hjarta. Sagnhafi átti síðan afgang- inn og a-v hrósuðu happi yfir því að hafa ekki reynt slemmu. En víkjum strax yfir í lokaða sal- inn þar sem bræðurnir Hrólfur og Oddur Hjaltasynir sátu n-s en Mittelman og Katz a-v. Þeir létu vís- indin lönd og leið: Vestur Noröur Austur Suöur 1 grand pass 4 v* pass 4 * pass 64 pass pass pass * yfirfærsla í spaöa Hrólfur lá nokkuð yfir útspilinu en ákvað að lokum að spila út laufi. Þar með voru örlög hans ráðin því Katz var fljótur að renna heim 12 slögum. Þetta voru 13 impar til Zia sem hefðu skipt um eigendur ef Hrólfur hefði spilað út hjartaás. Hvernig getið þið, barþjónarnír. stöðugt hiustað á kvartanir viðskiptavína dag eftir dag? Sigurveigarar í sveitakeppni Bridgehátíðar Taliö frá vinstri: Mittelman, Zia, Katz og Shenkin. /Oy gættu þín^ ' á þessum stóra! ) Hann 90M A- Jé prestu,,'| s^spilað groftí^w^ J ÍHvisl, hvísl, hvisl. \ lí , Sólveig sagði að það vaeri í dag sem þú fengir vikupeningana þina. Náðu í þá og ég skal fresta I réttlætinunni þar til á morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.