Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Síða 58
66
LAUGARDAGUR 3. MARS 2001
Tilvera dv
lí f iö
E F T I R V I N N U
Fiðla og píanó
í salnum
Una Sveinbjarnardóttir flðlu-
leikari og Anna Guöný Guð-
mundsdóttir píanóleikari flytja
verk eftir Bach, Beethoven,
Lutoslawski og Saint-Saéns í
Salnum, Kópavogi, í dag klukk-
an 17.
Klassík
■ LA BOHEME Islenska Operan
sýnir í kvöld klukkan 19 óperuna La
Bohéme eftir Giacomo Puccini við
texta eftir Giuseppe Giacosa og
Luigi lllica. Hljómsveitarstjóri er
Tugan Sokhiev en leikstjórinn er
Jamie Hayes. íslenskir söngvarar
fara meö helstu hlutverkin.
■ MINNINGARTÓNLEIKAR í ÝMII
dag kl. 16 veröa haldnir söngtónleik-
ar í tónleikasalnum Ými viö Skógar-
hlíð. Flytjendur eru þær Ingunn Osk
Sturludóttir messósópran, Guörún
Anna Tómasdóttir píanóleikari og
Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleik
ari. A efniskránni eru m.a. spænskir
Ijóðasöngvar, Ijóöasöngvar e.
Tsjajkovskí og sönglög Sigvalda
Kaldalóns.
Sveitin
■ BUBBI OG STRH) OG FRHDÚR
Bubbi og hans menn í hljómsveitinni
Stríöi & friöi standa fyrir hörkurokk-
dansleik ? Sjallanum á Akureyri í
kvöld.
■ SMJÖRDALLURINN í REYKJA-
NESBÆ Buttercup treður upp á N-
Bar, Reykjanesbæ, í kvöld.
Leikhús_______________________
■ KRAAK Islenski dansflokkurinn
frumsýnir í kvöld á Stóra sviöi Borg- f
arleikhússins tvö ný verk eftir
norska danshöfundinn Jo
Stromgren. Verkin bera nöfnin Kra-
ak eet og Kraak twee og eru samin
sérstaklega fyrir íslenska dansflokk-
inn. Einnig veröur frumsýnt nýja
verkið Pocket Ocean eftir portú-
galska danshöfundinn Rui Horta.
■ BLÁI HNÖTTURINN Á STÓRA
SVHHNU I dag, kl. 14, verður hið
vinsæla verk, Blái hnötturinn eftir
Andra Snæ Magnason, sýnt á stóra
sviði Þjóöleikhússins.
■ SJEIKSPÍR EINS OG HANN
LEGGUR SIG Loftkastalinn sýnir
klukkan 20 I kvöld Sjeikspír eins og
hann leggur sig með Halldóru Geir-
harös og félögum. Nokkur sæti
laus.
■ VITLEYSINGARNIR Hafnarfjarö-
arleikhúsiö sýnir í kvöld klukkan 20
leikritið Vitleyslngana eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Nokkur sæti
laus.
Fundir
■ MEÐ MANNASKIT A TANUM Ar
leg ráöstefna um barna- og unglinga-
bókmenntir verður haldin í Menning-
armiðstöðinni Geröubergi í dag kl.
11. Ráðstefnur þessar eru orönar
fastur viðburður á vormánuöum í
Geröubergi. Aðsókn hefur aukist ár
frá ári enda athyglisverð þemu og
spennandi fyrirlesarar hverju sinni. í
ár verður litið yfir farinn veg, staöan
í dag skoðuð og skyggnst inn í fram-
tíðina í heimi barnabókmenntanna.
Erindi flytja Dagný Kristjánsdóttir
bókmenntafræðingur, Sjón rithöfund-
ur og Valgeröur Benediktsdóttir
bókmenntafræðingur. Ráðstefnu-
stjóri er Þorvaldur Þorsteinsson,
myndlistarmaður og rithöfundur. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Laugardaginn 10. mars hefjast í
Salnum í Kópavogi burtfarar- og
einleikarapróf nemenda Tónlistar-
skólans í Reykjavík sem heldur upp
á sjötugsafmæli sitt þetta skólaár. Á
þessum sjötíu árum hafa 743 nem-
endur útskrifast úr ýmsum deildum
skólans, þar af 290 með einleikara-
eða burtfararpróf, og nú bætast níu
í hópinn. Þessi níu ungmenni eru
nútímabörn en þau hafa langar og
miklar rætur í tónlistinni eins og
sést á fjölbreyttum efnisskrám
þeirra - þar eru margra alda gömul
verk i bland við verk samtímatón-
skálda.
Einleikaraprófið er viðameira en
burtfararprófið vegna þess að það er
tvískipt. Fjórir af níu útskriftar-
nemendum eru sérstaklega valdir af
15 manna dómnefnd á forprófi til að
þreyta það og tóku þau fyrri hlut-
ann 1. febrúar þegar þau léku með
Sinfóníuhljómsveit íslands í Há-
skólabíó. „Það er eiginlega tvöfold
vinna að taka einleikarapróf," segir
Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari og
talar af reynslu þvi hann þreytir
seinni prófraun sína 1. apríl í Saln-
um. En honum þótti dýrmætt að fá
að spila með Sinfóníuhljómsveitinni
og allt gekk vel.
Les nótur í strætó
Á einleikaratónleikum sínum ætl-
ar Ari að leika verk eftir Beethoven,
Bach, Jón Nordal og Prokofieff og
hann kvíðir ekkert sérstaklega fyr-
ir, enda hefur hann komið fram á
tónleikum í mörg ár.
- Ég frétti af þér lesandi nótur á
strætóstoppistöð um daginn -
varstu þá að læra verkið utanbókar
eða velta fyrir þér túlkun?
„Ég les oft nótur í strætó og með-
an ég bíð eftir hon-
um,“ segir Ari og er
skemmt. „Stundum er
ég bara að leggja þær á
minnið en stundum er
ég líka að athuga
merkingar um hraða
og styrk og þá reyni ég
að heyra í huganum
hvernig það hljómar."
- Hvað tekur við hjá
þér eftir þetta próf?
„Ég er búinn að fá
inni í Konservatoríinu
i Kaupmannahöfn en
ég er líka búinn að
sækja um skólavist í
fimm skólum í Banda-
ríkjúnum og fæ svör
þaðan í april. Mig
lángar meira til Amer-
íku.“
- Af hverju?
„Ég bjó þar í fimm
ár þegar ég var lítill og
mér finnst ég passa vel
inn í bandarískt um-
hverfi. Það verður svo-
lítið eins og að koma
heim. Allir kennaram-
ir sem Guðný Guð-
mundsdóttir, kennar-
inn minn, hefur talað
um eru Ameríkanar og
ég hef alltaf stefnt
þangað - enda er
DV-MYNDIR EÓL.
Einleiks- og burtfarar-
prófsnemendur voriö 2001
Þau eru níu og eiga
framtíðina fyrir sér.
tungumálið engin hindrun."
- Heldurðu að það sé afgerandi
munur á skólum í Bandaríkjunum
og Evrópu?
„Ég held að Bandaríkjamenn séu
skipulagðari, nútímalegri og
praktískari. Evrópumenn líta meira
á hefðir, hugmyndir og form. Til-
flnning mín segir mér að bandarísk-
ir skólar undirbúi mann betur fyrir
framtíðarstarflð - en auðvitað veit
ég ekkert um þetta!“
Ari Þór sér fram á fimm ára fram-
haldsnám á þetta annað vinsælasta
einleikshljóðfæri heims - það kepp-
ir aðeins viö píanóið. Hann er tví-
tugur þannig að hann verður 25 ára
þegar hann leggur heiminn að fót-
um sér. Eða er það ekki ætlunin?
Ari hlær við. „Ég stefni að því að
verða eins góður fiðluleikari og ég
get orðið - svo sjáum við til.“
Tónlist og mannfræói
Ekki stefna allir á heimsyfirráð í
tónlistinni. Ella Björt Daníelsdóttir
leikur verk m.a. eftir Teleman,
Sachsen-Meiningen og Khatchaturi-
an á sina klarínettu á burtfarartón-
leikum 24. mars, en hún ætlar ekk-
ert endilega að gera tónlistina að
ævistarfi. „Mig langar í háskólann
líka, ég er spennt fyrir mannfræði,"
segir hún, „en það er aldrei að
vita.“
Ella Björt kennir nú þegar á
hljóðfærið sitt í Tónmenntaskólan-
um og ætlar að halda því áfram. En
þýðir þetta að tónlistin sé hliðar-
grein í lífi hennar?
„Ekki núna meðan ég undirbý
mig undir prófið. Ég lauk stúdents-
prófi frá MH í fyrra þannig að í vet-
ur hef ég verið í fullu námi í Tón-
listarskólanum."
- En finnst þér ekki að þú hafir
sóað tímanum þessi ellefu ár sem
þú hefur lært á klarínettu ef þú
hættir núna?
„Alls ekki,“ segir hún með
áherslu. „Tónlistin hefur gefið mér
svo mikið að mér dytti aldrei í hug
að sjá eftir tímanum sem hún hefur
tekið."
- Hvað gerir tónlist fyrir mann?
„Því verður hver að svara fyrir
sig, en hún er það mikilvægasta sem
ég hef tekið mér fyrir hendur í lífinu
- þó að ég vilji ekki endilega stunda
tónlistarstörf alla ævi. Hún er ekki
það eina sem mig langar til að gera
en hún hefur opnað fyrir margt í
höfðinu á mér og alla vega ekki lok-
að fyrir neitt. Og ég á áreiðanlega eft-
ir að stunda tónlist þó að hún verði
ekki aðalstarf."
Við óskum öllum níu góðs gengis
í prófinu og gæfuríkrar framtíðar.
-SA
Ari Þór Vilhjálmsson fiöluleikari
Undrabörn í tónlist leika flest annaðhvort á píanó eða fiðlu.
Ella Björt Daníelsdóttir klarínettuleikari
Tónlistin er það mikilvægasta sem ég hef tekið
mér fyrir hendur í lífinu.