Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2001, Page 19
LAUGARDAGUR 31. MARS 2001
19
I>V
stjóra Fóstbræðra. Stórir útskornir
skápar úr völdum kjörviði þekja
veggi. Málverk af mektarmönnum
innan kórsins með grásprengt hár
og líka skopmyndir sem Halldór
Pétursson teiknaði af kórfélögum í
kringum 1970. Chesterfield-sófasett
og reykborð standa sem minnis-
merki um liöna tíma, tíma þegar
reykingar þóttu sjálfsagðar þar sem
vinir komu saman. Þar sjást merki
nútímans hvað gleggst í Fóst-
bræðraheimilinu því við reykborð-
in eru reykingar bannaðar.
Hann sýndi mér stoltur ýmsa
kjörgripi sem kórnum hafa áskotn-
ast á langri leið. Það er til dæmis
siður milli karlakóra að gefa borð-
fána með merki sins kórs þegar far-
ið er í heimsóknir milli lands- og
heimshluta. Ótal slíkir fánar
skreyta hillur: Heimir, Stefnir,
Hreimur og Jökull... og fleiri karla-
kórsfánar sem skarta karlakórsleg-
um nöfnum.
í Jónsstofu má enn fremur sjá
bikar einn voldugan sem ferðaðist á
árum áður milli kórfélaga sem
umbun þeim sem best sóttu æfing-
arnar. Við hátíðlega athöfn var bik-
arinn fleytifylltur einhverjum góð-
um miði og látinn ganga mann frá
manni í þeirri rödd sem hafði sigr-
að. Þessi siður hefur nú lagst af.
„Ætli það sé ekki vegna bindindis-
semi tíðarandans?" - skaut ég inn á
milli sviga í huga mínum.
Söngmenn hnykkja
mjöðmum
Ófáir gripirnir hafa áfasta silfur-
skildi sem greina komandi kynslóð-
um Fóstbræðra frá tilefni þeirra.
Forláta klukka var gefln Fóstbræðr-
um af Fóstbræðrakonum fyrir
mörgum árum og mér verður star-
sýnt á hana. Fóstbræðrakonur?
Hverjar eru nú þær?
Jú, ekki stendur á söngmönnum í
hléi að aöstoða uppburðarlítinn
kvenmanninn. Vörpulegur náungi
fræðir mig um það að Fóstbræðra-
konur séu eiginkonur Fóstbræðra
sem hafi á árum áður stofnað með
sér félag til þess að styðja og styrkja
lífsfórunauta sína. Þá sáust borö
ósjaldan svigna undan hnallþórum
og eins og svo oft á íslandinu þótti
allt undir sautján sortum ifla boð-
legt. Bakkelsið seldu konurnar og
ágóðinn rann til kórsins - gjarnan
til að styrkja bræðurna á söngferða-
lögum. Lokahófið sáu þær líka um
af frægum myndarskap. Þetta er fal-
legt.
„En það eru ár og dagar síðan
þær hafa bakað,“ bætir heimildar-
maður minn við og mér sýnist sakn-
aðarglampi í augum hans. „Konurn-
ar eru ekki eins virkar í starfinu og
áður, þó þær sjái enn um lokaball-
ið.“
Þá glymur bjaflan. Pásan er búin
og söngmenn ræskja sig meðan þeir
ganga sporléttir í salinn og taka sér
sinar stöður. Eftir hlé er æft nú-
tímalag. Það er ekki hefðbundið
karlakórslag, heldur í anda Atla
Heimis þar sem blístur, hróp og köll
skjóta áhlýðendum skelk í bringu.
„Vist!“ „Jú!“ „Nei!“ kveður við úr
öllum áttum og söngstjórinn á fullt
í fangi með að hemja sönggleðina
sem sprettur fram eins og straum-
hart fljót í vorleysingum. Mér finnst
að æfingin hljóti að vera að leysast
upp í fíflagang, en átta mig svo á því
að allt er þetta samkvæmt ákveð-
inni dagskrá. Eftir forskrift taka
kórfélagar sig síðan til og hnykkja
mjöðmum í takt við tónlistina. Ég,
sem hef góða yfirsýn yfir fimmtíu
karlmannlega bakhluta, missi penn-
ann.
í hvíslandi mansöng
Það er gaman að vera þarna og
horfa á karlmenn í launhelgum sín-
um. Það er fogur sjón. Karlmennsk-
an er heldur ekki bara harkan,
þetta nauðsynlega viðnám við kven-
leikanum. Blandan sem konur hafa
fallið marflatar fyrir um aflar aldir
eru styrkur og blíða í jöfnum hlut-
fóllum og eftir þrumandi söng um
strauma og storma hlýði ég klökk á
kórfélaga bregða fyrir sig mildustu
röddum heyranlegum í hvíslandi
mansöng upp á engilsaxnesku: „I
love you ... we love you“ ... og litlu
Helgarblað
síðar: „Blessað sé þitt blíða, bros og
gullin tár, þú ert lands og lýða, ljós
í þúsund ár.“ Þarna erum við kom-
in aftur til upphafsins.
Kannski er eitthvað til í því sem
HKL sagði í ruglingslegri bók: „Ást
karlmannsins til konunnar er hið
eina sanna í lífinu." Eftir að hafa
hlýtt á Fóstbræður þetta kvöld var
að minnsta kosti enginn efi í huga
mínum.
-þhs
Testósterón mælt í rúmmetrum
„Þar liðu engin meyjarleg andvörp af
vörum heldur karlmannleg púst, “
segir kvensniftin, sem smyglaði sér
inn á æfinguna, í grein sinni.
GELGJU-
Oviðjafnanleg lagersala um helgina
hjá ESSO á Gelgjutanga við Kleppsmýrarveg.
Opið laugardag kl. 10-18, sunnudag kl. 10-16.
tstóttut'-
Ko'att'W'
Gas9»''' .
;SSÍ—•*
32-38 með "i4'""
li0gW«um
3 5 lonn
rSSÖ“'MS'15
tssfe.-
m f jölnota ttoto
£sso!
Olíufélagiðhf
www.esso.is
Húsa-
smlðjan
o> 0