Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2001, Síða 49
LAUGARDAGUR 31. MARS 2001
61
I>V
Tilvera
Fitukeppur á veisluborðinu
- til að kynda upp hungrið í gestunum
‘'i'
Sítrónulegin herrasteik á
grilliö
Mjaðmasteik af lambi í sneið-
um
olífuolía 1/2 1
piparmyntulauf
timian
pipar
smá kúmen
sítrónusafi
Sósa
300 g sýrður rjómi 18%
100 g majones
2 msk. tómatsósa
2 stk. rifin epli, græn
3 msk. Sweet Relish
nokkrir dropar af Tabascosósu
Kjötið er skorið í 8 jafnstórar
sneiðar og þær barðar þunnt. Gul-
ræturnar eru afhýddar og skornar
niður í 8 bita jafnlanga sneiðunum.
Sjóðið gulrótarbitana í léttsöltu
vatni í 4-5 mínútur og færið síðan
upp úr vatninu. Smyrjið lifrarkæf-
unni yfir kjötsneiðarnar, leggið
beikonsneiðarnar og gulrótarbitana
ofan á og stráið ostinum og stein-
seljunni yfir. Rúllið sneiðunum upp,
lokið þeim með tannstönglunum,
Aðferð:
Olíu og kryddi blandað saman.
Sítrónusafinn settur út í síðast.
Kjötið marínerað í sólarhring fyrir
matreiðslu.
Bernaisesósa
2 msk. estragonedik
4 eggjarauður
400 smjör
penslið með olíu og kryddið með
Season All og nýmöluðum pipar eft-
ir smekk. Leggið rúllurnar á vel
heitt grillið og grillsteikið i 10-12
mín. Snúið við öðru hverju meðan á
steikingu stendur.
Sósa
Hrærið saman sýrða rjómanum
og majónesinu, bætið síðan
tómatsósunni, rifnu eplunum og
Sweet Relish út í. setjið nokkra
dropa af Tabascosósu út í sósuna.
Meðlæti: Sósan og smátt skorið
ferskt grænmeti, t.d. spergilkál,
paprika, kínakál eða blómkál.
Skolið, þerrið, skerið og steikið
grænmetið í olíu i 2-4 mínútur á
pönnu. Kryddið örlítið með hvít-
lauksdufti og hvítum pipar. Blandið
saman við soðin hrísgrjón.
1 msk. saxað, ferskt estragon
1/2 tsk. nautakjötskraftur
salt og mulinn hvítur pipar á
hnífsoddi
Aðferð:
Bræðið smjörið í potti og látið
sjoða þar til hættir að krauma á yf-
irborðinu. Hrærið eggjarauðurnar
saman við edikið. Hellið síðan sjóð-
andi smjörinu mjög rólega saman
við og hrærið stöðugt í á meðan.
Eggjablandan á strax að þykkna. Ef
hún verður of stíf er örlitlu köldu
vatni hrært saman við. Bragðbætið
með salti, pipar, örlitlu söxuðu
fersku estragoni, örlitlum nauta-
kjötskrafti og meira ediki, ef þurfa
þykir.
Kartöflusalat
1 kg kartöflur
1/2 laukur
6 egg, harðsoðin
Sýrðar gúrkur eftir smekk
Karríkrydd, 1/2 tsk. (majones
mjög lítið).
Öllu blandað saman.
Sigríður Ásgeirsdóttir:
„Ég held aö þegar sem mest hefur veriö á mínu heimili þá vorum viö meö 30 páfagauka og þeir voru allir aö unga
út, 800 I fiskabúr meö um 700 fiskum, naggrísi, frosk, einn hund, tvo norska skógarketti og tvær kanínur. “
Sigríður Ásgeirsdóttir, verslunar-
stjóri Dýralands Kringlunni, er mat-
gæðingur vikunnar að þessu sinni.
Auk þess að vinna í Dýralandi er
hún hundaþjálfari og í stjóm
Scháferdeildar Hundaræktarfélags
íslands. Það er ekki hægt að segja
annað en hún sé í draumastarfmu
þar sem hún er umvafin dýrum sem
eru hennar aðaláhugamál.
„Já, það er eiginlega vægt til oröa
tekið að dýr séu mitt áhugamál.
Maðurinn minn og dætur eru
einnig miklir dýravinir, stelpurnar
hafa auðvitað alltaf alist upp í
kringum dýr og kunna að umgang-
ast þau og það er einmitt það sem
mörg börn skortir," segir Sigga.
Líf og fjör
Það hefur verið líf og fiör á heim-
ili þessarar fiölskyldu sem hefur
ekki skort viljann að hýsa allskyns
dýrategundir.
„Ég held að þegar sem mest hefur
verið á mínu heimili þá vorum við
með 30 páfagauka og þeir voru allir
að unga út, 800 1 fiskabúr með um
700 fiskum, naggrísi, frosk, einn
hund, tvo norska skógarketti og
tvær kaninur. Á sama tíma rak ég
hálfgert hundahótel heima þar sem
ég var að passa hunda fyrir fólk sem
lenti í timabundnum vandræðum.
Þetta gekk ótrúlega smurt fyrir sig
og árekstralaust, áhuginn hjá öllum
að allir hefðu það sem best.“
En blaðamanni lék forvitni á að
vita hvort matargerðarlistin hefði
gengið jafn snuðrulaust í gegnum
tiðina.
„Ég hef reyndar verið ótrúlega
heppin með matargerðina, kannski
vegna þess að ég er svo vel gift.
Maðurinn minn hefur yfirleitt alltaf
séð um þá hlið en annaö get ég sagt
ykkur um reynslu okkar af veislu-
þjónustum.
Eins og roðlaus fiskur
Þannig var mál með vexti að elsta
dóttir okkar var að fermast og eins
og kannski margir vita þá fylgir
þessum fermingum alveg gífurleg
vinna. Við ákváðum því aö halda
veisluna í sal og panta mat frá
ónefndri veisluþjónustu hér í bæ.
Með hjálp starfsmanns „veisluþjón-
ustunnar" varð fyrir valinu
bayonneskinka.
Við eigum stóra fiölskyldu og
báðum um riflega mikinn mat því
það er mikið skárra að hafa mikinn
afgang og geta þá bara fryst heldur
en að „sleppa naumlega" með mat-
arbirgðirnar.
Kemur ekki annað upp á bátinn
þegar við opnuðum kassana. Við
okkur blasti algjör óhróður. Þegar
við lögðum á borðið og horfðum á
kjötbakkana var þetta hvítt eins og
roðlaus fiskur á borðinu. Ég hef
aldrei séð feitara kjöt, það hefur
verið 90% fita og 10% kjöt. Þvílíkur
fitukeppur sem þetta kjöt var. Gest-
irnir voru komnir og tilbúnir að
snæða og ég reyndi að hringja í
„veisluþjónustuna" sem auðvitað
var búin að skila sinni vinnu og
enginn til að svara í símann í þvi
húsi. Ég held að gestimir hafi farið
svangari úr veislunni heldur en í
hana því þessi fitulykt var bara til
að kynda upp hungrið í fólkinu.
Þetta var þvílíkt hörmulegt, ég
get samt ekki annað en hlegið þegar
ég hugsa um litla frænda minn sem
gekk að veisluborðinu og sagði
„oojjjj“.
„Þessi uppskrift er frá Birni Inga
Björnssyni, fyrrum eiganda Kjöt-
búðar Suðurvers. Það þarf vart að
taka fram hversu snilldarkjötiðnað-
armaður hann er,“ sagði Sigga að
lokum.
-klj
Uppskriftir
Grillaður stór-
lúðubauti í
pítubrauði
Stórgóður réttur.
Fyrir fjóra.
400 g stórlúða - beinlaus og roð-
laus
1 dl ólífuolía
1/2 dl balsam-edik
1 stór laukur
8 ostsneiðar
4 pítubrauð
1 msk. dijon-sinnep
pítusósa
Tómatsalat
6 meðalstórir tómatar
1/2 dl ferskur saxaður graslauk-
ur
2 tsk. salt
svört piparkorn
Lúðan skorin í fiögur jöfn stykki,
3 sm þykk. Pensluð vel með olíu og
krydduð með salti og pipar. Laukur-
inn afhýddur og skorinn í fiórar
jafnþykkar sneiðar sem síðan eru
penslaðar með olíu og kryddaðar
Nýkaup
Þarsem ferskleikinn býr
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
með salti og pipar úr kvörn.
Grillið hitað vel. Lúðustykkin
sett á og steikt á hvorri hlið í 3-4
mínútur. Þegar steikingu er að
ljúka eru stykkin smurð með sinn-
epinu, osturinn settur ofan á og lát-
inn bráðna hæfilega. Laukurinn
steiktur um leið í 3-4 mínútur á
hvorri hlið. Pítubrauðin hituð á
grillinu. Lauksneiðarnar settar ofan
á lúðuna og hvort tveggja sett inn i
pítubrauðið.
Tómatsalat
Tómatarnir skornir í sneiðar og
lagðir í djúpan disk, graslauknum
dreift yfir. Restin af olíunni og edik-
ið hrært saman, kryddað með salti
og muldum svörtum pipar og hellt
yfir tómatana.
Pltusósa
3 dl sýrður rjómi 18%, bragðbætt-
ur með 1 tsk. af karri. Einnig má fá
tilbúna pítusósu í verslunum.
Meðlæti
Tómatsalat og pítusósa.
Grillaöar
lambarúllur
Þessi er einföld en þarf góðan
undirbúning
800 g sneiðar úr lambainnralæri
8 stk. beikonsneiðar, léttsteiktar
100 g lifrarkæfa
2 stk. gulrætur (meðalstórar)
3 msk. söxuð steinselja, fersk
8 msk. rifinn ostur (26%)
1/2 dl olía
McCormick Season All
nýmalaður hvítur pipar