Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 Fréttir DV Málaferli og samningur Akureyrarbæjar viö þrjár konur sem gegndu yfirmannsstörfum: Sparaði 12-13 milljónir - að sögn Hákonar Stefánssonar bæjarlögmanns DV. AKUREYRI:_________________________ Akureyrarbær virðist hafa sparað sér 12-13 milljónir króna með því að fara dómstólaleiðina varðandi launa- mál tveggja fyrrverandi deildarstjóra bæjarins af kvenkyni og að semja við þriðju konuna sem gegndi slíku starfi, miðað við kröfur kvennanna, að sögn Hákonar Stefánssonar bæjarlögmanns. Bærinn gæti hins vegar enn átt eftir að semja við tvær konur sem einnig gegndu störfum deildarstjóra og önnur þeirra gerir það reyndar enn. í dómsmáli Ragnhildar Vigfúsdótt- ur, fyrrverandi jafnréttis- og fræðslu- fulltrúa bæjarins, sem fór fyrir Hæsta- rétt, varð niðurstaðan sú að Akureyr- arbær greiddi henni rúmar 2 milljónir króna og Akureyrarbær hefur nú fall- ist á að una niðurstöðu héraðsdóms varðandi mál Ingibjargar Eyfells, fyrr- um deOdarstjóra leikskóladeOdar, en dómurinn dæmdi Akureyrarbæ tO að greiða henni um 1,9 mOljónir. Þá hefur bærinn samið við Valgerði Bjamadótt- ur, fyrrum jafnréttis- og fræðslufuO- trúa, um að greiða henni 2 mOljónir króna. I öOum þessum tilvikum töldu konumar sig hafa verið hlunnfamar og þær hefðu átt rétt tO sambærOegra launa við atvinnumálafuOtrúa bæjar- ins. Hákon bæjarlögmaður segir kröfu RagnhOdar hafi verið um 6,5 mOljónir, Ingibjargar 6-7 miBjónir auk vaxta og hugsanleg krafa Valgerðar hafi verið um 4,5 mOljónir. Samkomulag bæjarins við Valgerði Bjamadóttur hefur vakið nokkra at- hygli, enda fékkst í sjálfu sér engin efn- isleg niðurstaða í það mál þrátt fyrir samkomulagið. í þvi segir m.a. að Val- gerður telji „líkur fyrir því að hún hafi átt rétt á sömu launum og atvinnu- málafuOtrúi sem tók laun samkvæmt kjarasamningi verk- og tæknOræð- inga. f því sambandi hefur hún m.a. vísað tO niðurstöðu í máli RagnhOdar Vigfúsdóttur gegn Akureyrarbæ, sbr. dóm Hæstaréttar frá 31. maí 2000“ seg- ir í samkomulaginu. Þar segir einnig: „Akureyrarbær tel- ur hins vegar að launaákvarðanir hafi verið teknar óháð kynferði starfs- manna, sem og að starf atvinnumála- fuOtrúa hafi hvorki verið sambærOegt né jafnverðmætt starfi jafnréttis- og fræðslufuOtrúa. Telur Akureyrarbær lduir fyrir því að hann hafi ekki brot- ið ákvæði jafnréttislaga þegar laun Valgerðar vom ákveðin". Siðar segir að Akureyrarbær muni greiða Val- gerði bætur „... án þess að í því felist viðurkenning á meintum lögbrotum bæjarins". „Akureyrarbær viðurkennir ekki lögbrot gegn Valgerði. Við erum hins vegar að semja okkur frá þeirri áhættu að fara með málið fyrir dómstóla en fudyrðum ekki að ekki hafi verið um lögbrot að ræða. Hún teiur hins vegar líkur fyrir því aö iög hafi verið brot- in,“ segir Hákon Stefánsson bæjarlög- maður. „Með vísan tO þess telja báðir aðOar sér hagfeUt að semja um tvær mOljónir," segir Hákon. Hann segir að samkvæmt þeim út- reikningum sem hann hafi í höndun- um um kröfu Valgerðar hafi hún numið rúmlega 4,5 mOljónum króna. „Það var ákveðin áhætta að fara með málið fyrir dómstóla þannig að að greiða innan við helming af kröfu er ásættanlegt," segir Hákon. Þeirri spumingu hvort hér væri um „þekkt- an“ lögfræðOegan gjöming að ræða svaraði hann því tO að svo væri þótt ekki væri það mjög aigengt. -gk 186 dagar í opnun Smáralindar: 15 metra há pálma- tré frá Flórída - á leið til landsins - prýða 200 metra göngugötu undir gleri risapálma sem þessa til landsins með heldur dapurlegum árangri. Risapálmi sem átti að gæða Perluna suðrænum blæ drapst skömmu eftir komuna og svipaða sögu er að segja um pálmatré sem plantað var í Kringluna á upphafsdögum hennar. Páimi Kristinsson segir engum vandkvæðum bundið að flytja pálmatrén til landsins þó svo þau séu 15 metra há því þau séu lögð á hliðina í lest skipsins en ekki látin standa upprétt. Trén eru rándýr og kosta á við lúxusjeppa stykkið. „Það verður gaman að fá pálm- ana,“ segir Pálmi sem stefnir að því að standa undir krónum trjánna þegar Smáralind verður opnuð al- Hæstu pálmatré sem flutt hafa verið til landsins eru á leið með skipi frá Flórída og verður þeim fund- inn staður í 200 metra langri göngu- götu í risaverslunar- miðstöðinni Smára- lind sem opnuð verð- ur í Kópavogi eftir 187 daga. „Við ætlum að flytja sumarið i Flór- ída inn í Smáralind- ina,“ segir Pálmi Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Smáralind rýkur upp Opnuð 10.10. klukkan 10.10. Smáralindar, sem bindur miklar vonir við komu pálmatrjánna til landsins en þau hafa fengið sérmeðferð garðyrkjufræðinga til að þola flutninginn svo og framtíðarver- una í verslunarmið- stöðinni. „Ég kann ekki frá því að segja en það er sprautað einhverri froðu inn í trén sem gerir þau næstum ódrepandi." Áður hefur verið reynt að flytja Risapálmar í Kópavoginn Engin smásmíði - enda flutt til landsins á hliðinni. menningi snemma í október á þessu ári - eða nánar tOtekið þann 10.10. klukkan 10.10. -EIR Minni stækkun Norðuráls Álverksmiðjan Norðurál í HvaHirði stækkar mun minna á næstunni en gert var ráð fyrir, eða um 90 þúsund tonn í stað 150 þúsund tonna eins og hún hefur starfsleyfi fyrir. FuOyrt hef- ur verið að forsvarsmenn Norðuráls- verksmiðjunnar hafi skort þolinmæli tO þess að bíða eftir svari iðnaðarráðu- neytisins vegna stækkunar, og því ákveðið að stækka „aðeins" um 90 þús- und tonn. Valgerður Sverrisdóttir iðn- aðaráðherra segir að viðræður hafi staðið yfir við Norðurál áOt frá því í október sem segi meira en mörg orð um það hvort ráðuneytið hafi hunsað fyrirtækið. „Það þarf ekki aðeins að taka ákvörðun um einhverja áfanga heldur þarf einnig að sjá fyrirtækinu fyrir orku og tengja það þeim framkvæmd- um sem fyrirhugaðar eru á Austur- landi. Það er augljóst að þar höfúm við einnig ákveðnar skyldur. Málið er þvi í mjög eðlOegum farvegi. Á næstu dög- um verður svo skipuð formleg við- ræðunefnd mdli ráðuneytisins og fyr- irtækisins. Fyrirtækið hefur leyfi tO að fara í næsta áfanga, 180 þúsund tonn, án þess að fara í sérstakt um- hverfismat eða stárfsleyfi," segir Val- gerður Sverrisdóttir. Aðspurð hvort næg orka verði fyrir- liggjandi árið 2004 þegar bæði stækkun Norðuráls og Reyðarál verða komin í gagnið samkvæmt áætlunum svaraði ráðherra: „Það sér ekki fyrir endann á því, en ég tel aUa aðila hafa fuOan hug á að leysa málið. í dag er auðvitað ekki hægt að fuOyrða um einhverjar virkj- anir sem ekki er einu sinni hafið um- hverfismat við, hvað þá framkvæmdir. Svo er starfandi nefnd um rammaáætl- un á sviði nýtingar vatnsorku og jarð- varma og fyrsti áfangi þeirrar nefnar verður gerður heyrinkunnur í lok þessa árs,“ segir iðnaðarráðherra. -GG DV-MYND HARI Dimission í Versló Bláar nellikkur prýddu útskriftarnema Verslunarskóla íslands í gær. Síðasti skóladagur fyrir prófin varígær. Skemmtun fylgdi í kjölfarið í gærkvöld. Gulli var herralegur þegar hann nældi nellikkunni í Tinnu. Elva stendur hjá með sitt blóm í barmi. Afkvæmi möndlu og sykurs Marsipan Elskar klisjur John Baldessari Með hverjum átt þú að fljúga? Þórarinn Soebech Sjáðu sæta naflann minn DV í naflaskoöun Matreiðsla snilldarinnar Megas Minning sonar míns óvirt Bjarney Finnbogadóttir Frumskógur í Grafarvogi Hllmar Jónsson Öllum brögðum beitt Erlent fréttaljós Innlent fréttaljós Bryndís Schram Stóri bróðir Vildi faðma heiminn U'tíll áhugi Ekkert tUboð hafði borist í rekstur Áslandsskóla i Hafn- arfirði þegar um- sóknarfrestur rann út klukkan 15 í gær. Hálftíma eftir að frestur var útrunn- • inn barst eitt tOboð j frá íslensku menntasamtökunum. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði fagnaði tUboðinu sem verður skoðað þó seint hafi komið. Sameining Stefnt er að því að sameina Nýja Bókafélagið og Þjóðsögu við Genea- logia Islandorum. Tveir fram- ( kvæmdastjórar síðastnefnda fyrir- I tækisins létu nýverið að störfum en j nýr framkvæmdastjóri verður Páll Bragi Kristjónsson, framkvæmda- stjóri Nýja Bókafélagsins. Tveir í peningaþvætti Tveir ungir karlmenn voru í gær dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyr- ir peningaþvætti. Mál mannanna voru óskyld að öðru leyti en því að fjármun- ir sem þeir höndluðu með tengdust stórfeUdum flkniefnabrotum. Fastur í ís Frystitogarinn Baldur Árna RE-102 r liggur fastur í hafls skammt undan ströndum Nýfundnalands ásamt j þremur öðrum skipum. Fimmtán I manna íslensk áhöfn er um borð og er hún ekki talin í hættu. 60 dagar fyrir barnaklám Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi, fyrir að taka klámfengnar myndir af korn- ungri fósturdóttur sinni og vinkonu hennar. Breiðfjörð hjá kóngi Leifur Breiðfjörð glerlistamaður á verk i forstofu nýrr- ar íbúðar norsku konungsfjölskyld- unnar. Verkið er gjöf tO konungshjón- anna frá forseta ís- lands en nýja kon- } ungsíbúðin þykir stórbrotin. Hún er 900 fermetrar, með 9 herbergjum og | kostar nokkra mOljarða. Firí á Alþingi Síðasti fundadagur þingmanna fyr- ir páska var í gær. Þingmenn eru því komnir í páskafrí og verða um skeið. Belti í rútur Nefnd á vegum dómsmálaráðuneyt- isins hefur lagt til að skylt verði að hafa öryggisbelti í öUum langferðabif- i reiðum sem ætlaðar eru til sérleyfls- | og hópferðaaksturs. Samkvæmt tO- ií lögunum skal stefnt að því að beltin ! verði komin í rúturnar árið 2004. Leikaraskapur Við umræður á Al- þingi um ný lög um Seðlabanka íslands lagði forsætisráð- herra á það áherslu að ekki yrði auglýst eftir bankastjórum við bankann. | Ákvörðun um stöðu- k veitingamar lægi aUtaf fyrir áður en auglýst væri. Auglýsingarnar væru því ekkert annað en leikaraskapur. Kjötmjöl í kreppu Kjötmjöl er nú geymt í fjórum stór- um gámum fyrir utan Kjötmjölsverk- smiðjuna i Hraungerðishreppi. Ástæðan er sú að eftir að kúariðan g kom upp hefur kjötmjöl sem ekki er hægt að selja út, safnast upp hjá verk- smiðjunni og sprengt allt geymslu- | pláss en birgðastaða verksmiðjunnar er um 130 tonn. -EIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.