Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Qupperneq 54
62
LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001
íslendingaþættir________________________________________________________________________________________________________DV
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
*
Laugardagur 7. apríl
90 ára_______________________________
Guörún Guðbjarnadóttir,
Torfnesi Hllf 2, ísafiröi.
Höröur Runóifsson,
Hraunbæ 103, Reykjavtk.
80 ára_______________________________
Ebba Bergsveinsdóttir,
Fellsmúla 18, Reykjavík.
Margrét Ólafsdóttir,
Bólstaðarhlíö 41, Reykjavlk.
75 ára_______________________________
Sigrún Pálsdóttir,
Svínafelli 1, Austurbæ, Fagurhólsmýri.
Sigurður Guðmundsson,
Brávallagötu 50, Reykjavlk.
70 ára
Elín Tómasdóttir,
Austurvegi 21, Vlk.
tí» Hún tekur á móti getsum á
heimili sínu laugard. 14.4.
kl. 15.00-19.00
Árni Valur Viggósson,
Lindasíðu 2, Akureyri.
Guömundur Antonsson,
Teigaseli 11, Reykjavlk.
60 ára_________________________________
Tvíburarnir
Hjörleif Einarsdóttir
ritari,
Funalind 7, Kópavogi, og
Sveinbjörn Pór Einarsson
myndlistarmaður,
Hraunbæ 102f, Reykjavlk.
Þau verða að heiman á afmælisdaginn.
50 ára_________________________________
Birgir Kjartansson,
Kjarrbergi 3, Hafnarfirði.
Edda Ösp Jóhannesdóttir,
Álfhólsvegi^63, Kópavogi.
Guðbjörg Ásgeirsdóttir,
Efstahrauni 27, Grindavík.
Guðbrandur G. Björnsson,
Laugarásvegi 32, Reykjavík.
Guðfinna Þorsteinsdóttir,
Miðengi 14, Selfossi.
Ólafur Halldórsson,
Tjörn 1, Höfn.
Ólöf María Eiríksdóttir,
Brekkubrún 3b, Egilsstööum.
Pétur Þ. Jóhannesson,
Urriðakvísl 13, Reykjavlk.
Rebekka B. Þráinsdóttir,
Fiskakvlsl 26, Reykjavík.
Valur Ingvarsson,
Faxatröö 2, Egilsstöðum.
Vilberg Sigtryggsson,
Efstasundi 24, Reykjavík.
Örn Ingvarsson,
Birkilundi 15, Akureyri.
40 ára_______________________
Arnar Sigfússon,
Hrisalundi 14h, Akureyri.
Ásdís Kristjánsdóttir,
Lindasmára 6, Kópavogi.
Guðfinna Elsa Haraldsdóttir,
Urðarholti 4, Mosfellsbæ.
Guöleifur Guðmundsson,
Kirkjubraut 30, Njarðvík.
Katrín Skúladóttir,
Aðalstræti 10, ísafirði.
Kolbrún Edda Júlínusdóttir,
Næfurási 2, Reykjavík.
Leifur Þór Ingólfsson,
VTkurfiöt 2, Stykkishólmi.
Valgerður P. Hrelðarsdóttir,
Árstig 3, Seyðisfirði.
Andlát
Stefán Siguröur Friöriksson, fyrrv. lög-
regluvarðstjóri, Hraunbæ 138, er iátinn.
Jarðsett verður I kyrrþey að ósk hins
látna.
Rnnbogi Einarsson pípulagningarmeist-
ari, Logalandi 32, Reykjavík, lést á
Landspítalanum Hringbraut þriöjud. 3.4.
Gísli Súrson Magnússon vélsmíðameist-
ari, Granaskjóli 80, lést sunnud. 25.3.
Jarðarförin hefur farið fram I kyrrþey aö
ósk hins látna.
Fanney Steinsdóttir, Fossvegi 22, Siglu-
firði, lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarð-
ar miðvikud. 4.4. sl.
Guðríður Þórdís Slgurjónsdóttir, Bolla-
götu 14, Reykjavík, andaðist á Land-
spítalanum Landakoti miðvikud. 4.4.
Árni Waag Hjálmarsson lést þriöjud.
3.4. Jaröarförin fer fram I kyrrþey að
ósk hins látna.
Einar Bragi
skald og nthöfundur
Einar Bragi, skáld og rithöfund-
ur, Suðurgötu 8, Reykjavík, er átt-
ræður i dag.
Starfsferill
Einar Bragi fæddist á Eskifirði og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá MA 1944 og stundaði nám í
bókmenntum, listasögu og leikhús-
sögu við Háskólann í Lundi 1945-47
og við Stokkhólmsháskóla 1950-53.
Einar Bragi var hestastrákur í
Suðursveit þrjú sumur í bernsku,
var í síldarvinnu á Siglufirði 1939
og niu sumur á Raufarhöfn, blaða-
maður við Þjóðviljann sumarið
1945, næturvörður, starfsmaður í
vöruhúsi og bréfberi í Stokkhólmi,
leiðsögumaður ferðamanna erlendis
sumrin 1956 og 1957 og kennari við
gagnfræöaskóia í sautján ár.
Ljóðabækur Einars Braga eru
Eitt kvöld í júní, 1950; Svanur á
báru, 1951; Gestaboð um nótt, 1953;
Regn í maí, 1957; Hreintjarnir, 1960,
2. útg. 1962; í ljósmálinu, 1970; Ljóð,
(úrval) 1983; Ljós í augum dagsins,
(úrval) 2000.
Bækur Einars Braga í lausu máli:
Eskja I-V bindi, 1971, 1977, 1981,
1983 og 1986; Þá var öldin önnur
I—III bindi, 1973-75; Hrakfallabálkur-
inn, 1982, og Af mönnum ertu kom-
inn, 1985. Auk þess hafa ljóð og saga
eftir hann komið út á segulbands-
spólum og geisladiskum.
Ljóðaþýðingar Einars Braga eru
Hrafnar í skýjum, 1970; Hljómleikar
í hvitu húsi, eftir Knut Gdegárd,
1973; Létta laufblað og vængur fugls,
eftir Gunnar Björling, 1975; Kring-
um húsið læðast vegprestarnir, lett-
nesk ljóð, 1977; Sumar í Qörðum,
grænlensk ljóð, 1978; Hvísla að klett-
inum, samísk ljóð og fleira, 1981;
Bjartir frostdagar, eftir Rauni
Magga Lukkari, 2001. Enn fremur í
handritum: Móðir hafsins, eftir
Synnove Persen; Gleði, eftir Aqigs-
saq Moller; Samískt ljóðssafn.
Út hafa komið eftirfarandi skáld-
sögur í þýðingu Einars Braga:
Hornin prýða manninn, eftir Aksel
Sandemose, 1946; Ditta mannsbarn,
eftir M.A. Nexo, I—II. 1948-49, 2. útg.
1984; Eiginkonan, eftir V. Katajev,
1948; Sumardansinn, eftir P.O.
Ekström, 1953; Á ódáinsakri, eftir K.
Markandaya, 1958; Sonur minn og
ég eftir Söru Lidman, 1962.
Einar Bragi hefur þýtt leikrit eft-
ir Elmer Rice, Gustav Sandgren,
Bernard Shaw, Federico García
Lorca, Arqualuk Lynge og August
Strindberg. Þá hafa komið út þýð-
ingar hans á tuttugu leikritum eftir
August Strindberg og þýðingar
hans á tólf leikritum eftir Henrik Ib-
sen.
Einar Bragi sá um útgáfu á Er-
lendum nútímaljóðum, ásamt Jóni
Óskari; Lilju, eftir Eystein Ásgríms-
son; 100 kvæðum eftir Jón úr Vör;
Bókmenntagreinum, eftir Bjarna
frá Hofteigi; Ritsafni Stefáns Jóns-
sonar í 15 bindum og ritinu Heyrt
og munað eftir Guðmund Eyjólfsson
frá Þvottá.
Einar Bragi stofnaði tímaritið
Birting (eldri) 1953 og gaf út í tvö ár,
var meðritstjóri að Birtingi (yngri)
1955-68, ritari Rithöfundafélags Is-
lands 1955-56, i stjórn Rithöfunda-
sambandsins 1959-60, formaður þess
1968-70, í stjórn Rithöfundasjóðs ís-
lands 1971-74 og formaður 1974, sat í
Framkvæmdaráði Friðlýsts lands
1958-60, framkvæmdanefnd Kefla-
víkurgöngu 1960, framkvæmda-
nefnd Þingvallafundar 1960, miö-
nefnd Samtaka hernámsandstæð-
inga 1960-62 og framkvæmdanefnd
þeirra 1960-61, hefur tekið þátt í
norrænu menningarsamstarfi og
setið í ýmsum nefndum.
Fjölskylda
Einar Bragi kvæntist 10.5. 1945,
Kristínu Jónsdóttur, f. 19.1. 1920,
starfsmanni við barnaheimili. Hún
er dóttir Jóns Björnssonar, f. 5.9.
1891, d. 1.10. 1941, og k.h., Arnþrúð-
ar Grímsdóttur, f. 8.5. 1890, d. 26.9.
1971, sem bjuggu að Ærlækjarseli í
Öxarfirði.
Börn Einars Braga og Kristínar
eru Borghildur, f. 24.2. 1946, geð-
láeknir í Reykjavík, og á hún þrjár
dætur; Jón Arnarr, f. 12.2.1949, inn-
anhússhönnuður í Reykjavík og á
hann fjögur börn.
Systkini Einars Braga eru Alfons,
f. 17.12. 1916, verkamaður i Kópa-
vogi; Sigrún, f. 14.3. 1919, húsmóðir
á Eskifirði; og Anna, f. 20.2. 1927,
fyrrv. læknaritari i Reykjavík.
Foreldrar Einars Braga voru Sig-
urður Jóhannsson, f. 23.12. 1891 d.
5.11. 1946, skipstjóri á Eskifirði, og
k.h., Borghildur Einarsdóttir, f. 28.4.
1898, d. 26.1. 1981, húsmóðir.
Ætt
Sigurður var sonur Jóhanns, sjó-
manns á Djúpavogi, Sigurðssonar,
þar, Friörikssonar, Rasmusson,
bróður Rasmusar verslunarstjóra,
föður Jóhannesar Lynge, langafa
Jakobs Smára og Yngva Jóhannes-
sona. Móðir Jóhanns var Guðný,
ljósmóðir Höskuldsdóttir.
Móðir Sigurðar var Friðbjörg
Einarsdóttir, b. í Stekkjarhjáleigu,
Magnússonar, hálfbróður Árna,
langafa Vésteins Ólasonar, forstöðu-
manns Árnastofnunar. Móðir Ein-
ars var Ragnheiður, átján barna
móðir. Móöir Friðbjargar var Ragn-
heiður, systir Guðlaugar, móður
Jörundar Brynjólfssonar alþm., föð-
ur Gauks, fyrrv. umboðsmanns Al-
þingis. Ragnheiður var dóttir Guð-
mundar, b. á Starmýri, Hjörleifsson-
ar sterka, bróður Jóns sterka, sona
Árna skálds í Höfn Gíslasonar.
Borghildur var dóttir Einars, b. í
Gamla-Garði í Suðursveit, Pálsson-
ar, b. á Hofsnesi í Öræfum, Jónsson-
ar, b. á Uppsölum í Landbroti, Páls-
sonar, b. á Seljalandi í Fljótshverfi,
Eiríkssonar, b. á Hnappavöllum,
Jónssonar, bróður Einars, rektors í
Skálholti, langafa Guðnýjar, ömmu
Halldórs Laxness.
Móðir Borghildar var Guðný
Benediktsdóttir, b. á Brunnum í
Suðursveit, bróður Guðnýjar,
ömmu Þórhergs Þórðarsonar. Bróð-
ir Benedikts var Sigurður, afi
Gunnars Benediktssonar rithöfund-
ar. Hálfsystir Benedikts var Stein-
unn, amma Svavars Guðnasonar
listmálara. Benedikt var sonur Ein-
ars, b. á Brunnum, Eiríkssonar, b.
þar, Einarssonar, b. þar, Brynjólfs-
sonar. Móðir Eiríks var Þórdís,
systir Jóns Eiríkssonar konferens-
ráðs og Önnu, langömmu Einars
Benediktssonar skálds. Móðir Guð-
nýjar var Ragnhildur Þorsteinsdótt-
ir, b. á Steig, Sigurðssonar, af ætt
Jóns Steingrimssonar eldprests,
bróður Þorsteins í Kerlingadal, afa
Steingríms Thorsteinssonar skálds.
Attræð
Kristín Sveinsdóttir
húsmóðir á Akranesi
Kristín Sveinsdóttir húsmóðir,
Vitateigi 5, Akranesi, verður áttræð
á mánudaginn.
Starfsferill
Kristin fæddist í Stórutungu í
Bárðardal og ólst upp í Bárðardaln-
um. Auk þess dvaldi hún oft á sumr-
in í Möðrudal.
Kristín naut barnafræðslu i far-
skóla eins og þá tíðkaðist. Hún
stundaði nám við Alþýðuskólann á
Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu og
við Kvennaskólann á Laugum.
Kristín var þjónustustúlka á
Hvanneyri í Borgarfirði 1943-44 og
kynntist þar mannsefni sínu sem þá
stundaði nám við Bændaskólann.
Er Kristín gifti sig fluttu þau
hjónin að Hríshóli í Reykhólahreppi
þar sem þau stofnuðu nýbýlið Hrís-
hól II. Þar bjuggu þau til 1968. Þá
fluttu þau á Akranes þar sem þau
hafa átt heima síðan.
Kristín vann í fiski fyrstu árin á
Akranesi en varð síðan dagmóðir.
Síðustu árin sem Kristín var úti-
vinnandi var hún við heimilishjálp
hjá öldruðum.
Fjölskylda
Kristín giftist á sumardaginn
fyrsta 1944 Garðari Halldórssyni, f.
8.9.1924, búfræðingi. Hann er sonur
Halldórs Loftssonar sjómanns og
Ingibjargar M. Bjömsdóttur, ráðs-
konu á Hríshóli.
Börn Kristínar og Garðars eru
Gígja Garðarsdóttir, f. 18.9. 1944,
dagmóðir á Akranesi, maður henn-
ar er Sigurður Guðjónsson, f. 17.3.
1942, og eignuðust þau fiögur börn,
þrjú þeirra eru á lífi; Gunnar Þór
Garðarsson, f. 7.1.1948, vörubilstjóri
á Akranesi, var fyrst kvæntur
Björgu Þórhallsdóttur, f. 1.6. 1949,
þau skildu, þau eignuðust tvö börn
en seinni kona Gunnars Þórs er
Lilja Ellertsdóttir, f. 6.10. 1946, og
eiga þau eitt barn; Alda Garðars-
dóttir, f. 26.11. 1949, húsmóðir í
Hafnarfirði, maður hennar er Guð-
mundur Viggósson, f. 22.12. 1943, og
eiga þau fiögur börn; Svavar Garð-
arsson, f. 27.1. 1952, verktaki í Búð-
ardal, kona hans var Nanna Bald-
ursdóttir, f. 26.1. 1960, þau skildu og
eiga tvö börn; Sveinn Vilberg Garð-
arsson, f. 20.5. 1954, vélamaður í
Mosfellsbæ, kona hans er Elsa Guð-
laug Geirsdóttir, f. 19.7.1955, og eiga
þau fiögur börn; Ingimar Garðars-
son, f. 18.12.1959, bakari í Búðardal,
kona hans er Anna Signý Árnadótt-
ir, f. 15.11. 1962, og eiga þau tvö
börn; Halldór Garðarsson, f. 8.11.
1961, lagermaður í Noregi, kona
hans er Anna Edda Svansdóttir, f.
17.6. 1966, og eiga þau saman þrjú
börn.
Systkini Kristínar: Anna Guðrún,
f. 2.9. 1908, d. 27.3. 2001, lengst af
húsfreyja i Stórutungu; Páll, f. 24.12.
1911, d. 15.6. 1994, bjó í Saltvík í
Reykjahverfi og síðan í Hveragerði;
Margrét, f. 18.11. 1916, lengi hús-
freyja í Möðrudal og síðar á Eyvind-
ará á Héraði.
Foreldrar Kristínar voru Sveinn
Pálsson, f. 15.1. 1868, d. 7.5. 1935,
bóndi í Stórutungu, og k.h., Vilborg
Kristjánsdóttir, f. 28.6. 1887, d. í apr-
íl 1954, húsfreyja.
Kristín ætlar að hafa heitt á
könnunni fyrir vini og venslafólk á
heimili sínu sunnudaginn 8.4. milli
kl. 15.00 og 18.00.
—--------------------------------------------------------:----------------
Arínu eldri_______________________________________
Örn Jóhannsson, fram-
m. kvæmdastjóri Morgun-
blaösins, er 62 ára í dag.
■ Hann er verslunarskóla-
'jjjl SenSinn' hér heima °g í
Örn er enginn stund-
arspútnik I Islensku athafnalífi og ekki
mikið fyrir aö skipta um vinnuveitanda.
Hann fór sér að engu óðslega, hóf
störf viö Moggann er hann var tólf ára,
fyrir hálfri öld, hefur veriö I föstu starfi
viö Morgunblaðið frá 1958 og varö
skrifstofustjóri Árvakurs 1966. Svona
eiga menn aö feta framabrautina: Af
þolinmæði, hægt en örugglega.
Arngrímur Jóhannsson,
forstjóri Atlanta, er 61 árs
í dag. Arngrímur og flug-
félagsævintýri hans virðast
engan enda ætla að taka
og minna helst á þá Alfreð
Eliasson og Kristin Olsen
foröum daga og stofnun og framgang
Loftleiða.
Og Arngrímur lætur ekki deigan siga því
stööugt bætist I flugflota hans sem
enn er aö stækka, einmitt þessa dag-
ana, og slagar oröiö hátt I flugflota
Flugleiða. Viö óskum Arngrími til ham-
ingju meö afmælið og nýju vélarnar.
V Megas er 56 ára í dag.
K 'Í* Aliir vita aé Megas hefur
Kf vJ veriö einn fromlegasti og
vinsælasti tónlistarmaður
. okkar um árabil. Hann er
■HHH auk þess mikill íslensku-
maöur enda náfrændi Halldórs Lax-
ness. Reyndar er hann svo mikill
galdramaöur I tungunni aö hann fékk
Verölaun Jónasar Hallgrimssonar I vetur
á Degi íslenskrar tungu. Þegar hann tók
viö verölaununum kom til hans ungur
blaðamaöur sem haföi sett sig I móöur-
málsstellingar og spurði: ,,Hvað þýöa
þessi verölaun fyrir þig". Megas svar-
aöi og glotti: „Bunch of money"!
Pálmar Kristmundsson
arkitekt er 46 ára í dag.
Pálmar er Vestfirðingur,
fæddur á Þingeyri en lauk
stúdentsprófi frá Flens-
borg I Hafnarfirði, læröi
arkitektúr við Arkitekt-
skolen I Arósum og stundaöi síöan
framhaldsnám og rannsóknir viö Tokyo-
háskóla.
Pálmar hefur getiö sér gott orö meðal
sinna kollega, unniö til fyrstu verðlauna
I ýmissi samkeppni, s.s. um sendiráð
islands I Berlín og um götur og torg I
miöbæ ísafjarðar. Hann er 101-maður,
búsettur viö Ingólfsstræti I Reykjavík.