Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Blaðsíða 52
60
LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001
Tilvera DV
Stórafmæli skákjöfra
í mars áttu tveir af mestu skák-
jöfrum nútímans stórafmæli, þeir
Vassilí Smyslov, sem varð áttræður
24. mars, og Viktor Kortsnoj sem
varð sjötugur 12. mars. Þeir eru
báðir fæddir í Rússlandi, Smyslov í
Moskvu og Kortsnoj í Sankti Péturs-
borg (Leníngrad). Þeir eru mjög
ólíkir persónuleikar, Smyslov hefur
lifaö lífi hins rólega og geðþekka há-
skólamanns, jafnvægi í hlutum og
gerðum í lífinu og skákinni. Hann
var einnig góður söngmaður, hvort
hann var tenór eða sópran veit ég
ekki en hann átti frægðina vísa á
söngbrautinni hefði hann kosið það.
Hann söng við Bolshoj-óperuna 1950
en frekari vitneskju hef ég ekki um
söngferil hans, nema hann söng oft
í lokahófum skákmóta og m.a. hér á
íslandi 1974.
Ferill Smyslovs í skákinni er
langur og glæsilegur. Hann lærði að
tefla 6 ára af föður sínum en faðir
hans hafði unnið sjálfan Aljechin í
kappskák á móti 1912. Smyslov náði
íljótlega góðum árangri við skák-
borðið, í seinni heimsstyrjöldinni
varð Smyslov tvítugur um likt leyti
og Þjóðverjar réðust inn i Rússland,
eða 1941. Eftir striðið komust alþjóð-
leg skáksamskipti í lag aftur og 1945
vann Smyslov Samuel Reshevskí,
2-0, í útvarpskeppni Sovétrikjanna
og Bandaríkjanna. Fljótlega varð
ljóst að það voru þeir Mikhaíl Bot-
vinnik og Vassilí Smyslov sem
mundu keppa um það hvor ynni
heimsmeistaratitilinn í skák eftir
dauða Aljechins. Árið 1948 var í
fyrsta og eina skiptið haldið skák-
mót um heimsmeistaratitilinn í
Hollandi og Sovét, eða í Haag og
Moskvu. Botvinnik vann og
Smyslov lenti í öðru sæti. 1949 urðu
þeir Smyslov og David Bronstein
efstir á meistaramóti Sovétríkjanna
og það var Ijóst að nýr áskorandi
hafði bæst í hópinn. Bronstein vann
svo næstu áskorendakeppni og
tefldi um titilinn við Botvinnik 1951
Smyslov vann svo næsta áskor-
endamót í Zúrich 1953 og hafði 2
vinninga umfram næsta mann. í
mars 1954 tefldi svo Smyslov fyrsta
einvígið um heimsmeistaratitilinn
við Botvinnik í Moskvu og því ein-
vígi lauk 12-12 og Botvinnik hélt
titlinum naumlega. Enn var á bratt-
ann að sækja en Smyslov vann
næstu áskorendakeppni í apríl 1956
í Hollandi og tefldi síðan annað ein-
vígi sitt við Botvinnik 1957 og hafði
sigur 12,5-9,5 En heimsmeistarinn
Botvinnik hafði rétt á öðru einvígi
ef hann tapaði titlinum og 1958 end-
urheimti hann titilinn af Smyslov
12,5-10,5. Smyslov var heimsmeist-
ari í skák í 1 ár og 12 daga.
Kortsnoj þekkjum við mun betur,
hann er gjörólíkur persónuleiki,
frekar óheflaður á sínum yngri
árum og mikill baráttumaður, eigin-
lega stríðsmaður og er hinn frægi
flótti hans til Vesturlanda í júlí 1976
eftir alþjóðlegt skákmót í Amster-
dam (á stjórnarárum Leonids Bresj-
nevs) og hin mikla barátta við sov-
ésk stjórnvöld sem og einvígi hans
við Karpov um heimsmeistaratitil-
inn ágæt dæmi þar um. Mörgum
eru minnistæðar viðureignir hans
við galdrakarlinn frá Riga, Mikael
Tal. Kortsnoj hafði oftast sigur og
við byrjum á einni slíkri viðureign.
Hvítt: Míkhaíl Tal
Svart: Viktor Kortsnoj
Frönsk vörn. Riga 1958
l.e4 e6 2.d4 d5 3.Rc3 Bb4 4.e5
c5 5.a3 Bxc3+ 6.bxc3 Re7 7.Dg4
Rf5 8.Bd3 h5. Hér leikur Tal sínum
leik! Aðrir léku oftast 9. Df4 með ró-
legri taflmennsku, t.d. Petrosjan
9.Dh3 cxd4 10.RÍ3 Dc7 ll.Hbl
dxc3 12.g4 Re7 13.gxh5 Rbc6
14.Bf4 Rg6! Peð er bara peð eins og
Pedersen sagði i taflfélaginu um
árið. 15.Bg3! Rgxe5.
16.Rxe5? Mun betra er að leika 16.
Kfl! strax 16. -Rxe5 17.KÍ1 Bd7
18.Dh4? Mun betra er 18. Hel f6 19.
Bg6+ með óljósri stöðu. 18. -f6. Hér á
svartur skemmtilegan möguleika,
18. Rf3! 19. Dg4 Rd2+ 20. Kg2 e5
21. Dxg7 0-0-0 og svartur stendur
betur. 19.Bxe5 Dxe5 20.Hxb7 Hb8
21.EÞcb8+ Dxb8 22.Dg4 Kf8
23.Hgl.
Ef ekki er hægt að láta eigin
liðsafla verja sig er möguleiki á að
liðsafli andstæðingsins geti gert
það! 23. -g5 24.hxg6 Kg7 25.h4 a5
26.Hg3 Dbl+ 27.Kg2 Db7 28.h5
d4+ 29.Be4 Bc6? Betra er 29. Db5
30. Hh3 Dg5 og svartur hefur ágætt
tafl. 30.Bxc6 Dxc6+ 31.Kgl Dd5
32.DÍ4 De5.
Það geta allir leikið af sér, eftir
33. Df3 verður svartur að þráleika
með 33. Dd5 Df4 De5. En sem sagt
33.h6+?? Hxh6 34.Dxh6+ Kxh6
35.g7 Dxg3+! 0-1
Hvítt: Vasilij Smyslov
Svart: Viktor Kortsnoj
Maroczy bindi. Moskva 1961.
I.c4 c5 2.RÍ3 Rc6 3.d4 cxd4
4.Rxd4 g6 5.e4 Rf6 6.Rc3 Rxd4
7.Dxd4 d6 8.Be2 Bg7 9.0-0 0-0
10.Dd3 Be6 ll.Bd2 Rd7 12.b3 Re5
13.Dg3 Rc6 14.Khl Rd4 15.Bd3
Hc8 16.Hadl a6 17.f4 b5.
Skákin hefur teflst á hefðbundin
hátt, en nú kemur Smyslov léttu
höggi á Kortsnoj. 18.f5! bxc4
19.fxe6 cxd3 20.exf7+ Hxf7
21.Hxf7 Kxf7 22.Dxd3.
Svartur á í mestu vandræðum allt
í einu, 22. -a5 er svarað með 23. Rd5
og vandræði svarts aukast. Nú fell-
ur peð og staðan með. Hann hefur
alltaf verið betri í því að hirða peð
en fórna þeim hann Viktor
Kortsnoj. 22. -Kg8 23.Dxa6 Kh8
24.Dd3 Da5 25.HÍ1 Hc6 26.Re2
Dc5 27.Be3. 1-0.
7
(jrval
- gott í hægindastólinn
is
exxxotica
www.exxx.is
i*
, ▼»
PÁSKATILBOÐ
40% AFSLÁTTUR AF EGGJUM
ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR
AF ÖÐRUM VÖRUM
Barónsstíg 27 - S: 562 7400