Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001
I>V
Fréttir
DV ræöir við 77 ára landsbyggðarmann um samskipti hans við 66 ára fjársvikakonu:
Ég er kominn á heljar-
þröm vegna konunnar
- annað fómarlamb kveðst m.a. hafa lánað konunni fyrir bílprófi dóttur hennar
Svikakonan kvaðst hafa fengiö ábendingu á skrifstofu Búnaöarfélagsins
Konan sagöi 97 ára mann hafa bent sér á aö einn hinna sviknu, Húnvetning-
ur, væri „góöur karl“. Hún hringdi þá noröur og var búin aö fá 8,3 milljónir
áður en yfir lauk.
„Þessi kona hringdi allt í einu í
mig fyrir 5 árum. Ég hafði þá aldrei
heyrt hana nefnda. Hún sagðist hafa
farið á skrifstofu Búnaðarfélags
Islands, hitt þar 97 ára mann sem ég
veit ekki nafnið á, og hann hefði
þekkt móður mína og vissi til þess
að ég væri góður karl. Það kostaði að
hún hringdi í mig. Konan gaf upp
nafn sitt og bað um í fyrsta símtali
að ég lánaði henni 260 þúsund til að
hún tapaði ekki húsinu. Og ég var
svo vitlaus að fara eftir þessu. Svo
kom hvert kvabbið á fætur öðru og
ég hlýddi eins og hundurinn og hugs-
unarlaust eins og hálfviti," segir ein-
búi í Húnavatnssýslu, kominn hátt i
áttrætt, einn þeirra sem 66 ára kona
er ákærð fyrir að svíkja fé af. Maður-
inn lánaði henni 8,3 milljónir á 4ra
ára tímabili, síðast í júlí 2000. Mað-
urinn segist kominn á heljarþröm
vegna hinnar svikulu konu. Konan
er ákærð fyrir samtals 52ja milljóna
króna svik gegn 8 karlmönnum,
aðallega rosknum einbúum.
„Eftir fyrsta símtalið kom alls
konar endalaust kvabb. Það var allt
mögulegt sem hún fann upp til að
herja út úr mér peninga. Hún sagðist
hafa skilið við karlinn, hann hafi
skilið svo illa við og tekið svo mikiö
lán að hún væri að missa húsið,“
sagði Húnvetningurinn sem lánaði
henni í 25 skipti, mest rúma miUjón
í einu.
- Varstu með þetta fé handbært?
„Nei, ég tók fullt að láni og sagði
henni það. Þetta gekk svo langt, ég
verð víst að segja rétt frá. Svo er ég
sjálfur í vandræðum með að standa
í skilum. Það er ekki nóg með að
hún hafi verið á heljarþröm, hún
kemur mér líka á heljarþröm og fer
létt með það. Hjá mér rætist ekki
úr nema ég fái þessa peninga aft-
ur.“
- Hvers vegna hefur þú þá aftur-
kallað bótakröfu þína fyrir dómi?
„Á því er stutt skýring: ég get
ekki séð að það samrýmist mann-
réttindum, þó kona þessi sé stór-
brotleg, að rífa af henni það litla
sem hún hefur undir höndum og sé
rekin út á götu allslaus."
- Er þetta ekki hámark góð-
mennskunnar?
„Ja, þetta er bara mín sannfær-
ing. Það eigi að líta til með svona
aumingjum og fara ekki hvernig
sem er meö þá. Svo heyri ég í frétt-
um nú að hún hafi svikið sjö aðra
eldri karlmenn. Ja, hérna, það var
ljótan að fá þessa kárinu ofan á það
sem fyrir var.“
Konan var viöræðugóö
DV ræddi við annan mann sem
konan sveik, roskinn íbúa á Aust-
urlandi. „Konan var ákaflega við-
ræðugóð þegar hún hringdi í mig
en fór svo að lýsa sínum bágindum.
Maðurinn hennar hefði verið
óreglumaður og geðsjúklingur, hún
væri á lágum launum og skilin en
væri með tvö börn - hún væri með
rúmar 50 þúsund krónur á mánuði
í skúringum á skurðdeild Land-
spítalans. Konan bað um aðstoð,“
segir maðurinn. „Ég lánað henni
fyrst 190 þúsund krónur og við
sömdum um endurgreiðslu. Hún
ætlaði að endurgreiða 25 þúsund á
mánuði en ég sagði þá að hún gæti
það ekki með svo lág laun. Hún
sagðist þá ætla að borga 10 þúsund
á mánuði," segir maðurinn sem
fékk aðeins 10 þúsund krónur end-
urgreiddar. Hann lánaði henni síð-
ar 80 þúsund fyrir bílprófi dóttur
konunnar. Maðurinn hvorki kærði
né lagði fram kröfu á hendur kon-
unni. Þetta er því a.m.k. níundi
maðurinn sem konan sveik. -Ótt
Ný vinnubrögð vegna flóttamanna:
Reykjanesbær í viðræöur
- Skagafjörður endanlega út úr myndinni
Flóttamannaráð og Reykjanesbær
hafa náð samkomulagi um formleg-
ar viðræður um móttöku flótta-
manna. Hins vegar hefur vinnu-
brögðum verið breytt frá því sem
tíðkast hefur. Flóttamannaráð og
Rauði krossinn munu nú hafa frum-
kvæði að þvi að auglýsa og sjá um
að útvega húsnæði en áður var
þetta á forræði sveitarfélaganna.
Ótímabært er að spá fyrir um hvort
Reykjanesbær muni verða við mót-
töku en hitt liggur fyrir að Skaga-
fjöröur er endanlega úr myndinni
vegna húsnæðisleysis þar.
Eins og DV greindi frá í gær hef-
ur reynst mun erfiðara að fmna
flóttamönnunum samastað en áður.
Árni Gunnarsson, formaður Flótta-
mannaráðs, kom með þetta nýja út-
spil á fundi með bæjarstjóra Reykja-
nesbæjar í fyrrakvöld og segir Ámi
að ef áhuginn sé almennt að minnka
á landsbyggðinni gagnvart móttöku
megi búast við að frumkvæði félags-
málayfirvalda verði enn aukið.
Þrátt fyrir óvissuna heldur Flótta-
mannaráð sínu striki og lagði Árni
af stað til Belgrad í morgun til að
velja flóttamenn, þ.e.a.s. 25 Serba
frá Krajinahéraði.
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, segir að það hafi
breytt stöðunni þegar Flóttamanna-
ráð lýsti yfir vilja til að leysa hús-
næðismálin upp á eigin spýtur.
Áður taldi hann ólíklegt að bærinn
gæti fundið leiguíbúðir, enda mikil
umframeftirspurn á þeim markaði.
Bæjarstjórinn vill engu spá fyrir
um niðurstöðuna en telur Reykja-
nesbæ á ýmsan hátt hentugan fyrir
flóttafólk ef húsnæðismálin leysast.
Búið er að reifa málið lauslega fyrir
bæjarráði og segir Ellert: „Við telj-
um það skyldu okkar líkt og ann-
arra sveitarfélaga að leita lausna á
þessum vanda.“ -BÞ
Veöríö i kvóld
.......•£.
-3'C6 1
. M ***
'2*
‘yh
m
m
f%0
Dálítil él vestanlands
Norövestlæg átt, 5-10 víðast hvar á morgun
og dálítil él, einkum norðan til. Frost 0 til 10
stig, kaldast í innsveitum norðaustan til en 1
til 4 stiga hiti sunnanlands yfir daginn.
Solargangur og sjávarföll
■ - ----------.----■.■■wSCíri -— 'iiía
RÉYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 20.38 20.28
Sólarupprás á morgun 06.20 05.59
Síódegisflóö 18.14 22.47
Árdeglsflóö á morgun 06.28 11.01
Skýringar á veðurtáknum
)^VINDÁTT 10%—Hm O
-io°
~>.VINDSTYRKUR \™,T HÐÐSKlRT
i metrum á sekúndu 'rnvz »
o O
irrrsKÝjAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ AISKÝJAÐ
Q Q tii
RIGNING SKURIR SLYDDA SNJÓKOMA
Q . =
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Gufuhvolf og veðrahvolf
Gufuhvolf jarðar skiptist upp í nokkur
lög sem hafa mismunandi hitastig.
Veörahvolfið er neösta lag
gufuhvolfsins og nær upp í 8 til 18
kílómetra hæð. Þar fer loftið kólnandi
með hæðinni og þar eru einnig ský og
veörakerfi.
Frostlaust yfir daginn allra syðst
Fremur hæg norðlæg eöa breytileg átt, dálítil él norðan og austan til en
annars skýjaö meö köflum og þurrt að mestu. Frostlaust yfir daginn allra
syðst en annars frost 0 til 6 stig.
IVÞiiiiKúigii
Vindur: (
3-8 m/» \
Hiti 2° til -6”
Þnújmlagiii
Vindur: -'O
3-8 m/» '
Hlti 5° til 0°
iMfflliBMBm
VindurO '
3-8 m/»
Hiti 7° til 0°
Fremur hæg norólæg eöa
breytlleg átt, dálitll él
norðan og austan tll en
annars skýjaó meö köflum
og þurrt aö mestu.
Austlæg átt, stöku él
noröan tll en annars
skýjaö meö köflum og
sumstaöar skúrlr. Hlýnar i
veörl.
Austlæg átt og víöa
rlgnlng, elnkum suðaustan
tll. Hltl 0 tll 7 stlg.
Austur-Húnavatnssýsla:
Kosið um
sameiningu
íbúar Blönduósbæjar og Engihlíð-
arhrepps í Austur-Húnavatnssýslu
ganga aö kjörborðinu í dag, 7. apríl,
og kjósa um sameiningu sveitarfélag-
anna. Samstarf þessara sveitarfélaga
hefur verið allnokkurt síðustu árin. Á
kjörskrá eru 660 í Blönduósbæ en 52 í
Engihiíðarhreppi. Kjörfundi lýkur kl.
22 á Blönduósi, eitthvað fyrr í Engi-
hliðarhreppi, og ættu úrslit kosning-
anna aö liggja fyrir um miðnætti að-
faranótt sunnudags. Verði sameining-
in samþykkt tekur hún gildi við
næstu sveitarstjórnarkosningar sem
verða i lok maímánaðar árið 2002.
Ágúst Þór Bragason, forseti bæjar-
stjórnar Blönduósbæjar, segir þessar
kosningar merkilegar fyrir þær sakir
m.a. að þetta eru fyrstu sameiningar-
kosningar sveitarfélaga sem fram fara
í Austur-Húnavatnssýslu og þar með
sé brotinn ísinn en þrátt fyrir við-
leitni á síöustu árum hefur það ekki
tekist fyrr. Ágúst Þór Bragason segir
það engum vafa undirorpið að verði
sameining sveitarfélaganna samþykkt
muni það hafa áhrif á frekari samein-
ingar sveitarfélaga á svæðinu. -GG
Skíðasnjórinn
kominn
Snjó hefur kyngt niður í Bláíjöllum
undanfarinn sólarhring og hafa skíða-
áhugamenn fulla ástæðu til að kætast.
í Bláfjöllum er þrjátíu til fimmtíu
sentímetra nýfallinn snjór og i gær
þurfti að moka snjó af bOaplaninu og
ryðja Bláfjallaafleggjarann í fyrsta
skiptið í vetur. Starfsmenn svæðisins
unnu í gær af kappi við að undirbúa
helgina, svo hægt verði aö opna allt
svæðið enda má reikna með mikilli
aðsókn og sannkallaðri páskastemn-
ingu. Veðurspáin er skíðafólki í hag.
Spáð er norðlægri átt 3-7 m/s, smáveg-
is él í dag en þurrt á morgun. -HK
Norsk-íslenska síldin:
Kvóti ákveðinn
Sjávarútvegsráðuneytið hefur gef-
ið út reglugerð um veiðar úr norsk-
íslenska sildarstofninum sem mega
heflast 5. maí nk.
í reglugerðinni segir að heildar-
veiði íslensku skipanna á árinu
megi verða 132 þúsund tonn og séu
veiðarnar háöar sérstökum leyfum
Fiskistofu. Umsóknir um leyfi til
veiðanna eiga aö hafa borist eigi
síðar en 26. apríl og aðeins þau skip
sem hafi leyfi til fiskveiða i atvinnu-
skyni 1. maí eigi kost á síldveiði-
leyfi. -gk
AKUREYRI skýjaö 0
BERGSSTAÐIR hálfskýjaö 1
BOLUNGARVÍK snjóél -1
EGILSSTAÐIR -2
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 2
KEFLAVÍK snjóél á síö. kls. 0
RAUFARHÖFN snjóél 0
REYKJAVÍK skýjaö 0
STÓRHÖFÐI skýjaö 1
BERGEN skýjaö 6
HELSINKI léttskýjaö 7
KAUPMANNAHÖFN alskýjaö 6
ÓSLÖ skýjaö 5
STOKKHÓLMUR 8
ÞÓRSHÖFN rign. á síö. kls. 6
ÞRÁNDHEIMUR skór 4
ALGARVE hálfskýjaö 20
AMSTERDAM skýjaö 12
BARCELONA mistur 17
BERLÍN rigning 9
CHICAGO þokumóöa 16
DUBLIN skúr 12
HALIFAX léttskýjaö 3
FRANKFURT skúr á síö. kls. 13
HAMBORG súld 10
JAN MAYEN snjóél á síö. kls. -3
LONDON rigning 13
LÚXEMBORG skúr á síö. kls. 10
MALLORCA mistur 20
MONTREAL léttskýjaö 1
NARSSARSSUAQ skýjaö -2
NEWYORK alskýjaö 10
ORLANDO hálfskýjaö 18
PARÍS rigning 12
VÍN skýjaö 13
WASHINGTON alskýjaö 11
WINNIPEG heiöskírt -2