Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Qupperneq 6
6
Fréttir
Drög að skýrslu flugslysanefndar mun harðari en lokaskýrslan:
Ábyrgð Flugmálastjórn-
ar meiri en sögð er?
m ._________'■■■»*&■ ■ ...—. 7.: '-■■■ ‘-^'^«11
Reykjavíkurflugvöllur
Flugmálastjórn, LÍO og Rannsóknarnefnd flugslysa eru öll meö aösetur sitt á Reykjavíkurflugvelli.
Flugslysiö varð í Skerjafiröi.
nefndar flugslysa á slysinu í Skerja-
firði 7. ágúst síðastliðinn kemur fram
að nefndin telji flugvélina ekki hafa
verið lofthæfa, samkvæmt þeim regl-
um sem um það gilda.
Slysið varð er flugvél í eigu
Leiguflugs ísleifs Ottesen ehf. fórst,
með þeim afleiðingum að fimm eru
látnir og sá sjötti liggur enn þungt
haldinn á sjúkrahúsi.
Þorsteinn Þorsteinsson, þáverandi
vara-rannsóknarstjóri flugslysa, sá
um rannsóknina og undirritaði bréf
sem fylgir drögunum, dagsett 29. des-
ember síðastliðinn. Skömmu eftir
þann tíma hvarf Þorsteinn frá störf-
um sínum við rannsókn þessa máls
og tók Skúli Jón Sigurðarson, rann-
sóknarstjóri nefndarinnar, við af hon-
um. Endanleg skýrsla var gefin út í
lok mars. Þar segir að vélin „hafði
gild skrásetningar- og lofthæfi-
skírteini til flutningaflugs útgefin af
Flugmálastjórn".
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri hef-
ur jafnframt margoft haldið því fram
opinberlega að öll gögn vélarinnar
hafi verið í lagi er hún var skráð hér
á landi, en aðstandendur fórnarlamba
og aðrir hafa dregið lofthæfi vélarinn-
ar í efa.
11 orsakaþættir verða 5
Drögin bárust í hendur feðra
tveggja fórnarlamba flugslyssins,
Jóns Ólafs Skarphéðinssonar og Frið-
riks Þórs Guðmundssonar, og félaga
þeirra, Hilmars Foss, í fyrradag. í
desember sendi Rannsóknarnefnd
flugslysa aðilum málsins drögin -
Flugmálastjóm og LÍO.
Drögin taka mun harðar á bæði
Flugmálastjóm og LlO heldur en
lokaskýrslan gerir, og bendir á hluti
sem betur hefðu mátt fara. í drögun-
um eru 11 þættir nefndir sem líklegir
orsakaþættir, en í lokaskýrslunni hef-
ur þeim fækkað í flmm.
Báðar skýrslumar segja líklegustu
skýringuna á því aö hreyfill vélarinn-
ar stöðvaðist vera eldsneytisþurrð.
Nóg bensin var á vélinni, en ekki var
stillt á þá tanka sem höfðu nægt bens-
ín. Flugmaðurinn var kominn fram
yfir leyfilegan há-
marksflugtima og
var í sinni 22. ferð
þennan dag.
í drögunum
segir að gangsetn-
ing hreyfdsins
hafi krafist ein-
beitingar ílug-
mannsins og
margra handtaka
á skömmum tíma.
Þá segir: „Ekkert
kom þó fram við rannsóknina sem
benti til þess að flugmaðurinn hafi á
viðkvæmu augnabliki orðið fyrir
truflun frá farþeganum sem sat í
hægra framsætinu og var með virk
stýri fyrir framan sig, en þó er ekki
unnt að útiloka það.“ Ekkert er
minnst á þetta í lokaskýrslunni.
Mistök Flugmálastjórnar
Sjö starfsmenn Flugmálastjómar
fóm til Vestmannaeyja um verslunar-
mannahelgina til þess að aðstoða
félaga sína þar, og segir í drögunum
að hlutverk þessara manna hafi ekki
verið nægilega vel skilgreint.
Fleiri atriði em nefnd í drögunum
þar sem sett er út á starfsemi LÍO og
Flugmálastjómar. Til dæmis segir að
Flugmálastjóm hafi í júní á síðasta
ári gefið LÍO heimild til að nota allar
sínar flugvélar, níu talsins, til þjón-
ustuflugs. „Á meðal þessara flugvéla
vora fjórar sem ekki höfðu lofthæfi-
skírteini til slíkrar starfsemi, heldur
almannaflugs eingöngu."
Jafnframt segir að ísleifur Ottesen
hafi fyrir verslunarmannahelgina
sjálfur látið fjarlægja tröppu úr vél-
inni, sem nauðsynlegt var aö hafa til
þess að flugmaðurinn gæti fylgst með
eldsneytismagni tanka vélarinnar.
Fram kemur í báðum skýrslum að
eldsneytismælar vélanna vora óáreið-
anlegir.
Nefndin gerði jafnframt athuga-
semd við að Flugmálastjóm skuli
ekki hafa gert gagngera úttekt á LÍO
tafarlaust eftir slysið.
Einum karlmanni ofaukiö
Allir farþegarnir, sem og flugstjór-
inn, sátu spenntir í sæti er flugvélin
fórst. í báðum skýrslunum kemur
fram að flugmaðurinn hafi ekki gert
hleðsluskrá né jafnvægisútreikninga
fyrir flugtak. í drögum Þorsteins seg-
ir hins vegar að ef flugmaðurinn
hefði gert skrána og útreikningana,
hefði hann séð að einum karlmanni
var ofaukið í vélinni og að þyngdar-
miðja flugvélarinnar var talsvert fyr-
ir aftan leyfð mörk við flugtak. Jafn-
framt kemur fram að ljóst sé að flug-
vélin hafi oft verið ofhlaðin í starf-
rækslu hennar hjá LÍO.
Samgönguráðherra Sturla Böðvars-
son hefur synjað Friðriki Þór um
óvilhalla rannsókn á skýrslu og
vinnubrögðum rannsóknarnefndar-
innar, á þeim grundvelli að lagaskil-
ýrði skorti að mati ráöuneytisins.
Athygli vekur að samgönguráðu-
neytiö, æðsti yfirmaður Flugmála-
stjórnar, skrifaði undir áætlunar-
flugssamning við LÍO mánuði eftir að
drögin að skýrslunni bárast Flug-
málastjóm í hendur. Sturla sagði á
blaðamannafundi í vikunni að ráðu-
neytið hefði ekki haft neinar upplýs-
ingar um slysið er sá samningur var
gerður. -SMK
Þorgeir Pálsson
flugmálastjóri.
Utandagskrárumræður um rannsókn flugslyssins:
Rannsóknarnefnd flugslysa
vill erlenda sérfræðinga
Trúnaðarbrestur hefur orðiö
milli almennings og flugmálayfir-
valda á íslandi að mati Marðar
Árnasonar, varaþingmanns Sam-
fylkingarinnar. Þetta kom fram í ut-
andagskrárumræðu á Alþingi í gær
um rannsókn flugslyssins í Skerja-
ftrði.
Lúðvík Bergvinsson var málshefj-
andi og gagnrýndi hann vinnubrögð
flugmálayfirvalda og samgöngu-
Sum bílaumboð hafa gripið til
þess ráðs að hækka verð á nýjum
bílum vegna mikilla gengisbreyt-
inga að undanfórnu. Að sögn Gísla
Bjarnasonar, sölustjóra hjá Brim-
borg, hefur fyrirtækið hækkað verð
á amerískum og ákveðnum evrópsk-
um bílum. Hann segir að verð á am-
erískum bílum sem eru í dollar hafi
hækkað um 5% en verð á bílum þar
sem evran kemur við sögu hafi
hækkað um að meðaltali 2%. „Við
ráðherra. Lúðvík vísaði í frumdrög
skýrslu Rannsóknarnefndar fllug-
slysa og bar hana saman við endan-
lega útkomu. Athyglisvert væri hve
skýrslan hefði tekið miklum breyt-
ingum og margt benti til að fyrri
skýrslan heföi verið ritskoðuð, ekki
síst gagnrýni á flugyfírvöld. Einnig
væru sláandi breytingar um orsaka-
þætti slyssins, sögu vélarinnar,
eignarhald og fleira.
höfum ekki geta hækkað verðið eins
mikið og viö hefum þurft vegna þess
aö samdráttur hefur verið í söl-
unni,“ segir Gísli. Fyrirtækið hefur
ekki hækkað verð á japönskum og
sænskum bílum.
Skúli Skúlason, sölustjóri hjá
Toyota, segir aö þar á bæ hafi verð
á öllum nýjum bílum hækkað og
þaö séu nauösynlegar hækkanir.
„Við þyrftum að hækka verðið
meira eins og staðan er í dag en
Þingmaðurinn sagði ekki hlut-
verk Alþingis að dæma á þessu
stigi en mikilvægt væri að trúnaö-
ur ríkti milli almennings og flug-
yfirvalda. Hann spurði samgöngu-
ráðherra, Sturlu Böðvarsson,
hvort ráðherra hygðist endur-
skoða þá ákvörðun að fá erlenda
óvilhalla aðila til að skoöa málið
og vildi einnig vita hvort ráðherra
myndi beita sér fyrir því að er-
treystum okkur ekki í það,“ segir
Skúli. Hann segir að hækkunin sé
að meðaltali um 3% en samt sé
verðið 6% undir því sem það þyrfti
að vera. „Ef ástandið heldur áfram
að versna á næstunni verðum við
að hækka verðið enn meira," segir
Skúli.
Hjá Ingvar Helgasyni fengust þær
upplýsingar að engar hækkanir
hefðu orðið á nýjum bílum það sem
af er þessu ári. -MA
lendir sérfræðingar myndu gera
heildarúttekt á flugöryggiskerfi
landsmanna.
Ráðherra upplýsti að búið væri
að skipa starfshóp um flugöryggi
og eftirlit en ítrekaði að Rann-
sóknarnefnd flugslysa væri sjálf-
stæð stjórnsýslunefnd og hann
hefði ekki heimild til afskipta af
störfum hennar. Ráðherra sagði á
hinn bóginn að í bréfi gærdagsins
frá RNF kæmi fram vilji um að er-
lendir sérfræðingar yrðu kallaðir
til liðs í lögreglurannsókninni sem
enn stendur yfir. Þar yrði m.a.
skoðað á hlutlægan hátt hvort
ávirðingar á hendur flugmálayfir-
völdum ættu við rök að styðjast.
Bryndís Hlöðversdóttir (Sf)
sagði að ráðherra bæri pólitíska
ábyrgð í þessu máli og það væri
ekki nóg að vísa til stjómsýslu-
nefndar. Ámi Johnsen, Sjálfstæð-
isflokki, sagði hins vegar að búið
væri aö grafa undan trausti al-
mennings í flugmálum vegna
óvandaðrar umfjöllunar í fjölmiðl-
um og oft á tíðum ótímabærra yf-
irlýsinga tiltekinna stjórnmála-
manna. -BÞ
Verö á nýjum bílum hækkar
- ástæðan er gengisbreytingar
LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001
DV
Flóttamenn á
Völlinn?
Páll Pétursson fé-
lagsmálaráðherra á
við miklar hremm-
ingar að stríða um
þessar mundir. Páll, sem þótti
sýna góða takta við skeleggan und-
irbúning og móttöku erlendra
flóttamanna víða um land, fær nú
hvergi inni leng-
ur með flótta-
menn. Sveitar-
félög sem áður
börðust um aö fá
til sín flóttamenn
vilja nú ekkert
með slika móttöku
hafa. Ráðherra hef-
ur því riðið um héruð og reynt að
fá sveitarstjómir til að taka við um
30 flóttamönnum sem von er á í
sumar. Vonaraugum er nú mænt á
Keflvíkinga. Pottverjum þykir því
eins líklegt að næsta sending af
flóttamönnum komist í raun aldrei
til íslands. Þeim verði einfaldlega
plantað í íbúðir á yfirráðasvæði
Bandaríkjahers innan girðingar á
Keflavíkurflugvelli...
Tantrað hjá Fúsa?
Hugtakið „Tantra" ríður nú hús-
um um allar jarðir þó fæstir hafi
sjálfsagt hugmynd um hvaö það
þýðir. í heita pottinum hélt sér-
fræðingur i þess-
um málum fyrir-
: lestur og upp-
fræddi fáfróða um
að Tantra væri
austurlensk kyn-
lífsspeki. Landinn
hefur hins vegar
tekið þetta með
trompi síðan Skjár einn fór að
sýna opinskáar senur með íslensku
Tantra-áhugafólki. Vigfús Þór
Árnason, prestur í Grafarvogs-
kirkju, er þó ekki talinn líklegur
til að innlima þessi fræði í kristni-
fræðikennsluna á næstunni. Eigi
að síður mun eitt fermingarbarna
hans hafa verið spurt að því hvort
þaö ætlaði ekki að fermast og stóð
ekki á svarinu: „Jú, ætli maður
reyni ekki að tantrast í gegnum
þetta hjá Fúsa ...!“
Gott aö vera ekki Breti
ísfirðingarnir Aðalheiður Ýr
Gestsdóttir og Bjarni Þór Valdi-
marsson stóðu sig afburðavel á
Opna breska meistaramótinu á snjó-
brettum sem hald-
ið var í fyrradag,
að því er fram
kemur í Bæjarins
besta. Mótið var
haldið í Austurríki
en Aðalheiður sigr-
aði í kvennaflokki
með nokkrum yfir-
burðum og fékk 9,9 af tíu möguleg-
um í einkunn fyrir eitt stökka
sinna. Bjarni Þór komst í úrslit í
karlaflokki. „Ég fékk samt bara
tvær vínflöskur í verðlaun af því að
ég er ekki Breti," sagði Aðalheiður.
í heita pottinum velta menn fyrir
sér af hverju Aðalheiður fékk vín
en ekki Bretarnir. Þykir mönnum
líklegt að Bretarnir hafi bara verið
búnir að fá sér einum of mikið neð-
an í því eins og úrslitin benda til og
þvi ekki treystandi fyrir meiru. Af
tvennu illu væri því betra að láta
íslendingana lepja þessar tvær
flöskur ...
Vandlifað
Svokölluð „Grænmetismafía" er
sögð hafa lagt undir sig blóma-
markaðinn líkt og gert var með
bróðurlegri skiptingu á grænmetis-
markaðnum á
milli þriggja að-
ila. Guðni
Ágústsson stend-
ur ráðþrota mitt í
darraðardansinum
og veit vart sitt
rjúkandi ráð. Sagt
er að illgresið hafi
náð að skjóta rótum svo víða í
samfélaginu að erfitt sé um vik.
Guðni geti ekki einu sinni beitt ill-
gresiseyði á þessa óværu, því þá
eigi hann yfir höfði sér skammir
Sivjar Friðleifsdóttur umhverfis-
ráðherra. Það er sannarlega vand-
lifað í þessum heimi...