Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Page 19
19
LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001
DV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað
enn upp á 19. öld þegar breskur
dýrafræðingur, Philip Henry Gosse
að nafni, skrifaði þykka bók um
þetta og skyld málefni. Hann stað-
hæfði að Adam hefði haft nafla og
rökstuddi mál sitt með því að Adam
hefði þótt óþægilegt að hafa ekki
nafla og Guð hefði viljað forða hon-
um frá þessum óþægindum. Gosse
sagði líka að trén í aldingarðinum
hefðu verið með árhringi líkt og
venjuleg tré allt frá fyrsta sköpunar-
degi. Fáir urðu til þess að skipa sér
í flokk með Gosse og listamenn
héldu áfram að hysja upp fíkjublöð
Adams og Evu í myndskreytingum
úr Eden frekar en að láta sjást í
naflann.
Þessar deilur ná allt til okkar
tíma þvi um miðja síðustu öld vildi
bandaríska herstjórnin ekki að
mynd af Adam og Evu með nafla
sæist í bæklingi sem gefin var út á
hennar vegum. Ekki löngu eftir
stríðið kom hin ofurvinsæla brúða,
Barbie á markaðinn. Barbie var
lengi vel ekki með nafla frekar en
Adam en framleiðendur hafa nú
fært hana ögn nær líffræðilegum
raunveruleika.
Þegar bikiníbaðfötin komu fram
á sjónarsviðið ollu þau meðal ann-
ars hneykslan vegna þess að nafl-
inn, sem áður hafði verið hulinn
sjónum strandgesta, var nú sýnileg-
Með falinn nafla
Margir muna eftir vinsælum
sjónvarpsþáttum I Dream of
Jeannie þar sem Barbara Eden og
Larry Hagman léku og hún var
fálæddur andi í flösku. Þótt komið
væri langt fram á sjöunda áratug-
inn var lagt blátt bann við því að
sæist í nafla leikkonunnar.
Á sjöunda áratugnum náði svika-
hrappur að nafni Hogen Funkunga
nokkrum vinsældum meðal jap-
anskra viðskiptajöfra sem létu
Britney og Madonna
Síðan þetta gerðist hefur frjáls-
lyndi gagnvart þessum viðkvæma
bletti mannslíkamans aukist mjög og
má segja að það sé í tísku að sýna á
sér naflann. Telja menn að söngkon-
an Madonna hafi verið brautryðjandi
á þessu sviði en sporgöngukonur eins
og Britney Spears og Christina
Aquilera hafa gert naflann að nokk-
urs konar vörumerki sínu og má
segja að þær sjáist sjaldan eða aldrei
á sviði nema með beran naflann.
Naflinn á Britney er nógu mikilvægt
atriði í framkomu hennar til þess að
hægt er að kaupa eftirlíkingu af hon-
um úr plasti.
Tískusérfræðingar segja að með
því að bera magann og naflann með
þessu hætti séu listakonurnar að
segja aðdáendum sínum að horfa en
snerta ekki. Það rímar ágætlega við
þá hreinleikaímynd sem Britney Spe-
ars hefur lagt áherslu á. Rétt eins og
naflinn sem er staðsettur miðja vegu
milli höfuðsins og kynfæranna, er
hvorki holdlegur né vitsmunalegur,
þá reynir Britney að leika fuliorðið
Koma börnin út um naflann?
Þó skipta megi nöfium í tvo megin-
flokka, útstæöa og innliggiandi, eru
sennilega engir tveir naflar alveg ná-
kvæmlega eins óg þess vegna ekki
úr vegi aö líkja naflanum viö
fingrafar. Naflinn hefur engan tilgang
og ekkert hlutverk annaö en að
minna okkur á fæðingu okkar og
þess vegna skal engan undra þótt
menn hafi löngum viljaö tengja
þennan hnapp á miöjum líkama okk-
ar viö kynlíf og endurnýjun mann-
kynsins.
margir, að ráði hans, framkvæma
fegrunaraðgerðir á nafla sínum til
að hann yrði betur til þess fallinn
að vera „ miðpunktur alls persónu-
leikans" eins og Hogen orðaði það.
. SJáðu hvað hann er sætur.
Þaö er tiltölulega stutt síöan þaö komst í tísku aö sýna á sér naflann viö
öll tækifæri. Nú eru flestar stúlkur frá 10 ára aldri tilbúnar til þess aö
bera á sér naflann.
bam, stúlku sem er í senn saklaus og
spillt.
Christy og Naoml
Þegar hin vinsæla kvikmynd
American Beauty var markaðssett
var rós í nafla ungrar stúlku á vegg-
spjaldinu en kvikmyndin fjallar um
vonlausa ást miðaldra karlmanns til
stúlku sem er rúmlega fermd. Þar
var naflinn notaður sem tákn kyn-
ferðis stúlkunnar sem var i raun hið
forboðna.
Einnig er mjög vinsælt um þessar
mundir að vera með hring í naflan-
um og til þess að slíkt skraut njóti
sín þarf naflinn náttúrlega að sjást.
Frægar fyrirsætur eins og Christy
Turlington og Naomi Campbell og
söngkonur eins og Cher og Janet
Jackson skarta allar skrauti í naflan-
um.
Hvaða kusk er þetta?
Við þetta má að lokum bæta því að
allir naflar hafa tilhneigingu til þess
að safna í sig muski eða ló úr fótum
eigandans. Ekki er mér kunnugt um
að þessi afurð hafi neitt sérstakt nafn
á íslensku þótt hún gæti vel heitið
naflaló.
Á netinu sem leiðir alla heimsins
sérvitringa heimsins á fund hvers
annars er að finna fjölmargar heima-
síður og umræðusvið sem fjalla sér-
staklega um þetta fyrirbæri, naflaló
eða navel lint eins og það heitir á
ensku. Sé ensku orðin navel lint sleg-
in inn í algenga leitarvél koma
2.700-3.000 svaranir og geta menn
dundað við það lengi að skoða mynd-
ir af sýnishornum af naflaló og taka
þátt í könnunum um útbreiðslu og
hegðun þessa fyrirbæris.
Þannig geta menn lagst í mjög ítar-
lega naflaskoðun í fleiri en einum
skilningi og fræðst um sjálfan sig og
afkima mannlegrar hegðunar í senn.
-PÁÁ
Go mætir á nýjan leik
verð frá
ndon I14.750kr
meö flugvallarsköttum
báðar leiöir
ódýri ferðamátinn til london
tryggðu þér lægsta fargjaldið
núna á www.go-fly.com
eða hringdu í síma +44 1279 66 63 88 (250 kr. símaþóknun bætist við) • samkvæmt skilmálum • 350 kr. greiðslukorts kostnaður • flogið er til stanstedflugvallar í I ondon