Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2001, Side 47
55 LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2001 DV Tilvera Nefhárin fuku fyrir lítið - við aðstoð mína við grillið Guðmundur Hallgríms klippari er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Hann gekk um mánaðamótin til liðs við Baldur Rafn sem rekið hefur hár- greiðslustofuna Mojo við VegamótasUg í tvö ár. í sameiningu keyptu þeir rekstur hárgreiðslustofunnar Monroe sem er staðsett fyrir neðan Veitinga- staðinn Við Tjömina eða í Templara- sundi 3. „Monroe opnaði um mánaðamótin og verða gerðar breytingar á þeirri stofu í rólegheitum því við vorum svo lánsamir að fá hana í toppstandi. Þetta er mjög spennandi þar sem móttökur við Mojo hafa verið vonum framar og ætlum við að reyna að halda þessari góðu siglingu," segir Gummi og bætir við: „Það er heldur ekki verra að opna stofu á þessum árstíma þar sem sum- arið er komið í okkur íslendinga og einmitt þá viljum við breyta og prufa eitthvað nýtt. Hárið verður oft fyrir valinu enda vitum við öll að þegar við höfum farið í klippingu og litun eða bara gert það sem okkur hefur lengi langað að prófa, þá líður okkur betur með okkur sjálf og ekki veitir af að lyfta okkur aðeins upp eftir skamm- degiö í vetur“. En hvemig er reynsla þessa unga at- hafnamanns af matargerð. Valur fékk heiðursætið „Ég er nú kannski enginn meistara- kokkur sem lýsir sér best í því að mér er haldið fjarri eldhúsi þegar kemur að matargerð. Ég hef ekki einu sinni feng- ið þetta „griiltouch" sem svo margir tala um. En reynslu eigum við nú öll og ég get sagt ykkur lesendum frá einni hræðilegri reynslusögu minni sem ég þori vart að segja frá en ætla að láta vaða. Þannig er mál með vexti að við vin- imir fórum í árlega sumarbústaðaferð hér um árið og i það skiptið var ferð- inni heitið að Laugarvatni. Skipulag ferðarinnar tók okkur 2-3 vikur en þá var verið að ákveða hvað ætti að grilla, drekka, spila og allt það sem fylgir þessum sumarbústaðaferðum. Nema að í þessari ferð var kosinn yfirkokkur og það var Valur, meistara- kokkurinn í vinahópnum, sem fékk það sæti. Hann tók þetta mjög hátíð- lega og stóð sig með prýði, við létum hann fá pening og hann sá um öll inn- kaup fyrir þessa ferð. Önnur verkefni vom í höndum okkar hinna. Það er alltaf þannig að við emm með léttan mat á föstudeginum og svo á laugardeginum er sannkölluð sæl- keraveisla. Biðin langa Laugardagurinn leið og Valur var kominn fyrir framan grillið. Þetta var þvílík nákvæmnisvinna að það hálfa hefði verið nóg. Hann var að grilla humar og ég og Balli vorum orðnir frekar þreyttir á þessari bið eftir matn- um á grillinu. Okkur fannst hann vera frekar seinvirkur kokkur og að okkar mati þá vantaði miklu meiri eld á kol- in. Valur gaf sig ekki og sagðist þurfa að steikja þetta nákvæmlega eftir bók- inni og þá með litlum hita. Ég veit ekki hvað hljóp í okkur Balla en við ákváðum að flýta aðeins fyrir matreiðslunni hjá Vali. Þegar hann sneri baki í grillið eitt sinn þá tókum við olíuna og sprautuðum brjál- æðislega miklu á kolin. Nema hvað, í því snýr Valur sér að griUinu með skelfmgarsvip og á sömu stundu kom líka þessi svakalega eldsprenging upp úr grillinu. Valur varð brjálaður og því miður reyndar hárlaus líka. Hann var gjör- samlega sköllóttur upp á mitt höfuð, augnháralaus, augabrúnalaus, skegg- laus og nefháralaus," segir Gummi og hlær þegar hann rifjar þetta upp. „Ég þarf vart að taka það fram að þessi ferð hefur hvorki verið rædd fyrr Guðmundur Hallgríms klippari: „Ég er nú kannski enginn meistarakokkur sem lýsir sér best í því að mér er haldiö fjarri eldhúsi þegar kemur að mat- argerö. Ég hefekki einu sinni fengiö þetta „grilltouch“ sem svo margir tala um.“ ESSSEI2M né síðar innan vinahópsins. En auðvit- að kann maður alltaf góðar uppskriftir og hér eru þær sem eru í uppáhaldi hjá mér. -klj Sinnepshjúpaður grillkjúkling- ur 800 g beinlausar kjúklingabringur 4 msk. Dijonsinnep 2 msk. majones 1 msk. hrein jógúrt 300 g Tilda-hrísgrjón Salat 1 rauð paprika, kjamhreinsuð og skorin í litla bita 3 tómatar skornir í báta 1/2 jöklasalat, rifiö í grófa bita safi úr einni sítrónu Aðferð: Blandið saman sinnepi, majonesi og jógúrt. Setjið kjúklingabringumar í blönduna og gætið þess að blandan hylji allt kjötið. Látið standa á meðan hugað er að öðrum þáttum matreiðsl- unnar. Síðan er kjúklingurinn grillað- ur í 7-10 mínútur á hvorri hlið eða þar til hann er steiktur í gegn. Sjóðið hrísgrjónin og blandið síðan paprikunni saman við. Meðlæti: Hrísgijón með smátt saxaðri ferskri papriku og jöklasalat með tómötum. Vætið meö sítrónusafa. Jarðarber og appelsínur í Grand Marmer Snickers í sneiðar og raðið yfir per- urnar. Lokið álpappírnum. Grillið áfram í 3-5 mínútur eða þar til per- urnar eru orðnar mjúkar. Meðlæti Vanilluís, heil jarðarber og blæju- ber. 3 appelsínur, afhýddar og skomar í sneiðar 1 askja jarðai-ber, hreinsuð og skor- in í tvennt 1 dl Grand Marnier líkjör 1/2 dl appelsínusafl, hreinn 1 álbakki 2 dl sýrðiu rjómi 50 g súkkulaði, smátt saxað Aðferð: Appelsínum og jarðarberjum er rað- að í ábakkann, Grand Marnier líkjör- in og appelsínusafanum hellt yfir. Ál- bakkinn settur á meðalheitt grillið og grillið í 8 mínútur eða þar til jarðar- berin og appelsínurnar era farnai- að hitna. Meðlæti: Sýrður ijómi 18% og smátt saxað súkkulaði. Uppskriftir Grillsteiktar ungnauta- sneiðar Sannkölluð kúrekasteik. Fyrir fjóra 800 g ungnautafilé, skorið í 4 steikur 4 bökunarkartöflur Kryddlögur 1 dl eplaedik 1 dl Worchesterhire sósa 1/4 dl sterk piparsósa (tabasco) 2 msk. smjör 1 tsk. púðursykur Piparrótarsmjör 150 g mjúkt smjör 11/2 msk. fersk piparrót, rifin (eða 1 msk. úr pakka) 1/2 tsk. sykur Salat 2 dl alfa alfa spírur 1 stk. rauð paprika, skorin í bita 1/2 stk. blaðlaukur, skorinn i sneiðar 1 stk. greipaldin, afhýtt og skorið i bita 2 stk. tómatar, skornir í báta Nykaup Þarsem ferskleikinn býr Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi þar sem allt hráefni í þær fæst. 2 msk. ólífuolía 1 msk. eplaedik 1 msk. sesamfræ Aðferð: Blandið edikinu, Worchester- shire sósunni, piparsósunni, smjör- inu og púðursykrinum í pott og hit- ið þar til sykurinn leysist upp. Kjöt- ið lagt í löginn og látið standa i 3 klst. Sneiðarnar síðan grillaðar í &-8 mín. á hvorri hlið eftir þykkt og penslað öðru hverju með leginum. Bakið kartöflurnar á grillinu i 40-60 mín. eftir stærð. Piparrótarsmjör Öllu blandað vel saman, sett á smjörpappír, rúllað upp og kælt. Skorið í sneiðar. Salat Blandið grænmeti og greipaldini saman í skál. Dreypið ólífuolíu og eplaediki yfir og stráið sesamfræj- unum ofan á. Meðlæti Setjið kjötsneiðarnar á diska, heilar eða skornar í sneiðar. Berið með bakaða kartöflu, kryddsmjörið í sneiðum og salatið. Grilluð epli Góð með ís og rjóma Fyrir fjóra 4 rauð epli 1/2 dl flórsyk- ur 1/2 tsk. kanill 1/8 tsk. múskat 2 msk. sykur 1 egg 1/2 dl mjólk safi úr einni sitrónu Aðferð: Stingið kjarnann úr eplunum og skerið í 4 báta. Búið til lítil mót úr álpappír og leggið eplin í álpappír- inn. Þeytið eggið og blandið öllu öðru saman við. Hellið síðan yfir eplin og setjið á grillið og lokið því. Grillið i u.þ.b. 15 mínútur. Meðlæti: Vanilluís og þeyttur rjómi. Grillaðar perur með Snickers Fyrir fjóra. 4 perur 2 Snickers Aðferð: Skerið perurnar i tvennt, hreinsið kjarnana úr og pakkið í ál- pappír, grillið í 3-5 mínútur með sárið niður. Snúið síðan perunum við og opnirð álpappírinn, skerið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.