Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2001, Side 2
2
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001
DV
Fréttir
Tveir unglingspiltar játa duftsendingu til Davíðs:
Bréfberinn frétti af
duftinu í fjölmiðlum
- misbrestur í samskiptum, segir íslandspóstur
Tveir sextán ára gamlir piltar
játuðu við yfirheyrslur í gær að
hafa sent Davíð Oddssyni forsætis-
ráðherra bréf sem innihélt duft.
Þeir sögöu við yfirheyrslur að um
spaug hefði verið að ræða og að
þeir hefðu ekki gert sér nokkra
grein fyrir alvarleika málsins.
Umrætt duftbréf barst á heimili
forsætisráðherra síðastliðinn
þriðjudag og var greint frá málinu
i Qölmiðlum daginn eftir. Þá fyrst
frétti bréfberinn,, sem ber út póst í
Skerjafirði af málinu.
„Mér var auðvitað mjög brugðið
þegar ég sá í kvöldfréttum sjón-
varps að verið væri að rannsaka
duft í bréfi til forsætisráðherra.
Heimili Davíðs er á mínu útburð-
arsvæði og mér fannst vægast sagt
skrýtið að hafa ekkert heyrt af
þessu enda var liðinn rúmur sólar-
hringur frá því ég bar út bréfiö,"
segir Sigríður Sigurðardóttir, bréf-
beri hjá íslandspósti.
Sigi’íður segir að í kjölfar frétt-
arinnar hafi rifjast upp fyrir henni
aö hún fékk ofurlítið duft á hend-
urnar þegar hún var að stinga
pósti forsætisráðherra inn um
bréfalúguna sl. þriðjudag. „Ég
hugsaði með mér að ég væri senni-
lega orðin ímyndunarveik og
gleymdi svo atvikinu," segir Sig-
ríður.
Hún kveðst hafa undrast þær
staðhæfingar í fjölmiðlum að allar
viðeigandi ráðstafanir hafi verið
gerðar þegar í stað. „Ég var ekki
látin vita af einu eða neinu og
sama gildir um þá starfsmenn
pósthússins sem handléku bréfið
þennan dag.“
Ingibjörg Stefánsdóttir, formað-
ur Öryggismálanefndar íslands-
pósts, sagði í samtali við DV að
það væri rétt að fyrirtækið hefði
ekki haft spurnir af málinu fyrr en
daginn eftir. „Það varð misbrestur
hvað varðar samskiptaleiðir. Því
hefur nú verið kippt i liðinn og
samstarf okkar bæði við lögreglu
og almannavarnir hefur verið
mjög gott eftir þetta atvik. Ég á
ekki von á að atburður sem þessi
endurtaki sig,“ segir Ingibjörg.
Sigríður bréfberi fékk senda
blómakörfu frá íslandspósti í kjöl-
Heimili forsætisráðherra
Ríkislögreglustjóraembættið hefur upplýst
duftbréfsem Davíð Oddssyni barst sl.
þriðjudag. Duftið í bréfmu reyndist skað-
laust. Tveir unglingar hafa játað að hafa
sent bréfið og segja sendinguna hafa átt
að vera spaug.
far málsins. Hún ætlar að halda
áfram starfi sínu hjá Islandspósti
og mun bera póst út í Skerjafirði
eftir sem áður.
Rannsókn málsins er lokið af
hálfu embættis ríkislögreglustjóra.
Játningar liggja fyrir og þrátt fyr-
ir að duftið hafi reynst skaðlaust
er mál piltanna tveggja litið mjög
alvarlegum augum. Rannsóknar-
gögn málsins verða send ríkissak-
sóknara í næstu viku.
-aþ
MYND: E.ÓL.
Myndlistarmenn í Hafnarstrætið
ígær var undirritaður leigusamningur milli Sambands íslenskra myndlistarmanna og Reykjavíkurborgar um húseignina Hafn-
arstræti 16. Húsið var upphafiega einlyft timburhús frá byrjun 19. aldar, reist á grunni Kaölarahússins svonefnda frá því um
1780. Borgin keypti húsiö af mæðgum en það hafði verið í eigu fjölskyldu þeirra frá 1908. Húsið hefur veriö endurbætt. Á
myndinni sjást Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Pétur Stefánsson, formaður SÍM, handsala leigusamninginn.
Sigraði í formúluleik Pennans og Fellows - úrslitin tilkynnt í beinni útsendingu:
Sigurgpeðin reyndist skammvinn
- sviptur ferðavinningi vegna tengsla við starfsmann
„Ég er auðvitað mjög ósáttur við
þessi vinnubrögð Pennans og sé ekki
hvernig þeim er stætt á því að svipta
mig þessum vinningi," segir Smári S.
Smárason, sem taldi sig hafa dottið í
lukkupottinn þann 16. september sl.
þegar nafn hans var dregið úr For-
múlupotti Fellows og Pennans í
beinni útsendingu sjónvarps. Vinn-
ingurinn var ferð fyrir tvo á formúlu-
keppni í Bandaríkjunum.
„Það er draumur allra formúluað-
dáenda að komast á keppnina í
Bandaríkjunum," segir Smári.
Forsaga málsins er sú að Penninn í
samvinnu við bandaríska fyrirtækið
Fellows efndi til formúluleiks. Ekki
þurfti að gera annað en að fylla út
þátttökuseðil og þar með
voru menn komnir í pottinn.
Smári kveðst hafa beðið unn-
ustu sína, sem var starfs-
maður Pennans, að fylla út
seðil fyrir sína hönd. Hún
gerði það.
„Við höfðum enga hug-
mynd um að starfsmönnum
og eða fjölskyldum þeirra
væri bannað að taka þátt í
leiknum. Það stendur enda
ekki orð um það á þátttökuseðlinum,"
segir Smári en hann hélt rakleitt á
skrifstofu Pennans daginn eftir úr-
dráttinn til að vitja vinningsins. „Mér
var óskað til hamingju en daginn eft-
ir var mér tilkynnt símleiðis að ég
fengi ekki vinninginn vegna
unnustu minnar,“ segir
Smári og kveðst ekki ætla að
una þessari niðurstöðu auk
þess sem hann hefur hafnað
skaðabótum að andvirði 10
þúsund krónur. „Ég hef ráðið
lögfræðing til að reka mitt
mál,“ segir Smári.
Valgeir Pétursson, vöru-
stjóri hjá Pennanum, segir
reglur um þátttöku í for-
múluleiknum hafa verið skýrar frá
upphafi. „Samstarfsaðili okkar,
bandariska fyrirtækið Fellows, gerði
þá eðlilegu kröfu að starfsmenn
tækju ekki þátt i leiknum. Verslunar-
stjórar okkar upplýstu starfsmenn
um þessa reglu en hvort viðkomandi
starfsmaður fékk ekki þau skilaboð
veit ég ekki. Ég ætla henni ekkert
rangt til í þessum efnum,“ segir Val-
geir.
Hann segir ekkert annað hafa ver-
ið í stöðunni en afturkalla vinninginn
þegar ljóst var að um maka starfs-
manns var að ræða. „Frá bæjardyr-
um Fellows kom aldrei til greina að
borga ferö fyrir starfsmenn Pennans
enda leikurinn ekki ætlaður þeim,“
segir Valgeir.
Hann segir Pennann alls ekki búinn
að loka dyrum fyrir sátt í málinu. „Við
erum seinir th illinda og reiðubúnir að
leysa þetta mál á skynsamlegan hátt,“
segir Valgeir Pétursson. -aþ
Smári S.
Smárason.
Össur öruggur
Vopnaðri
baráttu IRA
loksins lokið
Boðar skilnað
Guömundur
Hálfdanarson
Innlent fréttaljós
Erlent fréttaljós
Hér er enginn
Mikki refur
Lífshamingjan
ákveðin í
menntaskóla
Báröar-
dalsheimsókn
Hamingjan er dýr
Svaðilför á
jeppum
Draugar, tröll
og hárlítill
hafmaður
Yfirskilvitlegir
Shangri La
staöir
Ætti að vera
oftar á
borðum
Steinbítur
Áróðursvél
Evrópusam-
bandssinna
Ragnar Arnalds
22 Vil verða
besta amma í heimi
r Hin hliö Maríu
Ellingsen
Opnar Kringlusafn
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgar-
stjóri mun í dag opna
nýtt útibú Borgar-
bókasafiis Reykjavík-
ur, Kringlusafn í
Borgarleikhúsi. Við
sama tilefni verður
bókmenntavefurinn
www.bokmenntir.is opnaður. Bókasafn-
ið er um 725 fermetrar og stofhkostnað-
ur 77 miiljónir króna.
Kaupa kafbát
Rannsóknarsetrið í Eyjum og Líf-
fræðistofnun Háskóla íslands hafa fest
kaup á litlum kafbáti til að kanna und-
irdjúpin niður á 2000 metra. Báturinn er
um 2,2 metrar á lengd og vegur um 60
kíió og er framleidd af Hafmynd i
Reykjavík, kostaði um 15 milljónir
króna.
Líkn á Landakoti
Líknardeild á öldrunarsviði Lands-
spítalans-háskólasjúkrahúss á Landa-
koti var opnuð í gær. Á deildinni, þar
sem eru níu einbýlisherbergi, fá inni
aldraðir einstaklingar sem eru með
ólæknandi sjúkdóm á lokastigi og ævi-
líkur skemmri en þrir til sex mánuðir.
Umönnunin er sérhæfð.
Stjórn BSRB sendi
í gær frá sér ályktun
þar sem fagnað er
ásetningi Jóns Krist-
jánssonar heilbrigðis-
ráðherra að standa
gegn einkavæðingu
heilbrigðisþjónust-
unnar og einstakra
þátta hennar. BSRB segir grundvallarat-
riði að heilbrigðisþjónustan mismuni
ekki fólki eftir efnahag. Mismunun fylgi
einkavæðingu.
Samþykkir Villinganes
Skipulagsstofnun fellst á fyrirhugaða
Villinganesvirkjun i Skagafirði og lagn-
ingu háspennulínu frá virkjun að
byggðalínu. Minniháttar skilyrði eru
sett fyrir framkvæmdinni. Um er að
ræða 33 megavatta virkjun við Villinga-
nes með stíflun Héraðsvatna um tvo
kílómetra neðan ármóta Vestari og
Austari Jökulsár.
Beðið eftir vaxtalækkun
Greiningadeild Búnaðarbankans seg-
ir í 1/2 5 fréttum í gær líklegt að Seðla-
bankinn muni ekki lækka vexti fyrr en
eftirspum eftir vinnuafh hafi minnkað.
Þar er vísað til Hagvísa bankans þar
sem segir að síðustu mánuði hafi launa-
skrið verið mikið og enn sé spenna á
vinnumarkaði og sáralítið atvinnuleysi.
Sveinn í UNESCO
Sveinn Einars-
son, leikstjóri og
rithöfúndur, var
kosinn í fram-
kvæmdastjórn
UNESCO, Menn-
ingarmálastofiiun-
ar Sameinuðu þjóð-
anna. Þetta er í
annað sinn sem ís-
lendingur situr í stjóminni. Andri ís-
aksson átti sæti þar 1983 - 1987. -sbs
Haldið til haga
Ónákvæmni gætti í orðalagi fréttar
DV í gær um borgarstjórnarmál sjálf-
stæðismanna þar sem skilja mátti að
Inga Jóna Þórðardóttir hefði verið leið-
togi D-listans fyrir síðustu kosningar.
Hið rétta er að Inga Jóna var í þriðja
sæti
Þorgeir ekki sýknaður
í viðtali við Sigurð Líndal lagapró-
fessor í DV í gær kom fram að Þorgeir
Þorgeirson hefði verið sýknaður af
ákæru vegna ummæla um lögreglu-
menn. Þetta er ekki rétt. Hið rétta er
að Þorgeir var sakfelldur í Hæstarétti-
Styðja Jón