Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2001, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001
I>V
23
Helgarblað
Mariah Carey í leikaraham:
Risin upp eftir sláturtíð
Mariah Carey hefur verið vin-
sæl í nokkur ár og virðist verða
vinsælli eftir þvi sem hún fækkar
fötum og kílóum. Hún hefur verið
iðin við kolann í plötuútgáfu en nú
hefur hún haslað sér völl á nýju
sviði en komin er i sýningar í
Bandaríkjunum fyrsta kvikmynd-
in sem hún leikur í og nefnist hún
Glitter. Mariah hefur gefið þær yf-
irlýsingar að hún stefni ótrauð á
meiri frama innan kvikmynda-
heimsins þrátt fyrir að gagn-
rýnendur hafi brett upp ermamar,
Smáauglýsingar
DV
550 5000
klætt sig í hlíföarklæðnað og
hreinlega slátrað myndinni og þá
sérstaklega aðalleikkonunni, téðri
Mariuh. Þeir sem hafa séð mynd-
ina segja að Madonna sé eins og
Meryl Streep í samanburði.
í nýlegu viðtali segist Mariah
hlakka mjög til að leika í næstu
kvikmynd. „Þetta gefur mér tæki-
færi til að sýna aðra hlið á sköpun-
argleði rninni," segir Mariah. „Mér
fmnst ég verða tengdari tónlistinni
með því að leika.“ Það er kannski
ekkert skrýtiö miðað við umsagn-
irnar að tónlistin sé henni kær um
þessar mundir.
En Mariah lætur ekki sitja við
orðin tóm. Hún er kona fram-
kvæmda og hefur þegar lokið tökum
á nýrri mynd sem meðal annars
skartar hinni stórskemmtilegu
leikkonu, Miru Sorvino, sem fékk
óskarsverðlaun fyrir túlkun sína á
gleðikonu í mynd Woodys Allens,
The Mighty Aphrodite. Mariah við-
urkennir þó að ekki hafi allt verið
fullkomið í Glitter. „Það eru margar
breytur í þessu dæmi, leikstjórar,
framleiðendur og mikið af fólki sem
stjórnar af mikilli framsýni,“ segir
Mariah. Erfitt er að ráða í þessi orð
annað en það að hún sé að segja:
gengi myndarinnar Glitter var öðr-
um að kenna.
Mariah sagði í nefndu viðtali að
hún hefði lært mjög af þessari leik-
reynslu og sjálfstraust hennar hefði
aukist til mikilla muna. Það skýrir
þó ekki alveg þær sögusagnir sem
ganga um að hún hafi fengið tauga-
áfall eftir tökur. En það er nú önn-
ur saga.
Mariah Carey
Mariah Carey er ákveöin í því aö
gera garöinn frægan í kvikmynd-
um.
Jerry Seinfeld
Seinfeld ræöst harkalega á Emmy-
verölaunin.
Jerry Seinfeld fúll út í
Emmy-verðlaunin:
Emmy-
verðlaun-
in eru
asnaleg
Jerry Seinfeld hefur ekki verið of-
arlega í huga íslendinga síðan hann
kom til íslands hér um árið, lenti í
útistöðum við dyraverði og yfirgaf
landið í fússi. Jerry er enn að grínast
þótt hann haldi ekki úti sínum reglu-
legu sjónvarpsþáttum. Nýlega var
hann með uppistandssamkomu í New
York þar sem hann kom áhorfendum
sínum meðal annars á óvart með því
að gera harða hríð að Emmy-verð-
laununum sem hefur verið frestað í
annað sinn. „Ég er ánægður með að
ansans Emmy-verðlaunin eru ekki á
dagskrá. Emmy-verðlaunin eru asna-
leg. Þau eru bara haldin fyrir athygl-
issjúka lúsera svo þeir geti óskað
hver öðrum til hamingju með að vera
í fóstu starfi."
Þessi ummæli Seinfelds þykja sér-
staklega áhugaverð í ljósi þess að
verkefnastaðan hjá honum er ekki
upp á marga flska um þessar mundir.
Á þeim árum sem hann hélt úti viku-
legum þáttum sínum fékk hann ein-
ungis sex tilnefningar og tapaði í öll
skiptin. Þátturinn sjálfur var til-
nefndur sjö sinnum og vann einu
sinni til verðlauna. Það er því helst
spumingin um hvaða athyglissjúku
lúsera Seinfeld er að tala um.
Ert þú oð tapa réttindum
Eftirtaldir lifeyrissjóðir hafa sent sjóðsfélögum
yfirlit um iðgjaldagreiðslur ó árinu 2001:
Lífeyrissjóður Austurlands
JfJ Lifeyrissjóður Bolungarvíkur
Lífeyrissjóðurinn Framsýn
Lífeyrissjóðurinn Hlíf
m Lífeyrissjóðurinn Lífiðn
Lífeyrissjóður Norðurlands
Jfl Lífeyrissjóður Rangæinga
Lífeyrissjóður sjómanna
Lífeyrissjóður Suðurlands
ÍJk Lífeyrissjóður Suðurnesja
Lífeyrissjóður Vestfirðinga
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja
JfJ Lífeyrissjóður Vesturlands
KX Sameinaði lífeyrissjóðurinn
Fáir þú ekki yfirlit,
en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef launaseðlum ber
ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta og eigi síðar en
1. nóvember n.k.
Við vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist. Þar á meðal má nefna:
Ellilífeyri
Barnalífeyri
Makalífeyri
Örorkulífeyri
Gættu réttar þíns
Ti! þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota,
skulu launþegar innan 60 daga frá dcgsetningu yfirlits ganga úr skugga um skii vinnu-
veitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskií á iðgjöldum skal launþegi innan sömu
tímamarkc ieggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er i vanskilum.
Komi athugasemd ekki rram frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur
fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi
lífeyrissjóðnum ekki veríð kunnugf um iðgjaldakröfuna.