Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2001, Blaðsíða 53
65
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001
I>V Tilvera
Hrísgrjónajurtum plantað
Á vissu vaxtarskeiöi eru hrísgrjónaplöntur ræktaöar í vatni en til þess aö þaö sé hægt eru hlaönir lágir garöar
sem brjóta akrana upp í hólf.
Villtur hampur
Hampur vex eins og illgresi á ökrun-
um í kringum Dali og þar sem plant-
an er mjög blaðfögur gat ég ekki
stillt mig um aö tína nokkur blöö.
veldið stórlega ýktar og tilheyra
löngu liðnum tíma. Hún sagði að
vísu hugsanlegt að mæðraveldið
væri enn við lýði í afskekktum
sveitahéruðum. Julie sagði okkur
einnig að rithöfundurinn James
Hilton hefði átt við Lijiang og sveit-
irnar í kring þegar hann skrifaði um
Shangri La, paradís á jörð, í bók sinn
Lost Horizon. Hann hafði rétt fyrir
sér.
Dali
Á Tangtímabilinu (589-907) og
Songtímabilinu (1127-1179) var Dali
Á ferðalagi um Kína:
Shangri La -
paradís á jörð
í maí síðastliðnum fór átján
manna hópur frá íslandi í þriggja
vikna ferð til Kina undir öruggri
stjórn Unnar Guðjónsdóttur, farar-
stjóra hjá Kínaklúbbi Unnar. Ferðin
var i alla staði vel heppnuð og ég
held að mér sé óhætt að segja fyrir
hönd allra ferðafélaganna að ferðin
sé ógleymanleg.
Á ferð okkar um Yunnan-hérað í
Suður-Kína heimsóttum við meðal
annars borgimar Lijiang og Dali.
Borgirnar eru báðar merkilegar en i
mínum huga féll Dali í skuggann af
Lijiang og umhverfí hennar. Lijiang
er einfaldlega fallegasti staður sem
ég hef komið á.
Lijiang
Það fyrsta sem ég tók eftir þegar ég
steig út úr ílugvélinni frá Kunming
til Lijiang var hvað loftið var hreint.
Borgin, sem i daglegu tali er kölluð
Gu Cheng, á sér þúsund ára sögu.
Hún er á búsvæði fólks af þjóðflokki
Naxi sem er lítill á kínverskan mæli-
kvarða og er ekki nema um tvö
hundruð og áttatíu þúsund manns.
Áriö 1996 lagði öflugur jarðskjálfti
stóran hluta borgarinnar í rúst og
um fimm þúsund manns létu lífið. í
kjölfar þess var Lijiang skyndilega í
kastljósinu og árið 1997 var borgin
sett á lista Sameinuðu þjóðanna yfir
sameiginleg menningarverðmæti
mannkyns.
Til cillrar hamingju var gamli hluti
borgarinnar endurreistur í þeirri
mynd sem hann var fyrir jarðskjálft-
ann. í dag er þar mikið af verslunum
sem selja handverk og listmuni og
mikið af góðum matsölustööum. Mat-
urinn í Lijiang var einstaklega góður
og ég man sérstaklega eftir vinaleg-
um stað rétt hjá hótelinu þar sem við
borðuðum tvisvar.
Froskar til sölu
Steinsnar frá Grand Lijiang-hótel-
inu, þar sem við gistum, var afar for-
vitnilegur markaður með mat. Þar
var hægt að fá alls konar grænmeti
sem ég kann ekki nöfnin á, kjöt af
alls konar dýrum, furðufiska, froska
og lófastórar engisprettur. Sölumenn-
irnir höfðu ómælda ánægju af að
bjóða okkur góðgæti sem þeir vissu
að við mundum fúlsa við og hlógu
innilega þegar við brostum vand-
ræðalega til þeirra um leið og við af-
þökkuðum boðið.
Mæðraveldi
Konur af þjóðflokki Naxi klæðast
yfirleitt bláu og samkvæmt sögusögn-
um er rík mæðraveldishefð hjá Naxi-
fólkinu. Konurnar ráða miklu í sam-
félaginu og sjá um alla erfiðisvinnu
en karlmenn annast heimilið og
börnin. Að sögn staðarleiðsögu-
manns okkar í Lijiang, sem kallaði
sig Julie, eru allar sögur um mæðra-
Froskar í matinn
Sölumennirnir höföu ómælda ánægju af aö bjóöa okkur góögæti sem þeir
vissu aö viö mundum fútsa viö og hlógu innilega þegar viö brostum vand-
ræöalega til þeirra um leiö og viö afþökkuöum boöiö.
DV-MYNDIR V. HANSEN
Dansaö meö kínversku lögreglunni
Aö loknum kvöldveröi lentu Islendingarnir óvænt í hópdansinum meö lögreglumönnum frá Peking sem voru í Lijiang
aö skemmta sér. Á myndinni má sjá Unni Guöjónsdóttur og grillir í kollinn á Svanfríöi Guömundsdóttur, nefiö á Hösk-
uldi Jónssyni, Hólmfríöi Ómarsdóttur, Guölaugu Sveinbjarnardóttur, Theódór Sólonsson og Helgu Jónsdóttur.
ein helsta miðstöð menningar og
stjóm- og efnahagsmála í Yunnan.
Borgin er í tæplega tvö þúsund metra
hæð yfir sjávarmáli. Fólk af þjóð-
flokki Bai er í miklum meirihluta og
það hefur búið í héraðinu í rúmlega
þrjú þúsund ár. Landslagið er stór-
brotið en borgin liggur á milli
Cangsha-fjallgarðsins og Erhai-stöðu-
vatnsins sem er um fjörutiu og fimm
kílómetra langt.
Hótelið sem við gistum á í Dali
heitir Asian Star og er uppi á hæð í
göngufjarlægð utan við gamla bæinn.
Útsýnið frá hótelinu er fallegt og
gaman aö horfa yfir borgina sem er í
örum vexti.
SlgHng á Er Hai-vatnl
í Dali eru þrjár sögufrægar pagóð-
ur sem vom reistar á Tang-tímabil-
inu árið 836. Hæsta pagóðan mun
vera sextíu metrar og þrettán sentí-
metrar á hæð en beggja vegna við
hana standa tvær lægri pagóður sem
hvor um sig er um fjörutíu metrar. í
þúsund ár hafa pagóöumar staðið af
sér veður og vinda, nokkra snarpa
jarðskjálfta og nú eru þær tákn borg-
arinnar.
Eftir að hafa skoðað pagóðurnar
fórum við í siglingu á Erhai-vatni
sem er annað stærsta vatn í Yunnan.
í vatninu eru þrjár eyjar og viö kom-
um til Jinsuo eftir tæplega klukku-
stundarsiglingu. Á eyjunni er fiski-
mannaþorp og fiskmarkaður þar sem
hægt var að bragða á alls kyns furðu-
fiskum úr vatninu.
Á leið okkar um þorpið skoðuðum
við búddaklaustur og hluti hópsins
lét spá fyrir sér. Spákonurnar létu
okkur hrista spákvisti og kasta þeim
fyrir framan okkur. Þær lásu síðan
framtíð okkar eftir því sem kvistirn-
ir lágu og létu okkur fá litla snepla
sem sögðu til um örlög okkar. Ef okk-
ur líkaði ekki það sem stóð á miðum-
um gátum við brennt þá í þar til
gerðu keri og þannig minnkað lík-
urnar á því að spáin rættist.
Átu hund af teinl
Af öllum þeim stöðum sem við
heimsóttum í Kína fannst mér
minnst koma til Dali. Ekki má
skilja orð mín þannig að svæðið sé
ómerkilegra en aðrir staðir, það er
af og frá. Mér fannst bara maturinn
ekki eins góður og annars staðar og
fór í fýlu.
Nokkrum dögum áður, í
Kunming, hafði Unnur fararstjóri
látið undan suðinu í mér og útvegað
hundakjöt sem ég var búinn að
hlakka mikið til að smakka. Kjötið,
sem var borið fram á teini, var
ágætt í munni en hefði mátt vera
betur matreitt fyrir minn smekk.
Það var eilítið hrátt og of lítið
kryddað. Samferðafólk mitt var mis-
jafnlega hrifið af þvi að borða hund
en ég held að flestir hafi smakkað
en sumir kvörtuðu yfir því að hund-
urinn hefði gelt í maganum á þeim
í marga daga á eftir.
Eftir á að hyggja var Dali ekki
slæmur staður. Þar fann ég til dæm-
is mjög góða bókabúð sem seldi
bækur á ensku. Búðin var rekin af
kínverskri konu sem hafði verið í
námi á Vesturlöndum og var að
selja bækur sem hún hafði keypt
meðan á námi hennar stóð.
Úti á akri
Eftir að við borðuðum kvöldmat
seinna kvöldið í Dali ákvað ég að
fara í göngutúr um akur sem ég
haföi séð fyrr um daginn. Akurinn
var rétt fyrir ofan bæinn og því ekki
langt að fara.
Ég hef alltaf haft gaman af gróðri
og naut þess til fullnustu að ráfa um
akurinn og skoða hrísgrjóna-, tó-
baks- og maísplöntur. Á vissu vaxt-
arskeiði eru hrísgrjónaplöntur
ræktaðar í vatni en til þess að það
sé hægt eru hlaðnir lágir garðar
sem brjóta akrana upp í hólf. Kín-
verjar nota garðana sem göngustíga
og það gerði ég líka.
Á meðan ég gekk þarna um í ró-
legheitunum og naut lífsins sá ég að
með fram göngustígnum óx mikið af
hampi og við nánari athugun kom í
ljós að hann óx eins og illgresi um
alla borgina. Plantan er einstaklega
blaðfogur og ég gat ekki stillt mig
um að tína nokkur lauf og ...
Eins og jólatré
Þegar ég var búinn að vera á
akrinum í tæpa klukkustund byrjaði
aö dimma og það hraðar en ég á að
venjast og áður en ég vissi af var
komið kolniðamyrkur. Einu ljósin
sem ég sá voru í miðborginni óra-
langt í burtu og til að komast þangað
þurfti ég að rata í gegnum óupplýst
ibúðahverfi í útjaðri borgarinnar.
Satt best að segja leið mér hálf-
bjánalega þegar ég gekk fram hjá
húsum þar sem íbúamir höfðu safn-
ast saman fyrir utan til að elda og
borða. Ég var eins og álfur út úr hól.
Ofalinn Vesturlandabúi í stuttbux-
um, með sólhatt og myndavél um
hálsinn. Skómir sem ég var í kost-
uðu líklega meira en árslaun sumra
fjölskyldnanna og belgurinn óþægi-
lega stór undir þröngum stutterma-
bolnum.
Þama upplifði ég líka einstaka
kurteisi og gestrisni Kínverja. Það
brostu allir til min, og hlógu ömgg-
lega í hljóði, og buðu mér að borða
með sér. Ég þáði tebolla hjá einni
fjölskyldu og þrátt fyrir að viö skild-
um ekki orð af því sem okkur fór í
milli var þetta skemmtilegasta teboð
sem ég hef farið í hingað til. -Kip