Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2001, Blaðsíða 61
73
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001__________________________________________
2>V Tilvera
Afmælisbörn
John Cleese 62 ára í dag
Breski leikarinn og háðfuglinn John Cleese
fæddist þann 27. oktðber 1939 og er því 62 ára
í dag. Cleese menntaði sig í hinum virta
Cambridgeháskóla og var síðan frægur fyrir
þátttöku sína í hinum fræga grínhópi Monty
Python sem bæði kom fram í sjónvarpi og
kvikmyndum. Einnig lék hann lengi I þáttun-
um Fawlty Towers. Undanfarin ár hefur hann
sést í hverri kvikmyndinni á fætur annarri og
má þar nefna A Fish Called Wanda, Fierce Cr-
eatures og Rat Race sem nú er sýnd í kvik-
myndahúsum borgarinnar.
Julia Roberts á afmæli á morgun
Óskarsverðlaunahaflnn og leikkonan Julia Ro-
berts er afmælisbam morgundagsins. Hún fæddist
þann 28. október 1967 og verður því 34 ára á morgun.
Julia, sem heitir fullu nafni Julie Fiona Roberts, ólst
upp í bænum Smyma í Georgíufylki. Hún verður
vinsælli með hverju árinu en óhætt er að segja að
stjama hennar hafl skinið hvað skærast á ósk-
arsverðlaunahátíðinni í ár sem þar sem hún fékk
verðlaunin fyrir hlutverk sitt í myndinni Erin
Brockovich. Meðal annarra vinsælla mynda sem hún
hefur leikið i eru Pretty Woman. Runaway Bride, My
Best Friend’s Wedding og Steel Magnolias.
Stjörnuspá
Gildir fyrir sunnudaginn 28. október og mánudaginn 29. október
Vatnsberinn 120. ian.-i8. febr.i:
Spá sunnudagsms
Réttast væri fyrir þig að
halda vel á spöðunum á
næstunni. Gefðu þér þó
nægan tíma með fjölskyldunni, hiin
hefur orðið dálítið útundan hjá þér.
Spá mánudagsms
Mikið verður um að vera í kringum
þig fyrri hluta dagsins. Mun ró-
legra verður síðdegis en í kvöld
fyllist allt af gestum heima hjá þér.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
Spá sunnudagsms
Sjálfstraust þitt er með
meira móti uni þessar
mundir. Þess vegna er
einkar heppilegt að ráðast í verk-
efni sem hafa beðið lengi.
Fréttir sem þú færð eiga eftir að
breyta heilmiklu hjá þér og vera
kann að þú þurfir að breyta áætl-
unum þínum eitthvað.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúní):
' Þú færð ekki mikinn
tíma til umhugsunar
áður en þú verður að
taka ákvörðun. Þess vegna skaltu
leita þér ráðleggingar.
Spá sunnudagsins
'Þú verður fyrir einstöku
láni í fjármálum, liklega
gerir þú einstaklega góð
kaup. Samningamálin í kringum það
allt saman gætu hins vegar tekið á.
Spá mánudagsins
Nú fer að sjá fyrir endann á mikilli
töm og nýir tímar taka senn við.
Þú horfir bjartsýnn fram á veginn
enda engin ástæða til annars.
Fiskarnir (19. febr.-20. marsl:
Spá sunnudagsins
i'Heimilislifið á hug þinn
allan og þú hugar að
endurbótum á heimil-
inu. Allir virðast reiðubúnir til
þess að leggja sitt af mörkum.
Þú þarft að gæta vel að eigum þín-
um og að vera ekki hlunnfarinn í
viðskiptum. Hikaðu ekki við að leita
hjálpar ef þér frnnst þörf á þvi.
Nautið (20. apríl-20. maí.i:
Spa simnudagsins
Þú grynnkar vemlega
á skuldunum, það er
að segja ef þú skuldar
eitthvað, þvi að þér græðist óvænt
meiri upphæð en þú áttir von á.
Spa manudagsins
Vinur biður þig um að gera sér greiða.
Þú skalt verða vel við þeirri bón. Ekki
er víst að þess sé langt að bíða að þú
þurflr að biðja hann hjálpar.
Krabbinn 122. iúní-22. iúlí):
Spá mánudagsins
Þú færð fréttir af fjarlægum vini og
þið leggið á ráðin um að hittast. Það
gæti kostað heilmikið ferðalag hjá
þér en það yrði mjög skemtilegt.
Lióniö (23. iúlí- 22. áeúst):
Spá sunnudagsins
Vinir þínir koma þér
reglulega á óvart með
undarlegu uppátæki. Satt
best að segja rekur þig í rogastans.
Happatölur þínar era 6,16 og 23.
Gefðu ekki meira í skyn en nauð-
synlegt er í ákveðnu máli. Það er
betri að bíða um sinn með að
segja frá áætlunum.
Vogin (23. sept.-23. okt.i:
Draumar þínir rætast
á næstunni og þú verð-
' f ur í skýjunum. Það er
sennilega leitun að hamingjusam-
ari manneskju.
Þú nýtur mikillar virðingar í vina-
hópnum og til mikils er ætlast af
þér. Félagsmálin standa með mikl-
um blóma og þú nýtur þín vel.
Bogmaðurinn (22. nóv.-2i, des.t
Spa sunnudagslns
i, Þú sérð ekki eftir því
að leggja dálítið hart
að þér um stundarsak-
ir. Það borgar sig svo sannarlega.
Happatölur þínar eru 6, 9 og 20.
Reyndu að eiga stund fyrir sjálfan þig
og ástvin þinn. Þú hefur haft of mikið
að gera undanfarið og það getur verið
óheppilegt fyrir sambönd til lengdar.
Mevian (23. áeúst-22. sept.):
Spá sunnudagsins
Þér bjóðast ný tæki-
►færi og það reynist þér
dálítið erfitt að velja á
milli þeirra. Þú fæst við flókin
samningamál.
Spa mánudagsins
Þú færð skemmtilegar fréttir sem
lífga verulega upp á daginn hjá
þér. Vinir þínir skipuleggja ein-
hverja skemmtun í kvöld.
Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóv.i:
Spá sunnudagsms
Breytingar verða í
|(kringum þig og þú
fagnar þeim svo sann-
arlega. Það verður heldur rólegra
hjá þér en verið hefur undanfarið.
Láttu engan telja þér hughvarf ef
þú ert viss um hvað það er sem
þú vilt. Gefðu þér betri tíma fyrir
sjálfan þig og hreyfðu þig meira.
Steingeitin (22. des.-19. ian.k
Einhver misskilningur
gerir vart við sig milli
ástvina. Mikilvægt er
að leiðrétta hann sem fyrst, annars
er hætta á að hann valdi skaða.
Spá mánudagsins
Áhugamál þín eru eitthvað að hreyt-
ast. Það er engin ástæða til að hafa
áhyggjur af þessu, helsur skaltu
njóta þess að eignast ný áhugamál.
Verk Gylfa Sveinssonar vekja forvitni vegfarenda:
Legsteinn um
Móöur Jörð
- listamaðurinn vill hefja ræktun
styrjuhrogna en mætir ekki skilningi
Margir þeir sem átt hafa leið um
Ölfusveginn á milli Þorlákshafnar
og Hveragerðis hafa velt vöngum
yflr ómerktum verkum sem sjá má
bæði á vinstri og hægri hönd, rétt
við bæinn Læk. Hafa sumir jafnvel
talið að hér væri um einhvers kon-
ar djöflaverk að ræða en engar upp-
lýsingar var að fá á næstu bæjum
um verkin.
Ekki var listamaðurinn auðfund-
inn en loks tókst fréttaritara að hafa
uppi á honum. Hann er Gylfi
Sveinsson og vill lítt hafa sig í
frammi. í stuttu spjalli við
DV sagðist hann ekki lita á
sig sem listamann. „Þessi
verk mín eiga að tákna og
vekja athygli á eyðingu jarð-
arinnar. Móðir Jörð er
hreyfilistaverk og hringur-
inn utan um krossinn snýst
ef ýtt er við honum. Þarna er
ég að túlka jarðsetningu
Móður Jarðar,“ sagði Gylfi.
Önnur listaverk eftir Gylfa
eru hjá Móður Jörð, en það
eru tveir stólpar úr járni og
skreyttir örfáum „laufblöð-
um“, einnig úr járni. Hinum
megin við veginn eru sams
konar stólpar, auk annars
listaverks sem Gylfi segir
Móöir Jörð
Hér er sjálf Móðir Jörð, jarð-
sett í Ölfusinu.
—
DV-MYNDIR EVA HREINSDÓTTIR
Upplýst
Þetta verk Gylfa Sveinssonar er
hægt að lýsa að neðanverðu eins
og sjá má.
sömuleiðis eiga að tákna og vekja
athygli á eyðingu trjáa, gróðurs og
jarðar.
Gylfi Sveinsson á landspildur
þarna í Ölfusinu og sagðist hafa haft
mikinn áhuga á að koma á fót rækt-
un styrjuhrogna. Yfirvöld hefðu
hins vegar ekki haft áhuga á að
styðja hann en hann sagðist jafnvel
búast við að einhvern tímann fari
hann út í fiskeldi þarna á staðnum.
Hann ætti tækin og bygginguna til
þess. -eh
Útilist
Þriðja verkið sem blasir við vegfarendum í Ölfusi.
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Símí 581-2275 ■ 568-5375 ■ Fax 568-5275