Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2001, Blaðsíða 35
47
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001
DV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Björgólfur á sjúkrabeði með bikar KR
Björgólfur er baráttumaður sem gefur sig af lífi og sál í verkefni sín og sést á tíöum lítt fyrir. Hér sést hann ásamt
Þormóði Egilssyni fyrirliða KR sem er með bikarinn, Jónasi Kristinssyni, Magnúsi Schram og Atla Eövaidssyni og fleir-
um taka við langþráðum bikar fyrir KR. Björgótfur var í afturbata eftir hjartaáfaii.
DV-MYND GVA
Fjörutíu milljarðar?
Eftir bestu heimildum DV er verk-
smiðjan nú svo eftirsótt að virtur
banki í Evrópu hefur tekið að sér um-
sjón sölunnar og mun velja kaupendur
sem fá að gera tilboð. Samkvæmt nýút-
kominni bók, íslenskir milljarðamær-
ingar eftir Pálma Jónasson, þar sem
fjaliað er um Björgólfana báða, er talið
að söluverð verksmiðjunnar sé um 40
miUjarðar króna en aukinn áhugi
kaupenda og milliganga virts banka
gæti þýtt hærra verð.
Að standa uppi með eign sem hugs-
anlega selst á 40 miiljarða eða meira
eftir aðeins átta ára starf hlýtur að telj-
ast ríflega viðunandi. Þetta er sérstak-
lega áhugavert i ljósi þess að við-
skiptaumhverfi eystra hefur lengst af
ekki verið talið við hæfi annarra en
hörkutóla af fyrstu gráðu en margir
segja að Björgólfur Thor sé það
, einmitt.
Það var almennt álit manna í ís-
lensku viðskiptalífi fyrstu árin eftir
Húsið sem hann ólst upp
í á Framnesvegi
Björgólfur ólst upp í vesturbænum,
lék fótbolta með KR og hefur aldrei
gleymt því. Hann hefur markað djúp
spor í sögu síns gamla féiags.
gjaldþrot Hafskips að Björgólfur ætti
frekar erfitt uppdráttar þótt hann legði
ekki árar í bát. Hann hefur alla tíð ver-
ið vel liðinn meðal viðskiptamanna og
naut nokkurrar samúðar kollega sinna
eftir þá dýfu sem Hafskip tók og
Björgólfur óhjákvæmilega með þvi.
Björgólfur kominn aftur
Heimildarmaður DV lýsti því svo að
þegar Björgólfur hélt upp á sextugsaf-
mæli í byrjun ársins 2001 með stór-
brotinni veislu á Grand Hotel þar sem
ekkert var til sparað og nokkur hund-
ruð manns boðið hefði verið ljóst að
hann væri að sýna kollegum sínum að
nú væri hann kominn í álnir á ný.
Heimildarmaðurinn sagði jafnframt að
menn samgleddust Björgólfi i vel-
gengni hans og teldu hann vel að auð-
æfum sínum kominn.
En hvemig má það gerast að fyrrum
forstjóri fyrirtækis sem margir telja að
hafi verið knúið í gjaldþrot standi uppi
15 ámm seinna með eignir sem metn-
ar em á 10 milljarða.
í áðumefndri bók, Islenskir millj-
arðamæringar, em eignir þeirra feðga
taldar nema tugum milljarða. í óút-
kominni bók Sigurðar Más Jónssonar
blaðamanns, sem einnig fiallar um
ríka íslendinga, er Björgólfur Thor tal-
inn ríkastur islendinga með eignir upp
á 15 milljarða en ríflega sextugur faðir
hans er talinn eiga 10 milljarða.
Vestast í vesturbænum
Björgólfur Guðmundsson fæddist í
Reykjavík 2. janúar 1941 í nýlega
hemumdu landi. Hann er sonur Guð-
mundar Óiafssonar, verslunarmanns í
Reykjavík, og Kristínar Daviðsdóttur
konu hans. Systkinin era fimm talsins.
Elstur er Davíð Kristján, f. 1938, þá
Björgúlfur, síðan Sigríður, f. 1945,
Björg, f. 1949 og lestina rak Óiafur
Kristófer, f. 1960.
Björgólfur ólst upp við hófsaman
efnahag en Guðmundur faðir hans af-
greiddi árum saman í timburversl-
uninni Völundi á Skúlagötu.
Björgúlfur sleit þannig sínum bams-
skóm í grónu og kyrrlátu samfélagi eft-
irstríðsáranna í vesturþænum í
Reykjavík, lengi á Framnesveginum.
Hann þótti starfsamur piltur sem hafði
gaman af fótbolta og lék meðal annars
með drengjaliði KR í knattspymu.
í samtali við Mbl. 1999 rifiaði
Björgólfur upp fyrstu utanferð sína
þegar hann var 12 ára og sagði:
„Ég hef búið erlendis og verið þar
langdvölum. Oft hefur það verið
merkileg upplifun í sjálfu sér. Engu að
síður jafnast ekkert á við þessa fyrstu
ferð..."
Þetta ferðalag var til Danmerkur
með viðkomu í Færeyjum með Dronn-
ing Alexandrine og vissulega áttu sigl-
ingar eftir að vera ríkur þáttur í lífi
Björgólfs unga.
í skólanum er skemmtilegt
að vera
Björgólfur gekk i skóla í Melaskóla,
Gaggó Hring og Verslunarskólann og
meðal bekkjarbræðra var margt þjóð-
þekktra manna, þar á meðal Valdimar
Guðnason sem lék eitt aðalhlutverkið
síðar í falli Hafskips og starfaði þá hjá
N. Mancher endurskoðun.
Björgólfur útskrifaðist 1962 og eftir
örstutta viðkomu í lögfræðinámi í Há-
skóla íslands hellti hann sér út í ís-
lenskt viðskiptalíf og rak meðal annars
húsgagnaverslun sem hét KR-húsgögn,
á hominu á Vesturgötu og Ægisgötu, í
samstarfi við Davíð bróður sinn. Hann
kom víða við og varð fljótlega nokkuð
áberandi í íslensku viðskiptaiífi, lengst
af sem forstjóri Dósagerðarinnar í
Kópavogi á sjöunda og áttunda ára-
tugnum. Úr þvi starfi réðst hann til
Hafskips árið 1978 fyrir tilstilli Ragn-
ars Kjartanssonar félaga síns og Út-
vegsbankans sem hafði áhyggjur af
stöðu skipafélagsins.
Ekki einfaldur maöur
Björgólfur hefur tekið til hendinni
víðar en á sviði viðskipta. Hann var
einn af stofhendum SÁÁ árið 1977 og
var annar í röð formanna samtakanna
skömmu síðar en staldraði ekki lengi
við í formannsstólnum.
„Björgólfur er ekkert einfaldur mað-
ur og honum verður ekki lýst í fáum
orðum,“ sagði Þórarinn Tyrfingsson,
yfirlæknir SÁÁ, í samtali við DV.
„Hann var farsæll formaður sem við
litum upp til og hann er sannarlega
maður framkvæmdanna því hann er
alltaf með eitthvað á prjómmum."
Þetta voru ekki einu afskipti Björg-
ólfs af meðferðarmálum þvi hann
stofnaði ásamt þremur öðrum íslend-
ingum meðferðarstöð í Danmörku á ní-
unda áratugnum. Þetta var metnaðar-
full stöð sem bar hið fagra nafn Von
Veritas og samstarfsmenn Björgólfs
vora þeir Fritz Henrik og Edwald Ell-
ert Berndsen ásamt næturklúbbaeig-
andanum Þorsteini Viggóssyni. Von
Veritas fékk mikía umfiöllun í dönsku
pressunni, einkum vegna fiármálaerf-
iðleika en stöðin silgdi skömmu síðar í
þrot.
Á undan sinni samtíð
Helgi Magnússon, framkvæmda-
stjóri Hörpu-Sjafnar málningarverk-
smiðju, var endurskoðandi Hafskips á
þeim árum sem lætin vora hvað mest.
„Ég hef þekkt Björgólf í um 20 ár og
hann er einn af hugmyndaríkustu
mönnum sem ég hef kynnst, eljusamur
og duglegur. Það er mín skoðun að
hann hafi verið um margt á undan
sinni samtíð og Hafskip hafði því mið-
ur ekki fiárhagslega burði til að hrinda
hugmyndum hans í framkvæmd en
það hafa aðrir gert síðan.
Það vora öfl í þjóðfélaginu sem vildu
Hafskip út af markaðnum og ekki spillti
ef hægt var að koma ákveðnum þing-
manni á kné í leiðinni."
Þama á Helgi án efa við Albert Guð-
mundsson sem sat í stjóm Hafskips og
var jafnframt i bankaráði Útvegsbank- •
ans og sagði af sér ráðherradómi í eft-
irmálum Hafskipsmála.
Trygglyndi Hafskipsmanna
Maður sem þekkir Björgólf Guð-
mundsson vel sagði að trygglyndi
væri ríkur þáttur í fari hans og það
sæist best á því hvemig þeir sem
urðu mest fyrir barðinu á ákæru-
valdinu hafa stutt hver annan. Nán-
asti samstarfsmaður Björgólfs, Ragn-
ar Kjartansson, er heilsulaus og á
erfitt með að tjá sig eftir erfið veik-
indi en Björgólfur og fleiri gamlir fé-
lagar heimsækja hann reglulega og
sýna honum mikla ræktarsemi. Það
er ekki eina dæmið um samheldni
fyrrum Hafskipsmanna því enn eru
reglulega haldnar árshátíðir Haf-
skips og munu fá ef nokkur dæmi
slíks þegar í hlut á fyrirtæki sem hef-
ur ekki starfað í 16 ár.
Það verður ljóst af lestri bókar
Helga Magnússonar og samtölum við
menn sem þekkja Björgólf að hann er
ekki allra. Hann hefur þann sið að
taka menn sem hann hefur dálæti á
og setja þá á stall og þá geta þeir ekk-
ert gert rangt. Helgi rekur dæmi um
það hvemig slíkir gæðingar Björg-
ólfs á Hafskipsárunum fengu að fara
sínu fram undir hlífiskildi hans þótt
það væri fyrirtækinu til tjóns. Á
sama hátt setur Björgólfur menn
stundum á svartan lista og sér þá fátt
jákvætt í fari þeirra.
KR-sport
Björgólfur er gríðarlega vinnusam-
ur maður og ætlar sér ekki alltaf af.
Eins og lýst er hér að framan er hann
alltaf með eitthvað á prjónunum og
rækir lítt eða ekki hefðbundin
áhugamál í tómstundum heldur er
vakinn og sofinn í þeim viðskiptum
sem hann er með fingurna I hverju
sinni.
Björgólfur er mjög stórhuga mað-
ur og stundum eiga menn erfitt með
að fylgja honum á fluginu. Þess
vegna var hann misjafnlega vel lið-
inn af samstarfsmönnum sínum á
Hafskipsárunum og víðar og ef til vill
er það táknrænt að í þeim verkefn-
um sem hann hefur auðgast mest á
undanfarin ár hefur hann verið nán-
ast einn á báti, aðeins með Björgólfi
syni sínum og ekki þurft að spyrja
neinn ráða.
Fjölskyldan
Björgólfur er afar vel giftur í fleiri
en einum skilningi þess orðs. Eigin-
kona hans er Þóra Hallgrímsson,
dóttir Hallgríms Fr. Hallgrímssonar
sem oftast var kenndur við Skeljung.
Móðir hennar var Margrét Þorbjörg
Thors, dóttir Thors Jensens og Mar-
grétar Þorbjargar Kristjánsdóttur.
Björgólfur og Þóra búa við Vestur-
brún í Reykjavík. Þau eiga þrjú böm
á lífi, Hallgrím, Evelyn Bentínu og
Björgólf Thor en Margrét, næstelsta
dóttir þeirra, lést af slysforum 33 ára
að aldri.
Björgólfur er afar vinnusamur
maður og tekur víða til hendinni.
Hann er einn af burðarásunum í
rekstri knattspyrnufélagsins KR sem
er hans gamla félag síðan í unglinga-
flokki og stofnaði í kringum það KR-
sport sem hefur látið til sin taka. Það
var einmitt á valdatíma Björgólfs þar
innan veggja sem félagið fékk lang-
þráðan Islandsmeistaratitil í íþrótt-
inni og vakti athygli þegar Björgólfur
veitti bikamum viðtöku á sjúkrabeði
þar sem hann var í afturbata eftir
hjartaáfall.
Ástríða og bisness
Þeir sem þekkja Björgólf vel segja
að hann sinni knattspymu og málum
tengdum SÁÁ af ástríðu fremur en
viðskiptaáhuga en líti á mörg önnur
verkefni sín fyrst og fremst sem við-
skipti og ekkert annað. Þannig sé
hann sérstætt sambland af ástríðu-
manni sem sést lítt fyrir og öguðum
og hófstilltum bisnessmanni.
Björgólfur er lítt gefinn fyrir að fiöl-
miðlar fialli um hann persónulega og
sagði í samtali við blaðamann DV að
hann heföi fengið sinn skammt og ríf-
lega það þegar galdrabrenna Hafskips-
málsins stóð í hvað björtustu báli.
Hann hefur til skamms tíma verið lítt
virkur í íslensku efnahagslífi heldur
starfað á erlendum vettvangi með góð-
um árangri. Hann hefur þó tekið þátt í
stofnun bókaforlags með gömlum fé-
laga sínum úr Hafskip, Páli Braga
Kristjónssyni og mun því félagi, Nýja
bókafélaginu, hafa vaxið fiskur um
hrygg. Kannski boða auknar álnir
Björgólfs jafhframt aukna og virkari
þátttöku hans í ævintýrum íslensks
efnahagslífs. PÁÁ
Ekkl fyrir fiölmiöla
Björgólfur Hefur forðast sviðsljós fjölmiðla síðustu ár, en þeir sem til hans
þekkja lýsa honum sem trygglyndum og eljusömum manni.