Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2001, Síða 47
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001
I>V
56
Helgarblað
Aðsókn fimmfaldast milli ára:
Ljósmyndin er að-
gengileg fyrir alla
Lækjartorg 14. júní 1942.
EIMSKIP
Aö lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón meö eignarhlut
sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína svo sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun
mun í þessu skyni stofna VS-reikning í nafni viðkomandi hluthafa. Hluthöfum félagsins hafa
verið sendar skriflegar upplýsingar um rafræna skráningu og hlutafjáreign sína eins og hún
er skráð í hluthafaskrá félagsins.
Stjórn Hf. Eimskipafélags íslands
- segir María Karen Sigurðardóttir forvörður
Allt stefnir i að aðsókn að Ljós-
myndasafni Reykjavíkur fimmfald-
ist milli áranna 2000 og 2001. Þetta
þakkar María Karen Sigurðardótt-
ir, forvörður safnsins, betri stað-
setningu þess og breyttri starfsemi
en ljósmyndasafnið flutti úr Borg-
artúni 1 niður í Grófarhús í
Tryggvagötu á síðasta ári. Þar er
það uppi á 6. hæð.
Sýnilegri en áður
„Við erum orðin miklu sýnilegri
en áður og það var mjög sterkt hjá
borginni að færa menninguna
svona niður í miðbæ. Listasafn
Reykjavíkur i Hafnarhúsið og okk-
ur hingað í Grófarhúsið, ásamt
Borgarbókasafninu og Borgarskjala-
safninu. Þetta er ansi góður pakki
sem myndar sterka heild því söfnin
vinna vel saman og styrkja hvert
annað,“ segir María Karen Sigurð-
ardóttir, forvörður í ljósmyndasafn-
inu. Hún segir aðstöðu til sýningar-
halds líka hafa breyst til muna.
Áður hafi ljósmyndasafnið ekki haft
fastan aðgang að sal en í Grófarhús-
inu sé sýningarsalur sem söfnin
skiptist á um að nota og ljósmynda-
safnið hafi skipulagt þrjár fastar
sýningar á ári, eina í febrúar, aðra
yfir sumartímann og þá þriðju í
nóvember. „Við erum alveg komin
með sýningarplan nokkur ár fram í
tímann. Óskir um að fá að sýna ber-
ast víða að og miklu færri komast
að en vilja,“ segir hún.
Ný sýning:
Reykjavík nútímans
Sýningin sem verður sett upp nú
í byrjun nóvember heitir Reykjavik
nútímans. Hún er eftir 17 starfandi
ljósmyndara sem hafa verið að
mynda borgina á síðustu vikum og
mánuðum. „Við fáum þeirra sýn á
hvernig samtíminn er í Reykjavík.
Myndirnar eru að tínast í hús og
það er mjög gaman að sjá hversu
fjölbreyttar þær eru,“ segir María
Karen. Hún segir sýninguna
Reykjavík nútímans vera afmælis-
sýningu því 20 ár séu frá því safnið
var opnað. í fyrstu hafi það verið
einkafyrirtæki en árið 1987 hafi
Reykjavíkurborg tekið við rekstrin-
Hvert úr sinni áttinni
María Karen segir öflugan hóp
vinna á safninu. Þar starfi sagn-
fræðingur, sérmenntaður í ljós-
myndum, listfræðingur með ljós-
myndir sem sérgrein og tveir ljós-
myndarar, annar með mikla þekk-
ingu á safninu. Sjálf er hún mennt-
uð i forvörslu, viðgerðum og varð-
veislu á ljósmyndum. „Við komum
hvert úr sinni áttinni, með mennt-
un víða að úr heiminum og náum
að blanda henni vel saman,“ segir
hún.
DV-MYND HILMAR ÞÖR
Forvörðurinn
„Aö skoöa gamla mynd er eins og aö bregða kíki upp aö auga og sjá inn
í horfinn heim, “ segir María Karen Siguröardóttir.
UÓSMYNDARI MAGNÚS ÓLAFSSON.
Við sundskálann við Skerjafjörð
1909.
En telur María Karen að áhugi á
ljósmyndinni sé að aukast? „Ljós-
myndun sem listform er að eflast,“
svarar hún og heldur áfram: „Svo er
það þannig að ljósmyndin er að-
gengQeg fyrir alla enda ölumst við
upp við ljósmyndir. Allir eiga
myndavélar og myndir heima. Þetta
er því form sem við erum ófeimin
við að skoða og túlka. Það er aðeins
öðruvísi með myndlistina. Hún er
fjarlægari."
Að sjá inn í horfinn heim
Stærstur hluti myndanna á safn-
inu tengist Reykjavík á einhvem
hátt enda er hlutverk þess meðal
annars að festa samtímann í borg-'
inni á filmu og afla heimildaljós-
mynda um sögu borgarinnar. María
Karen kveðst njóta þess að upplifa
söguna gegnum gamlar myndir á
safninu. „Það er eins og að bregða
kíki upp að auga og sjá inn í horf-
inn heim,“ segir hún.
En á hún sér einhverja uppá-
haldsmynd á safninu?
„Nei, enga eina“ segir hún og
bætir við: „Ég held upp á þær allar
með tölu og reyni að varðveita þær
sem best,“ -Gun.
MYND ÚR SAFNI ALÞÝÐUBLAÐSINS, UÓSMYNDARI
GUNNAR HEIÐDAL.
Loönutankur springur í Hafnarfiröi
í okt. 1971.
UÓSMYNDARI BJARNLEIFUR BJARNLEIFSSON.
I heimahúsi á 7. áratugnum.
Hálf önnur milljón mynda
Ljósmyndasafn Reykjavíkur á
eina og hálfa milljón mynda, filmur,
skyggnur og plötur. Einnig fjölda
áhalda, tækja og muna sem tengjast
ljósmyndum enda hafa margir
gaukað að því efni gegnum tíðina.
INNKOLLUN
vegna rafrænnar skráningar hlutabréfa í
Hf. Eimskipafélagi íslands
Mánudaginn 5. nóvember 2001 veröa hlutabréf í Hf. Eimskipafélagi íslands tekin til rafrænnar
skráningar hjá Verðbréfaskráningu (slands hf. í samræmi við ákvörðun stjómar Hf. Eimskipafélags
íslands þar að lútandi. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann
dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi við ákvæði
laga og reglugerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa.
Öll hlutabréf í Hf. Eimskipafélagi íslands verða tekin til rafrænnar skráningar en þau eru öll
í einum flokki og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa
leika á að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Hf. Eimskipafélags íslands að
staðreyna skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár Hf. Eimskipafélags íslands,
Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík eða í síma 525 7188 eða með tölvupósti á
hlutabref@eimskip.is. Komi í Ijós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið
skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s.
veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka, verðbréfafyrirtæki
eöa sparisjóð sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands hf, fyrir
skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og
því er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar
skráningar hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í
félaginu að undanskildum sjálfum skráningardeginum.