Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2001, Qupperneq 58
\
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001
Islendingaþættir_______________________________________________________________________________________________________py
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
<•*
90 ára
Guörún Helgadóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Einar Guömundsson,
Klettaborg 2, Akureyri.
85 ára
Siguröur Þorbjörnsson,
Mýrarbraut 27, Blönduósi.
75 ára
Katrín Pálsdóttir,
Njálsgötu 86, Reykjavík.
Lára Hannesdóttir,
Jökulgrunni 4, Reykjavlk.
Jón Erlingur Þorláksson,
Skólagerði 22, Kópavogi.
Glen Cray,
Brekkustíg 29a, Njarövík.
Guðfinnur Þorgeirsson,
Brimhólabraut 8, Vestmannaeyjum.
60 ára
Hafþór Þorbergsson,
Réttarbakka 25, Reykjavík.
Margrét Eiríksdóttir,
Bakkastöðum 159, Reykjavík.
Ólafur B. Kristinsson,
Frostafold 14, Reykjavík.
Sólveig Baldursdóttir,
Miötúni 10, Tálknafiröi.
Guörún Ólafsdóttir,
Ljótunnarstööum, Staöur.
Brynjólfur Ingvarsson,
Reykhúsum 1, Akureyri.
Þóröur Matthías Sigurjónsson,
Fosshólum, Hella.
50 ára
Torfi Karl Antonsson,
Hraunbrún 45, Hafnarfiröi.
Brynja Ólafsdóttir,
Þorbjargarstöðum, Sauðárkrókur.
Þorsteinn Snorri Jónsson,
Bleiksárhllö 37, Eskifiröi.
Bergur Ketilsson,
Hofi, Selfoss.
40 ára
Ingjaldur Kárason,
Háaleitisbraut 119, Reykjavík.
Haraldur J. Baldursson,
Hringbraut 45, Hafnarfiröi.
Kristbjörn Jónsson,
Bóndhóli, Borgarnes.
Hafþór Smári Gylfason,
Sunnuvegi 11, Skagaströnd.
Njáll Haröarson,
Hrafnagilsstræti 10, Akureyri.
Margrét Marietta Munoz,
Skarðshlíð 6j, Akureyri.
Ingibergur Sigurösson,
Birkihllö 21, Vestmannaeyjum.
Sendu afmælisbarninu
kveðju í tilefni dagsins
Farðu á siminn.is
EÐA HRINGDU í SÍMA
SÍMINN
1446
Jóhannes Guömundsson
bóndi að Ánabrekku í Borgarhreppi
Jóhannes Magnús Guðmundsson
bóndi, Ánabrekku, Borgarhreppi,
verður áttatíu og fimm ára á
morgun.
Starfsferill
Jóhannes fæddist á Litlu-Brekku
í Borgarhreppi og ólst upp þar og á
Ánabrekku. Hann stundaði nám í
Bændaskólanum á Hvanneyri
1937-39.
Jóhannes var kosinn í hrepps-
nefnd Borgarhrepps 1950 og sat í
henni til 1986. Hann var einn af
stofnendum Fiskiræktarfélags
Langár 1959 en félagið hlaut síðar
nafnið Veiðifélag Langár. Jóhannes
var í stjórn þess frá upphafi og til
ársins 1997 og var formaður þess all-
an tímann. Hann er nú héiðursfé-
lagi í Landssambandi veiðifélaga.
Fjölskylda
Jóhannes kvæntist 24.4. 1950 Ásu
Ólafsdóttur, f. 13.11.1921, húsfreyju.
Foreldrar hennar: Ólafur Gíslason,
bóndi í Geirakoti í Fróðárhreppi og
sjómaður, og Ólöf Einarsdóttir hús-
freyja. Þau bjuggu seinna í Reykja-
vík. Þess má geta að Ólafur sá
einnig um póstflutninga til Grund-
arfjarðar á sínum tíma.
Dóttir Jóhannesar og Ásu er
Ragnheiður Valdis, f. 17.4.1946, hús-
freyja og ferðaþjónustubóndi á
Litlu-Brekku en maður hennar er
Stefán Magnús Ólafsson, bóndi og
húsasmiður.
Böm Ragnheiðar og Stefáns eru
Ása Björk, f. 1966, en maður hennar
er Runólfur Ágústsson og eiga þau
þrjú börn; Jóhannes Freyr, f. 1970,
en kona hans er Ásthildur Magnús-
dóttir og eiga þau tvö böm; Ólafur
Ágúst, f. 1972 en sambýliskona hans
er Valdís Steinarsdóttir og eiga þau
þrjú börn: Hjörleifur Helgi, f. 1979
en sambýliskona hans er Anna
Dröfn Sigurjónsdóttir.
Jóhannes átti áður dóttur með
Sigurlaugu Júlíusdóttur, f. 11.9.
1918, d. 1991. Hún heitir Kolbrún, f.
28.2. 1940, veitingamaður en maður
hennar var Ingvar Þorleifsson og
eignuðust þau tvö börn. Þau eru
Bjarney Linda þjónn en maður
hennar er Gissur ísleifsson tölvu-
fræðingur og eiga þau fjögur böm;
Guðmundur Vignir veitingamaður
en kona hans er Jórunn Birgisdótt-
ir og eiga þau þrjú börn.
Systkini Jóhannesar: Helga Guð-
fríður, f. 28.10. 1916, maki Sigur-
steinn Þórðarson, látinn, þau eign-
uðust fimm böm; Kristin Fanney, f.
22.5. 1919, maki Hilmar Skagfield,
þau eiga þrjú börn; Ragnheiður Val-
dís, f. 21.7.1920, maki Leónard Pepp-
er, þau eiga fimm börn; Hjördís Þór-
hildur, f. 20.12.1922, hún á eitt bam;
Ásta Jóhanna, f. 15.2. 1922, d. 1955,
maki Thorolf Smith, þau eignuðust
þrjú börn; Óskar Guðmundur Þor-
valds, f. 23.8. 1925, d. 1989, maki
Ragnhildur Einarsdóttir, þau eign-
uðust fjögur börn; Valtýr Haukur, f.
24.4. 1918, d. 28.10. 1927; Guðfríður
Ágústa, f. 23.8. 1925, d. 1927; Valtýr
Haukur, f. 3.7. 1928, d. 4.7. 1928.
Foreldrar Jóhannesar voru Guð-
Attatíu og fimm ára
Andrés Torfason
fyrrv. bóndi að Gileyri í Tálknafirði
Andrés Torfason,
fyrrv. bóndi og verka-
maður að Gileyri í
Tálknafirði, er áttatíu og
fimm ára í dag.
Starfsferill
Andrés er fæddur að
Hlíðarenda í Tálknafirði
og ólst upp á þeim slóð-
um. Hann byrjaði
snemma að létta undir
við bústörf og önnur sveitastörf er
til féllu. Sem ungur maður fór hann
á vertíð í Grindavík og vann enn-
fremur í hvalstöðinni á Suðureyri
og við vegagerð.
Andrés stundaði verkamanna-
vinnu og vörubílaakstur hjá Hrað-
frystihúsi Tálknafjarðar með bú-
skap á Gileyri en vann síðan við
laxeldi í nokkur ár. Þau hjónin eru
nú búsett við Heilbrigðisstofnunina
á Patreksfirði.
Fjölskylda
Andrés kvæntist 27.10. 1948 Krist-
ínu Guðbjörgu Ingimundardóttur, f.
4.4.1919, ljósmóður. Foreldrar henn-
ar voru Ingimundur Jóhannesson, f.
3.3. 1895, d. 8.4. 1973, bóndi í Ystu-
Tungu í Tálknafirði, og kona hans,
Guðbjörg Jóhannesdóttir, f. 28.10.
1887, d. 22.3. 1962.
Böm Andrésar og Kristínar: Ingi-
mundur Guðberg, f. 20.7. 1948, vél-
stjóri hjá Orkubúi Vestfjarða, bú-
settur á Patreksfirði en
kona hans er Sigurjóna
Kristófersdóttir, þau
eiga þrjú böm og sex
barnabörn; Torfi Elis, f.
16.4. 1950, prófdómari
hjá Umferðarráði, bú-
settur í Kópavogi og á
hann eina dóttur og einn
dótturson; Kristjana, f.
12.4. 1957, starfsmaður
íslandspósts, búsett á
Tálknafirði en maður hennar er
Heiðar I. Jóhannsson húsasmiður
og eiga þau þrjú böm.
Systkini Andrésar er upp komust:
Kristinn, f. 29.9. 1917, d. 24.2. 1974,
lengst af verkamaður á Bildudal og
síðan Tálknafirði; Hermann, f. 28.4.
1921, nú látinn, lengi sjómaður og
starfsmaður Sementsverksmiðjunn-
ar, búsettur á Akranesi; Valdimar,
f. 27.7. 1922, lengst af togarasjómað-
ur á Eysteinseyri í Tálknafirði;
Guðrún Jóna, f. 11.6.1924, húsmóðir
á Tálknafirði; Guðriður Jóna, f. 8.4.
1927, húsfreyja á Mörk í Keldu-
hverfi; Ólafur, f. 15.9. 1928, bóndi á
Eysteinseyri; Ásta, f. 23.9. 1932, hús-
móðir í Tálknafirði; Unnur, f. 6.6.
1934, búsett á Eysteinseyri.
Foreldrar Andrésar voru Torfi
Snæbjöm Ólafsson, f. 18.9. 1888, d.
4.4. 1967, b. á Gileyri og síðar Ey-
steinseyri, og Elísabet Guðjónsdótt-
ir, f. 15.1.1897, d. 8.9.1986, húsfreyja.
mundur Þorvaldsson, f. 4.2. 1888, d.
1974, bóndi á Litlu-Brekku, og k.h.,
Guðfríður Jóhannesdóttir, f. 10.4.
1884, d. 1980, húsfreyja.
Ætt
Guðfríður var dóttir Elínar Krist-
ínar Jónsdóttur og Jóhannesar
Magnúsarsonar, Þorsteinssonar á
Gljúfurá.
Guðmundur var sonur Helgu Sig-
urðardóttur, Jónssonar frá Háhóli,
og Þorvalds Erlendssonar Sigurðs-
sonar á Álftárósi. Helga var seinni
kona Þorvalds.
Fimmtug________________
Oddfríður Steindórsdóttir
leikskólastjóri í Hafnarfirði
Oddfríður Steindórs-
dóttir leikskólastjóri,
Lindarberg 58a, Hafnar-
firði, verður fimmtug á
morgun.
Starfsferill
Oddfriður fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp. Hún lauk prófi frá
Fóstruskóla Sumargjafar
1973, og framhaldsnámi
í stjórnum við KHÍ 1998.
Oddfríður var leikskólakennari
og leikskólastjóri hjá Reykjavíkur-
borg 1972-79, leikskólakennari í
Garðabæ 1981-82 og leikskólakenn-
ari, aðstoðarleikskólastjóri og leik-
skólastjóri hjá Hafnarfjarðarbæ frá
1982. Hún hefur verið leikskóla-
stjóri í leikskólanum Hlíðarenda í
Hafnarfirði frá opnum hans 1998.
Oddfríður hefur búið í Hafnarfirði
frá 1974.
Oddfríður sat í fulltrúaráði
Starfsmannafélags Reykjavíkur
1977-79, í fulltrúaráði Félags ís-
lenskra leikskólakennara 1991-93 og
1993-97 og jafnframt formaður í 2.
deild félagsins, sat í ýmsum nefnd-
um á vegum Fóstrufélags Islands og
Félagi íslenskra leikskólakennara,
og hefur sinnt ýmsum tímabundn-
um verkefnum á vegum leikskóla-
deildar Hafnaríjarðar.
Oddfríður var fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í leikskólanefnd 1994-95
og varafulltrúi í félags-
málaráði 1986-90, hefur
setið í stjórn Vorboðans,
félags sjálfstæðiskvenna
í Hafnarfirði, situr í full-
trúaráði flokksins og
blaðstjórn fyrir hönd
Vorboðans.
Fjölskylda
Oddfríður giftist 28.10.
1972, Þórami Jóni Magn-
ússyni, f. 3.1. 1952, útgefanda. Hann
er sonur Magnúsar Ó. Guðbjarts-
sonar sem nú er látinn, og HaOgerð-
ar Guðmundsdóttur húsmóður en
þau bjuggu lengst af í Hafnarfirði.
Böm Öddfríðar og Þórarins eru
Hulda, f. 29.10. 1974, leiðbeinandi í
Hafnarfirði, gift Gunnari Heiðari
Gunnarssyni, f. 15.1. 1974, verka-
manni og eru böm þeirra Úifar
Breki, f. 8.12. 1993, og Aþena Þöil, f.
3.5. 2000; Steindór, 21.7. 1979, hönn-
uður í Hafnarfirði
Systkini Oddfríðar eru ÚLfar
Steindórsson, f. 3.7. 1956, fram-
kvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs í
Reykjavík; Helga Jónína Steindórs-
dóttir, f. 12.1. 1959, verslunarmaður
í Reykjavík.
Foreldrar Oddfriðar eru Steindór
Úlfarsson, f. 15.10. 1929, málm-
steypumeistari, og Sigríður Jóna
Jónsdóttir, f. 28.7. 1928, húsmóðir.
Oddfríður verður að heiman á
afmælisdaginn.
át Árinu eldri
Wmsaœ
Sigfús Sumarliðason, fyrrv.
sparisjóðsstjóri, Borgarnesi, andaöist á
gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut þriöjud. 23.10.
Lilja Guðjónsdóttir, Urðarholti 1,
Mosfellsbæ, iést á heimili sínu
miövikud. 17.10. Jarðarförin hefur fariö
fram I kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Friðgeir Örn Hrólfsson, Seljalandsvegi
24, isafiröi, lést á Sjúkrahúsi ísafjarðar
miðvikud. 24.10.
XJrval
Flosi Ólafsson, leikari,
leikstjóri, rithöfundur,
hagyrðingur, hestamaöur
og bóndi á Bergi I Reyk-
holtsdal, er 72 ára í
dag.
Um lífsbrokk Flosa má
skrifa langar og læröar ritgerðir. Hann
var baldinn I æsku og fram á efri ár en
lauk stúdentsprófi frá MA, prófi úr Leik-
listarskóla Þjóðleikhússins og nam leik-
stjórn og þáttagerö hjá BBC I London.
Þótt Flosi væri fastur leikari hjá Þjóð-
leikhúsinu frá 1961 fullnægði þaö eng-
an veginn ólgandi athafnaþrá þessa
menningarfrömuðar. Hann er höfundur
bóka, skrifaði I dagblöö I áratugi hug-
leiðingar um lífið og tilveruna, semur
leikrit og yrkir nánast ósjálfrátt.
Síöustu árin fyrir sjónvarpsvæðingu
leikstýrði hann æsilegustu sakamála-
framhaldsleikritum sem flutt hafa verið
I íslenskt hljóðvarp.
Meö tillkomu sjónvarpsins skóp hann
fyrstur íslenskt sjónvarpsspaug, samdi
t.d. einu íslensku sjónvarpsóperuna og
framdi óborganleg áramótaskaup, svo
umdeilanleg að þjóöin stóð yfirleitt á
barmi borgarastyrjaldar I janúar.
Aðeins einu sinni mistókst honum þó
hrapalega: Hann ætlaði að grinast meö
poppara meö þvl aö semja og syngja I
sjónvarpið lagið Þaö er svo geggjaö. En
I stað þess að verða brandari varð lag-
ið feikivinsælt og Flosi varð þar meö
sjálfur poppari - alveg óvart.
Gunnar Bragi Guð-
mundsson, forstjóri
NUKA AS, eins stærsta
sjávarútvegsfyrirtækis
Grænlands, er 41 árs I
dag.
Gunnar lauk stúdents-
prófi frá MS, prófi I véltæknifræði við
Tækniháskólann I Óðinsvéum og prófi I
sjávarútvegsfræðum frá Endurmenntun-
arstofnun HÍ. Hann vann I frystihúsum
á unglingsárum, á Höfn og I Færeyjum,
vann hjá Jarðborunum rikisins, hjá
Rannsóknastofnun fiskiönaðarins en
varð gæöa- og þróunarstjóri Royal
Greenland AF, stærsta sjávarútvegs-
fyrirtækis Grænlands 1995 og hefur
veriö forstjóri NUKA AS frá 1998.
Dr. Sverrir Olafsson,
eðlisfræðingur hjá Bri-
tish Telecom, verður
51 árs á morgun.
Sverrir stundaöi nám I
lifefnafræði við Háskól-
ann I Tubingen, nám I
eölisfræði og stærðfræði þar, lauk Dip.
Phys-prófi þaðan og síðan doktorsprófi
I fræöilegri eölisfræði frá Háskólanum I
Karlsruhe. Hann var lektor I stærðfræði
við Lundúnaháskóla, stundaði rann-
sóknir hjá British Telecom á sviði gervi-
tauganeta, leikjafræði og málgreiningar
og er yfirmaður flæknirannsókna þar á
sviði stærðfræðilegrar greiningar og
líkansþróunar af flóknum kerfum, þar á
meðal tölvu- og samskiptanetum.