Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2001, Qupperneq 24
ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2001
I
HHiaag
■ ■ ■■ ■ ■ ■ ■ ■■ ■
tffkni tjg ví§indá
Svart útlit hjá berum Y-litningsins:
* Karlmenn orðnir veikara kyniö
- eiga á hættu að deyja út, segja vísindamenn
Karlmenn eru tregir aö leita sér lækninga og þaö getur komiö í bakið á þeim síöar meir, öllum sem einum, aö mati
vísindamanna.
Karlmenn
munu „deyja
út“ áður en
langt um líður
ef þeir fara ekki
að gæta heilsu
sinnar betur er
álit nokkurra vísindamanna sem
< sérhæfa sig i heilsumálum karl-
manna. Einn fremsti vísindamaður
heimsins í heilsu karlmanna, Sieg-
fried Meryn, prófessor við háskól-
ann í Vín, Austurríki, telur að staða
karlmannsins í þjóðfélagi hafi
breyst mikið undanfarin 25 ár og þá
sérstaklega á Vesturlöndum.
Þrjóskast við
Að mati Meryn eru konur orðnar
ráðandi afl í hinum vestræna heimi.
Þær eru gæddar mun hærri tilfinn-
ingagreind, eiga auðveldara með að
fóta sig í samfélaginu og hafa mun
meiri stjóm á lífl sínu en karlmenn.
Karlmenn þurfa hins vegar að lifa
við að vera ekki endilega hærra
U» settir á vinnustöðum og hlutverk
þeirra innan fjölskyldunnar hefur
breyst umtalsvert. Með tilkomu
sæðisbanka, tæknifrjóvgunar, klón-
unartækni og með hjónaböndum
samkynhneigðra telur Meryn að
það sé fjarlægur möguleiki að karl-
menn verði hreinlega óþarfir með
öllu i samfélaginu í framtíðinni.
Meryn segir að karlmenn berji
enn höfðinu við steininn og vilji
ekki viðurkenna breytta stöðu sína
eins og hún er í dag. Ef ekki kemur
til hugarfarsbreyting þá segir
Meryn að vandræðin eigi eftir að
aukast hvað heilsu varðar.
Nafnlausar hjálparsíöur
Rannsóknir hafa sýnt að karl-
menn eru mjög tregir til að fara til
læknis með sín vandamál. Ian
Banks, forseti nefndar um heilsu
karla sem starfar á vegum Evrópu-
sambandsins, telur að karlmenn
forðist ferðir til læknis þar sem
þeim finnist þeir vera að gefa eftir
stjórn á eigin lífi. Auk þess eigi þeir
erfitt með að tjá áhyggjur yfir eigin
heilsu eða heilsuleysi og þekking
þeirra á heilbrigðismálum er oft og
tíðum mjög döpur. Ofan á þetta bæt-
ist að upplýsingar um heilsufarsmál
karlmanna eru ekki í jafnmiklu
framboði og sömu mál kvenna. Þær
litlu upplýsingar fara líka fram hjá
karlmönnum þar sem þeir lesa yfir-
leitt ekki bæklinga og auglýsingar
um heilsufarsmál.
Bæði Meryn og Banks telja að
bæta megi úr þessu. Banks bendir á
að nafnlaus læknisþjónusta á Net-
inu hafi þegar skilað árangri í
breska heilbrigðiskerfinu, karl-
menn hafi verið duglegir við að
nýta sér hana. Banks telur að slíka
þjónustu ætti að auka og er Meryn
sammála honum. Einnig er það
skoðun Meryn að endurskoða þurfi
heilbrigðistengdar auglýsingar sem
beinast til karla, sem og umræðu
um þau mál. Það þurfi að gera þau
vingjarnlegri í garð hins nýja
„veika kyns“.
Með tilkomu sæðís-
hanka, tæknrfrjóvgun-
ar, klónunartækní og
með hjónabðndum
% samkynhneígðra telur
Meryn að það sé f jar~
i lægur möguíeikí að
karímenn verðí hrefn-
i lega óþarfír með öUu í
I samfélaginu í framtíð-
inni.
Fyrsti GameCube-klónninn
Kazumi Tamamoto, starfsmaður Matsushita Electric Industrial, sýnir hér nýj-
ustu afurö fyrirtækisins. Um er aö ræöa DVD-spilara, kallaðan SL-GC10, sem
einnig getur spilaö leiki úr GameCube, nýjustu leikjatölvu Nintendo-fyrirtæk-
isins. Sem sagt svokallaöur GameCube-klónn. Panasonic mun setja gripinn
á markað í Japan um miöjan desember undir nafninu „Q“. Einnig verður
hægt að nálgast hann á heimasíöu Panasonic fyrir tæpar 35.000 krónur plús
flutningsgjöld.
Vírus dreifist á DVD-diski
- fyrsta skipti sem slíkt gerist
Fyrir stuttu
komst það upp að
DVD-diskur sem
seldur var af
Warner Brothers
kvikmyndafram-
leiðandanum
hafði að geyma tölvuvírus. Þetta er í
fyrsta skipti sem tölvuvírus hefur
borist með DVD-diskum. Þetta vanda-
mál hefur hins vegar þekkst í al-
mennri dreifingu á venjulegum
geisladiskum sem og á disklingum.
Það hefur jafnvel komið fyrir að
tölvutímarit hafi óvart dreift virusum
með kynningardiskum.
DVD-diskurinn sem um ræðir inni-
heldur teiknimyndaþættina
Powerpuff Girls, sem náð hafa mikl-
um vinsældum. Reyndar eru ekki all-
ir diskar meö þessum teiknimynda-
þáttum „smitandi" heldur aðeins
þeir sem innihalda þátt-
Vírusinn feiur sig á
milíi skráa sem fylgja
diskínum. Með þeim
skrám er hægt að búa
til svokallaðar vegg-
fóðursmyndir á tölvu-
skjáínn og skjáhvRu-
myndír. Efþessar
skrár eru ekkí opnaðar
getur vírusinn ekki
smitað tölvur.
tölvur vinna verr og hrynja oftar.
Vírusinn felur sig á milli skráa
sem fylgja diskinum. Með þeim
skrám er hægt að búa til svokallaðar
veggfóðursmyndir á tölvuskjáinn
og skjáhvílumyndir. Ef þess-
ar skrár eru ekki opnaðar
getur vírusinn ekki smit-
að tölvur. Hann er
einnig skaðlaus DVD-
spilurum. Warner
Brothers hafa innkall-
að alla diska með Meet
the Beat Ails. Diskur-
inn var bara kominn á
markað i Bandaríkjun-
um en einhverjir kunna
að hafa selst til ferðamanna
eða í gegnum Netið. Öll upp-
færð vírusvarnarforrit koma
í veg fyrir sýkingu á tölvum.
Vírusinn fór óvart á diskinn
en aldur hans bendir hins
vegar til þess að- uppfærsla
vírusvarna hafi ekki verið
sem skyldi hjá framleiðanda
diskanna.
inn Meet the Beat
Alls. Vírusinn heit-
ir Funlove og hef-
ur verið til í
um tvö ár.
Funlove sýkir
aðeins
Windows-for-
rit og veld-
ur því
að
Pekkt
er aö vírus-
ar hafi dreifst
meö venjulegum
geisladiskum eöa
disklingum en aldrei
meö DVD-diskum.
Amazon sparar á Linux
Netverslunarfyrirtækiö
Amazon.com hefur samkvæmt
upplýsingum frá fyrirtækinu
sparað miUjónir dollara með
því að skipta yfir í Linux-stýri-
kerfið til að keyra netkerfi sín
í stað Unix- eða Windows-stýri-
kerfanna. í uppgjöri fyrir
þriðja ársfjórðung kom fram
að kostnaður við hugbúnað
hafði dottið úr 71 milljón doll-
ara í 54 milljónir sem er mis-
munur upp á 17 milljónir, 1785
milljónir islenskra króna. Lin-
ux og hugbúnaður tengdur
honum er algerlega ókeypis og
er sífellt að ná meiri markaðs-
hlutdeild í hugbúnaðarheimin-
um. Sérstaklega er stýrikeríið
vinsælt á netkerfi. Þar spilar
kostnaður inn í en einnig þyk-
ir hann öruggur og auðveldur i
viðhaldi.
DVD-aflæsing leyfileg
Áfrýjunardómstóll Kaliforn-
íurikis í Bandarikjunum felldi
dóm í seinustu viku þess efnis
að DeCSS, hugbúnaður sem
notaður er til að aflæsa DVD-
diskum, væri löglegur. Samtök
sem fara með höfundarréttar-
mál á innihaldi DVD-diska og
samtök kvikmyndaframleið-
enda fóru fram á lögbann á
DeCSS þar sem hann væri not-
aður til að uppljóstra iðnaðar-
leyndarmálum. Lögbann var
sett á dreifingu hugbúnaðarins
á Netinu af dómstóli Kalifom-
íu. Áfrýjunardómstóllinn telur
hins vegar forritunarmál vera
hluta af frjálsri tjáningu sem
varin er í fyrstu grein banda-
rísku stjórnarskrárinnar.
DVD- diskar em flokkaðir eftir
markaðssvæðum þannig að
diskur sem seldur er í Banda-
ríkjunum getur ekki verið spil-
aður 1 Asíu eða Evrópu o.s.frv.
DeCSS er notaður til að kom-
ast fram hjá þessu kerfi.
Vilja ekki nýtt „video-
tæki“
Bandarisku sjónvarpsstöðv-
arnar NBC, ABC og CBS hafa
nú snúið sér til bestu vina
Bandaríkjamanna, dómstól-
anna, til að fá lögbann á nýja
gerð upptökutækis sem nefnist
ReplayTV 4000. Með tækinu er
hægt að taka upp efni úr sjón-
varpi eins og venjulegum
myndbandstækjum nema að
myndefnið er geymt á hörðum
diskum og hægt er nettengja
það og senda efnið síðan yfir í
önnur eins tæki. Það sem
meira er þurrkar tækið út aug-
lýsingar sem skotið er inn
; tvisvar til þrisvar í öllum sjón-
varpsþáttum í Bandaríkjunum.
Þetta er stærsti þymirinn í
augum sjónvarpsstöðvanna,
auk þess sem óhófleg fjölfoldun
og dreifing fer fyrir hjartað á
þeim. Fyrirtækið Sonicblue,
sem framleiðir tækin, segist
hafa gert ráðstafanir til að fólk
misnoti ekki tækið. Aðeins
verður hægt að senda hvem
; upptekinn þátt eða kvikmynd
15 sinnum til annarra tækja.