Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Qupperneq 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002
DV
Gerhard Schröder
Schröder segist ekki lita hár sitt.
Schröder fagnaði
sigri í hármalinu
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, vann í gær sigur í
svokölluöu hárlitunarmáli, sem
hann höfðaði gegn þýsku DDP-
fréttastofunni fyrir að birta frétt um
það að hár hans væri litað, en í
málshöfðun sinni gerði hann þá
kröfu til fréttastofunnar að hún end-
urtæki ekki staðhæfmgu fréttarinn-
ar sem byggð var á vitnisburði
snyrtiráðgjafa.
í dómsniðurstöðu segir að frétta-
maðurinn sem vann fréttina hefði
átt að leita álits Schröders í málinu
áður en hún var send út, en sjálfur
heldur hann því staðfast fram að
hárlitur hans sé ekta og það hefði
fréttamaðurinn getað sannreynt.
Fréttastofan hyggst áfrýja úr-
skurðinum og segir hann aðför að
málfrelsi fréttamanna.
Metaregn á
toppi Everest
Nýtt fjöldamet var sett á Mount
Everest, hæsta fjalli heims í fyrra-
dag, en þá náðu alls 54 fjallgöngu-
menn þeim áfanga að komast á tind
fjallsins á einum og sama deginum.
Meðal þeirra var Haraldur Örn
Ólafsson, sem náði toppnum klukk-
an 05.13, en eins og fram kom í blað-
inu í gær varð hann þar með fyrst-
ur í heiminum til að ganga á báða
pólana og klífa sjö hæstu fjöll heims
á aðeins fjórum og hálfu ári.
Þetta voru ekki einu metin sem
sett voru í fyrradag, því japanska
konan Tame Watanable, sem er 63ja
ára, varð þá elsta konan í heimin-
um til að komast á toppinn.
Þá settu bandarísku hjónin Phil
og Susan Ershler heimsmet þegar
þau urðu fyrst hjóna til að klífa öll
hæstu íjöllin í heimsálfunum sjö og
Nepalinn Appa afrekaði það að
komast á topp Mount Everest í
tólfta skipti og slá þar með eigin
heimsmet frá því í fyrra.
Þá vakti athygli að Nepalinn
Tashi Wangchuk Tenzing, sonar-
sonur Tenzing Norgay, sem ásamt
Sjálendingnum Edmund Hillary
varð fyrstur til að klífa Everest-tind-
inn fyrir 50 árum, var í hópi þeirra
sem náðu tindinum í fyrradag og
vitað var aö Peter, sonur Hillarys,
var í sama leiðangri en náöi ekki
upp í tæka tíð.
Alls hafa 1114 fjallgöngumenn
hingað til komist á topp Everest síð-
an fjallið var fyrst kliflð árið 1952,
en alls hefur þessi konungur fjall-
anna tekið líf 180 fjallgöngumanna.
Afganistan:
Tíu sagðir hafa fall-
ið í mistakaárás
Afganska fréttastofan AIP, sem að-
setur hefur í Pakistan, sagði frá þvi í
gær að bandarískar árásarvélar hefðu
í fyrrinótt fyrir mistök gert eldflauga-
árásir á þorpið Bul Khil i Khost-hér-
aði í austurhluta Afganistans við
landamæri Pakistans, með þeim af-
leiðingum að tíu óbreyttir borgarar
hefðu látið líflð og nokkrir slasast.
Að sögn fréttastofunnar lá mis-
skilningurinn í því að flugmenn
bandarískrar þyrlu, sem i fyrrakvöld
var í eftirlitsflugi yfir svæðinu, töldu
að skotið hefði verið að henni frá
þorpinu, en hið rétta væri að brúð-
kaupsveisla hefði staðið þar yfir og
hefði saklausum flugeldum verið skot-
ið á loft af því tilefni, eins og venja sé
í Afganistan.
í kjölfarið hafi bandarískar orr-
ustuvélar gert eldflaugaárásir á þorp-
ið, sem að sögn sjónarvotta hafi stað-
ið fram eftir nóttu og hefðu skelfmgu
lostnir íbúamir ekki fengið tækifæri
Árás í aðsigi.
tO að huga að hinum látnu og særðu
fyrr en undir morgun. Algjört sam-
bandsleysi mun hafa verið viö þorpið
í gær þannig að engar nánari fréttir
höfðu borist af vettvangi aðrar en þær
að herflugvélar væru enn á sveimi yf-
ir svæðinu.
Þorpið Bul KhO er í um 30 kOó-
metra fjarlægð norðaustur af bænum
Khost í samnefndu héraði, en í bæn-
um voru áður helstu bækistöðvar tali-
bana og al-Qaeda-liða í héraðinu og
því talin hætta á að liðsmenn þeirra
færu þar enn þá huldu höfði.
FlugvöUurinn í Khost er nú ein að-
albækistöð bandrísku sérsveitanna
sem leiða leitina að meintum liðs-
mönnum al-Qaeda í fjalllendi héraðs-
ins og hefur ítrekað komið þar tO
átaka að undanfórnu.
Einn talsmanna bandaríska hersins
í Afganistan kannaðist ekkert við
meintar árásir í gær en sagði að her-
þyrla hefði verið send í leiðangur eft-
ir að áströlsk hersveit hefði orðið fyr-
ir árás. „Við höfum fidlan rétt á að
verja okkur ef á okkur er ráðist,“
sagði talsmaðurinn, sem vOdi að öðru
leytiekki ræðamálið.
REUTERSMYND
Bertie Ahern, forsætisráðherra Irlands, við kjörkassann í gær
írargengu aö kjörborðinu í gær og var búist viö öruggum sigri Fianna Fail-flokks Bertie Ahrens forsætisráöherra, sem
viö sjáum hér á myndinni greiöa atkvæöi sitt snemma í gærmorgun.
Hitabylgjan á Indlandi í rénun:
Meira en 600 manns látnir
Hitabylgjan á Indlandi, sem í gær
hafði kostað að minnsta kosti sex
hundruð manns lífið, virðist nú í rén-
un, eftir að rigna tók í strandhéruð-
um Andhra Pradesh-ríkis í suður-
hluta landsins.
Rigningunni var að vonum vel
fagnað og er það von fólks að máttar-
völdin komi því nú tO bjargar með
forskoti á sæluna, en monsúnrign-
ingartímann hefst venjulega ekki
fyrr en seinni partinn í maí eða í
byrjun júní.
í kjölfar rigningarinnar lækkaði
hitastigið tO muna, eða um aOt að tíu
gráður, niður i 33 gráður, en á sum-
um svæðum hafði brennandi hitinn
farið aUt upp í 49 gráður með skelfi-
legum afleiðingum.
Þetta eru verstu þurrkar sem herj-
að hafa á Suður-Indland í langan
tíma, en verst varð ástandið í héruð-
unum Krishna, Guntur og Vestur-
Godavari i áðurnefndu Andhra
Pradesh-ríki, en þar létust aOt að
í leit að vatni
Indverskur drengur ríöandi á vísundi
í leit aö vatni fyrir hjöröina.
hundrað manns í hverju héraöi.
Chandrababu Naidu, ríkisstjóri i
Andhra Pradesh, sagði að ástandið
væri mjög slæmt og hefur lofað fjöl-
skyldum fómarlambanna þúsund
doOara styrk í sárabætur. Hann hef-
ur einnig farið fram á neyðaraðstoð
frá stjórnvöldum í Delhi, en þúsund-
ir ibúa ríkisins þjást nú af matar-
skorti, auk þess sem ýmsir sjúkdóm-
ar hafa herjað á fólkið.
Hitinn hefur farið iUa með upp-
skem á svæðinu og skUið eftir sig
sviðna jörð og því er óttast að ástand-
ið eigi enn eftir að versna þrátt fyrir
rigninguna, þar sem gróðurinn mun
ekki ná sér á strik fyrr en grunn-
vatnsstaðan í jarðveginum er aftur
komin í eðlUegt horf.
Hitabylgjan hefur einnig náð tO
norðurhtuta Indlands og hefur
ástandið þar verið verst í ríkjunum
Rajasthan, Punjab og Haryana, en
auk þess hafa höfuðborgarbúar í Del-
hi fengið sinn skammt af hitanum.
Hamas hótar árásum
Sheikh Ahmed
Yassin, stofnandi
Hamas-samtak-
anna, hótaði því í
gær að sjálfs-
morðsárásum gegn
ísraelskum borgur-
um yrði haldið
áfram meðan ísra-
elski herinn héldi
áfram aðgerðum á heimastjórnar-
svæðum Palestínumanna. „Við getum
ekki hætt á meðan við horfum upp á
bræður okkar drepna," sagði Yassin í
viðtali sem tekið var við hann í Gaza
í gær. Yassin, sem er múslímskur
klerkur og bundinn við hljólastól,
sagði það ekki rétt sem fram hefði
komið í fjölmiðlum að Hamas hefði
lofað Sádi-Aröbum að hætta sjáUs-
morðsárásum.
Annar prestur fyrirfer sér
Kaþólskur prestur, Alfred J. Bietig-
hofer, sem nýlega varð uppvís að
barnamisnotkun við söfnuð sinn í
Beridgeport í Connecticur-ríki í
Bandaríkjunum, hengdi sig í gær þar
sem hann dvaldi tO endurhæfmgar á
geðsjúkrahúsi í nágrenni Washington.
Bietighofer, sem var 64 ára, er annar
kaþólski presturinn sem fyrirfer sér
eftir að misnotkunarmálin komust í
hámæli í Bandaríkjunum.
Vilja sjá leyniskjöl
Þingmenn demó-
krata í bandaríska
þinginu kröfðust
þess í gær að fá af-
hent leyniskjöl frá
því í sumar, sem
hafa að geyma við-
varanir leyniþjón-
ustunnar CIA tO
Bush Bandaríkja-
forseta vegna gruns um að al-Qaeda-
samtök Osama bin Ladens hygðust
ræna bandariskum flugvélum. Þeir
hafa einnig farið fram á að fá afhent
ýmis önnur skjöl frá alríkislögregl-
unni FIB, þar sem fram koma vissar
grunsemdir og m.a. bent á að nokkrir
grunsamlegir menn frá Mið-Austur-
löndum stundi flugnám við banda-
ríska flugskóla.
Fótboltabullur í bann
Meira en 1000 enskum fótboltabidl-
um hefur veriö bannaö að sækja HM
sem hefst í Japan og Suður-Kóreu í
lok mánaðarhis. Að sögn lögregluyfir-
valda er þetta tíu sinnum stærri hóp-
ur en settur var í bann fyrir EM-2000
i HoOandi og Belgíu. í hópnum eru
m.a. 112 frá Cardiff, 98 frá Stoke og 66
frá Leeds. Umræddar buOur fá frest tO
miðnættis á fimmtudag tO að skOa
inn vegabréfum sínum sem verða í
vörslu lögreglunnar þar tO mótinu
lýkur.
Sjálfstæði Austur-Tímors
Ruud Lubbers, yf-
irmaður flóttamanna-
hjálpar SÞ, sagði I
gær að frá og með
næstu áramótum
yrði allri aðstoð hætt
við þá flóttamenn
sem flúðu Austur-
Tímor í blóðsútheO-
ingunum árið 1999, en á miðnætti á
sunnudag hlýtur þjóðin formlegt sjálf-
stæði frá Indónesíu.
Hrapaði í Humber-ána
Bresk Tomado-sprengjuflugvél frá
breska flughemum hrapaði í gær í
ána Humber í Austur-Yorkshire-hér-
aði í Englandi. Tveimur flugmönnum
vélarinnar tókst að henda sér út áður
en hún skall í ánni og var þeim bjarg-
að. Vélin mun hafa verið á æfmga-
flugi þegar bOun varð í stjómbúnaði.
Viötal við Mullah
Sádi-arabískt dagblað birti nýlega
viðtal sem það segir að tekið hafi ver-
ið við MuOah Omar, trúarleiðtoga
talibana í Afgnaistan, og er þar haft
eftir leiðtoganum að Osama bin Laden
sé enn á lífi. Ekki kemur fram hvar
eða hvenær viðtalið er tekið, en
einnig haft eftir honum að stríðinu í
Afganistan sé hvergi lokið. „Vera
Bandaríkjamanna í landinu á eftir að
breytast í heitasta helvíti og algjöran
ósigur,“ er haft eftir MuOah.