Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 24
24
Helgctrblacf JOV LAUGARDAOUR 22. JÚNf 2002
-
&OURJOIS
Augnabrúnablýantur frá Bouijois
„Ég hef notað þennan blýant lengi og ég nota alltaf sama litinn sem
er brúnn. Mér finnst þetta mjúk og meðfærileg vara.“
Jónína Bjartmarz er eKki eingöngu skel-
egg alþingiskona heldur líka falleg kona.
Hún segist samt ekki hugsa mikið um
andlitsförðun en hleypti þó DV ísnyrti-
budduna sína og uppljóstrar hér fyrir les-
endum hi/aða snyrtivörur skuli nota til
að ná hámarksárangri.
Maskari frá Dior
„Þetta er auðvitað úrvalsvara sem varla þarf að útskýra nánar.
Þetta er mjög vinsæll maskari enda finnst mörgum konum á mínum
aldri hann vera sá allra, allra besti.“
Varalitablýantur frá Dior
„Þennan er mjög gott að nota. Hann er rauðbrúnn og liturinn helst
vel á. Annars vil ég ítreka að ég kann varla að setja á mig andlitsfarða
og ég er búin að vera á leiðinni nokkuð lengi á námskeið hjá Kristínu
hjá No Name. Ætli ég verði ekki alfarið farin að nota vörur frá No
Name þegar því er lokiö enda þykja það mjög góðar vörur.“
Að lokum vil ég nefna hársnyrtivörurnar frá Sebastian en þær eru
frábærar. Hún Hanna Kristín hjá Kristu uppi í Kringlu kom mér upp
á lagið.“
Það er ekki algengt að brúðir kaupi brúðarkjólinn mörgum árum
áður en þær gifta sig. Það var þó tilfellið með Olgu Soffíu Einars-
dóttursem gekk íþað heilaga þann s.júnf síðastliðinn - og það eft-
ir að hafa geymt brúðarkjólinn inni ískáp í fimm ár.
Bjartsýn brúður
„Ég fékk kjólinn í versluninni Flauel á Laugavegin-
um fyrir fimm árum. Ég var eitthvað að gramsa þar
með vinkonu minni þegar ég rakst á hann og kolféll
fyrir honum,“ segir Olga sem hafði þá einungis verið
eitt ár með Brynjari Birni Gunnarssyni og brúðkaup
hafði alls ekki komið til tals. Hún heldur áfram: „Það
var fullt af gömlum brúðarkjólum frá Hollandi og
Bandaríkjunum í versluninni og í einhverju gríni
ákvað ég að máta einn kjólinn. Hann smellpassaði og
varð ég á augabragði skotin í honum.“ Olga fékk sig
samt ekki til þess að kaupa kjólinn en segir tengda-
móður sinni samt frá honum sama kvöld og það verð-
ur úr að þær fara saman daginn eftir til þess að kíkja
á hann. „Tengdamóðir mín er mikil smekkkona og
þegar henni leist líka vel á kjólinn þá sló ég til og
keypti hann,“ segir Olga. Hún segir kjólakaupin hafa
verið algjöra skyndihugdettu því þau Brynjar hafi
ekki einu sinni verið trúlofuð á þessum tíma hvað þá
meira.
„Sumum finnst það líklega dálítil áhætta að kaupa
brúðarkjólinn án þess að brúðkaup sé á döfinni en ég
hugsaði að það gerði nú lítiö til að kaupa kjólinn fyrst
mér fyndist hann svona fallegur þar sem ég borgaði
ekki meira en fjögur þúsund krónur fyrir hann. Hann
átti reyndar upphaflega að kosta 16 þúsund en svo var
hann kominn á útsölu á sjö þúsund. Afgreiðslustúlkan
gat hins vegar ekki neitað mér þegar ég prúttaði hann
niður í fjögur því ég var bara svo fin í honurn," minn-
ist Olga. Síðan þá hefur kjóllinn verið vel geymdur
inni í skáp hjá móður hennar en reyndar verið tekinn
reglulega fram og mátaður. „Fjölskylda mín tók þess-
um kaupum bara vel enda eru þau vön ýmsum uppá-
tækjum hjá mér hvað fataval mitt varðar. Hins vegar
held ég að fáir hafi trúað því að ég myndi halda því til
streitu að gifta mig í kjólnum. Hann er náttúrlega
mjög gamaldags og alls ekkert líkur þeim brúðarkjól-
um sem eru í tísku í dag,“ segir Olga og bendir á púf-
fermarnar, sauminn undir brjóstunum og finleg
blúndublómin á pilsinu. Kjóllinn kom þó loks að góð-
um notum þann 8. júní síðastliöinn en þá gengu þau
Olga og Brynjar í hjónaband í Garðakirkju. Olga
komst þá enn í kjólinn og vakti hann mikla lukku.
Skóbúnaður brúðarinnar vakti reyndar ekki síður at-
hygli, en þegar borðhaldi lauk skeflti hún sér í snjó-
hvíta íþróttaskó við kjólinn til þess að geta dansaö al-
mennilega á dansgólfinu. „Það var mikill munur að
skipta yfir í mýkri skó. Þetta var langur dagur og erfitt
að vera á nýjum skóm sem ekki höfðu verið almenni-
lega gengnir til,“ segir Olga og brosir við minninguna
um múnderinguna.
Það er svo af kjólnum aö segja að honum er hugað
lengra lif því Olga mun taka hann með sér út til Stoke
þar sem þau hjónin eru búsett. Þar hefur hún hugsað
sér að ramma hann inn í plexigler því hann er alltof
fallegur til þess að vera lokaður lengur inni í skáp.
-snæ
Augnablýaiitur frá Guerlain
„Hann er númer sjö en ég nota hann lítið. Hann er svona mátulega
dökkur sem er gott þegar maður málar sig ekki oft.“
Mf':
...ldkt í snvrtibudduna
w
Varalitur frá Helenu Rubenstein
„Þetta finnst mér vera sá litur sem hentar
mér best. Þetta eru mjög góðar vör-
ur og ég nota bæði varalit og gloss frá
Helenu. Það var hún Þyrí hjá Ársól
sem kynnti mig fyrir þessum vörum.
Einstaklega góðar.“