Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 Helgarblctdi 3Z>V 43 Það er friðsælt að ríða ura skógargötur og anda að sér ilminum af lúpínu og birki. Hér er hópur hestamauua í skóginuin í landi Skriðufells í Þjórsárdal. Hófadynur á moldargötum AÐ HAFA HESTINN SEM FERÐAFÉLAGA og ferð- ast á honum um landið er svo sannanlega ekki það sem þorri manna veitir sér. Það væri rangt að segja að það væri aðvelt að velja sér þennan ferðamáta. Hesturinn er dýr sem krefst mikillar aðgæslu, hann þarf að vera vel þjálfaður og hirtur. Ferðalangurinn þarf að deila álaginu sem hlýst af svona ferðamáta á nokkra hesta ef langt skal haldið. Undirritaður fór í fjögurra daga ferð með kátum fé- lögum úr Hestamannafélginu Sleipni frá Selfossi og nágrenni. Tæplega þrír tugir manna riðu að gangna- mannakofanum Kletti í Þjórsárdal sem endastöð með um níutíu hross. Ferðatilhögunin var sú; að farið var austur með Flóavegi að Skálmholti við Þjórsá og rið- ið með fram bökkum árinnar að Murneyri. Leið þessi er hreint frábær, bæði fyrir hesta og menn, riðið er ■eftir moldargötum, þéttum og góðum. Hófadynurinn er ógleymanlegur þar sem hann blandaðist angan sumars og kvaki mófuglsins. Við slíkar aðstæður njóta sín bæði hestar og menn. Leiðin er löng og ströng Fyrsti áfangi að baki, sprett var af gæðingum og þeir settir á beit en mannfólkið hvíldist í eigin rúm- um á Selfossi til næsta dags. Þá var dagleiðin; Murneyri að fyrrgreindum Kletti í Þjórsárdal. Rið- ið eins og fyrri daginn með bökkum Þjórsá að Þrándarholti, síðan með veginum í Fossnes og um Fossneshaga í Klett, gangnamannakofa Flóa- og Skeiðamanna. Dagleiðin var löng og ströng, bæði Hestarnir eru fegnir að fá að drekka í Sandá í Þjórsárdal því enn er löng leið fvrir höndum og hófuin. Gott er að velta sér og losna við svitann undan hnakknum í áningarstað. Að ferðast um landið að hætti forfeðranna á hestbaki með nesti við bogann og bikar með er draumur margra. Gunnar V. Andrés- son, Ijósmgndari DV, er ötull hestamaður og hann brá sér á bak austur íÞjórsárdal á dögunum og smellti af nokkrum mgndum. fyrir hesta og menn, um holt og hálsa var að fara, tilkomumikið landslag sem lætur engan ósnortinn. Mikil glaðværð var meðal ferðafélaganna þegar í Klett var komið. Allir voru heilir, bæði skepnur og menn, en margir dæstu og sumir voru aumir inn- anlæra. Menn hristu það af sér og skelltu lambalær- um á kolabing og grilluðu og átu með öllu tilheyr- andi sem fylgir slíku ljúfmeti. Þegar búið var að huga að hestum og sjá til þess að þeir hefðu það sem best um nóttina var svefnpokum rúllað út og síðan hrutu menn og konur í kór til næsta dags svo undir tók í fjöllunum. Þriðja dagleiðin er svo frá Kletti í gegnum land Skriðufells, þar var riðið eftir skógargötum í Ás- ólfsstaði og áð hjá Sigga Palla og Hrafnhildi. Þaðan var svo riðið í Þrándarholt niður á bakka Þjórsár að Murneyri. Síðasta dagleiðin var frá Murneyri og aftur á Selfoss. Þetta var ógleymanleg upplifun þar sem fór saman puð, samspil manns og hests og skemmtan. í svona ferð nýtur maður náttúrunnar í allri sinni mynd; gróðurs, ilms, landslags, veðurs, birtu, fugla og flugna. -GVA Það er sagt að milli manns, liunds og hests hangi leyniþráður og þótt hann sjáist ekki á myiidiiini þá er hann áreiðanlega þarna. „Undir Blesa skröltir skeifa. skvldi liún ckki tolla heim.“ Þessi orð skáldsins eiga vel við myndina. DV-myndir GVA 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.