Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 44
48
Helqcirblcið DV
LAUOARDAGUR 22. JÚNÍ 2002
Bílar
Umsjón
Njáll
Gunnlaugsson
Meö pláss sendi-
bíls og þægindi
fólksbíls
Kostir: Þœgilegur í umgengni, sjálfskipting,
hliöarspeglar
Gallar: Mikill beygjuradíus, engin opnun á aftari
hliöarrúðum
Bens Vaneo er nýr fjölnotabíll frá Mercedes-Benz
sem frumsýndur var á bílasýningunni í Frankfurt í
fyrra. Um er að ræða stóran bíl sem hentar jafnt sem
stór fjölskyldubíll eða jafnvel sem lítill sendibíll og
keppir hann við fjölnotabíla eins og Toyota Previa, VW
Sharan, Citroén C8 og Peugeot 807.
Mjög hávaxinn
Það sem fyrst vekur athygli við bilinn er hversu hár
hann er og minnir það útlit meira á sendibíl en fólksbíl.
Hurðir eru stórar og því gott að ganga um bílinn en aftur-
hurðir eru á sleða. Sæti eru i þægilegri hæð og innstig því
með besta móti. Framsæti í Vaneo eru stór og fjölstillan-
leg en frekar hörð eins og sæti í Benz eru oft á tíðum. Milli
sæta er þægilegur armpúði og undir honum er hand-
bremsan svo að þegar hann er hafður niðri er hann fýrir
handbremsunni. Gluggasyllur eru óvenju stórar og vel
bólstraðar svo að þægilegt að að hvila vinstri hönd á
henni. Eöii í innréttingu eru fyrsta flokks frammi í bíln-
um en vart varð við marr í aftursætum, sérstaklega á möl.
Aftursæti eru sniðuglega útfærð og gott pláss í þeim á alla
kanta. Á hliðarsætum eru upphækkanir sem henta vel fyr-
ir börn sem hætt eru að nota bamabilstóla en eru samt
ekki orðin nógu stór fyrir beltin. Hægt er að fella sætin
eða taka þau úr með fáeinum handtökum til að búa til
stórt og mikið flutningsrými. Eins og áður sagði eru
rennihurðir við aftursæti og þótt það hafi marga kosti er
þó einn galli við það þar sem að ekki er hægt að opna
glugga þar. Farangursrými er mjög gott eins og ætla má
og með góðri opnun á afturhlera, og hægt er að panta auka
sæti afturí. Bíllinn hefur sniðugan eiginleika sem er í
stefnuljósunum. Ef ýtt er lauslega á stefnuljósarofann eins
JniUUESTOIIE
Nýttu þéf Formúluna og
veldu sömu dekk og meistararnir
R Æ 0 U R N I R
IOKMSSON
Lágmúla S • Sfmi 530 2800
og þegar skipt er um akrein, blikkar hann þrisvar og
slekkur síðan á sér sjálfur. Þetta einfalda atriði kemur i
veg fyrir að menn gleymi stefhuljósunum á við þessar að-
stæður.
Mikið og gott útsýni
Útsýni er gott úr bílnum enda situr ökumaður hátt og
hefur stóra glugga alls staðar í kringum sig. Hliðarspeglar
eru stórir og sérlega þægilegir í notkun og sýna vel blind-
homið fyrir aftan bilinn, en breiður A-bitinn fyrir framan
þá skyggir aðeins á framhom bílsins. Billinn er ágætlega
búinn í grunnútgáfu. Með 1,9 lítra vélinni kemur hann
með spólvörn sem virkar mjög vel og leyfír smá spól áður
en að hún tekur við sér. Þetta getur verið kostur í erfiðri
færð og auk þess er hægt að slökkva á henni, kjósi öku-
maður svo. í bílnum er útvarp með geislaspilara og sex há-
tölumum, þar af tveimur í afturhluta bilsins. í akstri virk-
ar bíllinn þéttur og góður og með 1,9 lítra vélinni hefur
hann ágætis vinnslu, jafnvel nokkuð hlaðinn. Sjálfskipt-
ingin er þýð og skiptir vel en einnig er hægt að velja val-
skiptingu í „Drive“ stillingunni með því að færa stöngina
til hægri eða vinstri. Bíllinn tekur frekar lítinn vind á sig
þrátt fyrir mikinn Qöt til þess og því er lítið vindhljóð í
akstri. Einnig er hann tiltölulega laus við veghljóð og vél-
arhljóð er einnig lítið þótt aðeins heyrist hvinur í vélinni
á hásnúningi. Stýri svarar og vel en fjöðrun er í stífara
lagi þótt hún sé ekki óþægilega svo, enda gert ráð fyrir að
bíllinn geti verið mikið hlaðinn. Hins vegar er óvenjumik-
ill beygjuradíus á Vaneo sem er frekar óvanalegt af Benz,
sérstaklega með þessu byggingarlagi.
Á sæmilegu verði
Vaneo er einhverstaðar á milli minni og stærri fjölnota-
bila i Qokki, hann er stærri en Renault Scenic sem dæmi
en minni en VW Sharan sem þó líkist honum á marga
vegu. Á 2.750.000 kr. er Vaneo tQ dæmis tövuvert ódýrari
en VW Sharan sem með 150 hestaQa vél kostar 3.310.000
kr. þá með sjö sætum í grunnútgáfu. Aðrir keppinautar
Vaneo eru Toyota Previa á 2.899.000 kr. og Hyundai Trajet
sem kostar 2.140.000 kr. svo segja má að Vaneo setur sig í
miðjan Qokk þessara bQa hvað verð varðar. Aðrir fjölnota-
bílar sem hann keppir við eru svo Opel Zafira og væntan-
legur VWGolfMPV. -NG
© 1,9 lítra vélin dugar þessum stóra bíl vel en
minni mætti hún varla vera.
© Afturhleri opnast vel og opnar fyrir stórt og mikiö
flutningsrými en útdráttarsvunta er föst sem er til
óþæginda ef stækka þarf flutningsrýmiö.
© Afturhuröir eru á rennibrautum sem aö opnast
vel en ekki er hægt aö opna glúgga.
© Þaö er sniöug útfærsla á aftursætum sem hægt
er aö hækka fyrir börn sem hætt eru aö nota barna-
bílstóla.
© Mælaboröið er frekar einfalt og flestir stjórntakk-
ar eru í miðjustokki.