Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 45
LAUCARDAGUR 22. JlJtslf 2002 Helcja rblaö OV 49 » s Volvo FH12 6x4 dráttarbíll. Sá fyrsti sinnar tegundar á íslandi. Ólafur Árnason, sölustjóri hjá Brimborg, af- hendir Ásgeiri Ragnarssyni og Ragnari Haraldssyni bílinn. Fulltrúi þriöju kynslóöar, Ásgeir Þór Ásgeirs- son, er einnig meö á myndinni. Nýju Volvo-vörubíl- arnir komnir til landsins í byrjun júni fékk fyrirtækið Ragnar og Ásgeir ehf. í Grundarfirði afhentan fyrsta Volvo-vörubílinn af hinni nýju linu Volvo-vörubíla sem frumkynnt var í lok síðasta árs. Bíll Ragnars og Ásgeirs er 500 hest- afla (snúningsvægi 2400 N v/ 1000-1300 sn.) dráttar- bíll, búinn 14 gira Geartronic-gírskiptingu, sam- stæðuframfjöðrum (parabel) og nýrri og endurbættri loftfjöðrun á afturásum. Billinn er með Volvo-diska- bremsur á öllum öxlum, Compact Retrader (hamlara) og hemlalæsivöm. Hann er með Globetrotter XL svefnhús í Prestige-útfærslu með vindkljúfum á toppi, niður með hliðum á húsi og hliðarundirakst- ursvöm niður á grind. Ökumannshúsið er með skrif- stofuaðstöðu fyrir ökumann (Office-útfærsla), tölvu- stýrða loftkælingu og olíumiðstöð fyrir hús og vél, Volvo-hljómflutningstæki og innbyggðan GSM-síma, svo eitthvað sé nefnt. Volvo söluhæstur Á síðasta ári vom Volvo-vörubílar mest seldu vörubOar á íslandi, með 31,3% markaðshlutdeild. Samdráttur í heildarskráningum vörubíla yfir 10 tonn var 53% á milli áranna 2000 og 2001 en samdrátt- ur Volvo varð aðeins 24%. Salan á hinum nýju FH og FM vörubílum frá Vol- vo hefur farið mjög vel af stað og hefur Volvo nú þeg- ar tekið við yfir 30.000 pöntunum. Nefna má nokkrar helstu nýjungar þeirra, svo sem nýja hönnun hús- anna sem minnka loftmótstöðu um 5-7% og lækkar eldsneytisnotkun um 1%. Loftfjöðrun á húsi er nú staðalbúnaður. Þá má nefna nýtt mælaborð og nýjar innréttingar og möguleika á að fá innbyggðan sima með handfrjálsan búnað og fjarstýringu í stýri. Einnig er hægt að fá bilbelti innbyggð i sæti. Nýjar vélar era D9 í FM9 útfærslunum, fjórar mis- munandi útfærslur frá 260 til 380 ha. Ný D12 vél er i boði í Volvo FM12 og FH12, fáanleg frá 340 til 500 ha. útfærslum. I-Shift er ný tölvustýrð „intelligent" gír- skipting. Girkassinn er um 70 kg léttari og 150 mm styttri en hliðstæð handskipting. Allar gerðir era með loftfjöðrum að aftan og diska- hemla sem staðalbúnað. -SHH Bíll Ragnars og Ásgeirs er meö ökumannshús meö skrifstofuaöstööu. Snemma árs kemur ný Astra - aö flestu leyti nýr bíll og gjörbreytt útlit. Nýjar kynslóðir Golf og Astra Volkswagen Golf og Opel Astra seljast ekki eins vel heima í Þýskalandi eins og verið hefur - og framleiðendur hafa vonast eftir. Ýmsu er um kennt: A-lína Mercedes Benz hefur vissulega tekið sinn skerf og erlendir keppinautar eins og Peugeot 307 og Renault Scenic líka; hvað Astra áhrærir hafa Opelkaupendur í vaxandi mæli frekar tekið Zafira heldur en hefðbundna Östru. En Volkswagen og Opel leggjast ekki í vol og víl yfir Fimmta kynslóö Golf væntanleg á næsta ári - nýtt út- lit og fjölnotabíll í línunni frekar en langbakur. þessu heldur taka sér til fyrirmyndar spakmæli Ólafar ríku á Skarði: „Eigi skal gráta Bjöm bónda heldur safna liði.“ Hjá Volkswagen hafa menn séð að það vom mistök að ráðast ekki til atlögu við Renault (Scenic) og Opel (Zafira) með litlum fiölnotabíl (MPV) að þessari fyrirmynd frekar en koma með hefðbundna langbaksútgáfu af Golf IV fyrir tveimur árum eða þar um bil, þegar markaðurinn var far- inn að átta sig á hagkvæmni litlu fjölnotabílanna. Með Golf V línunni, sem væntanleg er á næsta ári, á að takast á við þetta og bjóða upp á fjölnotaútgáfu, líklega 7 sæta í ein- hvers konar Zafira-stil. Hjá Opel kemur ný kynslóð Astra snemma árs 2004 - fyrst sem fjögurra dyra fólksbíll en síðar einnig tveggja dyra og verður sá með sportlegra yfirbragði en fjögurra dyra bíllinn. Talið er að langbakur verði ekki í línu nýrr- ar Östrn en að andlitslyfting Zafira verði með yfirbragði nýju Östrunnar þegar þar að kemur. Einnig hefúr flogið fyrir að næsta kynslóð Zafira verði ekki bara með 7 mögu- leg sæti heldur 8. Hvorir tveggja bílamir, frá Volkswagen og frá Opel, verða með fjölbreytt vélaval, ekki síst dísilvéla. Kannski verður þá komin ný reglugerð um dísilbúa á íslandi sem gerir okkur mögulegt eins og öðram Evrópuþjóðum að eiga litla dísilbíla. -SHH Cosworth merkið aftur á bíl frá Ford Þær stórfréttir vora að berast úr bílaheimin- um að Cosworth- nafnið sé á leiðinni aftur inn í fram- leiðslulínu Ford, að þessu sinni á hinn skemmti- lega Ford Focus. Bíllinn, sem verður með 300 hestafla vél, mun þá verða verðugur keppinautur bíla eins og Subaru WRX og Mitsubishi Evo VII. Fær sérhannað fjórhjóladrif Til að keppa við þessa bíla mun Ford setja í hann nýtt fjórhjóladrif með sérhönnuðu mismunadrifi sem leyfir ökumanni að stýra bílnum með bensíngjöfinni. Þetta er gert með því að setja mismunadrifið í miðjan bílinn og verður einnig hægt að stilla það handvirkt þannig að öku- maður getur valið hversu mikið af þessum 300 hestum hann er að senda til afturhjólanna. Þessi bíll verður líklega fyrsti bíllinn frá Ford sem verður takmarkaður við 250 km hámarkshraða, en með þessari 300 hestafla vél sem er búin Garrett-keppnisforþjöppu, á hann að ná hundraðinu á inn- an við fimm sekúndum. Til að ráða við aflið á vélinni fær hann svo sérstyrktan sex gíra kassa. Bíllinn verður byggð- ur á sama undirvagni og næsta kynslóð Focus, og mun þá ekki koma á markað fyrr en árið 2005. Undirvagninn er kallaður P1 og verður hann einnig notaður undir næstu kynslóðir bíla eins og Mazda 3 og Volvo S40. Að sögn heim- ildarmanna á bíllinn að vera undir 1.400 kg að þyngd en samt vera búinn körfustólum úr leðri og geislaspilara til að nefna dæmi. Telja má víst að margir bílaáhugamenn eigi eftir að bíða spenntir eftir Cosworth-merkinu aftan á bíl frá Ford. -NG Hummer H2 á markað Hummer H2 jeppinn sem nýlega var á íslandi við auglýsinga- myndatökur er nú kominn á markað í Bandaríkjunum. Þar kostar hann litlar 4,4 milljónir króna og kann mörgum að finnast það mik- ið, en hafa skal í huga að þetta er einn mesti tor- færubíll sem hægt er að fá og núna á samkeppnishæfu verði. Eftir að Hummer-umboðið á íslandi komst í þrot eru það Bíl- Land Rover hvaö? Fjöörunargeta nýja heimar sem myndu taka við því, Hummersins er ótrúlega mikil. kjósi þeir svo. 2 og 10 á breidd Bíllinn er enn þá stór, þrátt fyrir að hafa minnkað frá herútgáfunni og er 2100 mm á breidd. V8 vélin í bílnum er 310 hestöfl og eyðir heilum 19 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri. Hann er samt snöggur af stað og fer í hundraðið á 10,5 sekúndum og fer upp í 180 km hraða. Það er nokkuð fyrir bíl sem er jafnþungur og lítill vörubíll. Hreyfigeta fjöðruninnar er ótrúlega mik- il og það er nánast ekkert sem stendur í veginum fyrir þessum mikla jeppa. Ein mesta breytingin er þó innandyra í nýja bilnum. Vélarhlífm tekur nú ekki lengur allt plássið í innanrýminu og meira hefur verið lagt upp úr að bólstra sæti og innréttingu. Innköllun á VW Polo bílum Hvorki meira né minna en 120.000 VW Lupo og Polo bifreiðar hafa verið innkallaðar i Bretlcmdi vegna galla í bremsukerfi. VW hefur staðfest að bílar af þessum gerðum framleiddir milli 1998-9 séu sumir með gallaðar bremsuslöngur sem sprungur gætu farið að myndast í. Þetta hefur þó ekki áhrif á bremsumar að öðru leyti en því að loft getur lekið út af hjálparafli kerfisins. Framleiðandinn segir að þetta sé ekki öryggisinnköllun og að ekki sé hætta á alvarlegum bilunum og að engin slys hafi orðið vegna þessa. Að sögn Finnboga Eyjólfssonar, fjölmiðlafulltrúa Heklu, nær innköllunin til 883 bíla hér á landi. Finnbogi lagði áherslu á að hér væri ekki um bráðatilfelli að ræða og sagði að Hekla hefði sent eigendum bílanna bréf vegna þessa. „Við bjóðum fólki að koma við hentugleika og láta skoða bílana og getur fólk gert . það við næstu þjónustuskoðun þess vegna. Ef eitthvað finnst að skiptum við um það og tekur aðgerðin þá ekki nema 25 mínútur,“ sagði Finnbogi. -NG VW Passat Trendline, 1800 cc, 09/00, ek. 27 þ. km, beinskiptur, 17‘ álfelgur, geislaspilari. Verð 1.700.000 Daewoo Nubira st, 1600 cc, 07/00, sjálfskiptur, ek. 30 þ. km, álfelgur, dráttarkúla, vindskeið. Verð 1.290.000 VW Golf 1400 cc Comfortline, 11/98, ek. 36 þ. km, 3 dyra. Verð 1.040.000 Starcraft fellihýsi, 10/98,13 fet, breytt fyrir fslenskar aðstæður, klárt hvert á land sem er. Verð 790.000 BÍLASALAN <S> SKEIFAN • BÍLDSHÖFÐA 10 • S: 577 2800 / 587 1000 www.benni.is Opnunartími: Virka daga 10-19, Laugardaga 11-16 Akureyri: Bilasalan Os, Hjalteyrargötu 10, Sími 462 1430
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.