Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002
DV
Frá Las Vegas
Bandaríska alríkislögreglan FBI rann-
sakar hvort hugsanlega sé veriö aö
skipuleggja árás á skotmörk í spila-
borginni Las Vegas 4. júlí.
Þóttist heyra tal
um árás 4. júlí
Bandaríska alríkislögreglan FBI
tekur alvarlega fullyrðingar manns
nokkurs, sem fæddur er i Líbanon,
um að hann hafi heyrt farsímasam-
tal á arabísku um hugsanlega árás á
Las Vegas á þjóðhátíðardaginn 4.
júlí.
Maður þessi, Michael Hadman,
sagðist hafa heyrt viðmælenduma
tala um „árás“ og um „frelsisdag-
inn“, sem hann ályktaði að ætti við
þjóðhátíðardaginn.
Hadman hafði verið að reyna að
hringja í konu sína úr farsímanum
en náði ekki sambandi. Hann var
um það bil að slíta þegar hann
heyrði samræðurnar á arabísku.
Hann sleit því ekki en hlustaði.
Stríð milli leigu-
bílstjóra frá Dan-
mörku og Svíþjóð
Stríð danskra og sænskra leigu-
bUstjóra tók nýja stefnu á fimmtu-
dagskvöld þegar á annað hundrað
reiðir danskir bUstjórar króuðu
nokkra sænska starfsbræður inni
við Uughöfnina á Kastrup. Dönsku
bUstjóramir hyggja jafnvel á frek-
ari aðgerðir í höfuðborginni.
Dönsku leigubUstjórunum finnst
sem Svíarnir séu að taka af þeim
lifibrauðið, enda hafa sænskir leigu-
bUstjórar farið um 50 þúsund túra
tU Kastrup frá því Eyrarsundsbrúin
var opnuð. Þá segja þeir dönsku að
hinir sænsku séu famir að líta á
Kaupmannahöfn sem eðlUegt at-
vinnusvæði sitt.
Undir allt búlnn
Kjell Magne Bondevik, forsætisráö-
herra Noregs, og stjórn hans eru viö
öllu búin vegna fundar Alþjóöabank-
ans í Ósló eftir helgina.
Óslóarlöggan býr
sig undir ólæti
Norska lögreglan verður meö
mikinn viðbúnað í Ósló í næstu
viku tU að koma í veg fyrir að óeirð-
ir brjótist út á meðan á fundi Al-
þjóðabankans um baráttuna gegn
fátækt í heiminum stendur.
Mótmælendur ítreka að þeir ætii
að fara með friöi en lögreglan hefur
engu að síður þjálfað sig í að taka á
óeirðaseggjum sem kasta bensín-
sprengjum.
Fyrirtækjum hefur verið ráðlagt
aö fjarlægja borð og stóla og annað
lauslegt af gangstéttum og bUastöð-
ur verða bannaöar í miðborginni 24.
tU 26. júni þegar um 300 fræðimenn
og stjómmálamenn hittast á hóteli í
útjaðri Óslóar. KjeU Magne Bonde-
vik, forsætisráðherra Noregs, verð-
ur meðal ræðumanna.
ísraelskir skriðdrekar hleyptu af skotum í Jenín:
Þrír féllu í valinn
á ávaxtamarkaöi
ísraelskir skriðdrekar skutu á
ávaxta- og grænmetismarkað í borg-
inni Jenín á Vesturbakkanum í gær
og drápu þrjá Palestínumenn sem
héldu fyrir misskUning að búið
hefði verið að aflétta útgöngubanni.
Starfsfólk sjúkrahúss i Jenín
sagði að sex ára gamaU drengur, sjö
ára stúlka og fimmtugur embættis-
maður á fræðsluskrifstofu borgar-
innar hefðu faUið i valinn. Að sögn
særðust tuttugu og sex manns í
skothríðinni.
íbúar í Jenín höfðu hætt sér út úr
húsi tU að birgja sig upp af vistum
eftir að skriðdrekar ísraelshers
drógu sig burt úr miðborginni og sá
orðrómur komst á kreik að herinn
hefði aflétt útgöngubanninu sem
sett var á þriðjudag.
ísraelski herinn viðurkenndi síð-
degis í gær að skotið hefði verið fyr-
ir mistök á fólkið og harmaði dauða
barnanna.
REUTERSMYND
Móðir syrgir son sinn
Móöir palestínsks manns, sem ísra-
elskir landnemar drápu í gær, græt-
uryfir líki sonar síns á sjúkrahúsi í
Vesturbakkaborginni Nablus.
ísraelskir hermenn réðust inn í
Jenin á þriðjudag, í kjölfar sjálfs-
morðsárásar í Jerúsalem þar sem
nítján ísraelskir borgarar létu lífið.
Litið er á borgina sem hreiður
hryðjuverkamanna.
Leiðtogar Evrópusambandsins,
sem sitja fund í SevUla á Spáni,
lýstu í gær yfír stuðningi sínum við
þá hugmynd að sem fyrst yrði hald-
in friðarráðstefna mn Mið-Austur-
lönd. Þar vUja leiðtogamir að gerð
verði vel skUgreind tímaáætiun um
pólitíska lausn deilna ísraela og
Palestínumanna.
Búist er við að yfirlýsing þessa
efnis verði samþykkt á leiðtoga-
fundinum einhvem tímann í dag.
Þar lýsa leiðtogamir einnig for-
dæmingu sinni á sjálfsmorðsárás-
um Palestínmnanna en hvetja jafn-
framt ísraelska heinn tU að láta af
hernaðaraðgerðum sínum á her-
teknu svæðunum.
REUTERSMYND
Kaffihúsakeðju mótmælt
Líbanskar konur halda á mótmælaspjöldum þar sem skoraö er á fólk aö sniöganga kaffihúsakeöjuna Starbucks. Mót-
mælin fóru fram fyrir utan eina slíka kaffístofu í Hamragötu í Beirút. Mótmælendurnir saka hiö bandaríska Starbucks
um aö styöja stefnu ísraels í átökunum fyrir botni Miöjaröarhafs.
Sa\
to Israeh
terrorism
Bovcott I
«•
tarbucks h
Bovcott
StavVmcUs
Save a
CV\Wd
■
Norrænir fulltrúar óhressir á leiðtogafundi ESB:
Missa af drykkjuveislum og
bálköstum á Jónsmessunni
Norrænir fuUtrúar á leiðtoga-
fundi Evrópusambandsins í SeviUa
á Spáni eru óhressir með að missa
af Jónsmessugleðskapnum heima
um helgina. Svíar og Finnar hafa
þegar lagt tU aö á næsta ári verði
fundurinn haldinn á öðrum tíma
svo að þeir geti verið með í drykkju-
svaUinu og dansinum sem tíðkast á
þessum árstima.
Bæði Finnar og Svíar hafa skipu-
lagt gleðskap á meðan á fundahöld-
unum i SevUla stendur þar sem þeir
ætla að gæða sér á kartötium, sUd
og jarðarberjum, eins og alsiða er á
Jónsmessunni heima. FuUtrúamir
sögðu þó að það yrði þó aldrei það
sama.
Málefni ólöglegra innflytjenda
voru annars efst á blaði dagskrár
leiðtogafundar Evrópusambands-
landanna fimmtán. Leiðtogunum er
mjög í mun aö grípa tU aðgerða tU
REUTERSMYND
Skrautlegur mótmælandi
Andstæöingar hnattvæöingar létu til
sín heyra í Sevilla í gær. Þar á meö-
al var þessi skrautlega klæddi fýr.
að stemma stigu við auknum
straumi ólöglegra innflytjenda tU
ESB, ef það mætti verða til að draga
úr fylgi kjósenda við öfgasinnaða
hægriflokka sem hafa andúð á út-
lendingum helst á stefnuskrá sinni.
Spánverjar, sem afhenda Dönum
stjómartaumana í ESB um næstu
mánaðamót, hafa faUið frá fyrri tU-
lögum sínum um að beita þau ríki
refsingum sem ekki væru sam-
vinnuþýð í málefnum innflytjenda,
svo mjög er þeim i mun að sam-
komulag náist í SevUla.
Frakkar og Svíar höfðu haldið því
fram að ef aðstoð yrði skorin niður
myndi það bara koma aftan að Evr-
ópuþjóöum. Fátækt myndi einungis
aukast í viðkomandi löndum og þar
með myndi ungt fólk í ríkari mæli
vUja freista þess að komast tU Evr-
ópu þar sem það eygði von um betra
líf en heima.
Lisbeth fengi einn enn
Lisbeth L. Peter-
sen og félagar henn-
ar í Sambands-
flokknum í Færeyj-
um myndu bæta við
sig þingmanni ef
kosið væri nú, að
þvi er fram kemur í
skoðanakönnun
GaUups. Sambandsflokkurinn fengi
níu menn og tæki einn mann frá
Þjóðveldisflokki Hogna Hoydals.
Ekki gin og klauf
Fyrstu rannsóknamiðurstöður
benda tU að svín sem slátrað var í
Englandi á flmmtudag hafi ekki ver-
ið smitað af gin- og klaufaveiki, eins
og óttast var.
Vilja endurreisa búðir
Sameinuðu þjóðimir hvöttu þjóð-
ir heims tU að leggja fram um fimm
mUljarða króna tU að endurreisa
flóttamannabúðimar í Jenín og aðr-
ar sem ísraelar stórskemmdu i árás-
um á dögunum.
Vopnaðir leynihópar
Danskur sagnfræðingur hefur
komist að því að leynUegir vopnað-
ir hópar hafi starfað í Danmörku á
tímum kalda stríðsins og tU loka
síðasta áratugar tU að verjast hugs-
anlegri innrás Sovétríkjanna.
Gegn þjóðernisrembingi
Hópur evrópskra menntamanna
undirritaði í gær áskorun tU evr-
ópskra stjómmálamanna um að
draga úr þjóðernisrembingi og
stemma stigu við uppgangi öfga-
sinnaðra hægrimanna.
Stríðsherrar verði með
Hamid Karzai,
forseti Afganistans,
er undir þrýstingi
að taka stríðsherra
inn í ríkisstjórn
sína, að sögn emb-
ættismanna. Af
þeim sökum átti for-
setinn í viðræðum
við háttsetta embættismenn og
stríðsherra í Kabúl í gær.
Fingralangir í góðærinu
Þótt efnahagurinn í Færeyjum
hafi verið með ágætum undanfarið
eru frændur okkar famir að stela
meira en áður, að því er fram kem-
ur í opinberum tölum.
Innanflokksátök í Siumut
Ófremdarástand
ríkir i danska jafii-
aðarmannaflokloi-
um Siumut vegna
innanbúðardeilna
tveggja fylkinga.
Þeir sem fara fyrir
fylkingunum tveim-
ur eru Jonathan
Motzfeldt, formaður heimastjómar-
innar, Hans Enoksen, formaður
flokksins. Hætta er á að flokkurinn
liðist í sundur vegna þessa.
Bók ekki bönnuð
Franskur dómari neitaði í gær að
fara að beiðni hóps, sem berst gegn
kynþáttafordómum, um að banna
umdeilda bók ítölsku blaðakonunn-
ar Oriönu Fallaci. í bókinni sem svo
mjög hefur farið fyrir brjóstið á
Fransmönnum er gefið í skyn að
með árásunum 11. september hafi
íslamstrúin og múslímar sýnt sitt
rétta andlit.