Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aöstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíö 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins I stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Lýðrœði í stað múra Ekki er grundvallarmunur á þeim viðbjóðslega verkn- aði að fljúga illa fenginni farþegavél á byggingar og sprengja sig í tætlur inni i strætisvagni. Hvorutveggja er óverjandi grimmdarverk sem eðlilegt er að stjórnvöld á hverjum tíma reyni að koma í veg fyrir, enda er eitt helsta hlutverk þeirra, hvar sem er i heiminum, að tryggja ör- yggi almennings. Nýjasta aðferð ísraelsmanna við að verj- ast árásum palestínskra hermdarverkamanna mun hins vegar ekki takast. Og líklega gera illt verra. Nú þegar er einn grátmúr i Jerúsalem. Ekki þarf að reisa fleiri. 350 kílómetra langur múr umhverfis borgina helgu mun sverta enn frekar ímynd israelskra yfirvalda á erlendum vettvangi, enda hafa bylgjur frelsis um heims- byggðina á siðustu árum fremur brotið niður múra kúg- unar og kynþáttahyggju en reist við nýja. Múrar og hindr- anir eru aðeins ný ögrun fyrir morðóða hryðjuverkamenn sem nærast einkum á tvennu, bókstafstrúarofstæki og botnlausu hatri. Friður er eitur í þeirra beinum. Fátt bendir til þess að eitthvað muni draga úr starfi þeirra manna sem telja það heilaga skyldu sína að sprengja sig i loft upp i fjölmenni. Talsmenn Hamas og Ji- had sögðu í gær að þeir myndu halda aðgerðum sínum áfram á meðan „ísraelar ráðast á saklaust fólk“ á heima- stjómarsvæðunum á Gasa og Vesturbakkanum. Þar á bæ spyrja menn einfaldlega. Afhverju mega ísraelsmenn ráð- ast á palestínska borgara i Nablus og Jenin en við ekki ráðast ísraelska borgara i Haifa og Tel Aviv? Þrátt fyrir vargöld síðustu vikna fyrir botni Miðjarðar- hafs eru nokkur teikn á lofti um að áherslur séu að breyt- ast. Það kveður við nýjar raddir úr reykmekkinum. Fimmtíu palestínskir áhrifamenn með Hanan Ashrawi í fararbroddi hafa á síðustu dögum hvatt alla Palestínu- menn, hvar í flokki sem þeir standa, til að hætta þegar í stað öllum sjálfsmorðsárásum, enda skili þær engum til- gangi öðrum en þeim að sverta málstað araba í þessum heimshluta. Mikilvægt er að tekið verði undir þessi nýju sjónarmið. Sjálfsmorðsárásir síðustu vikna og mánaða hafa ekki skilað Palestínumönnum neinum árangri öðrum en þeim að plássum fækkar í grafreitum gyðinga og araba. í reynd hafa palestínskir öfgamenn farið svo heiftarlega yfir strik- ið í árásum sínum á síðustu dögum að samúð Vesturlanda með málstað deilenda er byrjuð að snúast við. Augljóst var fyrir fáum mánuðum að ísraelsstjóm var komin upp að vegg með hrottafengnum stríðsglæpum sinum. Nú eru Hamas og Jihad við sama vegginn. Almenningur hefur á siðustu dögum horft upp á hvert grimmdarverkið af öðru á götum ísraels. Öfgafyllstu hermdarverkasamtökin á svæðinu, svo sem Hamas og Ji- had, ætla greinilega að halda áfram að berja höfðinu við steininn og senda fletri sprengjumenn í israelska strætis- vagna og aðra þá staði þar sem fjölmennis er að vænta. Þessi samtök vita sem er að vegur þeirra minnkar ef draga fer úr átökum á svæðinu. Það er beinlínis þeirra hagur að skapa sem mestan ótta og hrylling. Löngu er orðið ljóst að líkurnar á friði í Miðausturlönd- um munu ekki aukast fyrr en Palestínumenn fá að stofna sjálfstætt riki sitt á heimastjórnarsvæðunum. ísraels- menn hafa þegar eignast land á þessu stríðshrjáða svæði og þeir ættu að vita það öðrum betur að landareign skipt- ir þjóðir sköpum. Þeirra mesti fengur i framtíðinni er klárlega stofnun sjálfstæðs lýðræðisríkis Palestínumanna. Þeir eiga að berjast með Ashrawi og hennar fólki á þeirri braut fremur en að reisa múra á milli þjóða. Sigmundur Ernir DV Rokkað á tertíer Jónas Haraldsson aðstoöarritstjóri auk Kris hefði ég keypt Roy Orbi- son og Bob Dylan til þess að hafa í bílnum. Allir væru þeir góðir fulltrú- Laugardagspistili „Á ég ekki að skella Kris á?“ spurði ég þar sem við ókum aust- ur Tryggvagötuna. Útvarpið Vcir að drepa okkur úr leiðindum. Yngri sonur minn sat við hliðina á mér og sambýliskona hans í aft- ursæti bílsins. „Kris“, sagði unga konan aftur í, „hver í ósköpunum er það?“ Lék hann ekki einhvem tíma i biómynd?" skaut strákur- inn að og nefndi líklega kvik- mynd. „Kris Kristofferson þekkja allir,“ sagði ég, „hann er frægur söngvari. Þú hlýtur að þekkja lögin hans,“ bætti ég við og nefndi nokkur: „Why Me“, til dæmis, sagði ég og tók síðan tón- dæmi og söng svo sem eitt er- indi tímabilinu. Meðvitund mín var hins vegar ágæt þótt tónarnir væru ljúfir. Ég kaus hins vegar að láta sem ég hefði ekki heyrt athugasemdina. Kris lauk við lagið en áður en ég hleypti sambýlingunum út skaut ég Roy Orbison í bíl- tækið. Hann söng lagið um fallegu konuna, „Oh Pretty Woman“. Réttur samanburður „Ætli sé ekki rétt að setja góðan disk á,“ sagði ég á laugardagskvöldið, nokkrum dögum eftir bíltúrinn með unga parinu. Sambýling- amir voru þá í heim- sókn í foreldra- húsum með öðmm bömum okkar hjóna og tengda- börn- klassíkemum „Help Me Make It Through the Night". Þetta gerði ég með nokkrum tilþrifum þarna í miðbænum og hamraði um leið á stýrið en varð þess um leið var að sonur minn skrúfaði upp rúð- una sín megin. Ég lét sem ég tæki ekki eftir þeirri aðgerð og hélt áfram: „Hann samdi líka og söng „Me And Bobby McGee“ árið 1971 en Janis Joplin gerði það nokkru síðar heimsfrægt með sinni rámu rödd.“ Kris, Roy og Bob Um leið og ég beygði norður Pósthússtræti leit ég út undan mér á unga fólkið eftir þessa sjálf- sögðu fræðslu. Strákurinn horfði til hafs en unga konan gat ekki leynt undrun sinni. „Janis Joplin?“ át hún upp eftir mér. Meira þurfti ekki að segja. Hún kannaðist ekki við þá drottningu fremur en kónginn Kris. Efa- semdimar um tengdaföðurinn voru greinilegar og augljóst að tónlistarsmekkurinn var henni framandi. „Ég fór í stóra plötubúð þegar ég var úti um daginn og fjárfesti i Kris og fleiri öruggum númer- um,“ hélt ég áfram og lét sem ég sæi ekki svip ungu konunnar. „Þú átt eftir að læra að meta þá traustu stúdenta,“ sagði ég og greindi henni um leið frá því að tíma en um leið sígildir. Þvi væri nauðsynlegt að eiga í þeim at- hvarf á skemmri og lengri leið- um, þegar ekkert væri að hafa á útvarpsstöðvunum. Fastur í forsögulegu Ég ók Kalkofnsveginn og Hverf- isgötuna síðan til austurs. Kris kirjaði í bíltækinu, söng ýmist eða talaði textann, dimmraddað- ur og karlmannlegur en röddin nokkuð viskilegin. Blandan var fin. Aksturinn mildaöist við ljúfa tónana. Hann kláraði „Just The Other Side of Nowhere“ og raulaði síðan í gegnum „To Beat The Devil“. Unga parið var þögult og ég mat það svo að þau væru í sömu leiðslu og ég, nytu Kris inn að beini. Þá heyrði ég það sem ég átti væntanlega ekki að heyra. Unga konan hallaði sér að sam- býlismanni sínum og syni mínum og hvíslaði: „Pabbi þinn er fastur í einhverju „prehistoric" rokki. Heyrirðu hvað hann býður okkur upp á? Eigum við ekki að drífa okkur heim áður en hann tapar öllu jarösambandi? Ég þoli þetta ekki öllu lengur. Hvemig getur hann keyrt, hálfmeövitundarlaus undir þessu gauli?“ í lauslegri þýðingu má segja að stúlkan hafi metið þaö svo að fað- ir unga mannsins hefði helst smekk fýrir tónlist frá tertíer-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.